Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Heimili Amy Winehouse verður miðstöð góðgerðarfélags Foreldrar Amy Winehouse, sem lést á dögunum eftir sukksamt líferni, hafa ákveðið að breyta heimili hennar í höfuðstöðvar góðgerðarfélags í hennar nafni sem ætlað er að aðstoð ungmenni sem stríða við fíkniefnavanda. 8.8.2011 09:05
Hringdi á lögreglu vegna hávaða frá borholu Hvergerðingur hringdi í lögregluna á Selfossi um tvö leitið í nótt og sagðist ekki verða svefnsamt vegna hávaða frá borholu Orkuveitunnar við Hverafold. 8.8.2011 08:47
Fréttaskýring: Norðlingaalda og neðri hluti Þjórsár munu valda deilum Mun nást sátt um rammaáætlun? Unnið er að tillögu til þingsályktunar í iðnaðarráðuneytinu um hvernig kostir í rammaáætluninni verða flokkaðir. Um þrjá flokka er að ræða: virkjanakosti, verndunarkosti og biðkosti. Í síðastnefnda flokkinn falla þeir kostir sem ákveða á síðar hvernig verða nýttir; til verndunar eða virkjunar. 8.8.2011 08:30
Enn slegist á götum Lundúna Óeirðirnar í London héldu áfram í nótt aðra nóttina í röð. Lögregla handtók rúmlega hundrað óeirðaseggi í nótt en óróinn byrjaði fyrir helgi í Tottenham hverfinu þegar vopnaðir lögreglumenn skutu Mark Duggan, 29 ára gamlan íbúa þess til bana. Rannsókn á atvikinu er þegar hafin en lögreglumennirnir fullyrða að maðurinn hafi verið vopnaður og að hann hafi skotið á þá af fyrra bragði. 8.8.2011 08:11
Þjófur staðinn að verki í Skipholti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gómaði þjóf í Skipholti í Reykjavík í nótt þar sem hann var að brjótast inn í bíla. Hún fékk tilkynningu um grunsamlegt athæfi mannsins, og stóð hann að verki. 8.8.2011 07:59
Fóru fjórar veltur en sluppu ómeidd Erlend hjón, sem búsett eru hér á landi, sluppu ómeidd eftir að bíll þeirar fór útaf Þjórsárdalsvegi, í uppsveitum Árnessýslu í gærkvöldi, og valt fjórar heilar veltur. 8.8.2011 07:58
Hlekktist á í lendingu í Fljótum Þrír menn sluppu nær ómeiddir þegar lítilli flugvél þeirra hlekktist á í lendingu við Lambanes í Fljótum í gærkvöldi. Þeir fóru allir á heilsugæsluna á Sauðárkróki til skoðunar. Ekki er vitað um tildrög óhappsins, en vélin mun vera mikið skemmd. Rannsóknanefnd flugslysa mun að líkindum rannsaka málið. 8.8.2011 07:42
Féll í götuna á Grafningsvegi og axlarbrotnaði Bifhjólamaður slasaðist þegar hann missti stjórn á hjóli sínu á Grafningsvegi í gærkvöldi og féll í götuna. Hann axlarbrotnaði í fallinu en hjólið þeyttist út fyrir veg, hafnaði þar á steini og er talið ónýtt. Engar vísbendingar eru um hraðakstur. 8.8.2011 07:41
Banna böð í Laugarvatni vegna saurgerla Vegna E. colimengunar sem uppgötvaðist í sumar hefur Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bannað fólki að baða sig í Laugarvatni. Sveitarstjóri segir orsökina vera mengun úr holræsakerfi frá þéttbýlinu í kringum vatnið. 8.8.2011 07:00
Hanna íbúðabyggð í Vilníus THG Arkitektar fengu fyrstu verðlaun fyrir tillögu sína um hönnun og skipulag íbúðabyggðar í úthverfi Vilníus, höfuðborgar Litháens. „Fjárfestar í Vilníus komu að máli við okkur og báðu okkur um að taka þátt í þessari samkeppni,“ segir Ragnar Auðunn Birgisson, arkitekt hjá THG Arkitektum. 8.8.2011 06:00
Vill flytja fleiri verkefni til sveitarfélag „Ég er sannfærð um að því nær ákvörðunarvaldinu sem við erum, því markvissari verða áætlanirnar,“ segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, um fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um endurskoðun á hlutverki ríkisins. 8.8.2011 05:00
Byggðaráð krefur OR úrbóta Byggðaráð Borgarbyggðar krefst þess að Orkuveita Reykjavíkur hefji þegar í stað framkvæmdir við nýja vatnsveitu í Reykholtsdal og tryggi íbúum og fyrirtækjum nægjanlegt vatn. Þetta kemur fram í Skessuhorni. 8.8.2011 04:00
Tuttugu smiðir á skrá en engir fást í vinnu „Ég er búinn að selja tvö hús sem ég hefði viljað afhenda fyrir áramót en ég veit ekki hvernig ég á að fara að því þar sem ég fæ enga smiði. Ég er að skila húsi núna sem ég hefði átt að vera búinn að afhenda fyrir talsverðum tíma.“ 8.8.2011 04:00
Á sjötta tug létu lífið í átökum Sýrlenski stjórnarherinn réðst í gær gegn uppreisnarmönnum í þremur borgum í landinu í gær. Mannréttindasamtök sem fylgjast grannt með ástandinu segja í það minnsta 52 hafa fallið í árásunum. 8.8.2011 03:30
Breskir ferðamenn fjölmennastir sem fyrr Flestir þeirra erlendu ferðamanna sem komu hingað til lands í fyrra, fljúgandi til Keflavíkur, eru breskir ríkisborgarar. Þeir voru rúmlega sextíu þúsund það ár. Þjóðverjar hafa rutt Bandaríkjamönnum úr öðru sæti og eru nú næstfjölmennastir í þessum hópi, rúmlega 54 þúsund. Þetta kemur fram í samantekt sem Hagstofan gaf nýverið út. 8.8.2011 03:15
Féll af vélhjóli Vélhjólamaður féll af hjóli sínu á Laugarvatnsafleggjaranum við bæinn Miðdal um þrjúleytið í dag. Hann var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir slysið þar sem hann er til skoðunar, en maðurinn mun hafa kennt eymsla í baki. Verið er að vinna að lagfæringum á veginum þar sem óhappið varð og því er lausamöl þar sem erfitt er að aka í. 7.8.2011 20:11
Líst afar illa á útflutningsskatt "Versta hugmynd sem ég hef heyrt,“ segir framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins um tillögu Lilju Mósesdóttur að leggja tíu prósent skatt á útflutningsvörur Íslendinga. 7.8.2011 18:30
Lögreglan lýsir eftir Nubiu Lögreglan á Hvolsvelli lýsir eftir Nubiu Silva, 15 ára, til heimilis á Hvolsvelli. Ekki er vitað um ferðir hennar síðan að kvöldi 5. ágúst síðastliðinn. Nubia Silva er er tæpir 160 sentimetrar á hæð, grannvaxin með dökkt sítt hár. Ekki vitað með vissu hvernig hún var klædd. Talið er að Nubia Silva sé á Höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem hafa orðið varir eða vita um ferðir Nubiu Silva, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Hvolsvelli í síma 488 4110. 7.8.2011 18:04
Eru strandaglópar í Skotlandi Flugvél Iceland Express frá Kaupmannahöfn sem lenda átti á Keflavíkurflugvelli klukkan hálffimm í dag, varð að lenda af öryggisástæðum á flugvellinum í Innernes í Skotlandi. Engin hætta reyndist á ferðum, en viðvörunarljós virðist hafa bilað. Um borð voru 146 farþegar og áhöfn. 7.8.2011 17:25
Borgarstjóri segir óeirðirnar ólíðandi Boris Johnson, borgarstjóri í Lundúnum, segir að óeirðir, líkt og þær sem voru í Tottenhamhverfinu í Lundúnum í nótt, séu ólíðandi. Alls særðust 26 lögreglumenn í átökum við fólk sem kom saman og andmælti lögregluofbeldi. 7.8.2011 16:54
Miðbærinn ljómaði í gær Miðbærinn ljómaði allur um miðjan dag í gær þegar Gay Pride gangan stóð sem hæst. Fjöldi fólks lét sjá sig og þar á meðal var sjálfur borgarstjórinn, Jón Gnarr, sem sýndi stuðning sinn við jafnréttisbaráttuna með því að taka þátt í göngunni. Bjarni kvikmyndatökumaður á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis fangaði stemninguna í miðbænum og Fannar Scheving Edwardsson klippti myndskeiðið. 7.8.2011 15:36
Svissneskum hjónum bjargað úr Skyndidalsá Svissneskum hjónum var bjargað af þaki bíls sem sat fastur í Skyndidalsá, sem rennur í Jökulsá í Lóni. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg voru það félagar úr björgunarfélagi Hornafjarðar sem kom hjónunum til bjargar. Þau höfðu klifrað upp á þak bílsins um leið og hann festist. 7.8.2011 15:00
Alger ringulreið í Tottenham Alger ringlulreið hefur ríkt í Tottenham í Lundúnum í dag vegna óeirðanna þar í nótt. Kveikt var í bílum og húsum og ráðist hefur verið að lögreglumönnum með þeim afleiðingum að 26 eru særðir. David Lammy þingmaður segir í samtali við Daily Telegraph að hugsanlega hafi einhver látist inni í þeim húsum sem kveikt var í. Slökkviliðið í Lundúnum fékk 264 neyðarköll frá klukkan hálftíu í gærkvöld að staðartíma þangað til klukkan hálffimm í morgun. Um 50 eldar voru kveiktir og eyðilögðu þeir byggingar og bíla. 7.8.2011 14:31
Hálf milljón safnaðist í skákmaraþoni Hálf milljón safnaðist á Skákmaraþoni íslenskra barna fyrir sveltandi börn í Sómalíu í gær en einnig verður teflt fyrir málstaðinn í dag. Alls hafa 30 milljónir safnast á styrktarreikning Rauða krossins frá upphafi söfnunar vegna hungursneyðar í Austur-Afríku. 7.8.2011 12:21
Rútan enn á bólakafi Ellefu tékkneskir ferðamenn sluppu naumlega þegar rúta með þeim innanborðs sökk í Blautulóni á Fjallabaksleið nyrðri í Vatnajökulsþjóðgarði síðdegis í gær. Þeir náðu að synda í land í átta gráðu köldu vatni en rútan er enn föst á margra metra dýpi. 7.8.2011 12:03
Vill sérstakan skatt á útflutningsfyrirtækin Setja ætti sérstakan skatt á vörur sem fluttar eru út frá landinu, segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður utan flokka. Lilja sagði í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun að með því að leggja um 10% skatt á útflutningsfyrirtæki væri hægt að ná inn 80 milljörðum í ríkissjóð án þess að útflutningsfyrirtæki, eins og sjávarútvegsfyrirtæki finndu mikið fyrir því. 7.8.2011 11:51
Um 300 þúsund mótmæltu í Ísrael Um það bil þrjú hundruð þúsund Ísraelar gengu um götur Tel Aviv og Jerúsalem til að mótmæla efnahagsástandinu í landinu. Mótmælendur segja skuldir hafa aukist á meðan verð á almennum neysluvörum og húsnæði hefur hækkað. Í samtali við breska ríkisútvarpið staðfesti lögreglan í Ísrael að tuttugu þúsund til viðbótar hafi komið saman í minni borgum og bæjum til að mótmæla. 7.8.2011 10:17
Viðey verður hinsegin í dag Viðey fagnar Hinsegin dögum í dag með skemmtilegri fjölskyldudagskrá og regnbogaveitingum í Viðeyjarstofu. Söngur, leikir og andlitsmálning verða í boði og jafnframt verður efnt til ljósmyndakeppni meðal gesta. 7.8.2011 10:13
Veitingastað lokað vegna ölvunar starfsmanna Veitingastaðnum Langa Manga á Ísafirði var lokað í nótt vegna þess að starfsmenn staðarins voru ölvaðir. Samkvæmt heimildum Vísis var ekki mjög fjölmennt á staðnum og því gekk ágætlega að rýma hann. 7.8.2011 10:03
Grunur um að hundi hafi verið stolið í innbroti Brotist var inn í íbúð í fjölbýlishúsi í Norðurmýrinni í Reykjavík laust eftir miðnætti í nótt. Innbrotsþjófarnir fóru inn um svefnherbergisglugga og höfðu á brott með sér tvær fartölvur. Húsráðendur sakna einnig chihuahua-hunds, en ekki er ljóst hvort að hinir óprúttnu aðilar hafi tekið hann með sér eða hann hreinlega sloppið út. Málið er í rannsókn. 7.8.2011 09:23
Bensínsprengjum kastað að lögreglumönnum Bensínsprengjum var kastað að lögreglumönnum og kveikt var í lögreglubílum og húsum í óeirðum í Tottenham í norðurhluta Lundúna í nótt. Átta lögreglumenn slösuðust í óeirðunum og voru fluttir á spítala, einn með höfuðáverka. Upphaf óeirðanna má rekja til þess að lögreglan skaut til bana 29 ára gamlan mann á fimmtudag. Um 300 manns tóku þátt í óeirðunum eftir því sem fram kemur á BBC. 7.8.2011 09:04
Skólakokkur gaf börnum rottueitur Skólakokkur í suðurhluta Brasilíu hefur játað að hafa bætt rottueitri við matinn sem hann bauð upp á í mötuneyti skólans. 6.8.2011 23:00
Reyna að planka sig upp í hæstu einkunn Tveir Íslendingar og Breti planka við fræg kennileiti í Árósum til að hljóta hæstu einkunn fyrir skólaverkefni. Gjörningurinn hefur vakið athygli einnar af stærstu sjónvarpsstöðvum Danmerkur. 6.8.2011 21:30
Of lítil nýliðun í matvælaiðnaðinum Matvæla-og veitingafélag Íslands beitir sér nú fyrir því að hvetja ungt fólk til að læra þjóninn, kokkinn og bakarann og mennta sig í kjötiðnaði. Töluvert vantar af matreiðslumönnum til starfa, einkum yfir sumartímann, og skortur er á iðnmenntuðum í hinum greinunum. Níels Olgeirsson, formaður Matvís, hefur áhyggjur af þessari þróun. 6.8.2011 20:45
Rúmlega 26 milljóna vinningur í lottó Heppinn lottóspilari fékk allar tölur réttar í úrdrætti dagsins, og vann þar sem rúmar 26 milljón krónur. Miðinn var seldur í Happahúsinu, Kringlunni. 6.8.2011 20:28
38 hermenn látinir í þyrluslysi 31 bandarískur hermaður og sjö afganskir týndu lífinu í nótt þegar þyrla bandaríska hersins brotlenti í Afganistan. Óvíst er hvað olli brotlendingunni en Talíbanar segjast hafa skotið þyrluna niður. 6.8.2011 12:08
Krefjast afsagnar fjármálaráðherrans Repúblikanar í Öldungadeild Bandaríkjaþings krefjast afsagnar Timothys Geithners fjármálaráðherra eftir að S&P lækkaði lánshæfismat Bandaríkjanna í fyrsta sinn í sögunni í gær. Lánshæfismatið var í hæsta flokki AAA en er nú komið í AA+ með neikvæðum horfum. 6.8.2011 09:58
Hinsegin dagar ná hámarki í dag Hátíðin Hinsegin Dagar í Reykjavík, sem hófst á fimmtudag, nær hámarki í dag með gleðigöngu og útiskemmtun. Búist er við fjölmenni í miðborginni en veðurspáin fyrir daginn er góð. 6.8.2011 09:45
Tíu teknir fyrir vörslu fíkniefna Tíu voru teknir fyrir vörslu fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu í nótt, þar af voru tveir grunaðir um sölu og dreifingu. Þrír ökumenn voru teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og tveir fyrir ölvunarakstur. Fimm gistu fangageymslur lögreglunnar. 6.8.2011 09:37
Vill funda með seðlabankastjóra Lilja Mósesdóttir þingmaður utan flokka óskar eftir fundi seðlabankastjóra með efnahags-og skattanefnd til að ræða nýleg útboð sem lið í losun hafa á fjármagnsviðskiptum, gagnrýni OEDC á peningastefnu bankans, kosti þjóðarinnar í gjaldmiðilsmálum í ljósi vandans á evrusvæðinu og leiðir til að draga úr vægi verðtryggingar. 6.8.2011 09:31
Áfram í gæsluvarðhaldi vegna ásökunar um nauðgun Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í morgun mann sem setið hefur í gæsluvarðhaldi grunaður um nauðgun í Vestmanneyjum 31. júlí síðastliðinn í áframhaldandi gæsluvarðhald til annars september 2011 klukkan tvö. Áfram er unnið að rannsókn málsins og verða frekari upplýsingar um gang hennar ekki veittar að sinni. 6.8.2011 08:54
Nær blindur maður ætlar í langhlaup með hvíta stafinn Víða um borgina má sjá skokkara koma sér í form fyrir Reykjavíkurmaraþonið en blaðamenn Fréttablaðsins ráku þó upp stór augu í fyrrakvöld þegar þeir sáu Þórð Pétursson hlaupa meðfram Miklubrautinni en hann er nær blindur og notast því við blindrastaf á skokkinu. 6.8.2011 07:00
Eigendum verði gert að sækja námskeið Innflutningsbann á hunda af varðhundategundum leysir engan vanda. Þetta segir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir, sem vill miklu fremur sjá að eigendum og kaupendum slíkra hunda verði gert skylt að sækja þar til gert námskeið með þá, ella fái þeir ekki leyfi til að halda þá. 6.8.2011 06:00
Það verður að fækka verkefnum ríkisins Árni Páll Árnason segir að lengra verði ekki komist í niðurskurði eða skattahækkunum. Skera verði niður þá þjónustu sem ríkið bjóði upp á. Hann gagnrýnir aðila vinnumarkaðarins fyrir að spenna bogann of hátt í kjarasamningum. 6.8.2011 05:00
Ný starfsgrein varð til með næturopnun Á bilinu sextíu til sjötíu manns vinna hjá Securitas við öryggisgæslu og afgreiðslustörf samtímis. Í raun má segja að um nýja starfsgrein sé að ræða hér á landi sem á tilurð sína að þakka næturopnunum verslana, en yfir fjörutíu verslanir á höfuðborgarsvæðinu eru nú opnar allan sólarhringinn. 6.8.2011 04:00