Fleiri fréttir

Jarðskjálfti leggur hótel í rúst í Tyrklandi

Björgunarsveitir leita nú að tugum manna sem grafnir eru undir húsrústum eftir öflugann jarðskjálfta í austurhluta Tyrklands í gærkvöldi. Að minnsta kosti sjö manns fórust í skjálftanum sem mældist 5,6 á Richter.

Losa farminn úr flutningaskipinu Ölmu

Í birtingu verður farið að losa farminn úr flutningaskipinu Ölmu, sem var dregin til Fáskrúðsfjarðar um helgina eftir að hún missti stýrið út af Hornafilrði.

Ekkert bólar á nýrri stjórn í Grikklandi

Enn bólar ekkert á nýrri þjóðstjórn í Grikklandi og raunar hefur einn af minni stjórnmálaflokkum landsins þegar gengið á dyr í samningaviðræðunum sem nú standa yfir.

Brotist inn í söluturn

Brotist var inn í söluturn við Melabraut í Hafnarfirði í nótt og þaðan stolið tóbaki og skiptimynt úr peningakössum.

Rosabaugur yfir Reykjanesbæ

Rosabaugur um tunglið sást yfir Reykjanesbæ í gærkvöldi, en samkvæmt gamalli hjátrú á síkt fyrirbæri að boða váleg tíðindi.

Fjölmenn leit að ferðamanni á Fimmvörðuhálsi

Á annað hundrað björgunarsveitarmenn Landsbjargar leita nú að erlendum ferðamani á Fimmvörðuhálsi og á Mýrdalsjökli, eftir að hann hringdi í neyðarlínuna um klukkan hálf ellefu í gærkvöldi.

Stjórnarflokkarnir deila um gangagerð

Fresta þurfti fundi fjárlaganefndar í gær vegna andstöðu fulltrúa Samfylkingarinnar við fjárheimild vegna Vaðlaheiðarganga. Málið var tekið fyrir á þingflokksfundi flokksins í gær og loks náðist sátt um það seinnipartinn.

Tíminn til að hemja hlýnun að renna út

„Við erum að stefna í ranga átt varðandi loftslagsbreytingar,“ segir Fatih Birol, aðalhagfræðingur Alþjóðlegu orkustofnunarinnar. Hann segist ekki bjartsýnn á að leiðtogar ríkja heims verði tilbúnir til að færa þær fórnir, sem þarf til að breyta um stefnu.

Erfið myndun þjóðstjórnar

Viðræður um myndun þjóðstjórnar í Grikklandi standa enn yfir. Um miðjan dag í gær gengu fulltrúar litla hægriflokksins Laos á dyr og var þá gert hlé á viðræðunum, sem hafa staðið yfir frá því á sunnudag. Þeim verður þó haldið áfram í dag.

Leikjatölvum stolið

Brotist var inn í félagsmiðstöð unglinga í Garði um síðustu helgi og þaðan stolið þremur leikjatölvum ásamt fylgihlutum og leikjum. Þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins.

Teigsskógur og Hálsaleið ekki gerleg

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að lagning Vestfjarðavegar um Teigsskóg sé ekki á borðinu. Það muni skapa miklar deilur og málssóknir sem líklegt sé að tapist fyrir dómsstólum. Þá verði svokölluð Hálsaleið ekki farin, enda séu heimamenn mótfallnir henni.

Ekki um tvo erlenda menn að ræða

Ekki var um tvo erlenda karlmenn að ræða þegar ráðist var á tæplega tvítuga konu í Vestmannaeyjum á sunnudagsmorgninum síðastliðnum. Konan hefur dregið vitnisburð sinn til baka en hefur ekki viljað upplýsa hver eða hverjir það voru sem réðust á hana.

Árni Johnsen neitar að lúta niðurstöðunni

Húsafriðunarnefnd ákvað í gær að skyndifriða Skálholtsskóla, Skálholtskirkju og nánasta umhverfi. Nikulás Úlfar Másson, forstöðumaður nefndarinnar, segir þetta þýða að hætta verði byggingu Þorláksbúðar.

Vill útskýringar á frávísun máls

Eygló Harðardóttir þingkona hefur óskað eftir fundi í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis vegna frávísunar Héraðsdóms á máli Milestone gegn Karli Wernerssyni. Rökstuðningur við frávísunina er að lagabreytingar Alþingis á gjaldþrotalögum hafi ekki verið nægilega skýrar.

14 ára stúlku haldið í eitt ár sem kynlífsþræl

Grunur leikur á að 14 ára stúlku hafi verið haldið sem kynlífsþræl í íbúð í Gautaborg í eitt ár. Stúlkan, sem lögreglan frelsaði fyrir um viku, segist hafa búið við hótanir, ofbeldi eða nauðganir á hverjum degi. Þrír karlar og ein kona eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Þau neita öll sök.

Símastarfsmaður er grunaður um hlerun

Póst- og fjarskiptastofnun hefur nú til rannsóknar mál sem varðar meinta símhlerun starfsmanns símafyrirtækis. Þetta staðfestir Hrafnkell Gíslason, forstjóri PFS, við Fréttablaðið. Hann segir þetta mál það fyrsta sinnar tegundar sem stofnunin hafi fengið til athugunar. Því sé ekki lokið en muni ljúka í þessum mánuði.

NASA birtir myndir af smástirni

Smástirnið 2005 YU55 skaust framhjá jörðinni á rúmlega 48.000 kílómetra hraða í gær. YU55 var í einungis 324.600 kílómetra fjarlægð frá jörðinni - smástirnið var þannig nær jörðinni en tunglið.

Ekið á ungan pilt í Kópavogi

Ekið var á ungan pilt í Kópavogi rétt fyrir klukkan átta í kvöld. Slysið varð á Fífuhvammsvegi þar sem beygt er út á Hafnarfjarðarveg. Pilturinn var fluttur á slysadeild en lögregla hefur ekki upplýsingar um meiðsli hans.

Pedro og Buddy aðskildir

Forboðnar ástir finnast ekki einungis hjá mannfólkinu. Gæslumenn í dýragarðinum í Toronto uppgötvuðu fyrir nokkru að tvær karlkyns mörgæsir, þeir Pedro og Buddy, hefðu fellt hugi saman og ruglað reitum.

Fartölvu stolið í innbroti í Grafarholti

Tilkynnt var um innbrot í íbúðarhús í Grafarholti rétt fyrir klukkan átta í kvöld. Þjófarnir höfðu spennt upp svalahurð og farið inn í íbúðina. Þeir höfðu á brott með sér fartölvu. Þjófanna er nú leitað.

FIFA lúffar fyrir Englendingum og leyfir valmúann

Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur dregið í land og ákveðið að leyfa Enska landsliðinu að bera valmúamerki á keppnistreyjum sínum í landsleik á móti Spáni um næstu helgi. Valmúamerkið nota Bretar í ákveðinn tíma á hverju ári til þess að minnast fallinna hermanna.

Stúdentar mótmæla í Lundúnum

Þúsundir stúdenta mótmæltu í Lundúnum í dag. Mótmælendurnir gengu í gegnum miðbæ Lundúna og í átt að Dómkirkju Páls Postula, en þar hafa mótmæli gegn auðvaldi og fjármálakerfinu farið fram síðustu vikur.

Hélt hún væri með flensu en missti fæturna

Fyrst var talið að um hefðbundna flensu væri að ræða, stuttu síðar var hún flutt í skyndi á spítala og um morguninn vaknaði hún án fóta. Í Íslandi í dag heyrum sögu þriggja barna einstæðrar móður sem venst nú algjörlega nýju lífi.

Margt bendir til þess að sjúkur brennuvargur sé á ferli

Brennuvargar ollu milljónatjóni í Vestmannaeyjum í gær þegar kveikt var í síldarnót. Þetta er ein af mörgum óupplýstum íkveikjum í eyjum á undanförnum árum. Bæjarstjórinn segir sjúkan einstakling ganga lausan.

Samverustundir í Hafnarfirði

Boðað hefur verið til samverustunda í Hafnarfirði í kvöld vegna sviplegs fráfalls karlmanns á fertugsaldri sem lést í gær. Ekki er unnt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu.

Fannst látinn í Hafnarfirði

Karlmaður fannst látinn á opnu svæði í Hafnarfirði í gærkvöld. Þetta staðfestir lögreglan í samtali við Vísi. Hún segir að maðurinn hafi látist af völdum veikinda og vildi ekki gefa nánari upplýsingar um málavexti.

Allt annað en Teigsskóg, segir Ögmundur

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur fallið frá því að láta Vestfjarðaveg liggja yfir hálsana tvö í Gufudalssveit og er tilbúinn að skoða alla aðra kosti nema þann að fara í gegnum Teigsskóg. Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, segir að leiðin um Teigsskóg sé sú eina færa.

Vilja að lántaka vegna Vaðlaheiðarganga verði heimiluð

Fjárlaganefnd Alþingis veitir fjármálaðherra heimild til þess að taka lán upp á einn milljarð króna vegna Vaðlaheiðarganganna, samkvæmt samþykkt meirihluta fjárlaganefndar. Þetta kom fram í útvarpsfréttum ríkisútvarpsins.

Fær milljón eftir hjartastopp við Fylkisheimilið

Íþróttafélagið Fylkir var í dag dæmt til að greiða karlmanni rúmlega eina milljón króna í bætur vegna slyss sem hann varð fyrir við félagsheimili liðsins í Árbæ í september árið 2005.

Jólageitin risin á fætur

Sænska jólageitin við Ikea er risin á fætur aftur með aðstoð kranabíls eftir óvæntan skell sem hún fékk í rokinu aðfaranótt þriðjudagsins. Hún hefur verið kirfilega fest á sinn stað í Kauptúninu og miklar vonir eru bundnar við það að hún standi af sér það óveður sem hugsanlega kann að koma á næstunni.

Þór heimsækir Ísfirðinga

Nýja varðskipið Þór er nú komið á Ísafjörð en þar var tekið á móti fleyinu með pompi og pragt í dag. Fulltrúar frá bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, björgunarsveitum og lögreglu og slökkviliði fóru fyrst um borð og skoðuðu skipið sem er allt hið glæsilegasta. Skipið var síðan opnað almenningi og verður það til klukkan sex í dag. Stanslaus straumur fólks hefur legið í skipið.

Segir ekki koma til greina að hætta við kjarnorkuáætlunina

Forseti Írans Mahmoud Ahmadinejad segir að ekki komi til greina að hnika um millimeter frá kjarnorkuáætlun landsins en Kjarnorkumálastofnun Sameinuðu þjóðanna fullyrðir í nýrri skýrslu að íranar hafi framkvæmt leynilegar kjarnorkutilraunir.

Tuttugu og sex utanlandsferðir á vegum forsætisráðuneytis

Tuttugu og sex utanlandsferðir voru farnar af forsætisráðuneytinu og stofnunum þess á fyrstu níu mánuðum þessa árs og samtals fóru fjörutíu manns í ferðirnar. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn sem Ásmundur Einar Daðason lagði fyrir á þingi. Ráðuneytið sjálft hefur fór í tuttugu og eina ferð, ein ferð var farin á vegum þjóðgarðsins á Þingvöllum og fjórar á vegum Umboðsmanns barna. Heildarkostnaður við ferðirnar nam ríflega 8,7 milljónum króna. Kostnaðurinn er vegna fargjalda og greiddra dagpeninga.

Eiríkur svarar framsóknarmönnum fullum hálsi

Eiríkur Bergmann Einarsson dósent við Bifröst segir rangt að hann hafi í grein sinni í Fréttatímanum á dögunum "gefið sterklega í skyn að Framsóknarflokkurinn tengist hatursfullri öfgaþjóðernisstefnu,“ eins og þingflokkur Framsóknarmanna heldur fram í yfirlýsingu en framsóknarmenn hafa fordæmt skrif Eiríks. Eiríkur hefur sjálfur sent frá sér yfirlýsingu og þar bendir hann á að umfjöllun sín um Framsóknarflokkinn hafi orðrétt verið á þessa leið:

Tíu þúsund dómínó-kubbar féllu

Það er ekki á hverjum degi sem þúsundir dómínó kubbar falla en á safni einu í Pennsylvaniu í Bandaríkjunum á dögunum horfðu fjöldi gesta á tíu þúsund kubba falla á hliðina. Það voru bræðurnir Steve og Mike Perrucci sem eyddu yfir 15 klukkutímum í að raða kubbunum samviskulega upp. Þeir eru kallaði Dómínó-bræðurnir enda hafa þeir sérhæft sig í kubbunum síðustu ár. Í myndskeiðinu hér að ofan er hægt að sjá kubbana tíu þúsund hrynja. Ansi mögnuð sjón!

María segir siðareglurnar vera þöggunartæki fyrir Davíð Þór

María Lilja Þrastardóttir, sem skrifaði umdeildan pistil um Davíð Þór Jónsson á vefinn Innihald.is, er hætt að skrifa á vefinn. Ritstjórn Innihalds tók í morgun út hinn umdeilda pistil hennar og bað hlutaðeigandi, bæði Davíð og Maríu Lilju, afsökunar á birtingu hans. Ástæðan er sú að siðanefnd vefsíðunnar komst að því að með pistlinum hafi María Lilja brotið siðareglur.

Sjá næstu 50 fréttir