Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fimmtán greinst í tengslum við hópsýkingu á lyflækningadeild Sex sjúklingar og níu starfsmenn hafa greinst með Covid-19 á lyflækningadeild B7 á Landspítalanum í Fossvogi á síðustu dögum þar sem nokkuð útbreidd hópsýking er komin upp. 24.1.2022 14:04
GRÓ skólarnir störfuðu með nokkuð eðlilegum hætti þrátt fyrir heimsfaraldur Öllum skólunum fjórum sem starfa á vegum GRÓ Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu tókst að halda starfi sínu áfram á síðasta ári með nokkuð eðlilegum hætti og taka á móti nemendum í sex mánaða þjálfunarnámið, þrátt fyrir ýmsar áskoranir tengdar COVID-19 heimsfaraldrinum. 24.1.2022 14:01
Lögreglumaður fær ekkert eftir að staða hans var auglýst vegna ítrekaðra kvartana Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af rúmlega 140 milljóna króna kröfu lögreglumanns eftir að skipun hans var ekki framlengd og staða hans auglýst laus til umsóknar. 24.1.2022 13:22
Nokkrir særðir eftir skotárás í þýskum háskóla Mikill viðbúnaður er við háskólann í Heidelberg í Þýskalandi eftir að maður vopnaður skotvopni skaut á hóp nemenda í fyrirlestrarsal í skólanum. Nokkrir eru særðir að sögn lögreglu. 24.1.2022 13:17
Finnskur þingmaður sóttur til saka vegna ummæla um samkynhneigða Finnskur þingmaður og fyrrverandi innanríkisráðherra mætti fyrir dóm í dag, ákærður fyrir hatursorðræðu gegn samkynhneigðum. Málið snýst um athugasemdir sem þingmaðurinn lét falla um að samkynhneigð væri þroskaröskun og synd. 24.1.2022 13:08
„Þetta er hún kæra móðir mín sem ég man ekki eftir að hafi blótað nokkru sinni“ Kjartan Jónsson framkvæmdastjóri og kennari segist ekki reka minni til þess að móðir hans, sem leikur í umdeildri auglýsingu Kjarnafæðis þar sem blótsyrði eru höfð uppi, hafi nokkru sinni blótað. „Þetta er hún kæra móðir mín sem ég man ekki eftir að hafi blótað nokkru sinni,“ segir Kjartan á Facebook-síðu sinni. 24.1.2022 12:57
Óttast skipsbrot rétt undan landi Lítil fyrirtæki í ferðaþjónustu sjá fram á skipsbrot rétt undan landi komi stjórnvöld ekki til móts við þau. Talskona fimm hundruð fyrirtækja samstöðuhóps furðar sig á því að styrkir vegna tekjufalls veitingastaða í samkomutakmörkunum nái ekki einnig til þeirra þar sem afbókanir hafi streymt inn. 24.1.2022 12:35
Fastur í skurði með óvirkan síma eftir bílveltu Ökumaður bíls sem valt á Bugavegi í Rangárþingi ytra í síðustu viku sat fastur í skurði í klukkutíma, þar sem hann gat ekki látið vita af sér. 24.1.2022 12:20
Leggur til breytingar á sóttkví í dag og telur hugmyndir Kára ágætar Sóttvarnalæknir hyggst leggja til tilslakanir á reglum um sóttkví í vikunni og afléttingar á samkomutakmörkunum í þeirri næstu. Hann segir hugmynd Kára Stefánssonar um að afnema sóttkví og einangrun ekki svo vitlausa en telur þó skynsamlegra að gera það í skrefum. 24.1.2022 12:11
Portúgalski flugherinn til Íslands til að sinna loftrýmisgæslu Flugsveit portúgalska hersins mun koma hingað til lands í vikunni til þess að hefja loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins. Flugsveitin mun koma hingað til lands með fjórar orrustuþotur og um 85 liðsmenn. 24.1.2022 12:11
„Þarna er ekki verið að flytja boðskap sem ég tek undir“ Formaður Sjálfstæðisflokksins segir Arnar Þór Jónsson varaþingmann flokksins ekki vera að tala fyrir stefnu flokksins í starfi sínu fyrir samtökin Ábyrgð og frelsi. Arnar Þór hefur meðal annars lýst miklum efasemdum um að börn séu sprautuð með því sem hann kallar tilraunaefni. 24.1.2022 11:33
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni og hann inntur álits á því hvenær og hvernig skuli draga úr takmörkunum í samfélaginu. 24.1.2022 11:30
Saga Piusar vakti áhuga á alþjóðlegu hjálparstarfi Pius Mugami Njeru fyrrverandi nemandi og núverandi starfsmaður ABC barnahjálpar í Kenía kom hingað til lands í lok síðasta árs til þess að segja sögu sína og kynna fyrir nemendum á Íslandi árangur af alþjóðlegu hjálparstarfi og þróunarsamvinnu. 24.1.2022 11:17
Vill að hetjan úr Hótel Rúanda verði dæmd í lífstíðarfangelsi Saksóknari í Rúanda hefur farið fram á að dómur yfir Paul Rusesabagina, hetjunni úr kvikmyndinni Hótel Rúanda, verði þyngdur í lífstíðardóm. Rusesabagina var dæmdur í 25 ára fangelsi í september fyrir hryðjuverk. 24.1.2022 11:06
Lögreglan rannsakar mál skipstjórans á Herjólfi Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur hafið rannsókn á máli skipstjóra sem hélt áfram að sigla Herjólfi eftir að atvinnuréttindi mannsins runnu út rétt fyrir jól. 24.1.2022 11:00
1.151 greindust innanlands í gær 1.151 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 145 á landamærum. 24.1.2022 10:57
Játaði að hafa rænt fjögurra ára ástralskri stúlku Ástralskur karlmauður á fertugsaldri hefur játað að hafa rænt fjögurra ára gamalli stúlku og halda henni fanginni í átján daga síðasta haust. 24.1.2022 10:39
Gagnrýnir valdaleysið og segir af sér sem forseti Armen Sarkissian, forseti Armeníu, sagði af sér embætti gær. Hann gagnrýndi meðal annars valdaleysi embættisins og óánægju með ákvarðanir teknar í tengslum við deilur landsins og Aserbaídsjans. 24.1.2022 10:38
Berserkurinn á Reykjanesbrautinni hnepptur í varðhald Maður sem grunaður er um að hafa gengið berskerksgang á Reykjanesbraut í síðustu viku var úrskurðaður í gæsluvarðhald um helgina. 24.1.2022 10:16
Smitaður eftir rómantík með frúnni í útlöndum Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur greinst smitaður af kórónuveirunni. 24.1.2022 09:56
Sjúklingum á Landspítala með Covid-19 fjölgar milli daga 38 sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19. Fjórir eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél. 24.1.2022 09:53
Willum boðar afléttingaráætlun Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra vinnur nú að aðgerðaáætlun um afléttingar á sóttvarnaaðgerðum og á von á því að hún verði kynnt fyrir lok vikunnar. Núgildandi samkomutakmarkanir gilda til 2. febrúar. 24.1.2022 09:34
Danski þjóðarflokkurinn kominn með nýjan formann Danski þingmaðurinn Morten Messerschmidt var í gær kjörinn formaður Danska þjóðarflokksins (d. Dansk Folkeparti). Hann tekur við stöðunni af Kristian Thulesen Dahl sem hætti í kjölfar bágrar niðurstöðu flokksins í sveitarstjórnarkosningunum í nóvember. 24.1.2022 08:04
Hefja réttarhöld yfir hinum lögreglumönnunum í máli George Floyd Búist er við því að réttarhöld yfir þremur bandarískum lögreglumönnum, sem ákærðir eru fyrir að hafa svipt George Floyd borgaralegum réttindum sínum daginn sem hann var myrtur af fjórða lögreglumanninum, hefjist í dag. 24.1.2022 07:46
Fimm „vel hæfir“ umsækjendur verið teknir í viðtöl í ráðuneytinu Fimm umsækjendur um stöðu forstjóra Landspítala, sem taldir eru „vel hæfir“ af hæfnisnefnd, hafa verið teknir í viðtöl í heilbrigðisráðuneytinu. Ekki er útilokað að fleiri viðtöl verði tekin svo ráðningarferlinu er ekki lokið. 24.1.2022 07:25
Stjórnvöld segja valdarán ekki yfirvofandi Skothvellir heyrðust víða í nótt í Afríkuríkinu Búrkína Fasó. Meðal annars hefur skotum verið hleypt af í grennd við forsetahöll landsins en ríkisstjórnin segir þó að valdarán sé ekki yfirvofandi. 24.1.2022 07:14
MG þrefaldaði söluna í Evrópu Mikill vöxtur var í starfsemi sölu- og markaðsmála bílaframleiðandans MG í Evrópu á síðasta ári, þar sem þreföldun varð í bíla miðað við 2020 og 67% fjölgun á sölu- og þjónustuumboðum. Sambærilegur vöxtur var í sölu MG hér á landi, þar sem 200 bílar voru nýskráðir samanborið við 62 árið 2020. 24.1.2022 07:00
Laumufarþegi lifði af langt ferðalag í lendingarbúnaði Lögreglan í Hollandi fann í gær laumufarþega um borð í flutningaþotu frá Cargolux sem hafði flogið frá Suður-Afríku til Schiphol flugvallar í Amsterdam með millilendingu í Nairóbí í Kenýa. 24.1.2022 07:00
Skerðing hjá Strætó vegna sóttkvíar og einangrunar Áætlun leiðar númer 3 hjá Strætó verður skert í dag, mánudag. Í stað þess að aka á 15 mínútna fresti yfir háannatímann verður ekið á hálftíma fresti allan daginn. Ástæðan er fjöldi vagnstjóra í sóttkví eða einangrun. 24.1.2022 06:55
Skipa fjölskyldum sendiráðsstarfsfólks að yfirgefa Úkraínu Bandaríkjamenn hafa fyrirskipað fjölskyldum þeirra sem starfa í sendiráði Bandaríkjanna í Úkraínu að yfirgefa landið. 24.1.2022 06:45
Allt niður í tíu stiga frost Búast má við suðvestanátt á landinu í dag, þremur til tíu metrum á sekúndu, í dag. Skýjað með köflum, stöku él suðvestantil en annars þurrt að kalla. Frost á bilinu núll til tíu stig, kaldast í innsveitum. 24.1.2022 06:32
Grunaður um ofsaakstur undir áhrifum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann bifreiðar eftir hraðamælingu á Reykjanesbraut í Kópavogi á ellefta tímanum í gærkvöldi. Bifreiðin mældist á 46 kílómetra hraða yfir hámarkshraða, sem er 80 kílómetrar á klukkustund, og er ökumaðurinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. 24.1.2022 06:21
Mótmæltu aðgerðum stjórnvalda í friðargöngu Alþjóðleg friðarganga var haldin í miðbænum í dag á vegum samtakanna Frelsis og ábyrgðar. Þau samtök hafa gert margvíslega athugasemdir við framkvæmdir stjórnvalda í málefnum faraldursins, meðal annars við bólusetningu barna. Á meðal þeirra sem tóku til máls er Ágústa Eva Erlendsdóttir, sem hefur áður boðað til mótmæla vegna bólusetninga barna í gegnum samfélagsmiðla. 23.1.2022 23:30
Þór gefur kost á sér í fyrsta sæti á Seltjarnarnesi Þór Sigurgeirsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. 23.1.2022 22:19
Banna drónaflug eftir banvæna árás Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafa bannað drónaflug til afþreyingar í landinu eftir að litlir drónar voru notaðir til að sprengja þrjá olíubíla í loft upp á dögunum. 23.1.2022 22:03
Farga milljónum bóluefnaskammta þrátt fyrir lágt bólusetningarhlutfall Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar við því að ríki heims einblíni á að tryggja ríkisborgurum sínum örvunarskammta af bóluefninu gegn Covid-19. Frekar eigi að einblína á að tryggja öllum heimsbúum grunnbólusetningu til að stemma stigu við frekari þróun veirunnar. 23.1.2022 21:56
Rúmur áratugur í Súðavíkurgöng samkvæmt áætlunum Innviðaráðherra segir verið að skoða að stofna opinbert félag um jarðgangagerð að færeyskri fyrirmynd. Þannig yrði hægt í samvinnu við aðra að grafa göng á fleiri stöðum í einu með innheimtu veggjalds. Forgangsverkefnin í vegakerfinu séu mörg og brýn. 23.1.2022 20:36
Forsendur harðra takmarkana séu brostnar Fjármálaráðherra telur forsendur fyrir hörðum samkomutakmörkunum brostnar. Í vikunni verði unnið að útfærslu afléttingaráætlunar. 23.1.2022 20:11
Endalok faraldursins í Evrópu séu í nánd Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin telur að í mars muni sex af hverjum tíu Evrópubúum hafa smitast af kórónuveirunni. Því nálgist endalok faraldurs hennar í álfunni. 23.1.2022 19:42
Willum stefnir á eigið frumvarp um neysluskammta Heilbrigðisráðherra stefnir á að leggja fram eigið frumvarp um lögleiðingu neysluskammta ávana- og fíkniefna á yfirstandandi þingi. Þó komi til greina að semja um innihald frumvarps sem þingflokksformaður Pírata mælti fyrir á Alþingi í vikunni. 23.1.2022 19:09
Náðu toppi Aconcagua Arnar Hauksson fjallamaður og Sebastian Garcia leiðsögumaður hans náðu toppi Aconcagua nú rétt upp úr klukkan sex. Fjallið er hæsta fjall heims utan Asíu. 23.1.2022 18:55
Fer fram á bætur vegna brottreksturs úr Allir geta dansað Javier Fernández Valiño, hefur stefnt RVK Studios til greiðslu eftirstöðva samnings sem gerður var við hann þegar hann var einn atvinnudansara í þáttunum Allir geta dansað. Javi, eins og hann er kallaður, var á sínum tíma látinn fara frá þáttunum „vegna óviðráðanlegra aðstæðna.“ 23.1.2022 18:39
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjármálaráðherra telur forsendur fyrir hörðum samkomutakmörkunum brostnar. Í vikunni verði unnið að útfærslu afléttingaráætlunar. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 auk þess sem við ræddum við fólk sem tók þátt í svokallaðri alheimsfriðargöngu gegn sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda. 23.1.2022 18:20
Enginn hefur þurft á gjörgæslu eftir örvunarskammt Enginn sem þegið hefur örvunarskammt bóluefnis við Covid-19 hefur þurft að leggjast inn á gjörgæslu vegna sjúkdómsins. Þá eru líkur á innlögn 85 ára einstaklings, sem hefur þegið örvunarskammt, þær sömu og 57 ára óbólusetts einstaklings. Þetta segir í niðurstöðum Covid-19 rannsóknarhóps Landspítala. 23.1.2022 18:09
Harðir bardagar eftir flótta ISIS-liða Harðir bardagar hafa geisað í norðausturhluta Sýrlands eftir að fjölda ISIS-liða tókst að strjúka úr fangelsi sem sýrlenskir Kúrdar hafa rekið. Fangelsið hýsti um það bil 3.500 ISIS-liða og hefur gert lengi en meðal fanganna voru nokkrir af leiðtogum Íslamska ríkisins. 23.1.2022 17:07