Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fá Nóbelinn í eðlisfræði fyrir loftslagsrannsóknir Bandaríkjamaðurinn Syukuro Manabe, Þjóðverjinn Klaus Hasselmann og Ítalinn Giorgio Parisi hafa fengið Nóbelsverðlaun í eðlisfræði í ár fyrir smíði líkana og loftslagsrannsóknir sínar. 5.10.2021 09:58
Frjósemi íslenskra kvenna 1,71 barn árið 2020 Sögulega séð hefur frjósemi á Íslandi verið meiri en í nágrannalöndunum en nú er svo komið að hún er næstum því sú sama á Íslandi og í Danmörku og Svíþjóð, eða í kringum 1,7 börn á hverja konu. 5.10.2021 09:58
Leikkona og leikstjóri á leið til geimstöðvarinnar Rússneskri leikkonu, leikstjóra og geimfara var skotið af stað til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar í morgun. Geimskotið heppnaðist vel og eru geimfararnir þrír á leið til geimstöðvarinnar þar sem þau Yulia Peresild og Klim Shipenko munu taka upp fyrstu kvikmyndina í geimnum. 5.10.2021 09:33
Stálu kampavínsflöskum og sprautuðu úr þeim í loftið Lögreglan á Suðurnesjum fékk á dögunum tilkynningu um þjófnað og skemmdarverk á hóteli í umdæminu en nokkrir menn höfðu þar meðal annars stolið kampavínsflöskum og sprautað úr þeim upp í loftið. 5.10.2021 09:19
Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Sænska vísindaakademían mun í dag tilkynna um hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í ár. 5.10.2021 09:16
Hyggjast höfða mál gegn Icelandair vegna uppsagnar trúnaðarmanns Mál verður höfðað fyrir Héraðsdómi og Félagsdómi vegna uppsagnar trúnaðarmanns hlaðmanna Icelandair á Reykjavíkurflugvelli. Þá verður athygli almennings vakin á framgöngu fyrirtækisins og Samtaka atvinnulífsins í málinu. 5.10.2021 09:03
Engar tilkynningar um skriður en áfram hreyfingar á mælum Enn hafa engar tilkynningar borist um aurskriður á Seyðisfirði, en áfram sýna mælar fram á hreyfingu í fjallinu. 5.10.2021 08:46
Vann 699 milljónir dala í Powerball-lottóinu Stóri potturinn í bandaríska Powerball-lottóinu gekk loksins út í nótt. Þetta var í fyrsta sinn síðan 5. júní síðastliðinn þar sem potturinn gekk út og var hann kominn upp í heilar 699,8 milljónir dala, um 90 milljarða króna. 5.10.2021 08:24
Fella úr gildi ákvörðun Voga um að hafna leyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Sveitarfélagsins Voga um að hafna framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 sem Landsnet hyggst reisa. 5.10.2021 08:11
Salernum stolið í Garðabæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti margvíslegum verkefnum í gærkvöldi og nótt. Hún var meðal annars kölluð til rétt fyrir miðnætti þar sem tveir höfðu ráðist á einn í Hlíðahverfinu. Mennirnir unnu einnig skemmdir á bifreið viðkomandi en voru á brott þegar lögregla kom á vettvang. 5.10.2021 08:06
Erfitt að opna íþróttirnar fyrir öllum og tryggja sanngirni á sama tíma Regnhlífasamtök íþróttahreyfinga á Bretlandseyjum hafa komist að þeirri niðurstöðu að líklega verða þau sem fara með boðvaldið yfir einstaka íþróttagreinum að ákveða hverju þau ætla að forgangsraða; sanngirni og öryggi eða að gera öllum kleift að taka þátt. 5.10.2021 07:35
Auðjöfrar festa kaup á dýrum fasteignum í gegnum aflandsfélög Pandóraskjölin halda áfram að leiða ýmislegt í ljós sem ekki lá fyrir áður, en um er að ræða milljónir skjala frá aflandseyjum víðsvegar um heiminn. 5.10.2021 07:26
Dálítil rigning syðst og stöku él norðaustantil Veðurstofan spáir norðaustlægri átt í dag, yfirleitt golu eða kalda og þurru veðri, en dálítilli rigningu syðst og stöku éljum norðaustantil. 5.10.2021 07:04
Síðasti stóri kom rétt fyrir miðnætti Síðasti stóri skjálftinn á Reykjanesskaga í grennd við Keili kom rétt fyrir miðnættið. Sá mældist þrjú stig en síðan þá hefur verið heldur rólegra á svæðinu og engir skjálftar hafa náð tveimur stigum. 5.10.2021 06:57
Krefjast þess að Icelandair dragi uppsögn trúnaðarmanns til baka Forsvarsmenn Eflingar fara fram á að uppsögn hlaðmanns hjá Icelandair verði dregin til baka.Umræddur hlaðmaður, Ólöf Helga Adolfsdóttir, var trúnaðarmaður í hlaðdeild Icelandair á Reykjavíkurflugvelli og átti í viðræðum við fyrirtækið um réttindi starfsfólks þegar henni var sagt upp störfum. 5.10.2021 06:48
Gæslan bjargar fjórum skipverjum eftir strand við Æðey Landhelgisgæslan kom fjórum skipverjum til bjargar í nótt eftir að skúta þeirra strandaði við Æðey í Ísafjarðardjúpi. Fjórmenningarnir voru hífðir um borð í þyrlu Gæslunnar um klukkan tvö í nótt og flogið með þá til Ísafjarðar til aðhlynningar. 5.10.2021 06:15
Ellefu mánaða skilorðsbundinn dómur fyrir líkamsárás og fyrri brot Karlmaður hefur verið dæmdur til ellefu mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir líkamsárás á Akureyri. Um er að ræða eins mánaðar hegningarauka við fyrri tíu mánaða dóm sem maðurinn hlaut í mars síðastliðnum. 4.10.2021 22:54
Þingmaður segir að Saab-inn hafi alltaf verið bíll fyrir „sérvitringa“ Þingmaðurinn Tómas Tómasson keyrir um á sjaldgæfum Saab bíl. Bíllinn vekur athygli á götum borgarinnar og er að sögn eigandans ökutæki fyrir sérvitringa. 4.10.2021 21:31
Bronsið í stærstu vaxtarræktarleikum heims er bara byrjunin Íslendingur sem vann til bronsverðlauna í einni stærstu vaxtarræktakeppni heims er gríðarlega sáttur með árangurinn. Hann stefnir að sjálfsögðu að gullinu á næsta ári. 4.10.2021 21:15
Facebook komið aftur í loftið eftir verstu truflun í þrettán ár Þjónusta fimm miðla samfélagsmiðlarisans Facebook komst aftur í gang eftir um sex klukkustunda truflanir skömmu fyrir klukkan 22:00 i kvöld. Truflunin á þjónustunni var sú mesta á Facebook frá árinu 2008. 4.10.2021 21:08
Hópur Íslendinga handtekinn í Kaupmannahöfn Hópur Íslendinga var handtekinn vegna líkamsárásar í Kaupmannahöfn um miðjan síðasta mánuð. Tveir þeirra hafa verið í haldi í rúmar tvær vikur vegna gruns um alvarlega líkamsárás og einn hefur þegar verið kærður. 4.10.2021 20:54
Biden segir repúblikana í „rússneskri rúllettu“ með hagkerfið Repúblikanar á Bandaríkjaþingi bera ábyrgðina á því ef ríkissjóður Bandaríkjanna getur ekki staðið við skuldbindingar sínar síðar í þessum mánuði, að sögn Joes Biden Bandaríkjaforseta. Flokkarnir tveir deila enn hart um svonefnt skuldaþak sem verður að hækka ef Bandaríkin ætla ekki að lenda í sögulegum vanskilum. 4.10.2021 20:20
90 ára og stendur á haus alla daga Óskar Hafsteinn Ólafsson, níræður íbúi á Selfossi kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að því að halda sér í góðu formi. Einn hluti af því er að standa á haus í fjórar til fimm mínútur alla morgna. 4.10.2021 20:03
Morgunblaðið hafi ekki valdið saklausum börnum vanvirðu með myndbirtingu Foreldrar tveggja ungra barna sem birtust á mynd við Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins kærðu myndbirtinguna til Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands. Siðanefndin taldi birtinguna ekki hafa verið til þess fallna að valda börnunum óþarfa sársauka eða vanvirðu. 4.10.2021 19:31
Loka leikskólanum Efstahjalla í Kópavogi vegna myglu Leikskólinn Efstihjalli í Kópavogi verður lokaður frá og með morgundeginum vegna myglu og rakaskemmda sem komið hafa í ljós í skólanum. Bæjaryfirvöld segja að starfsemi skólans falli niður í tvo daga meðan unnið er að endurskipulagningu. 4.10.2021 19:08
Málið strandi á skriffinsku, ekki vilja Borgaryfirvöld vinna að því hörðum höndum að starfsemi Skotfélags Reykjavíkur geti haldið áfram í Álfsnesi. Starfsleyfið var óvænt fellt úr gildi í síðustu viku. 4.10.2021 19:01
„Þegar þú horfir á fjallið öskra á þig þá gleymir þú því ekkert“ Hættustigi hefur verið lýst yfir á Seyðisfirði vegna hættu á skriðuföllum. Níu hús hafa verið rýmd og segir björgunarsveitarliði að úrkoman minni fólk óneitanlega á aurskriðurnar sem féllu á bæinn í fyrra. Rýmingar verða áfram í gildi í Kinn og Útkinn vegna skriðuhættu. 4.10.2021 18:55
Fundir kjörbréfanefndar verða ekki allir opnir Fyrsti fundur undirbúningskjörbréfanefndar sem fór fram í dag gekk vel að sögn formanns hennar. Nefndarmenn eru almennt á því að fundir eigi að vera opnir þegar hægt er og vonast til að geta myndað breiða sátt um lausn á ágreiningi um kosningarnar. 4.10.2021 18:52
Segir ótvírætt að þingið hafi lokaorðið um gildi kosninga Formaður undirbúningsnefndar kjörbréfanefndar segir alveg ótvírætt að þingið hafi síðasta orðið um það samkvæmt stjórnarskrá hvort kosningar séu gildar og hvort þingmenn séu rétt kjörnir. 4.10.2021 18:32
Rýmingar enn í gildi í Þingeyjarsveit Ákveðið var að rýmingar bæja í Útkinn í Þingeyjarsveit yrðu áfram í gildi eftir fund almannavarna, lögreglunnar á Norðurlandi eystra og veðurfræðninga nú síðdegis. Enn rignir töluvert á svæðinu en skriður féllu þar í gærkvöldi og nótt. 4.10.2021 18:17
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar í kvöld segjum við frá því að fimm Íslendingar voru handteknir í Kaupmannahöfn um miðjan síðasta mánuð vegna líkamsárásar. Tveir hafa verið í haldi í tvær vikur vegna gruns um alvarlega líkamsárás og einn hefur þegar verið kærður. 4.10.2021 17:39
Hreyfihamlaðir megi leggja í almenn stæði á göngugötum Handhafi stæðiskorts fyrir hreyfihamlaða kvartaði til umboðsmanns Alþingis yfir ákvörðun Bílastæðasjóðs Reykjavíkur um að leggja á hann stöðubrotsgjald. Handhafinn hafði lagt bíl sínum í almennt stæði á göngugötu en Bílastæðasjóður taldi honum aðeins heimilt að leggja í sérmerkt bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða á göngugötu. 4.10.2021 17:32
Rýmingar á Seyðisfirði vegna skriðuhættu Hættustigi almannavarna hefur verið lýst yfir á Seyðisfirði vegna hættu á skriðuföllum og verða níu hús rýmd. Þá hefur umferð um göngustíg meðfram Búðará verið bönnuð á meðan hættustigið er í gildi. 4.10.2021 17:29
Kafteinn Kirk á leiðinni út í geim Leikarinn William Shatner verður meðal farþega í næstu geimferð Blue Origin en hann er á leiðinni út í geim þann 12. október næstkomandi. Shatner staðfesti fréttirnar sjálfur á Twitter í dag. 4.10.2021 16:53
Fólk með bælt ónæmiskerfi fái þriðja skammtinn fyrr Lyfjastofnun Evrópu, EMA, hefur nú hefur nú gefið það út að einstaklingar 18 ára og eldri geti fengið örvunarskammt af bóluefni Pfizer/BioNTech gegn Covid-19. Það er þó í höndum heilbrigðisyfirvalda í hverju landi fyrir sig að ákveða hverjir fá þriðja skammtinn. 4.10.2021 16:07
Vill að blaðamennirnir láti allt flakka Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, er mótfallinn þeirri aðferðafræði aðstandenda Pandora-skjalanna svokölluðu að birta ekki öll gögn lekans eins og þau leggja sig. Í staðinn fær almenningur upplýsingarnar í smáskömmtum í ólíkum fjölmiðlum, eftir því sem þeir vinna úr þeim. 4.10.2021 15:21
Boða rannsóknir vegna Pandóruskjalanna Yfirvöld í að minnsta kosti átta löndum víða um heim hafa tilkynnt að þau muni koma til með hefja rannsókn vegna upplýsinga í Pandóruskjölunum svokölluðu sem birt voru í gær. 4.10.2021 14:57
Kviknaði í rafmagnshjóli við Hjarðarhaga Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að tilkynning barst um að kviknað hafi í rafmagnshjóli fyrir utan Hjarðarhaga 56 í Reykjavík. 4.10.2021 14:52
Mikill olíuleki veldur fiskidauða og umhverfisspjöllum í Kaliforníu Mikill olíuleiki hefur valdið fiskidauða og miklum umhverfisspjöllum í suðurhluta Kaliforníu. Bandarískir fjölmiðlar hafa sýnt myndir af fuglum sem þaktir eru í olíu og þá eru stór mýrasvæði nú sögð menguð. 4.10.2021 14:31
Birgir Ármannsson verður formaður kjörbréfanefndar Birgir Ármannsson var kjörinn formaður kjörbréfanefndar á fyrsta fundi undirbúningsnefndarinnar í dag. Hann hefur gegnt því hlutverki áður og hefur jafnframt langmesta reynslu allra af störfum í nefndinni. 4.10.2021 13:10
Fylgist vel með hömlulausri Danmörku Sóttvarnalæknir telur að fara þurfi hægt í afléttingar en núverandi reglugerð um innanlandsaðgerðir gildir til miðvikudags. Það sé miður að viðburðahaldarar virðist sumir ekki framfylgja reglum um grímuskyldu og fjöldamörk. Þá fylgist hann vel með stöðunni í Danmörku, þar sem um þrjár vikur eru síðan öllum kórónuveiruaðgerðum var aflétt. 4.10.2021 13:07
Siggi nýnasisti látinn Greint er frá andláti þýsks nýnasista í þýskum miðlum í dag, að nafni Siegfried Borchardt. Hann var landsþekktur sem „SS-Siggi“ og hefur löngum verið eitt helsta andlit þýskra nýnasista. 4.10.2021 13:01
Skipta út konu fyrir karl vegna jafnréttissjónarmiða Breyting hefur orðið á vali Framsóknarflokksins í kjörbréfanefnd. Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur hefur verið skipt út fyrir Jóhann Friðrik Friðriksson. 4.10.2021 12:58
Fleiri skriður féllu í nótt Fleiri aurskriður féllu í Þingeyjarsveit í gærkvöldi og nótt. Skriður féllu að bænum Björgum en engir bæir hafa orðið fyrir skriðunum. Almannavarnir funduðu um næstu skref í hádeginu. 4.10.2021 12:58
Dæmd fyrir að hrækja í andlit lögreglumanns Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt konu í þrjátíu daga fangelsi fyrir að hafa hrækt á lögreglumann sem var við skyldustörf í júlí 2020. 4.10.2021 12:40