Bílar

MG þrefaldaði söluna í Evrópu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
MG fjölskyldan
MG fjölskyldan

Mikill vöxtur var í starfsemi sölu- og markaðsmála bílaframleiðandans MG í Evrópu á síðasta ári, þar sem þreföldun varð í bíla miðað við 2020 og 67% fjölgun á sölu- og þjónustuumboðum. Sambærilegur vöxtur var í sölu MG hér á landi, þar sem 200 bílar voru nýskráðir samanborið við 62 árið 2020.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í fréttatilkynningu frá BL, umboðsaðila MG á Íslandi.

Marvel R vinsæll

Mest seldi MG-inn á Íslandi á síðasta ári var rafbíllinn ZS EV, en hann var jafnframt fyrsti bíllinn sem núverandi eigandi merkisins markaðssetti í Evrópu í júní 2020. Næst söluhæstur var tengiltvinnbíllinn EHS og loks kom nýjasta afurðin frá MG; rafbíllinn Marvel R, sem raunar hafði bara síðasta mánuð ársins til að keppa við fjölskyldubílana ZS og EHS. Það gerði hann glimrandi vel því alls voru 49 slíkir nýskráðir á þeim u.þ.b. 30 dögum sem voru til loka ársins.

MG5

MG5 fyrsti rafknúni skutbíllinn

Mikil eftirspurn hefur verið eftir Marvel R meðal landsmanna frá því að hann var kynntur og segja söluráðgjafar BL að spennandi verði að sjá þróunina á þessu ári, því ásamt vinsældum Marvel R er nýr bíll í viðbót væntanlegur frá MG á þessu ári. Sá verður jafnframt fyrsti 100% rafknúni skutbíllinn (station) á bílamarkaðnum. Það er MG5 Station Wagon, sem mikils er vænst af vegna rýmisins sem höfða mun til margra, ekki síst barnafjölskyldna. MG5 verður kynntur í helstu markaðslöndum Evrópu í mars og er væntanlegur til BL í júní.

Hér má sjá myndband frá REC Anything um MG5.

MG á Evrópumarkaði

Á síðasta ári nýskráði MG 52.546 bíla í Evrópu, flesta af gerðinni ZS, og var Frakkland helsti markaður framleiðandans í álfunni. Þegar MG Motor Europe kom inn á Evrópumarkað 2019 voru Bretland, Írland og Malta ásamt Hollandi markaðslöndin og nýskráði um tvö þúsund bíla fyrstu tvo mánuðina. Í kjölfarið tóku umboð MG til starfa í Noregi 2020 sem gerði MG ZS EV fljótlega að einum af tíu mest seldu bílunum í löndunum þar sem MG var í boði. Sama gerðist þegar umboð opnaði í Danmörku fáum mánuðum eftir Noregi. Síðar á sama ári tóku umboð MG til starfa á Íslandi, í Belgíu, Lúxemborg, Austurríki og Frakklandi og á síðasta ári einnig í Þýskalandi, á Spáni, Ítalíu, Portúgal og Svíþjóð. MG starfar nú í sextán Evrópulöndum og starfa nú um 400 sölu- og þjónustuaðilar fyrir MG í Evrópu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×