Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ný eyja að koma upp úr hafinu við Kanaríeyjar Ný eyja er að koma upp úr hafinu undan ströndum Kanaríeyja. Neðanjarðareldgos hefur staðið yfir síðan í vor suður af eyjunni El Hierro og strókar úr gosinu ná nú upp undir yfirborð sjávarins. 9.11.2011 07:41
Reyndu að brjótast inn í hótel Lögreglunni í Reykjavík var tilkynnt um tvo menn sem væru að reyna að brjóta upp bakdyr á hóteli við Laugaveg um klukkan fjögur í nótt. 9.11.2011 07:36
Enn er beðið eftir nýrri þjóðstjórn í Grikklandi Ekki tókst að mynda fyrirhugaða þjóðstjórn í Grikklandi í gærdag eins og stefnt var að. Grískir embættismenn segja að stjórnin verði tilkynnt í dag. 9.11.2011 07:28
Vankaður ökumaður í töluverðum vandræðum Liðlega tvítugur karlmaður, sem var einn á ferð í bíl sínum um tvö leitið í nótt, vankaðist svo alvarlega af höfuðhöggi, þegar bíll hans hafnaði úti í skurði austur í Flóa, að hann gat ekki gefið lögreglunni á Selfossi neina haldgóða lýsingu á staðsetningu. 9.11.2011 07:26
Litríkur pólitískur ferill Berlusconi kominn á endastöð Pólitískur ferill Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu er kominn á endastöð en hann hefur verið í litríkari hópi ítalskra stjórnmálamanna á síðustu tveimur áratugum. 9.11.2011 07:23
Brennuvargar ollu milljóna tjóni í Eyjum Lögreglan í Vestmannaeyjum leiltar nú brennuvarga, sem ollu milljóna tjóni með því að kveikja í síldarnót, sem stóð á athafnasvæði netaverkstæðisins Ísnets, en viðlíka nót kostar 50 til 60 milljónir króna. 9.11.2011 07:19
Neytendur fengu bætur greiddar út í gær Hátt í hundrað einstaklingar sem lögðu fram kæru vegna samráðs olíufélaganna á sínum tíma fengu bætur sínar greiddar í gær. 9.11.2011 07:00
Byggðarökin fyrir göngum nægja ekki - fréttaskýring Hvaða þættir skipta máli við forgangsröðun í samgönguframkvæmdum? Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á þriðjudag, þar sem rætt var um fyrirhuguð Vaðlaheiðargöng, spannst nokkur umræða um rök fyrir samgönguframkvæmdum. Einn nefndarmanna, Róbert Marshall, spurði Ögmund Jónasson innanríkisráðherra, sem þar sat fyrir svörum, hvort ráðherra horfði á málið eingöngu frá fjárhagslegu sjónarmiði, eða hvort hann horfði á það með heildstæðari hætti. Átti hann þá við byggðarök og samfélagsáhrif. 9.11.2011 07:00
Framsókn ósátt við reikninga AFA JCDecaux Ísland, sem á og rekur flest strætóskýli borgarinnar, hefur höfðað mál á hendur Framsóknarflokknum vegna birtingarkostnaðar á auglýsingum flokksins fyrir þingkosningarnar 2009. 9.11.2011 06:00
Nýsköpunarfyrirtæki fengu 440 milljónir Alls 53 lögaðilar fengu samtals 440,9 milljónir króna endurgreiddar frá ríkinu vegna rannsóknar- og þróunarstarfs á árinu 2010. 9.11.2011 05:45
Lítil samskipti milli ráðuneyta Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir gríðarlega þykka veggi milli ráðuneyta hér á landi. Það valdi oft upplýsingaskorti og geti verið til vansa. 9.11.2011 05:00
Segja 2010-börn fá inni næsta ár Reykjavíkurborg stefnir að því að öll börn fædd á árinu 2010 komist inn á leikskóla á árinu 2012 og er þannig leitast við að efna fyrirheit um að öll börn fái leikskólapláss árið sem þau verða tveggja ára. Nokkur styr hefur staðið um leikskólamálin í borginni þar sem gagnrýnt hefur verið að börn úr 2010-árgangi hafi ekki verið tekin inn nú í vetur þrátt fyrir að laus rými séu í mörgum skólum. 9.11.2011 05:00
Ferðir hnúfubaka afar líkar á milli ára Rannsóknir Hafrannsóknastofnunar á árstíðabundinni útbreiðslu og fari skíðishvala við Ísland hafa þegar varpað ljósi á ýmislegt sem tengist viðveru og fartíma hvala við landið. Rannsóknirnar hafa til dæmis gefið fyrstu vísbendingar um aðsetur hrefnu að vetrarlagi. 9.11.2011 04:30
Sögð setja byrðar á bágstödd sveitarfélög Sú ákvörðun að úthluta 300 milljónum af 700 milljóna aukaframlagi jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til Álftaness var gagnrýnd harðlega á Alþingi í gær. Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að með þessu væri verið að setja byrðar á þau sveitarfélög sem bágast stæðu. 9.11.2011 04:30
Allt óvíst um Grímsstaði Ekki liggur ljóst fyrir hvenær kínverska fjárfestinum Huang Nubo verður svarað varðandi áform hans um kaup á Grímsstöðum á Fjöllum. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði á Alþingi í gær að vanda yrði til úrskurðarins. 9.11.2011 03:00
Þúsundir hafa fallið í Sýrlandi Átökin í Sýrlandi síðustu átta mánuði hafa kostað að minnsta kosti 3.500 manns lífið, samkvæmt nýjum tölum frá mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. 9.11.2011 01:30
Ósátt við afskipti ríkisvalds Sveitarstjórnarfólk í Danmörku frábýður sér ofríki þjóðþingsins í Kristjánsborg. Þetta kemur fram í nýlegri könnun sem Jótlandspósturinn fjallar um. 9.11.2011 00:45
Á erfitt verk fyrir höndum Lúkas Papademos verður að öllum líkindum forsætisráðherra nýju bráðabirgðastjórnarinnar í Grikklandi, sem næstu vikurnar þarf að koma í framkvæmd óvinsælum aðhaldsaðgerðum í tengslum við björgunarpakka ESB. Skipun stjórnarinnar er hins vegar ekki lokið, þar sem erfiðlega hefur gengið að manna ráðherrastöðurnar. Papademos er fyrrverandi aðstoðarbankastjóri Seðlabanka Evrópusambandsins og var áður seðlabankastjóri Grikklands. 9.11.2011 00:00
Brennimerktu á sér rassana - allt tiltækt slökkvilið kallað á svæðið Þrír piltar um tvítugt frá ástralska bænum Toowoomba, fóru líklega á eitt heimskulegasta fyllerí síðustu helgar, þegar þeir enduðu á því að brennimerkja rassinn á sér með heitum járnteini. 8.11.2011 21:00
Sálfræðingur Guðrúnar Ebbu borinn þungum sökum Með staðhæfingum um falskar minningar Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur er verið að bera sálfræðing hennar þungum sökum. Þetta segir formaður Sálfræðingafélags Íslands. 8.11.2011 19:15
Cain mun ekki hætta við framboð Forsetaframbjóðandinn Herman Cain segist ekki ætla að hætta við framboð sitt eftir að nokkrar konur stigu fram og lýstu óviðeigandi hegðun hans. 8.11.2011 22:32
Berlusconi mun hverfa úr embætti Forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, hefur tilkynnt að hann ætli að segja af sér um leið og efnahagsumbætur verða samþykktar á þinginu. 8.11.2011 21:53
Fjarlægðu loftvarnarsprengju úr endaþarmi Króatíski fréttamiðillinn Slobodna Dalmacija greindi frá því í dag að læknar hefðu þurft að fjarlæga loftvarnarsprengikúlú úr endaþarmi fimmtugs karlsmans í Zagreb. Talið er að sprengjan hafi setið föst eftir að maðurinn kom henni fyrir í endaþarmi sínum. 8.11.2011 21:30
Aðeins fjórir húmoristar í símaskránni en 45 ljónatemjarar Íslendingar eiga hátt í fjörutíu geimfara, tíu kónga, eina barnastjörnu og einn apa ef marka má skráningar í Símaskránna. 8.11.2011 20:15
Mikið um árekstra í dag Alls urðu 20 árekstrar í dag, þar af einn verulega harður árekstur þar sem flytja þurfti tvo á spítala til frekari aðhlynningar. Sá árekstur var á Dalvegi í morgun samkvæmt upplýsingum frá Árekstri.is Báðir bílarnir voru að auki óökufærir. 8.11.2011 20:55
Ætla að ná í sýni af tungli Mars Á morgun munu Rússar skjóta eldflaug á loft frá Kasakastan. Markmið verkefnisins er að safna sýnum frá tunglinu Phobos en það er á sprotbraut um Mars. Verkefnið kallast Phobos-Grunt - rússneska orðið „Grunt" þýðir jarðvegur á íslensku. 8.11.2011 20:51
16 látast á trúarsamkomu á Indlandi Talið er að sextán manns hafi látist á fjöldasamkomu á norður-Indlandi í dag. Yfirvöld í bænum Haridwar segja að fólkið hafi látist í miklum troðningi sem átti sér stað á trúarsamkomu í bænum. 8.11.2011 19:50
Móður langveikra systra hótað að vera sett á lista Interpol Foreldrar tveggja langveikra systra standa uppi með allt að þrjátíu milljóna króna sjúkrahúsreikning vegna aðgerða á systrunum í Boston. Skuldin hefur verið sett í innheimtu og fá þau daglega símtöl þar sem þeim er hótað handtöku ef þau ekki borga. 8.11.2011 19:45
Berlusconi ætlar að segja af sér Silvio Berlusconi mun segja af sér sem forsætisráðherra Ítalíu eftir að hann tapaði meirihlutanum á þingi í dag þegar greitt var atkvæði um fjárlagafrumvarp. Það var þó samþykkt. 8.11.2011 19:16
Ögmundur ítrekað spurður hvenær og hvernig hann ætli að svara Nubo Pirringur Samfylkingarmanna í garð atvinnustefnu Vinstri grænna opinberaðist á Alþingi í dag þegar Kristján L. Möller, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, reyndi að fá Ögmund Jónasson innanríkisráðherra til að svara því hvenær og hvernig hann hygðist afgreiða ósk Kínverjans Nubo um að kaupa Grímsstaði á Fjöllum. 8.11.2011 18:56
Áhættumat vegna hryðjuverka: Vatnsból skotmörk Vatnsból höfuðborgarbúa eru talin geta verið skotmörk hryðjuverkamanna þar sem hægt er að menga þau. Þetta kemur fram í nýju áhættumati sem gert var fyrir svæðið. 8.11.2011 18:30
Stærsta fíkniefnamál ársins: Úrskurðaður í 4 vikna gæsluvarðhald Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag karlmann á sextugsaldri, sem grunaður er um að hafa staðið að innflutningi í umfangsmesta fíkniefnamáli ársins, í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhalds. Maðurinn hefur áfrýjað úrskurðinum til Hæstaréttar en hann hefur setið í gæsluvarðhaldi síðustu vikur. 8.11.2011 16:33
Mál Eiðs Smára gegn DV tekið fyrir í Hæstarétti Hæstiréttur tekur fyrir á föstudaginn kemur mál sem knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen höfðaði gegn blaðamanninum Inga Frey Vilhjálmssyni og ritstjórum DV, þeim Reyni Traustasyni og Jóni Trausta Reynissyni. 8.11.2011 16:16
Áætlun Berlusconis samþykkt en meirihlutinn sat hjá Umdeild atkvæðagreiðsla um fjárlagafrumvarp var samþykkt rétt í þessu í neðri deild ítalska þingsins. Frumvarpið var samþykkt með 308 atkvæðum en 321 þingmaður ákvað að sitja hjá í málinu og greiða ekki atkvæði. 8.11.2011 15:29
Tæplega fjögur þúsund fallnir í Sýrlandi Nú er talið að rúmlega 3500 manns hafi látið lífið í átökum frá því mótmælin í Sýrlandi gegn ríkjandi stjórnvöldum hófust. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna um ástandið í landinu. Fregnir hafa borist af aukinni hörku stjórnarhermanna í borginni Hama og segja vitni að beitt hafi verið sprengjuvörpum og skriðdrekum í nokkrum hverfum borgarinnar. 8.11.2011 15:14
Ákærð fyrir að keyra dópuð og stela miklu magni af skartgripum Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur gefið út ákæru á hendur konu á fertugsaldri fyrir umferðarlagabrot og þjófnað. Konan er grunuð um að hafa keyrt undir áhrifum fíkniefna í Reykjavík fyrr á þessu ári og einnig fyrir að hafa ekið án ökuréttinda síðar á árinu. 8.11.2011 14:13
Sarkozy um Netanyahu: „Ég þoli hann ekki - hann er lygari“ Þjóðarleiðtogarnir Nicholas Sarkozy Frakklandsforseti og kollegi hans í Bandaríkjunum Barack Obama lentu í ógöngum á G20 fundinum í Cannes á dögunum. Þeir voru að bíða eftir því að blaðamannafundur hæfist þegar talið barst að Bejamín Netanyahu forsætisráðherra Ísraels. 8.11.2011 13:45
Tói, Ranka og Blín samþykkt - ekki Diego Mannanafnanefnd hafnaði í gær beiðni um að barn megi heita Víking en samþykkti kvenkynsnafnið Blín. Þetta kemur fram í úrskurði nefndarinnar frá því í gær en á meðal nafna sem nefndin samþykkti er millinafnið Hornfjörð og eiginnafnið Rúbý. Nefndin hafnaði eiginnafninu Diego meðal annars á þeim forsendum að ritháttur nafnsins geti ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem i er ekki ritað á undan e í ósamsettum orðum. 8.11.2011 13:28
Jóhanna fundaði með Rompuy í Brussel Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fundaði í dag með Herman Van Rompuy, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins, í Brussel. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að þau hafi rætt um stöðu efnahagsmála á alþjóðavettvangi, einkum vandann sem leiðtogar evrusvæðisins og Evrópusambandsins hafi unnið að því að leysa undanfarnar vikur. 8.11.2011 13:19
Jólageitin féll í óveðrinu Jólageit Ikea féll á hliðina í óveðrinu sem gekk yfir í gærkvöld og í nótt. Kristín Lind Steingrímsdóttir, markaðsstjóri Ikea, segir að geitin sé ekki mikið skemmd. Hún verði reist aftur um leið og veður leyfi, vonandi fyrir hádegi á morgun. Það á ekki af geitinni að ganga því að í fyrra var kveikt í henni. 8.11.2011 13:19
Hvíta húsið kannast ekkert við geimverur Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem því er formlega neitað að þau hafi einhverja þekkingu á yfirskilvitlegum atburðum. 8.11.2011 12:58
Of gamall til að keyra Áttræður ökumaður lenti í vandræðum í umferðinni um helgina og ók bæði á umferðarskilti og kyrrstæðan bíl. Maðurinn slasaðist ekki en var mjög illa áttaður þegar lögreglan kom á vettvang. Í framhaldinu var kallaður til læknir og mat hann það svo að hinn fullorðni ökumaður væri óhæfur til að stjórna ökutæki. 8.11.2011 12:52
Fullur maður féll af hjóli Karl á þrítugsaldri féll af reiðhjóli í Hafnarfirði um helgina. Hann fékk skurð á höfuðið og var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Óhappið má skrifa á ástand mannsins en hann var ölvaður. Hjólið reyndist vera stolið og var það flutt á lögreglustöð. 8.11.2011 12:50
Leyfði nauðgun á dóttur sinni Maður á fimmtugsaldri var dæmdur til fangelsisvistar í Vejle í Danmörku í gær fyrir að selja átta ára dóttur sína í kynlífsþrælkun. Þrír aðrir karlmenn voru dæmdir í sama máli. 8.11.2011 12:30
Gróf upp lík og klæddi í kjóla Lögregluyfirvöld í Rússlandi hafa handtekið mann eftir að jarðneskar leifar 27 ungra kvenna fundust í íbúð hans. Maðurinn er grunaður um að hafa grafið lík kvennanna upp víðs vegar um Rússland, en flestar í borginni Nizhny Novgorod þar sem hann býr. 8.11.2011 12:30