Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þurfa að greiða 57 milljarða Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur sektað Google um 500 milljónir dala, eða um 57 milljarða króna, fyrir ólöglegar lyfjaauglýsingar á vefsíðum sínum. Um var að ræða lyfseðilsskyld lyf frá kanadískum lyfjaframleiðenda, en ólöglegt er að auglýsa slík lyf á netinu í Bandaríkjunum. 26.8.2011 07:00
Með byssu á bensínstöð Lögreglan fékk í nótt tilkynningu um mann sem væri með haglabyssu á bensínstöð í Breiðholti. Sérsveit Ríkislögreglustjóra var kölluð til en almennir lögreglumenn sem mættu fyrstir á vettvang höfðu leyst málið áður en sveitin mætti. 26.8.2011 06:58
Tugþúsundir e-taflna í farangri 17 ára pilts Sautján ára íslenskur piltur var tekinn með tösku sem innihélt mikið magn fíkniefna í Leifsstöð aðfaranótt miðvikudags. 26.8.2011 06:00
Umfjöllun fjölmiðla leiðir til rannsókna Umfjöllun fjölmiðla um fjárhagsstöðu fyrirtækja og stofnana hefur verið kveikja að athugunum Kauphallar Íslands sem enda með fjársekt í um 40 prósentum tilvika, síðan í nóvember 2008. 26.8.2011 06:00
Tekur stökk í skoðanakönnun Verkamannaflokkurinn bætir við sig talsverðu fylgi í nýrri skoðanakönnun sem birt var í norskum fjölmiðlum í gær. Spurt var um hvaða flokk fólk myndi kjósa ef gengið yrði til þingkosninga nú. 26.8.2011 05:30
Talin hafa gengið í veg fyrir bíl Kona á níræðisaldri hlaut talsverða áverka, þar á meðal beinbrot, þegar ekið var á hana á gatnamótum Grensásvegar og Bústaðavegar á þriðja tímanum í gær. Ekki var vitað um tildrög slyssins síðdegis í gær en talið er að konan hafi gengið út á götuna og í veg fyrir bílinn. 26.8.2011 05:00
Stofninn mun minni en síðustu ár Rjúpnastofninn er mun minni í upphafi vetrar en hann hefur verið síðustu ár, samkvæmt talningu sérfræðinga Náttúrufræðistofnunar Íslands (NÍ). „Talningarnar í vor sýndu okkur að það var mikil fækkun um allt land,“ segir Ólafur Karl Nielsen, fuglafræðingur á NÍ. Hann segir slæmt tíðarfar og kulda í vor að auki hafa haft mikil áhrif á viðkomu rjúpunnar, með þeim afleiðingum að stofninn sé nú minni en hann hafi verið árum saman. 26.8.2011 05:00
Reyna að stöðva hungurverkfall Ríkisstjórn Indlands reynir nú að binda enda á hungurverkfall aðgerðasinnans Anna Hazare, sem hefur enst í níu daga. Ríkisstjórnin hefur kallað eftir því að allir flokkar á þingi ræði kröfur Hazares um löggjöf gegn spillingu. Hann hefur sagst munu hætta í hungurverkfallinu ef ríkisstjórnin leggur til skriflega að eftirlitsaðilar verði ráðnir yfir forsætisráðherra og dómskerfinu. 26.8.2011 04:30
Hvetja fisksala til að sniðganga HB Granda Bresku samtökin Whale and Dolphin Conservation Society (WDCS) hvöttu í fyrradag sölumenn fisks og franskra, hins þjóðlega breska réttar, til að hætta að kaupa fisk frá HB Granda. Andstaðan við HB Granda er vegna tengsla fyrirtækisins við Hval hf. Hvalur er stærsti einstaki hluthafinn í HB Granda með fjörutíu prósent hlutafjár í gegnum dótturfyrirtæki sitt Vogun. 26.8.2011 04:00
Sjómenn hafna frumvarpi Fulltrúar sjómanna hafna þeim breytingum sem stjórnvöld áforma að gera á kvótakerfinu og vilja að frumvarpi sjávarútvegsráðherra, sem nú bíður umfjöllunar sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis, verði vísað frá í heild sinni. 26.8.2011 04:00
Lög leyfi nafnlausar ábendingar á netinu „Við munum taka þessa gátt úr sambandi en fara jafnframt fram á það við velferðarráðuneytið að það verði gert skýrt með lögum að þessi möguleiki sé ótvíræður,“ segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, um þá ákvörðun Persónuverndar að Vinnumálastofnun og Ríkisskattstjóri megi ekki bjóða fólki að gefa upplýsingar um aðra undir nafnleynd á netinu. 26.8.2011 04:00
Kæra umfjöllun fjölmiðla um hryðjuverk Ungmenni sem komust lífs af úr Útey hinn 22. júlí hafa kært umfjöllun norska blaðsins Verdens gang til siðanefndar fjölmiðla þar í landi. Kvörtunin snýr að myndbirtingum af hryðjuverkamanninum Anders Behring Breivik þegar hann fór í vettvangsferð með lögreglunni í eyjuna. 26.8.2011 03:30
Minnast sjálfstæðis Litháens Forseti Litháens, dr. Dalia Grybauskaité, er í opinberri heimsókn hér á landi. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hélt móttöku fyrir forsetann í gær auk þess sem hátíðarkvöldverður var haldinn á Bessastöðum í gærkvöldi. 26.8.2011 03:15
Horfur á hækkandi verðbólgu Ársverðbólgan stendur í stað milli mánaða og stendur í fimm prósentum eins og í júlí samkvæmt mælingu Hagstofu Íslands. 26.8.2011 03:00
Harma staðsetningu fangelsis Bæjarstjórar sveitarfélaganna fimm á Suðurnesjum hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir harma ákvörðun innanríkisráðherra um staðsetningu nýs fangelsis á Hólmsheiði. 26.8.2011 03:00
Fjölbreyttir orkugjafar mögulegir Framtíðarsýn stjórnvalda gerir ráð fyrir fjölorkustöðvum um allt land sem bjóða upp á fjölbreytta orkugjafa til hliðar við bensín og olíu. Ljóst er að til þess að það verði að veruleika þarf að gjörbylta orkudreifingu um allt land. Stjórnvöld munu ekki einblína á einn endurnýjanlegan orkugjafa, heldur styðja ýmiss konar framleiðslu. 26.8.2011 02:30
Auðmennirnir bænheyrðir Frakkar sem þéna yfir 500 þúsund evrur á ári, eða rúmar 80 milljónir íslenskra króna, þurfa að greiða þrjú prósent aukalega í skatt. Jafnframt er stefnt að því að skattgreiðslur vegna fjármagnstekna og fasteigna verði auknar. 26.8.2011 02:30
Endurskoða þarf hvata og gatnakerfi Sverrir Viðar segir að innan Grænu orkunnar sé unnið að nánum tímasetningum á því hvernig markmið ríkisstjórnarinnar um hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa náist. Í því ljósi sé mikilvægt að horfa til reynslu annarra þjóða; vera ekki alltaf að finna upp hjólið. 26.8.2011 02:00
Afar ósáttir við lausa samninga Félagar í Félagi skipstjórnarmanna (FS) standa nú í kjaradeilum hjá ríkissáttasemjara. Félagsmenn sem starfa hjá Landhelgisgæslunni og Hafró hafa verið samningslausir frá 1. apríl 2009. 26.8.2011 02:00
Safnaði myndum af Condi Rice Uppreisnarmenn sem náðu húsakynnum Gaddafís Líbíuleiðtoga á sitt vald á dögunum urðu heldur en ekki hissa þegar þeir fundu þar bók með fjölda ljósmynda af Condoleezu Rice, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna í stjórn George W. Bush. 26.8.2011 00:00
Hugsanlega lokað á geðsjúka Til stendur að loka Vin á Hverfisgötunni. Þetta er fullyrt á nýstofnaðri síðu á facebook. Vin er athvarf fyrir fólk með geðraskanir. Á facebook-síðu hópsins, sem stofnaður var til að koma í veg fyrir þessi áform, kemur fram að Rauði Krossinn þurfi styrk frá borginni til að halda áfram rekstri athvarfsins. Sá styrkur fáist ekki og stefnt sé að lokun nú stuttu eftir mánaðarmót. 25.8.2011 23:16
Paul Young til Íslands Tónlistarmaðurinn og sálarsöngvarinn Paul Young spilar ásamt hljómsveit sinni í Eldborgarsal Hörpunnar í byrjun október. 25.8.2011 21:43
Árbæingar sorgmæddir vegna skemmdarverka Hópur kraftmikilla Árbæinga úr Rótarýklúbbi hverfisins, sem hefur ánægju af að fegra umhverfi sitt, er dapur eftir að skemmdarvargar grýttu forláta drykkjarfont sem hópurinn hefur eytt frítíma sínum í að koma upp spottakorn frá bökkum Elliðaáa. 25.8.2011 20:30
Nokkrir bílar skemmdir Nokkrir bílar voru skemmdir við Þorláksgeisla og þeir mikið rispaðir. Lýst er eftir vitnum að atburðunum. 25.8.2011 20:30
Eldur á Bergstaðastrætinu Slökkviliðs- og sjúkrabíll eru á Bergstaðastrætinu vegna eldsvoða en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er ekki talið að um meiriháttar tilvik sé að ræða. 25.8.2011 23:15
Stærsta ráðstefna Íslands Tekst konum að koma okkur út úr kreppuni?, liggja allir vegir til moskvu? og hvert er hlutverk skrifræðis í heimsfriði?, er meðal þess sem reynt verður að svara í þeim tvö þúsund og fimm hundruð fyrirlestrum sem fluttir verða á ráðstefnu evrópskra stjórnmálafræðinga í Háskóla Íslands. Ráðstefnan er sú stærsta sem haldin hefur verið á Íslandi. 25.8.2011 20:15
Bændasamtökin ekki kvartað undan Þórólfi Bændasamtök Íslands segja í tilkynningu að þau hafi ekki fundað með háskólarektor um gagnrýni Þórólfs Matthíassonar, deildarforseta hagfræðideildar Háskóla Íslands, um greinaskrif hans í Fréttablaðinu þar sem hann gagnrýnir framleiðslu og verðlagningu sauðfjárafurða harðlega. 25.8.2011 18:00
Disney-fundur á Íslandi Föstudaginn 2. september heldur félag íslensks markaðsfólks (ÍMARK) morgunverðarfund á Hilton Reykjavík Nordica hóteli. Á fundinum verða tveir fulltrúar frá Disney með erindi. Þeir munu m.a. skýra frá hinum einstöku leyndardómum að baki velgengni Disney á heimsvísu og skýra þjónustustefnu fyrirtækisins. 25.8.2011 17:39
Um 20 þúsund hafa fallið í Líbíu Um 20 þúsund manns hafa farist í Líbíu síðan að borgarastyrjöldin hófst þar í febrúar segir Mustafa Abdul Jalil, einn leiðtogi uppreisnarmanna. Uppreisnarmenn berjast nú við hersveitir Gaddafis Líbíuleiðtoga. Samkvæmt Sky fréttastöðinni segjast uppreisnarmenn hafa umkringt Gaddafi og syni hans í húsi í Trípolí, höfuðborg Líbíu. AP fréttastöðin segir að um þúsund uppreisnarmenn berjist nærri virki Gaddafis í Tripoli. 25.8.2011 16:57
Framleiðsla skelfisks í samræmi við EES löggjöf Framleiðsla og sala lifandi skelfisks sem framleiddur er á Íslandi var almennt í samræmi við skilyrði í löggjöf EES. Þetta er meginniðurstaða skýrslu Eftirlitsstofnunar EFTA sem gefin var út í dag. 25.8.2011 16:30
Tvö slys á Bústaðavegi með stuttu millibili Kona var flutt á slysadeild eftir að keyrt var á hana á gatnamótum Grensásvegar og Bústaðavegar um klukkan korter yfir tvö í dag. Ekki er vitað nánar um tildrög slyssins og ekki liggur fyrir hversu alvarlega hún er slösuð. 25.8.2011 14:59
Hefur krafist frávísunar í máli Geirs Andri Árnason, verjandi Geirs Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, krafðist í dag frávísunar í svokölluðu landsdómsmáli. Þetta staðfesti skrifstofustjóri Hæstaréttar við fréttastofu. Frestur til að krefjast frávísunar rennur út í dag. Geir er sakaður um brot á lögum um ráðherraábyrgð. Málið var þingfest í vor og verður afstaða til frávísunarkröfunnar tekin þegar málið kemur aftur á dagskrá í september. 25.8.2011 14:52
Hélt dætrum sínum í 40 ár og nauðgaði þeim Karlmaður í Austurríki er grunaður um að hafa haldið tveimur dætrum sínum föngum í eldhúsi á heimili sínu í 40 ár og nauðga þeim reglulega. Málið minnir á mál hins austurríska Josef Fritzl sem kom upp fyrir fáeinum misserum, að því er Rizau fréttastofan greinir frá. Atburðirnir munu hafa gerst í bænum Braunau í Austurríki. Lögreglan í Austurríki segir í yfirlýsingu að maðurinn hafi hótað að drepa dætur sínar og hann hafi hótað þeim með vopni. Samkvæmt Ritzau fréttastofunni hefur lögreglan ekki gefið upp nafn mannsins. Ekki hefur heldur verið greint frá því hvort dætur mannsins eignuðust börn eftir nauðganirnar. 25.8.2011 14:46
Írena nálgast - fólk búið að fylla baðkörin af fersku vatni "Ég fór út í búð á mánudaginn og það var allt bara tómt - fólk er mjög meðvitað um hvað getur gerst,“ segir kokkurinn Völundur Snær Völundarson, oft kallaður Völli Snær, sem býr á Bahama-eyjum. 25.8.2011 14:36
Uppreisnarmenn segjast hafa umkringt Gaddafi Uppreisnarmenn í Líbíu telja sig hafa umkringd Gaddafí ásamt sonum hans í byggingu í Trípolí. Þetta kemur fram á Sky fréttastöðinni. 25.8.2011 14:17
Berjablá Súðavík Berjaspretta á Vestfjörðum er í góðu meðallagi í ár og helgina 26.-28. ágúst efna Súðvíkingar í fyrsta sinn til fjölskyldu- og uppskeruhátíðarinnar Bláberjadaga þar sem fólk er hvatt til að skemmta sér saman, tína ber og njóta þess besta sem náttúran hefur upp á að bjóða. Í tilkynningu segir að stefnt sé að því að gera Bláberjadagana að árlegum viðburði í Súðavík. 25.8.2011 13:42
ASÍ leggst gegn kvótafrumvarpinu Alþýðusamband Íslands leggst gegn því að frumvarp um stjórn fiskveiða verði samþykkt í núverandi mynd. ASÍ tekur undir hækkun veiðileyfagjaldsins og tímabundinn nýtingarétt af auðlindinni en telur aðra þætti frumvarpsins of gallaða til að hægt sé að mæla með samþykkt þess. ASÍ er sammála því að breyta þurfi fiskveiðistjórnunarkerfinu en telur nauðsynlegt að vinna málið betur og í víðtæku samráði. 25.8.2011 13:26
Staðgengill borgarstjóra hættir Regína Ásvaldsdóttir, fyrrum staðgengill borgarstjóra, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þekkingarseturs um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja. Staðan var auglýst 25. júlí síðastliðinn og voru fimmtíu og fimm sem sóttu um starfið. 25.8.2011 13:26
Leikskólinn Mýri verður rekinn af borginni Borgarráð Reykjavíkur ákvað á fundi sínum í gær að borgin taki yfir rekstur leikskólans Mýrar sem hefur verið sjálfstætt starfandi frá árinu 1989. Í tilkynningu frá borginni segir að stjórn foreldrafélags leikskólans hafi óskað eftir því snemma á þessu ári að borgin tæki yfir reksturinn og hefur nú náðst sátt um að svo verði frá og með 1. ágúst 2011. 25.8.2011 13:25
Vill skylda veitingahús til að gefa upp hitaeiningamagn Það væri æskilegt ef stjórnvöld skylduðu eigendur veitingahúsa til þess að tilgreina á matseðli veitingahúsanna hversu margar hitaeiningar eru í réttunum þeirra. Þetta segir Sturla B. Johnsen, heilsugæsluæknir hjá Heilsuvernd Reykjavíkur. 25.8.2011 13:15
Fundu heimatilbúinn pyntingaklefa umvafinn sprengjum Heimatilbúinn pyntingaklefi umvafinn sprengjum fannst í búð í Hamborg nú á föstudaginn. Thomas Fischer, þýskur einfari hafði breytt íbúð sinni í pyntingahreiður þar sem hann geymdi fórnalamb sitt handjárnað í gömlum hljóðeinangruðum símaklefa. 25.8.2011 13:00
Gaddafi, Qaddafi eða Qadhafi? Meira segja Google á í vandræðum með Gaddafi. Eru þið með ráð til þess að finna hann? Svo virðist vera að fólk eigi í stökustu vandræðum með að stafa nafn hans. 25.8.2011 12:30
Skoða hefði átt að loka Ísaksskóla og senda nemendur í aðra skóla Borgarfulltrúi Vinstri grænna furðar sig á að borgin geti reitt fram rúmar 180 milljónir króna til að kaupa Ísaksskóla á sama tíma og hart er skorið í skólakerfinu. Hún telur að skoða hefði átt gaumgæfilega að loka skólanum og tryggja nemendum vist í öðrum skólum. 25.8.2011 12:07
Litla tvíburasystirin látin Valgerður Lilja Gísladóttir, litla stelpan sem fæddist fyrir tímann fyrr í mánuðinum, er látin. Móðir stúlkunnar, Hanna Lilja Valsdóttir, gekk með tvíburasystur en veiktist þegar hún var langt gengin með þær. Hanna Lilja lést en tvíburasysturnar lifðu. Valgerður Lilja var veikburða frá fæðingu og var í öndunarvél en systir hennar braggaðist vel. 25.8.2011 11:46
Kínverji hefur keypt eina stærstu jörð Íslands Kínverskur auðmaður keypti í gær eina landmestu jörð á Íslandi, Grímsstaði á Fjöllum, með það í huga að byggja þar upp lúxushótel. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki íslenskra og kínverskra stjórnvalda. 25.8.2011 11:41