Fleiri fréttir

Flugvelli í Bangkok lokað vegna flóða

Næst stærsta flugvelli Bangkok borgar í Tælandi hefur verið lokað vegna hinna gríðarlegu vatnaxaxta sem nú hrjá borgarbúa. Völlurinn er aðallega notaður til innanlandsflugs en alþjóðaflugvöllur borgarinnar sem er á öðrum stað í borginni er enn opinn. Mikil flóð hafa verið í landinu frá því í júlí og hafa rúmlega 360 manns látið lífið. Sjö hverfi höfuðborgarinnar Bangkok eru í hættu eða þegar komin undir vatn.

Dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða börnin sín

Danskur karlmaður á fimmtugsaldri var dæmdur í lífstíðarfangelsi í morgun fyrir að myrða þrjú börn sín þann 9. febrúar síðastliðinn. Jette Christiansen, dómsformaður sagði við uppkvaðningu dómsins að fjölskipaður dómur hefði verið einhuga í ákvörðun sinni.

Lét lífið á lestarstöð

Táningsstúlka lést á lestarstöð í Liverpool um helgina. Hún féll á milli lestarvagnsins og pallsins.

Obama leitar til stjarnanna

Kosningabaráttan í Bandaríkjunum er ekkert gamanmál og gríðarlegt fjármagn þarf til að koma málstað sínum á framfæri. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur leitað stuðnings síðustu vikur til að fjármagna baráttu sína fyrir endurkjöri á næsta ári.

Strákar nota Netið meira til upplýsingaöflunar en stelpur

Fimmtán ára gamlir strákar nota tölvu mun meira til upplýsingaöflunar en stelpur, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem gerð var til að meta tölvu og netnotkun og til að meta færni nemenda við að vinna með og meta upplýsingar á netsíðum.

Aspirnar fjarlægðar í Vonarstræti og Tjarnargötu

Vinna er hafin við að endurnýja trjágróður í Vonarstræti og Tjarnargötu. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að Gráreynir, garðahlynur og skrautreynir munu leysa aspirnar sem þar hafa staðið af hólmi, en rætur þeirra hafa eyðilagt hellulagnir og hitalagnir. Hellulögnin í götunni verður einnig lagfærð. Nýju trén fá gott vaxtarrými, en gengið verður frá svokölluðu rótarburðarlagi undir hellulögðum svæðum þannig að rætur skemmi ekki út frá sér. Auk trjánna verða settir niður 540 krókusar sem blómstra snemma á vorin. Verklok eru áætluð 25. nóvember.

Rina ógnar Mið-Ameríku

Fellibylurinn Rina nálgast nú Mið-Ameríku. Veðrakerfið er nú flokkað sem 2. stigs fellibylur.

Jaguar innkallar 18.000 bíla

Bílaframleiðandinn Jaguar hefur innkallað tæplega 18.000 eintök af bílum sínum. Hugbúnaðargalli í bílunum gerir ökumönnum ókleift að slökkva á hraðastilli farartækisins (e. cruise control).

Gaddafi var grafinn í morgun

Muammar Gaddafi hinn fallni leiðtogi Líbíu var grafinn í dögun í morgun á leynilegum stað í einni af eyðimörkum landsins.

Starfsmenn komu í veg fyrir eldsvoða

Starfsmönnum í vörumiðstöð Samskipa vð Kjalarvog í Reykjavík tókst með snarræði að slökkva eld sem kviknaði í rafmótor við loftræstikerfi í húsinu í gærkvöldi.

Tólf fyrirtæki auglýsa gegn Arion banka

Tólf fyrirtæki segjast í opnuauglýsingu í dagblöðum, ekki sætta sig við að leikreglur á samkeppnismarkaði séu þverbrotnar. Þar vísa þau til Pennans og rifja upp að skilanefnd Kaupings hafi tapað átta milljörðum króna á gjaldþroti félagsins.

Fellibylurinn Rina sækir í sig veðrið

Fellibylurinn Rina sækir nú í sig veðrið í vesturhluta Karabíska hafsins. Skips úr flota Nígaragúa er saknað frá því í gærkvöldi en skipið var að flytja fólk frá strandhéraði þar sem talið var að Rina myndi ganga á land. Um borð í því voru 27 manns auk áhafnar skipsins.

Tala látinna komin í 279 í Tyrklandi

Tala látinna í jarðskjálftunum í Tyrklandi er komin í 279 manns og rúmlega 1.300 liggja slasaðir. Mörg hundruð manna er enn saknað.

Koparþjófar stálu þriggja tonna kirkjuklukku

Bíræfnir koparþjófar hafa stolið tæplega þriggja tonna þungri sögulegri kirkjuklukku sem stóð fyrir utan St Mary´s dómkirkjuna í San Francisco. Klukku þessari var stöðugt hringt þegar jarðskjálftinn mikli reið yfir borgina árið 1906 og lagði hana í rúst.

Björgun heldur áfram á morgun

Vonast er til þess að hægt verði að bjarga Sölku GK úr Sandgerðishöfn þar sem hún hefur legið í kafi frá því á sunnudag.

Flæðir yfir hálendið og friðlýstar perlur

Skráning Náttúrufræðistofnunar (NÍ) og Landgræðslu Íslands (LÍ) sýnir að lúpína hefur tekið sér varanlega bólfestu á stórum svæðum á hálendinu og í helstu náttúruperlum Íslands sem hafa verið friðlýstar. Forgangsmál er að stemma stigu við útbreiðslu lúpínu á hálendinu.

Áríðandi að tilkynna níðið strax

„Það er gríðarlega mikilvægt að fólk hafi strax samband við lögreglu, sé minnsti grunur um að hryssum hafi verið misþyrmt.“ Þetta segir Árni Þór Sigmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Gæti gegnt mikilvægu ráðgjafarhlutverki

Hagfræðingurinn Paul Collier, sem hefur helgað sig rannsóknum á þróunarríkjum og þróunaraðstoð, segir Ísland geta gegnt mikilvægu hlutverki á sviði þróunaraðstoðar.

Öldruðu drykkjufólki fjölgar

Komum miðaldra og aldraðra einstaklinga á Vog, með alvarleg einkenni dagdrykkju, heldur áfram að fjölga. Sumir þeirra eru að koma á sjúkrahúsið í fyrsta sinn.

Hlaut 15 mánaða dóm fyrir smygl

Tæplega þrítug kona hefur verið dæmd í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að skipuleggja og fjármagna smygl á tæplega 500 grömmum af kókaíni til landsins. Tvö burðardýr, sem hún útvegaði til verksins, voru dæmd í tíu og átta mánaða skilorðsbundið fangelsi. Efnið sem þau fluttu til landsins var sterkt og hefði mátt framleiða úr því rúmlega tvö kíló af kókaíni, að því er fram kemur í dómnum.

Skoðað hvort ákvæðum sé fylgt

Ríkisendurskoðun vinnur nú að úttekt á öllum bindandi þjónustusamningum ráðuneytanna, sem eru rúmlega 140 talsins. Búið er að kalla eftir frekari upplýsingum og svörum frá fimm ráðuneytum og hafa þrjú svarað: mennta- og menningarmálaráðuneyti, velferðarráðuneyti og forsætisráðuneyti.

Reglur settar um siglingar við Ísland

Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, hefur ásamt átta þingmönnum úr fjórum flokkum lagt fram tillögu um að Alþingi feli innanríkisráðherra að semja reglur um siglingaleiðir við norðan- og vestanvert landið. Verkið verði unnið í samvinnu við umhverfisráðherra og utanríkisráðherra.

Dvínandi vonir um að fólk finnist á lífi

Sex manns var bjargað úr rústum húsa á jarðskjálftasvæðinu í austanverðu Tyrklandi í gær. Fjórum var bjargað úr rústum sama húss eftir að einn þeirra náði að hringja eftir hjálp úr farsíma sínum og greina frá því hvar hann var. Tveir til viðbótar fundust eftir að hafa verið grafnir undir braki í 27 klukkustundir.

Öldruð kona handtekin fyrir að selja geimgrjót

Dularfull leyniaðgerð NASA hefur vakið athygli fjölmiðla í Bandaríkjunum, en fréttastofa AP greinir frá því að 72 ára gömul kona hafi verið handtekin eftir að hún reyndi að selja sandkorn frá tunglinu.

Sorpa harmar alvarlegt umferðarslys

Íslenska Gámafélagið ehf. og SORPA bs., harma alvarlegt umferðarslys sem varð sl. miðvikudag, utan við endurvinnslustöð SORPU við Dalveg í Kópavogi, þar sem gámaflutningabíll og maður á reiðhjóli lentu í árekstri.

Salmonella í smygluðum andabringum: Mikilvægt að elda allt kjöt vel

Einstaklingarnir tveir sem smituðust af illvígri salmonellu í síðasta mánuði hafa náð sér að fullu, að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis. Hann segir að fólkið hafi fengið meðferð sem gekk vel og ber enginn alvarlegan skaða af smitinu sem kom upp þegar fólkið snæddi smyglaðar andabringur frá Hollandi í fjölmennri veislu.

Tilræðismaður leiddur fyrir dómara

Maður sem sakaður er um að hafa skipulagt morðtilræði á hendur erindreka Sádí-Arabíu í Bandaríkjunum var leiddur fyrir dómara í New York í dag. Hann neitaði öllum sökum.

Borðuðu smyglað andakjöt: Átta veiktust og tveir alvarlega

Tveir einstaklingar greindust tveir með Salmonellu enteritidis í lok september hér á landi. Við nánari athugun kom í ljós að allir höfðu þeir tekið þátt í fjörutíu manna matarveislu þar sem hollenskar andabringur sem smyglað hafði verið til landsins voru á boðstólum. Þetta kemur fram á vef Landlæknisembættisins. Andabringurnar höfðu verið framreiddar vel rauðar og alls munu átta einstaklingar hafa veikst í veislunni. Frystar hráar bringur voru enn til þegar Landlæknir hóf rannsókn á málinu og því var hægt að staðfesta að þær voru sýktar af Salmonellu afbrigðinu sem um ræðir.

Brenndi lúxusbíla í Berlín

Lögreglan í Berlín hefur handtekið 27 ára mann fyrir að hafa kveikt í yfir 100 bílum. Óttast var að árásirnar væru pólitískar en svo reyndist ekki.

Allt á huldu um tilboðin í Perluna

Enn hafa engar upplýsingar verið gefnar um þau tilboð sem bárust í Perluna eftir að frestur til að skila þeim inn rann út í síðustu viku.

Nýjar ásakanir á hendur Týmósjenkó

Yfirvöld í Úkraínu tilkynntu í dag að fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Júlía Týmósjenkó, væri á ný undir rannsókn yfirvalda.

Óhugnanlegt morð í Skotlandi

Rannsókn er hafinn á dauða skotans Stuart Walker. Lík hans fannst á iðnaðarsvæði í Cumnock, Skotlandi í gær.

Samningur við Rússa um orkumál

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Sergey Shmatko, orkuráðherra Rússlands, undirrituðu í morgun samstarfssamning milli Íslands og Rússlands um jarðhitamál.

WikiLeaks gerir hlé á starfi sínu

Uppljóstrunarsíðan WikiLeaks ætlar að hætta tímabundið að birta gögn á vef sínum vegna peningaskorts. Aðstandendur vefsíðunnar segja að sökum þess að kreditkortafyrirtæki hafi ekki viljað miðla peningafærslum til WikiLeaks hafi þeir tapað tugum milljóna dala. Samkvæmt frásögn Daily Telegraph tilkynnti Julian Assange þetta á blaðamannafundi klukkan eitt í dag.

Lík stuðningsmanna Gaddafi finnast á hóteli

Mannréttindavaktin tilkynnti í dag að lík 53 manna hefðu fundist á hótelherbergi í Sirte í Líbíu. Hótelið var undir stjórn byltingarhermanna sem börðust í borginni.

Will Ferrell heiðraður

Grínleikarinn Will Ferrell hlaut í gær hin virtu Mark Twain verðlaun í gær.

Kvennafrídagurinn í dag

Í dag, 24. október, er kvennafrídagurinn. Þennan dag, fyrir 36 árum, lögðu íslenskar konur niður vinnu til þess að sýna fram á mikilvægi kvenna í atvinnulífinu. Tveir ráðherrar í ríkisstjórninni, þau Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hafa skrifað greinar sem birtast í Fréttablaðinu og hér á Vísi í tilefni dagsins.

Sjá næstu 50 fréttir