Fleiri fréttir Birta spálíkun fyrir gasmengun frá gosinu Veðurstofa Íslands hefur gert spálíkan fyrir gasmengun frá eldgosinu í Geldingadal. 21.3.2021 13:52 Erindrekar í Malasíu reknir heim til Norður-Kóreu Erindrekar Norður-Kóreu hafa yfirgefið sendiráð ríkisins í Malasíu og setja stefnuna heim á leið eftir að ríkin tvö slitu opinberum samskiptum. Það var gert eftir að Malasía framseldi grunaðan glæpamann frá Norður-Kóreu til Bandaríkjanna. 21.3.2021 13:12 Stórbrotnar ljósmyndir RAX af eldgosinu Eldgosið í Geldingadal er sagt lítið í samanburði við fyrri eldgos á Íslandi. Engu að síður er um magnað sjónarspil að ræða þar sem náttúrunnar öfl eru að verki og sjón er sögu ríkari. Eldtungurnar frussast upp úr gígunum og logandi hraunið flæðir í stríðum straumum líkt og þeir sem lagt hafa leið sína á vettvang hafa glögglega orðið varir við. 21.3.2021 13:00 Renna búgreinafélögin og búnaðarsamböndin undir Bændasamtökin? Bændur víðs vegar af landinu streyma nú til höfuðborgarinnar því Búnaðarþing hefst á morgun í Bændahöllinni þar sem forsætisráðherra, landbúnaðarráðherra og forseti Íslands flytja ávarp, auk þess sem Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtakanna flytur setningarræðu. Breyting á félagskerfi bænda verður aðal umræðuefni þingsins. 21.3.2021 12:25 Tilkynnt um þjófnað á tveimur heimilum á höfuðborgarsvæðinu Tilkynnt hefur verið um þjófnað á tveimur heimilum í umdæmi lögreglustöðvarinnar á höfuðborgarsvæðinu við Hverfisgötu í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni en ekki er tekið fram nákvæmlega um hvaða hverfi er að ræða. Umdæmið nær til miðborgarinnar, austur- og vesturbæjar og Seltjarnarness. 21.3.2021 12:13 Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Talið er að um þúsund manns hafi lagt leið sín að eldgosinu í Geldingadal í nótt. Lögreglan hefur áhyggjur af illa búnu fólki sem reynir á komast á staðinn og varar við þoku sem gæti orðið á slóðum gosstöðvana í dag sem sé varasöm. 21.3.2021 11:31 Hátt í þúsund manns sóttu gosstöðvarnar í nótt: Búast við enn fleiri í dag Lögregluþjónar töldu einhverja þrjú hundruð bíla sem búið var að leggja við Reykjanesbraut og Grindavíkurveg í nótt. Áætlað hefur verið að þá hafi upp undir þúsund einstaklingar verið á göngu til og frá gosstöðvunum í Geldingadal. 21.3.2021 11:21 Ekki fleiri nýsmitaðir á Indlandi í fjóra mánuði Heilbrigðismálaráðuneyti Indlands segir 43.846 manns hafa greinst smitaða af Covid-19 undanfarin sólarhring. Fjöldi nýsmitaðra hefur ekki verið hærri í fjóra mánuði og hefur aukningin leitt til hertra samkomutakmarkana víða. 21.3.2021 11:00 Jarðskjálfti yfir þrír að stærð í nótt en virkni eldgossins stöðug Jarðskjálfti að stærðinni 3,2 mældist skammt frá Grindavík í nótt en að öðru leyti hefur verið tiltölulega lítil skjálftavirkni á jarðhræringasvæðinu á Reykjanesi frá því á miðnætti. Gasmengun frá eldgosinu í Geldingadal hefur ekki mælst yfir hættumörkum á höfuðborgarsvæðinu en brennisteinsdíoxíð mældist í lífshættulegu magni við gosstöðvarnar við upphaf gossins að sögn náttúruvársérfræðings. 21.3.2021 10:42 Enginn greindist innanlands Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. 21.3.2021 10:35
Sjá næstu 50 fréttir
Birta spálíkun fyrir gasmengun frá gosinu Veðurstofa Íslands hefur gert spálíkan fyrir gasmengun frá eldgosinu í Geldingadal. 21.3.2021 13:52
Erindrekar í Malasíu reknir heim til Norður-Kóreu Erindrekar Norður-Kóreu hafa yfirgefið sendiráð ríkisins í Malasíu og setja stefnuna heim á leið eftir að ríkin tvö slitu opinberum samskiptum. Það var gert eftir að Malasía framseldi grunaðan glæpamann frá Norður-Kóreu til Bandaríkjanna. 21.3.2021 13:12
Stórbrotnar ljósmyndir RAX af eldgosinu Eldgosið í Geldingadal er sagt lítið í samanburði við fyrri eldgos á Íslandi. Engu að síður er um magnað sjónarspil að ræða þar sem náttúrunnar öfl eru að verki og sjón er sögu ríkari. Eldtungurnar frussast upp úr gígunum og logandi hraunið flæðir í stríðum straumum líkt og þeir sem lagt hafa leið sína á vettvang hafa glögglega orðið varir við. 21.3.2021 13:00
Renna búgreinafélögin og búnaðarsamböndin undir Bændasamtökin? Bændur víðs vegar af landinu streyma nú til höfuðborgarinnar því Búnaðarþing hefst á morgun í Bændahöllinni þar sem forsætisráðherra, landbúnaðarráðherra og forseti Íslands flytja ávarp, auk þess sem Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtakanna flytur setningarræðu. Breyting á félagskerfi bænda verður aðal umræðuefni þingsins. 21.3.2021 12:25
Tilkynnt um þjófnað á tveimur heimilum á höfuðborgarsvæðinu Tilkynnt hefur verið um þjófnað á tveimur heimilum í umdæmi lögreglustöðvarinnar á höfuðborgarsvæðinu við Hverfisgötu í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni en ekki er tekið fram nákvæmlega um hvaða hverfi er að ræða. Umdæmið nær til miðborgarinnar, austur- og vesturbæjar og Seltjarnarness. 21.3.2021 12:13
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Talið er að um þúsund manns hafi lagt leið sín að eldgosinu í Geldingadal í nótt. Lögreglan hefur áhyggjur af illa búnu fólki sem reynir á komast á staðinn og varar við þoku sem gæti orðið á slóðum gosstöðvana í dag sem sé varasöm. 21.3.2021 11:31
Hátt í þúsund manns sóttu gosstöðvarnar í nótt: Búast við enn fleiri í dag Lögregluþjónar töldu einhverja þrjú hundruð bíla sem búið var að leggja við Reykjanesbraut og Grindavíkurveg í nótt. Áætlað hefur verið að þá hafi upp undir þúsund einstaklingar verið á göngu til og frá gosstöðvunum í Geldingadal. 21.3.2021 11:21
Ekki fleiri nýsmitaðir á Indlandi í fjóra mánuði Heilbrigðismálaráðuneyti Indlands segir 43.846 manns hafa greinst smitaða af Covid-19 undanfarin sólarhring. Fjöldi nýsmitaðra hefur ekki verið hærri í fjóra mánuði og hefur aukningin leitt til hertra samkomutakmarkana víða. 21.3.2021 11:00
Jarðskjálfti yfir þrír að stærð í nótt en virkni eldgossins stöðug Jarðskjálfti að stærðinni 3,2 mældist skammt frá Grindavík í nótt en að öðru leyti hefur verið tiltölulega lítil skjálftavirkni á jarðhræringasvæðinu á Reykjanesi frá því á miðnætti. Gasmengun frá eldgosinu í Geldingadal hefur ekki mælst yfir hættumörkum á höfuðborgarsvæðinu en brennisteinsdíoxíð mældist í lífshættulegu magni við gosstöðvarnar við upphaf gossins að sögn náttúruvársérfræðings. 21.3.2021 10:42
Endurskoða hvort hundar verði áfram velkomnir eftir að stúlka var bitin í andlitið Til skoðunar er hvort hætta eigi að bjóða hunda velkomna á skemmtistaðinn Röntgen við Hverfisgötu eftir að ung stúlka var bitin í andlitið af Rottweiler-hundi á staðnum á föstudagskvöldið. 21.3.2021 10:01
Alþjóðamál, mygla, vinnumarkaður og eldgos á Sprengisandi Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur í umsjá Kristjáns Kristjánssonar verður á sínum stað á Bylgjunni að loknum fréttalestri klukkan tíu. Þátturinn í dag verður fjölbreyttur að vanda og fær Kristján til sín góða gesti. 21.3.2021 09:30
Fólk streymir enn í Geldingadal og margir illa búnir Fjölmargir hafa gert sér leið upp í Geldingadal í gærkvöldi og í nótt. Fólk hefur jafnvel gist í tjöldum við eldgosið en margir hafa verið illa búnir fyrir ferðalagið og einhverjir hafa örmagnast. Þá er veður við gosstað orðið slæmt. 21.3.2021 09:14
Þrennt drukknaði við strendur Grænlands Tveir menn og kona drukknuðu eftir sjóslys við strendur Grænlands á fimmtudaginn. Fólkið var á siglingu frá Narsaq til Qaqortoq við suðurstrendur Grænlands en skilaði sér ekki á áfangastað. 21.3.2021 08:28
Einn svaf á skemmtistað, annar á stigagangi og sá þriðji í leigubíl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu virðist hafa haft í nógu að snúast í nótt. Töluvert var af útköllum vegna ölvunar og þurftu lögregluþjónar minnst tíu sinnum að sækja samkvæmi í heimahúsum vegna hávaða. 21.3.2021 08:00
Vestfirðingar vonast til að hylli undir lok sögunnar endalausu „Við höfum náttúrlega reynslu af því að þurfa að bíða mjög lengi eftir því að fá samgöngubætur, eins og Teigsskógarruglið hefur verið. Við bara þekkjum það vel. Og það er ekkert í höfn fyrr en við bara sitjum í bílunum okkar og það er verið að opna vegina okkar,“ segir Hafdís Gunnarsdóttir, formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga. 21.3.2021 07:45
„Það er auðvitað ekkert huggulegt við þetta“ Hraunflæð virðist vera nokkuð stöðugt í eldgosinu í Geldingadal og staðan að mestu óbreytt frá því Vísindanefnd almannavarna sendi frá sér tilkynningu um stöðu mála fyrr í kvöld. Um fimm hundruð jarðskjálftar hafa mælst á svæðinu síðasta sólarhringinn og var sá stærsti ekki nema 2,8 að stærð. Grannt er fylgst með gangi mála hvað varðar gosið sjálft og hugsanlega gasmengun af völdum þess. Von er á nýjum myndum frá gervihnetti á morgun. 20.3.2021 23:55
Sagði að án takmarkana á kjörsókn muni Repúblikanar tapa um árabil Öldungadeildarþingmaðurinn bandaríski Ted Cruz segir Demókrata ætla sér að veita milljónum ólöglegra innflytjenda, barnaníðingum og öðrum glæpamönnum kosningarétt. Þannig muni Demókratar tryggja yfirráð sínum í kosningum vestanhafs um árabil. 20.3.2021 22:52
Stefán Vagn og Lilja Rannveig leiða lista Framsóknar í Norðvesturkjördæmi Stefán Vagn Stefánsson hlaut flest atkvæði í póstkosningu Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi vegna komandi alþingiskosninga. Stefán Vagn hlaut 580 atkvæði í fyrsta sæti og þá hlaut Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir 439 atkvæði í fyrsta og annað sæti en hún sóttist eftir öðru sæti. Halla Signý Kristjánsdóttir, sitjandi þingmaður Framsóknarflokksins, hlaut 418 atkvæði í fyrsta til þriðja sæti. 20.3.2021 22:25
Enn mikil aðsókn að svæðinu en hætturnar margar í myrkrinu Enn er mikil aðsókn að gosstöðvunum í Geldingadal, þrátt fyrir myrkur og erfiðar aðstæður. Björgunarsveitarmenn og lögregla verður á staðnum í nótt en vara enn og aftur við því að fólk freisti þess að fara of nálægt. 20.3.2021 21:39
British Airways horfir til heimavinnunnar og íhugar að selja höfuðstöðvarnar Forsvarsmenn British Airways íhuga nú að selja höfuðstöðvar sínar vegna þess hve margir starfsmenn eru farnir að vinna heima. Höfuðstöðvarnar voru byggðar árið 1998 og kostuðu 200 milljónir punda, eða um 35 milljarða íslenskra króna. 20.3.2021 21:32
Magnað myndskeið af gosinu: Kvikan fossaði niður þegar gígurinn hrundi Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að gosstöðvunum í dag og var þónokkur fjöldi fólks, bæði almenningur og viðbragðsaðilar, á svæðinu þegar frétta- og tökumenn Stöðvar 2 voru á svæðinu í dag. 20.3.2021 21:03
„Finnst fólk vera komið full nálægt þessu“ Rögnvaldur Ólafsson hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra kveðst skilja áhuga fólks á því að vilja sjá eldgosið í Geldingadal með berum augum. Honum hugnist ekki að stilla upp löggæslu til að koma í veg fyrir að fólk fari inn á svæðið en brýnir á sama tíma fyrir því að mikilvægt sé að kynna sér þá hættu sem er til staðar á svæðinu. Fjöldi fólks hefur í dag lagt leið sína að gosstöðvunum en fólk er varað við því að fara of nálægt. 20.3.2021 20:12
Lítið en mikilfenglegt „túristagos“ Eldgosið í Geldingadal hefur nú staðið í næstum sólahring. Þetta er lítið gos en mikilfenglegt engu að síður, segja þeir sem hafa séð það með eigin augum. Fögur gígaröð er að mótast í gosinu, sem kann að vera það fyrsta af mörgum. 20.3.2021 19:43
Breskir sérfræðingar segja hefðbundið ferðasumar ólíklegt og óráðlegt Einn ráðgjafa bresku ríkisstjórnarinnar segir afar ólíklegt að sólarlandaferðir séu í kortunum hjá Bretum í sumar, vegna hættunnar á því að fólk snúi heim með nýtt afbirgði SARS-CoV-2 í farteskinu. 20.3.2021 19:07
Nýjar hrauntungur geta brotist fram á miklum hraða sem erfitt er að forðast á hlaupum Vísindaráð almannavarna varar við dvöl nálægt gosstöðvunum í Geldingadal. Mælt er með því að fólk virði fyrir sér gosstöðvarnar frá hæðum í kringum Geldingadal en fari ekki of nálægt. Til að mynda er varað við því að glóandi hraun geti fallið úr hraunjaðrinum og „hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram úr hraunjaðrinum með miklum hraða sem erfitt að forðast á hlaupum.“ 20.3.2021 18:54
Sex ljón afhöfðuð og hrammarnir hirtir Sex ljónshræ hafa fundist í Queen Elizabeth National Park í Úganda. Grunur leikur á um að eitrað hafi verið fyrir dýrunum en búið var að afhöfða þau og fjarlæga hramma þeirra. 20.3.2021 18:35
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Eldgosið í Geldingardal í Fagradalsfjalli er eitt það minnsta sem sögur fara af. Þó er ekki talið útilokað að gos verði annars staðar í sprungunni. Ítarlega verður fjallað um eldgosið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 20.3.2021 18:27
Sluppu með skrekkinn eftir harðan þriggja bíla árekstur Nokkuð harður þriggja bíla árekstur varð á mörkum Reykjanesbrautar og Sæbrautar skammt frá Súðavogi síðdegis í dag. Tilkynning barst slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu um klukkan 17:20 í dag en samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni voru tveir aðilar fluttir á slysadeild til aðhlynningar. 20.3.2021 18:17
Stríður straumur fólks í Geldingadal: Dæmi um að fólk mæti á gallabuxum og strigaskóm Fólk hefur í dag lagt leið sína í stríðum straumum að eldgosinu í Geldingadal. Lokað er fyrir bílaumferð inn á svæðið en fólki hefur verið hleypt inn á svæðið fótgangandi. Dæmi eru um að fólk hafi lagt af stað á vettvang illa búið fyrir þær aðstæður sem blasa við á svæðinu. 20.3.2021 17:51
Einar og Magnús Davíð hlutskarpastir í prófkjöri Pírata Einar Brynjólfsson mun leiða lista Pírata í Norðausturkjördæmi og Magnús Davíð Norðdal mun leiða lista flokksins í Norðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Pírötum en prófkjöri flokksins í kjördæmunum tveimur lauk síðdegis í dag. 20.3.2021 17:21
Fögur gígaröð er að mótast í eldgosinu Ný fögur gígaröð virðist ætla að verða til með eldgosinu í Geldingadölum við Fagradalsfjall. Sjón er sögu ríkari á meðfylgjandi myndskeiði sem tekið var í þyrluflugi fréttamanna Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar um tíuleytið í morgun. 20.3.2021 17:08
The Best Way To Visit The Eruption Site, According To Civic Protection If you live in Iceland, or plan to be here soon, you might be tempted to check out the Geldingadalsgos... The post The Best Way To Visit The Eruption Site, According To Civic Protection appeared first on The Reykjavik Grapevine. 20.3.2021 17:00
Eldsumbrotum á Reykjanesi eigi eftir að fjölga til muna Einn reynslumesti jarðeðlisfræðingur landsins segir að gosið í Geldingadal sýni að runnið sé upp nýtt kvikuskeið á Reykjanesinu. Eldsumbrotin minni á upphaf Kröfluelda og faslega megi gera ráð fyrir fleiri eldgosum á Reykjanesskaganum í náinni framtíð. 20.3.2021 16:59
Eitt minnsta gos sem sögur fara af og hraunflæðið á við Elliðaár Ólíklegt er að mikil jarðskjálftavirkni verði í kjölfar eldgossins í Geldingadal en áfram er von á smáskjálftum. Engin hætta stafar af gasmengun í byggð að svo stöddu en mengunin gerir að að verkum að mjög hættulegt getur verið að fara upp að svæðinu við vissar aðstæður. 20.3.2021 14:53
Svona var upplýsingafundurinn vegna eldgossins í Geldingadal Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Veðurstofa Íslands munu halda upplýsingafund klukkan tvö í dag. Þar verður sagt frá stöðu mála varðandi eldgosið í Geldingadal á Reykjanesi. 20.3.2021 13:16
Adrenalínfíklar í Geldingadal í nótt: „Maður lifir hvort eð er bara einu sinni“ Ævintýramaðurinn Steinn Alex Kristgeirsson fór alveg upp að gosinu í Geldingadal í nótt ásamt vinum sínum og náði af því sláandi nærmyndum. Hann segir að þeir hafi byrjað að ganga að gossvæðinu um klukkan 23:30 í gær og verið komnir þangað eftir yfir þrjár klukkustundir. 20.3.2021 13:16
Fegurð eldgossins í gegnum linsu ljósmyndarans Eldgosið í Geldingadal þykir ekki stórt en það þykir sjónrænt og jafnvel fallegt. Það hófst skömmu fyrir klukkan níu í gærkvöldi og síðan þá hefur dregið nokkuð úr virkni. 20.3.2021 12:30
Mjög óvarlegt að ganga nálægt svæðinu án þess að huga að gosmengun Gosið í Geldingadal er líklega minna en það sem kom upp í Fimmvörðuhálsi árið 2010 og ekki er talið að það muni hafa áhrif á flugumferð. Mesta hættan er af gasmengun en hún virðist þó ekki vera mikil að sögn veðurfræðings. 20.3.2021 12:29
Víðir mælir með að vel búið göngufólk gangi frá Bláa lóninu Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn beinir þeim tilmælum til fólks sem ætlar að fara að virða fyrir sér gosið í Geldingadal að gera sér grein fyrir ákveðnum staðreyndum. 20.3.2021 12:23
Agencja Obrony Cywilnej zmniejszyła poziom zagrożenia Żadne miasta i budynki nie są obecnie zagrożone przez lawę. 20.3.2021 12:23
Gazy mogą dotrzeć do okręgu metropolitarnego Jest mało prawdopodobne, aby zanieczyszczenie powietrza gazem było w niebezpiecznych ilościach. 20.3.2021 12:21
Börn Úígúra tekin af fjölskyldumeðlimum og flutt í búðir fyrir munaðarleysingja Yfirvöld í Kína hafa flutt börn Úígúra sem flúið hafa frá Xinjianghéraði í opinber munaðarleysingjahæli, jafnvel þó þau hafi búið hjá ættingjum sínum og fjölskyldumeðlimum. 20.3.2021 11:56
Sjáðu hádegisfréttir Stöðvar 2 Fréttastofa Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísi verða með aukafréttatíma í hádeginu í dag, þar sem fjallað verður um eldgosið í Geldingadal. 20.3.2021 11:32
Á von á gasinu til höfuðborgarsvæðisins upp úr hádegi Von er á því að gas úr gosinu í Geldingadal berist í átt að höfuðborgarsvæðinu frá og með hádegi í dag og fram eftir kvöldi. Þetta segir Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við fréttastofu. Hún segir þó litlar líkur á að gasið verði í hættulegu magni og líklegast að það verði mjög lítið. 20.3.2021 11:27