Fleiri fréttir

Konan sögð beitt þrýstingi að segja hælisleitandann vera föðurinn

Manninum sem synjað var um hæli á Íslandi og er á flótta undan lögreglu er grunaður um aðild að mansalsmáli. Einnig leikur grunur á að konan sem segist bera barn hans undir belti sé beitt þrýstingi að segja manninn vera föðurinn. Konan er einnig hælisleitandi og segist vera fórnarlamb mansals.

Seldu vorrúllur fyrir neyðarstarf

Filippseyingar búsettir á Dalvík tóku sig saman á sunnudag og stóðu fyrir fjáröflun til styrktar neyðarstarfi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, á Filippseyjum.

Ríkið sýni Heilsustofnuninni sanngirni

"Mikilvægt er að yfirvöld virði gerða samninga,“ segir í ályktun Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu vegna áætlaðs 5 prósent niðurskurðar á framlagi ríkisins til Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands.

Vilja halda sínum leikskólastofum

Foreldrafélag leikskólans Hvamms í Hafnarfirði segir að ef lausar skólastofur verðir fluttar burt frá Hvammi og á Vellina eins og áformað sé fái börn á Öldutúnssvæðinu ekki pláss í sínu hverfi.

Staðið við samkomulag um lokun flugbrautar

Hanna Birna Kristjánsdóttir, ráðherra flugmála, segir að staðið verði við samkomulag við borgina um að minnstu flugbraut Reykjavíkurflugvallar verði lokað.

Stemmning á vinnustöðum fyrir stóru stundina

Þjóðin er tilbúin í leikinn gegn Króötum og mörgum fannst tíminn líða hægt í dag. Á vinnustöðum var víða frábær stemmning, Hrund Þórsdóttir kíkti á nokkra.

Íslensk börn í hlutverki orrustuflugmanna

Rúmlega 200 bandarískir hermenn eru staddir hér á landi til að taka þátt í loftrýmisgæslu Atlantshafs-bandalagsins við Ísland og tvö langveik íslensk börn fengu í dag einstakt tækifæri til að kynnast lífi og störfum flugmanna á orrustuþotum.

Segir forsætisráðherra sjá óvini í hverju horni

Þingmenn stjórnarandstöðunnar furða sig á gagnrýni forsætisráðherra í garð Seðlabankans. Helgi Hjörvar þingmaður Samfylkingarinnar segir að ráðherra sé byrjaður að sjá óvini í hverju horni.

"Ég er mjög rómantísk“

Flesta daga situr hún í þingsalnum og tekst á um mál sem varða þjóðina. Í kvöld ætlar Vigdís Hauksdóttir, aftur á móti, að ræða um rósir, rómantík og rauðan lit jólanna.

„Maður fær sér smá snaps eftir svona slys“

Rúta fór á hliðina við Öxará á Þingvöllum fyrr í dag en um borð voru 49 manns. Um var að ræða rútu fulla af ferðamönnum sem voru á leið sinni um svæðið. Slysið átti sér stað á veginum rétt fyrir neðan Brúsastaði. Gríðarleg hálka er á vegum á svæðinu og erfiðar aðstæður fyrir ökutæki.

Nafn konunnar sem lést

Konan sem lést í samkvæmi í Vesturbænum aðfaranótt laugardags hét Eva María Þorvarðardóttir og var fædd árið 1992.

Ökumaður jeppa gaf sig fram

Lögreglan á Suðurnesjunum lýsti eftir ökumanni jeppa vegna rannsóknar á bílslysi í Reykjanesbæ í síðustu viku.

Svanur blæs til tónleika samhliða landsleik

"Við vorum löngu búin að skipuleggja að hafa tónleikana þennan dag,“ segir Jón Ingvar Bragason, formaður lúðrasveitarinnar Svansins um það að sveitin haldi tónleika á sama tíma og landsleikur Íslands við Króatíu fer fram í Zagreb í kvöld.

McLaren P1 uppseldur

Það vefst ekki fyrir 375 kaupendum McLaren að reiða fram 141 milljónir króna fyrir nýjasta bíl McLaren, P1.

Rúta valt við Öxará - 49 manns um borð

Rúta með 49 manns innaborðs fór á hliðina við Öxará á Þingvöllum rétt í þessu. Samkvæmt skeyti frá neyðarlínunni urðu ekki mikil slys á fólki. Lögreglan er á leiðinni, bæði frá Selfossi og Reykjavík.

Íþróttamálaráðherra vonglaður í Zagreb

Illugi Gunnarsson íþróttamálaráðherra flaug til Zagreb í gær. Hann segir mikla stemmningu ríkja meðal Íslendinga sem mættir eru til að fylgjast með leiknum.

Mannfall við sendiráð Írana í Beirút

22 eru látnir hið minnsta eftir röð sprenginga við íranska sendiráð í Beirút, höfuðborg Líbanon í morgun. Íran er stór stuðningsaðili Hezbollah samtakanna í Líbanon, sem hafa sent hermenn til bardaga í Sýrlandi, til stuðnings stjórnarhers Bashar al-Assads forseta.

Mynd af líki unglingsdrengs á Google Maps

Google hefur ákveðið að fjarlægja loftmynd af vef sínum Google Maps þar sem lík 14 ára drengs, Kevin Barrea, sést liggjandi við járnbrautarteina.

Börðu mann sem stóð þá að innbroti

Tveir erlendir karlmenn, sem eru búsettir hér á landi, voru handteknir á Suðurlandi í nótt eftir fólskulega árás á mann sem stóð þá að innbroti í sumarbústað. Annar mannanna á langan brotaferil að baki og stal meðal annars úr versluninni Geysi fyrir um tvær milljónir króna.

Hyundai efst í ánægjukönnun

Auk þess að vera hæsti framleiðandinn var mest ánægja með Hyundai Equus bílinn af öllum bílgerðum.

Illugi til Zagreb

Illugi Gunnarsson, ráðherra mennta-, menningar- og íþróttamála, verður meðal áhorfenda þegar Íslendingar keppa við Króata í kvöld

Mikil leit gerð að stúlku á Álftanesi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gerði mikla leit að stúlku á norðanverðu Álftanesi upp úr miðnætti og naut meðal annars aðstoðar slökkviliðsins, sem sendi stigabíl á vettvang. Þá var lögreglubílum með ljóskösturum ekið um svæðið.

Fjórtán létust í fellibylnum Kleópötru á Sardiníu

Fjórtán eru látnir hið minnsta á ítölsku eyjunni Sardiníu eftir að fellibylurinn Kleopatra gekk þar á land í gærkvöldi. Nokkurra er enn saknað en hinar gríðarlegu rigningar sem fylgdu óveðrinu urðu til þess að ár á eyjunni flæddu yfir bakka sína þannig að bifreiðar fóru á kaf og brúarstólpar sópuðust burt.

Allt á suðupunkti í Miðafríkulýðveldinu

Það stefnir í borgarastríð í Miðafríkulýðveldinu, verði ekkert að gert. Þetta segir Ban Ki Moon framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sem vill að stofnunin sendi friðargæslulið til landsins til að koma í veg fyrir að ofbeldið fari algjörlega úr böndunum.

Tók kast þegar kona svínaði óvart á hann

Karlmaður brjálaðist þegar kona svínaði óvart fyrir hann á hringtorginu við Þjóðminjasafnið í gærkvöldi. Hann elti bíl konunnar vestur Hringbraut, inn á Bræðraborgarstíg, Vesturgötu og stöðvaði bíl sinn loks fyrir aftan hana á rauðu ljósi á mótum Ægisgötu og Geirsgötu.

Mikil leit gerð að byssumanni í París

Umfangsmikil leit er nú gerð að manni sem skaut á skrifstofur dagblaðsins Liberation og hleypti einnig af byssunni fyrir framan höfuðstöðvar stórbankans Societe Generale í París. Tuttugu og sjö ára gamall ljósmyndari slasaðist alvarlega í árásinni.

Sjá næstu 50 fréttir