Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
New York rústir einar í myndbandi Norður-Kóreu Málgagn norður-kóreskra stjórnvalda hefur birt myndband sem sýnir New York-borg sem rústir einar. 6.2.2013 11:45
Misbýður yfirlýsing stjórnar Stúdentaráðs frá því í nótt Stjórn Röskvu í Stúdentaráði, Röskvuliðum í ráðinu og núverandi frambjóðendum misbýður yfirlýsing sem stjórn Stúdentaráðs sendi frá sér í nótt. 6.2.2013 11:20
Biðin kostar 104.000 kr. árlega Flestar borgir í Bandaríkjunum eru þéttsetnar bílaumferð og almenningur eyðir miklum tíma og fjármunum í bið til að komast leiðar sinnar. En hvað skildi það kosta meðalmanninn? Umferðarstofnunin A&M í Texas hefur reiknað þetta út og komist að því að sá kostnaður nemur að meðaltali 818 dollurum á ári fyrir hvern ökumann, eða 104.000 krónum. Er þá bæði eldsneytiskostnaður og tapaður tími innifalinn. Auk þess hlýst af þessu gríðarmikil mengun. Af öllum borgum Bandaríkjanna er ástandið verst í Washington. Þar tekur það um 3 klukkutíma að komast leið sem tæki 30 mínútur ef engin væri umferðin. Pensacola í Flórída er best borga hvað þetta varðar og þar þurfa ökumenn ekki að eyða nema 39 mínútum í sama ökutúr, eða aðeins 9 mínútum í bið. Að meðaltali tekur Bandaríkjamann 1,5 klukkutíma að komast leið sem tæki 30 mínútur í engri umferð. Við alla þessa bið eyða Bandaríkjamenn 5,5 milljörðum klukkustunda á ári og 121 milljarði dollara. A&M stofnunin hefur safnað umferðargögnum í 30 og vinnur að því að minnka þennan tíma og leysa umferðarhnúta um allt landið. Á eftir höfuðborginni Washington er ástandið verst í borgunum Los Angeles, San Francisco, New York, Boston, Houston, Atlanta, Chicago, Philadelphia og Seattle. Bandaríkjamenn eyða 11 milljörðum lítra af eldsneyti fastir í umferðinni. Það er því til mikils að vinna að greiða fyrir umferð í landi bílanna. 6.2.2013 11:00
Níu ára stúlka ól barn Níu ára gömul mexíkósk stúlka ól barn í lok janúar. Þetta fullyrðir fjölskylda stelpunnar og yfirvöld í ríkinu Jalisco við AFP fréttastöðina. Móðir stúlkunnar segir að hún hafi verið rétt rúmlega átta ára þegar hún varð ófrísk. Barnsfaðirinn er sautján ára en hann hvarf á braut þegar fréttist af þunguninni og hefur ekki látið sjá sig síðan. 6.2.2013 10:59
Slæmt orðalag í tilkynningu uppspretta misskilnings Jón Atli Hermannsson, varaformaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, segir í samtali við Vísi að ráðið harmi fréttaflutning þess efnis að um fjárdrátt fyrrverandi starfsmanna ráðsins hafi verið að ræða. 6.2.2013 10:46
Kolgrafafjörður í heimsfréttum Síldardauðinn í Kolgrafafirði hefur orðið stórblöðum víða um heim að umfjöllunarefni. Bandaríska blaðið The Wall Street Journal birtir stóra mynd af síldinni á vef sínum í dag. Blaðið segir reyndar að verðmæti dauða fisksins nemi milljörðum bandaríkjadala, en sennilegast er réttara að hann nemur nokkrum milljónum bandaríkjadala. 6.2.2013 10:37
Bob Marley hefði orðið 68 ára í dag Tónlistargoðsögnin Bob Marley hefði orðið 68 ára í dag, væri hann á lífi. 6.2.2013 10:36
Hæstiréttur gerði alvarleg mistök - Hvernig getur þetta verið skýrara? Ragnheiður Bragadóttir, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands og höfundur kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga, segir að Hæstiréttur hafi gert "alvarleg mistök" með dómi sínum síðastliðinn fimmtudag. 6.2.2013 10:11
Viðgerð lokið í SímaVIST Sérfræðingar Símans vinna nú hratt og örugglega að því að greina og gera við bilun í tal- og farsímum þeirra sem eru í SímaVIST og á ljósleiðarasvæðum Símans. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum hafa viðskiptavinir með skráð tölvupóstfang fengið tölvupóst um stöðuna. 6.2.2013 10:06
Ofgreiðsla launa leiddi til nýrra verklagsreglna Framkvæmdastjóri og hagsmunafulltrúi Stúdentaráðs starfsárið 2011-2012 þurftu að endurgreiða rúmlega hálfa milljón króna til ráðsins. Ástæðan var sú að þeir fór fram yfir umsamda upphæð á úttektarkortum hjá N1. 6.2.2013 09:50
Síldarævintýrið í máli og myndum Ekki færri en fjörutíu krakkar úr grunnskólanum á Grundarfirði, í fylgd hóps fullorðinna, unnu að síldartínslu í Kolgrafafirði í gærmorgun. Allt að 25 tonn af síld voru komin í kör um hádegi og þeim ekið í átt til Sandgerðis þar sem fyrirtækið Skinnfiskur mun nýta síldina sem minkafóður. Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari skellti sér vestur í gær og fylgdist með því sem fram fór. 6.2.2013 09:45
Rektor dæmdur fyrir kynferðisbrot gagnvart nemanda Fyrrverandi rektor í skóla í norðurhluta Noregs hefur verið dæmdur fyrir að eiga í kynferðislegu sambandi við nemanda sinn, stúlku sem hann barnaði tvisvar sinnum. 6.2.2013 09:16
Nýr keppnisbíll MacLaren McLaren kynnti í síðustu viku nýjan Formúlu 1 keppnisbíl sinn sem þeir kalla MP4-28. Athygli vekur að bíllinn er svo til alveg eins í útliti og síðasti bíll og málaður alveg eins. En undir yfirborðinu leynast ýmsar breytingar og þrátt fyrir að síðasti bíll sé núverandi sigurvegari í Formúlu 1 eru breytingarnar miklar og metnaðarfullar. Fjöðrunin að framan er “pull-rod”-gerðar eins og í keppnisbíl Ferrari, en öndvert við síðasta bíl MacLaren. Hliðar bílsins og botn hafa breyst nokkuð. MacLaren vonar að breyting verði á því, frá síðasta keppnistímabili, að fyrirtækið eigi hraðskreiðasta bílinn í upphafi og enda þess, en eigi svo fullt í fangi við að halda í keppinautana þar á milli. Nú sé komið að því að bíll þeirra sé sá besti allt keppnistímabilið. Það gæti þýtt enn meiri breytingar á bílnum á keppnistímabilinu. Ökumenn MacLaren á næsta keppnistímabili verða Jenson Button, sem leiðir liðið eftir brotthvarf Lewis Hamilton sem fór til Mercedes og Sergio Perez sem var áður hjá Sauber liðinu. 6.2.2013 08:45
Margir nýta sér síldina í Kolgrafarfirði Búist er við að síldarævintýrið haldi áfram í Kolgrafafirði í dag og að félagasamtök muni safna þar síld til sölu og vinnslu í minkafóður. Sjómenn hafa líka verið að sækja þangað síld til beitu og bændur til fóðurbætis. 6.2.2013 06:50
Umferð um hringveginn jókst um um 12% í janúar Umferð um hringveginn jókst um um 12% í janúar samanborið við sama mánuð í fyrra, samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar á 16 stöðum við veginn. 6.2.2013 06:41
Aukning loðnukvótans skilar um 10 milljörðum í þjóðarbúið Fjögur íslensk loðnuskip eru þegar komin á miðin austur af landinu eftir að kvótinn var aukinn um 150 þúsund tonn í gær, en fimm norsk skip voru fyrir á miðunum. 6.2.2013 06:39
Mafíustríð um vetrarólympíuþorpið í Sochi í Rússlandi Mafíustríð er hafið í Rússlandi og það teygir anga sína til borgarinnar Sochi við Svartahaf sem hýsa mun vetrarólympíuleikana á næsta ári. 6.2.2013 06:36
Jarðskjálfti upp á 8 stig skók Solomon eyjar í nótt Jarðskjálfti upp á 8 stig skók Solomon eyjar í Kyrrahafinu í nótt. Fimm manns fórust og tveggja er saknað eftir að hús í nokkrum þorpum á eyjunum hrundu til grunna. 6.2.2013 06:31
Mikil snjókoma lamar athafnalíf í Moskvu Allt athafnalíf í Moskvu er meir og minna lamað í dag eftir mestu snjókomu í borginni og nágrenni hennar í eina öld. 6.2.2013 06:29
Hætta á að stórt smástirni lendi í árekstri við gervihnött Smástirni sem er 45 metrar að breidd og 130.000 tonn að þyngd mun svífa svo nálægt jörðinni eftir átta daga að hætta er á að það lendi í árekstri við gervihnött. 6.2.2013 06:17
Handritum laumað burt í skjóli nætur Aldraður bókasafnsvörður í Timbuktu hafði komið stærstum hluta dýrmætra fornrita í öruggt skjól þegar íslamistar kveiktu í bókasafni borgarinnar fyrir hálfum mánuði. Fáir vissu af þessu, ekki einu sinni flest starfsfólk safnsins. 6.2.2013 06:00
Brot gegn börnum hafa kallað á hömlulaus viðbrögð Lögregla verður vör við að fólk reyni að taka lögin í sínar hendur. Félagsfræðingur rekur ástandið aftur til samfélagsbreytinga frá því fyrir hrun. Nauðsynlegt sé þó að beisla reiðina og treysta á að kerfið virki. 6.2.2013 06:00
Ungmenni sögð flýja ágengni fíkniefnasala Formaður Drífandi stéttarfélags í Vestmannaeyjum segir fíkn hafa verið vandamál hjá Vinnslustöðinni. Fíkniefnasalar beini sjónum að ungmennum og sumir foreldrar leyfi þeim ekki að starfa hjá fyrirtækinu. Starfsfólkið hafi kvartað. 6.2.2013 06:00
Gæti þurft að senda sjúklinga til útlanda Hjúkrunarfræðingar sem sagt hafa upp störfum við Landspítalann hafa fram í byrjun næstu viku til að sjá sig um hönd. Ekki næst saman í samninganefnd um endurskoðun stofnanasamnings. Spítalinn undirbýr einhliða breytingar á kjörum. 6.2.2013 06:00
Egill vill þrjár milljónir í bætur Egill Einarsson hefur stefnt þremur ungmennum fyrir meiðyrði og krafið hvert þeirra um eina milljón króna í miskabætur. Málin eru höfðuð vegna ummæla sem féllu um meint kynferðisbrot hans, sem ríkissaksóknari felldi niður í fyrra. 6.2.2013 06:00
VR kynnir nýtt vopn í jafnréttisbaráttunni VR hefur þróað svokallaða Jafnlaunavottun, sem ætluð er fyrirtækjum og stofnunum, þar sem launagreiðendum gefst tækifæri til að sýna svart á hvítu að launastefna þeirra og mannauðsstjórnun mismuni ekki körlum og konum. 6.2.2013 06:00
Bætt við 150.000 loðnutonnum Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra hefur á grundvelli tillagna Hafrannsóknastofnunar ákveðið að heimila veiðar á 150 þúsund tonnum af loðnu til viðbótar við áður útgefnar aflaheimildir. 6.2.2013 06:00
Sveppur herjar á kaffiplöntur Í vetur hefur ryðsveppur herjað af miklu kappi á kaffiplöntur í Mið-Ameríku með þeim afleiðingum að þriðjungur kaffiuppskerunnar er í hættu. 6.2.2013 06:00
Brot telst fullframið þótt níðingur hitti aldrei barnið Nokkur mál eru til rannsóknar hjá kynferðisbrotadeild lögreglu þar sem skoðað er hvort menn hafi brotið gegn nýju ákvæði í hegningarlögum um tælingu barna í gegn um netið. Samkvæmt ákvæðinu telst brot fullframið þó níðingur hitti aldrei barnið. 5.2.2013 23:34
"Ólýsanlegt að faðma hann á ný“ Líðan fimm ára gamla drengsins, sem bjargað var úr klóm mannræningja í gær eftir vikudvöl í neðanjarðarbyrgi í Alabama-fylki í Bandaríkjunum, er góð að því er AP-fréttastofan hefur eftir fjölskyldumeðlimum. 5.2.2013 22:55
Heimildarmynd um barnaníðinga Louis Theroux hefur getið sér gott orð í heimildarmyndagerð. Honum þykir takast vel að kafa djúpt í þau mál sem eru til umfjöllunar hverju sinni, kynnast viðmælendum sínum en um leið halda hlutleysi sínu við heimildarmyndagerðina. 5.2.2013 22:26
Spítalinn stæði frammi fyrir gagngerri endurskoðun "Að sjálfsögðu er það mjög alvarlegt þegar svo stór hópur mjög þjálfaðra og vel menntaðra starfsmanna ákveður að yfirgefa störf sín á stærsta sjúkrahúsi landsins eins og er í umræðunni núna,“ segir Geir Gunnlaugsson landlæknir. 5.2.2013 22:11
Hjónaband samkynhneigðra handan við hornið Frumvarp sem heimilar hjónabönd samkynhneigðra var samþykkt í neðri deild breska þingsins í kvöld. 5.2.2013 22:04
Löglegir sjússamælar ófáanlegir "Allir sem eru í þessu til langtíma fagna eftirliti, hvort sem það eru reglur eða kannanir. Við viljum fylgja þeim,“ segir veitingamaðurinn Arnar Þór Gíslason. 5.2.2013 20:43
Vin Diesel á Dodge Charger Daytona í Fast And The Furious Það verður ekki bara ofursprækur Nissan GT-R bíll sem fær hlutverk í næstu Fast And The Furious kvikmynd, sem verður sú sjötta í röðinni, heldur mun Van Diesel spretta um göturnar á Dodge Charger Daytona bíl í myndinni. Það er afar viðeigandi í ljósi fyrri mynda, því Vin Diesel hefur oft ekið á bandaríksum kraftabílum í myndunum. Þessi nýja mynd kemur til sýninga í maí á þessu ári og bíða verður sýninga á henni til að sjá hvort hann verður búinn nitro-búnaði til að auka afl hans eða hvaða aðrar breytingar verða gerðar á honum til að halda í við þá breyttu japönsku ofurbíla sem hann ávallt er að kljást við í Fast And The Furious myndunum. 5.2.2013 19:00
Sannkölluð síldarstemning Sannkölluð síldarstemning myndaðist í fjörunni í Kolgrafafirði í morgun þegar hópur ungmenna mætti þar til að tína dauða síld upp í kör. Þau náðu að fylla fimmtíu og eitt kar á tveimur tímum og sást varla högg á vatni. 5.2.2013 18:57
Forseti Íslands ætlar ekki að veita viðtöl vegna Icesave Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hyggst ekki veita nein viðtöl um niðurstöðu EFTA-dómstólsins í Icesave-málinu. Forsetinn lítur svo á að hann hafi tjáð sig nóg um málið í aðdraganda þess. 5.2.2013 18:54
Öldurnar í Landeyjahöfn festar á filmu Herjólfur hefur ekki siglt frá Landeyjahöfn til Vestmannaeyja síðan 9. desember. Myndband, sem Guðmundur Alfreðsson áhugaflugmaður tók úr vél sinni í gær, sýnir aðstæður í Landeyjahöfn í gær. 5.2.2013 18:33
Ferrari og Maserati vélar í Alfa Romeo Fiat er svo umhugað að koma Alfa Romeo aftur á kortið að það ætlar að fá Ferrari og Maserati við að aðstoða Alfa Romeo við vélasmíði í nýja bíla sína. Þessi fyrirtæki tilheyra öll Fiat samstæðunni. Fiat ætlar að setja Guilia bílinn og tveggja sæta "roadster" sportbíl á markað á næsta ári í viðbót við Alfa Romeo 4C sportbíl sem lengri bið verður eftir. Bætast þessir bílar við fyrri gerðirnar MiTO og Guilietta. Sergio Marchionne forstjóri Fiat hefur látið hafa eftir sér að stærsta vandamál Alfa Romeo sé að framleiða vélar sem eru þess verðar að vera í bílum með merki Alfa Romeo. 5.2.2013 16:45
Seðlabankinn keypti 25 milljónir evra Seðlabankinn keypti 25 milljónir evra í dag í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum. Jafnframt keypti Seðlabankinn íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Útboðin voru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011. Þetta má einnig sjá í skilmálum Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta með síðari breytingum frá 18. nóvember 2011. 5.2.2013 16:37
Eldur í Álftamýri Hús að Álftamýri var rýmt eftir klukkan þrjú í dag þegar eldur kom upp í uppþvottavél. Slökkvilið var kallað að staðnum en búið var að slökkva mestan eldinn þegar slökkvilið kom á staðinn. Slökkviliðsmenn luku svo við verkið. Slökkvistarfið gekk greiðlega og eftir það var hafist handa við reykræstingu. 5.2.2013 15:35
Kosningamál í Noregi gæti seinkað olíuleit við Jan Mayen Deilur um hvort leyfa eigi olíuleit við Lófót og í Vesturál hafa blossað upp í Noregi eftir að stefnuskrárnefnd Verkamannaflokksins, flokks Jens Stoltenbergs forsætisráðherra, ákvað að leggja til við flokksþing í apríl að flokkurinn styddi að hafsvæðið yrði opnað til leitar á næsta kjörtímabili. Málið er líklegt til að verða eitt helsta kosningamálið í norsku þingkosningunum þann 9. september í haust. Úrslitin gætu haft áhrif á hversu hratt verði farið í olíuleit við Jan Mayen og á íslenska Drekasvæðinu. 5.2.2013 15:06
Mercedes Benz kaupir 12% í kínversku bílafyrirtæki Í síðustu viku keypti Daimler AG, móðurfélag Mercedes Benz 12% hlut í Bejing Automotive Group (BAIC) fyrir 111 milljarða króna og fær með því tvo menn í stjórn þess. Kaup þess eru liður í þeim áformum Mercedes að ná keppinautum sínum á lúxusbílamarkaði aftur, það er BMW og Audi. Það hefur sviðið mjög hjá Daimler að Mercedes hafi tapað á síðustu árum forystunni í sölu á lúxusbílum, en BMW tók framúr þeim í magni árið 2005 og Audi árið 2011. Því ætlar Mercedes að breyta og ná aftur forystunni fyrir enda þessa áratugar. Þessi nýju kaup eiga að tryggja betri aðgang að kínverskum bílamarkaði fyrir bæði Mercedes og BAIC og að auðveldara verði fyrir þau bæði að keppa á þeim vaxandi markaði. Tapaði forystunni í lúxusbílasölu Í Kína seldi Audi 406 þúsund bíla í fyrra og jók söluna um 30% milli ára á meðan Mercedes jók hana aðeins um 1,5% og náði 196 þúsund bíla sölu þar. BMW náði hinsvegar mestri aukningu, 40% og seldi 303 þúsund bíla. Því eru blikur á lofti fyrir Mercedes Benz á þessum mikilvæga markaði og ljóst að eitthvað róttækt varð að gera. Í hinum hrynjandi markaði í Evrópu eru vaxtatækifærin helst á nýmörkuðum og þar spilar Kína stærstan þátt. BAIC á meirihlutann í Bejing Benz Automotive Co. verksmiðjunni í Peking sem framleiðir Mercedes C- og E-class bíla og GLK jeppann. BAIC framleiðir einnig bíla í Kína fyrir Hyundai. Daimler og BAIC hafa einnig bundist samstarfi um söluumboð sín í Kína og sameina nú sjálfstæð umboð hvers um sig. 5.2.2013 15:00
Ekki búið að ákveða hvort sýknudómi verði áfrýjað Ríkissaksóknari hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort að sýknudómi yfir Styrmi Þór Bragasyni, fyrrum forstjóra MP banka, verði áfrýjað til Hæstaréttar. Áfrýjunarfrestur í málinu rennur út 28. febrúar næstkomandi. 5.2.2013 14:49
Segir FBI fulltrúa ekki hafa komið með sinni vitund eða vilja til íslands Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir í tilkynningu til fjölmiðla að fulltrúar alríkislögreglunnar hafi ekki verið staddir hér á landi með vilja eða vitundar hans sjálfs. 5.2.2013 14:15