Innlent

Löglegir sjússamælar ófáanlegir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Óli Már Ólason og Arnar Gíslason (til hægri), eigendur Lebowski bars.
Óli Már Ólason og Arnar Gíslason (til hægri), eigendur Lebowski bars. Mynd/Pjetur
"Allir sem eru í þessu til langtíma fagna eftirliti, hvort sem það eru reglur eða kannanir. Við viljum fylgja þeim," segir veitingamaðurinn Arnar Þór Gíslason.

Neytendastofa greindi frá því á dögunum að í könnun sem gerð var hjá um tuttugu vínveitingahúsum og innflytjendum hefðu mál verið í ólestri á hverjum og einum þeirra. Léttvínsglös reyndust ómerkt en allflestir voru þó með merkt bjórglös. Vínmál og vínskammtarar voru ávallt til staðar en töluvert vantaði upp á að mælarnir væru löggiltir.

„Þeir eru ófáanlegir," segir Arnar um merktu sjússamælana. Andri kemur að rekstri fjögurra veitingastaða í miðbæ Reykjavíkur. Lebowski Bar, Dönsku kránni, Enska barnum og Tíu dropum.

„Björk seldi þessa löglegu stimpluðu sjússamæla en gátu ekki lengur keypt þá því þeir voru ekki til. Þeir héldu hins vegar áfram að selja ómerkta 3 CL sjússamæla sem veitingamennirnir hafa verið að kaupa," segir Arnar.

Hann segir enginn þeirra veitingamanna sem hann hafi samskipti við svindla á neytendum eins og kom fram í frétt á Vísi í gær. Hann fagni því að Neytendasamtökin fylgist með gangi mála.

„Kúnninn á 100 prósent rétt á því að vita hvað hann á að fá," segir Arnar sem telur að veitingastaðir ættu að setja upp miða á stöðum sínum þar sem fram komi að einfaldur drykkur sé 3 CL og tvöfaldur 6 CL eins og og allir halda.

Nordicphotos/Getty
„Ég hitti Óla og Andra eigendur Vegamóta og Kormák og Skjöld (eigendur Ölstofunnar) fyrir tilviljun í morgun. Við ræddum þetta og vorum sammála um að það væri einn og einn sem er að selja einfaldan sem tvo CL," segir Arnar.

„Eins og í öllu er alltaf einn og einn svartur sauður sem heldur að hann verði milljarðamæringur á því að taka aðeins af kúnnanum."

Arnar Þór segir kúnnann í sjálfu sér besta gæslumanninn. Hann láti þjóninn heyra það telji hann ekki rétt magn í glasinu eða þá komi hann aldri aftur.

„Það er því í rauninni pressa á okkur að hafa frekar rúmlega af öllu til þess að fá ekki á okkur högg," segir Arnar Þór sem segist eiga tvo löglega sjússmæla á Lebowski Bar.

„Svo fór ég inn á Ölstofuna í morgun. Þá voru tveir af þremur löglegir. Þeir hlógu reyndar að því því þeir héldu að þeir væru ólöglegir en þeir voru löglegir. Einhverjir antíkgripir hjá þeim," segir Arnar og hlær.

Hann segist sjálfur hafa lent í þeirri reynslu að vera skammtað á sérstakan hátt um daginn. Þá hafi hann fengið 1,5 CL í einfaldan gin og tónik en 4 CL þegar hann pantaði sér vodka snafs.

„Þeir geta ekki svindlað á þér ef þú færð þér dry skot því þeir sjá bara glasið. En svo eiga menn til að sjá smugu þegar er verið að blanda einfaldan eða tvöfaldan út í gos. Barþjóninn fékk þetta allt saman í hausinn. Þetta voru tíu drykkir sem við horfðum á hann blanda. Hann var beðinn um að hella þeim öllum aftur og nota almennilegan sjússamæli. Það var fullt af kúnnum sem biðu og hlógu að þessu."

Arnar Þór segir að Neytendastofa hafi fylgt málinu á eftir með pósti. Þar voru veitingahúsaeigendur beðnir um að gera grein fyrir hvernig mæla þeir væru að nota og annað í þeim dúrnum.


Tengdar fréttir

Það er svindlað á þér - enginn staður með löggilta sjússmæla

Neytendastofa gerði nýlega könnun hjá um 20 vínveitingarhúsum og innflytjendum hvort að löggiltir sjússmælar og vínskammtarar væru í notkun. Þá var einnig athugað hvort að vínglös og bjórglös hefðu viðeigandi merkingar. Á vefsíðu Neytendastofu segir að tilgangurinn hafi verið að kanna hvort að reglum um vínmál, sem notuð eru til að mæla skammta áfengis sem ætlað er til sölu, væri fylgt eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×