Innlent

Ríkið sýni Heilsustofnuninni sanngirni

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Heilsustofnunin í Hvergerði á sér tæplega sextíu ára sögu.
Heilsustofnunin í Hvergerði á sér tæplega sextíu ára sögu. Fréttablaðið/Pjetur
„Mikilvægt er að yfirvöld virði gerða samninga,“ segir í ályktun Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu vegna áætlaðs 5 prósent niðurskurðar á framlagi ríkisins til Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands.



Samtökin segja heilsustofnunina fyrir löngu hafa sannað sig sem mikilvægan hlekk í heilbrigðisþjónustu landsmanna og staðið við þjónustusamning við ríkið fyrir sitt leyti. Þau beini því heilbrigðisyfirvalda „að fyllsta jafnræðis og sanngirni sé gætt þegar fjárframlög eru ákveðin til heilbrigðisstofnana.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×