Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Les Paul gítarinn áfram á Google Margir netnotendur brostu út að eyrum síðastliðinn fimmtudag þegar þeir sáu hverju Google hafði tekið upp á í tilefni af 96 ára afmæli tónlistar- og uppfinningamannsins Lester William Polsfuss, betur þekktur undir nafninu Les Paul. 11.6.2011 23:00
5000 druslur í London Skipuleggjendur "druslugöngunnar" í London segja að hátt í 5.000 manns hafi tekið þátt í göngunni í dag en þar mátti sjá konur arka um strætin í netasokkabuxum og brjóstarhöldurum, undir slagorðum á borð við "Brjóstaskora er ekki samþykki". 11.6.2011 22:00
Mæðgin útskrifuðust saman Sextíu og fimm ára kona, sem var kúabóndi í Dalasýslu, flutti til höfuðborgarinnar á gamals aldri og skellti sér í áttunda bekk Grunnskóla. Hún útskrifaðist með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í dag ásamt syni sínum sem einnig fékk sína meistaragráðu í hendur. 11.6.2011 20:23
Upptaka skattsins ekki mistök Tíu stórfyrirtæki hafa hætt starfsemi hér á landi vegna skattlagningar á vaxtagreiðslur, en þrátt fyrir það segir fjármálaráðherra að ekki hafi verið gerð mistök við upptöku skattsins. Nú stendur til að afleggja hann. 11.6.2011 20:13
Fyrrverandi ritstjóri sagði nauðsynlegt að ákæra Geir Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, sagði við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, að hann ætti engan annan kost en að taka þátt í að ákæra Geir H. Haarde, ella fyki traust á flokknum út í veður og vind um langa framtíð. 11.6.2011 19:58
Minna kvótafrumvarp samþykkt Minna kvótafrumvarp sjávarútvegsráðherra varð að lögum í kvöld en hart hefur verið tekist á um málið síðustu daga. Hafa þá alls 25 frumvörp orðið að lögum síðan á fimmtudag. 19 þingmenn greiddu atkvæði á móti frumvarpinu en 30 greiddu atkvæði með því. 11.6.2011 19:33
Vanræktu að skrá bréf um kynferðisbrot Bréf Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur um kynferðisbrot föður hennar var ekki skráð í skjalaskrá Biskupsstofu Íslands fyrir en einu og hálfu eftir að hún sendi bréfið. Karl Sigurbjörnsson biskup sagði við rannsóknarnefnd Kirkjuþings að í bréfinu væru alvarlegar ásakanir gagnvart látnum manni. 11.6.2011 19:23
Eignirnar nema yfir einum milljarði króna Eignir nokkurra Íslendinga og félaga í eigu þeirra, sem hafa verið frystar að beiðni sérstaks saksóknara í tengslum við rannsókn á Kaupþingi, nema yfir einum milljarði króna. Ekki hefur verið gefið upp hverjir eiga þar í hlut þar sem rannsóknin er á viðkvæmu stigi. 11.6.2011 19:18
Rannsókn á láti Sigrúnar Mjallar ábótavant Jón Þór Ólason, lektor í refsirétti, telur rannsókn lögreglu á láti Sigrúnar Mjallar Jóhannesdóttur ábótavant. Fullt tilefni hafi verið til að rannsaka hvaðan læknadópið kom sem dró hana til dauða. Þrjár manneskjur sitja nú á sakamannabekk í Noregi vegna meintrar aðildar að láti fimmtán ára stúlku sem lést af banvænum eiturlyfjaskammti í fyrra. 11.6.2011 19:05
Þarf að hætta þessari lánsveða-vitleysu Viðskiptaráðherra segir lífeyrissjóðina standa í vegi fyrir því að undið sé ofan af skuldavanda fólks með lánsveð, og hafi til þess stjórnarskrárvarinn rétt. Hann segir að í framtíðinni þurfi að hætta þessari lánsveða-vitleysu, eins og hann kallar það. 11.6.2011 18:59
Sökudólgurinn í E. coli faraldrinum fundinn "Það eru baunaspírurnar". Þetta segir Reinard Burger, yfirmaður þýsku smitsjúkdómamiðstöðvarinnar en E. coli faraldurinn í Norður-Þýskalandi hefur verið rakinn til baunaspírubúgarðs nærri Hamburg. 11.6.2011 17:37
426 brautskráðir frá Háskólanum á Akureyri Brautskráning Háskólans á Akureyri fór fram við hátíðlega athöfn í dag þegar 426 kandídatar voru útskrifaðir með háskólapróf, en með því hefur háskólinn útskrifað nærri fjögur þúsund nemendur á sínum 24 starfsárum. 11.6.2011 16:54
Uppvakningaganga í Reykjavík Miðbær Reykjavíkur iðaði af lífi í dag þegar fjöldi manns streymdi út á göturnar í svokallaðri uppvakningagöngu, en slíkar göngur hafa áður vakið athygli víðsvegar um heiminn. Ekki er vissa um það hvort hér sé um að ræða fyrstu uppvakningagönguna sem gengin er á Íslandi, en víst þykir að hún sé sú fjölmennasta. 11.6.2011 16:25
Löggan sektar háskólanema og fjölskyldur Lögreglumenn eru í óðaönn við að sekta bíla fyrir utan Laugardalshöllina, en þar stendur nú yfir seinni hluti brautskráningar frá Háskóla Íslands. 11.6.2011 15:23
Flóttamenn streyma til Tyrklands Að minnsta kosti 4.300 manns hafa nú flúið ofbeldið í Sýrlandi og leitað skjóls í Tyrklandi en 32 týndu lífinu í átökum þar í landi síðastliðinn föstudag. Rauntala flóttamanna er þó talin mun hærri en opinberar tölur segja til um þar sem margir hafi komist óséðir yfir landamærin. 11.6.2011 15:05
Dyrhólaey opnuð í leyfisleysi Hlið, lokanir og upplýsingaskilti voru tekin niður við inngang að friðlandinu á Dyrhólaey aðfararnótt föstudagsins 10. júní, en opnun svæðisins er háð leyfi frá Umhverfisstofnun. Þetta segir Þorsteinn Gunnarsson, ábúandi á Vatnsskarðshólum, en hann telur umhverfisstofnun hafa veitt skemmdarvörgum hjálparhönd með því að bregðast ekki við tilkynningu um málið fyrr en á föstudagskvöldið. Allan daginn hafi Dyrhólaey því verið opin og umferð streymt um svæðið, en þar sé æðarvarp nú á afar viðkvæmu stigi. 11.6.2011 14:57
Ræddu misnotkun Rítalíns á Bessastöðum Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, bauð íslenskum og erlendum fyrirlesurum ráðstefnu, sem haldin var á vegum SÁÁ, til Bessastaða í gær og ræddi þar meðal annars um vímuefnavarnir og -meðferð auk þeirra neikvæðu áhrifa sem hafa hlotist af af sívaxandi misnotkun Rítalíns hér á landi. 11.6.2011 14:04
Gerir ráð fyrir mótframboði í formannskjöri Bjarni Benediktsson segist gera ráð fyrir mótframboði í formannskjöri á Landsfundi Sjálfstæðisflokksin í haust í viðtali við Morgunblaðið í dag. Hann segist jafnframt líta svo á að það hafi verið rétt að fylgja sannfæringu sinni í Icesavemálinu. 11.6.2011 13:49
Kröfu Geirs hafnað Landsdómur hafnaði í gær þeirri kröfu Geirs H. Haarde að dómendur og varamenn, sem Alþingi kaus til sex ára setu í landsdómi árið 2005, víki sæti í máli sínu. 11.6.2011 13:35
Öskuskýið frá Chile stöðvar flug í Nýja Sjálandi Puyehue-eldfjallið sem nú gýs í Chile hefur valdið töluverðum truflunum á flugi í Argentínu, Úrúgvæ og hluta Brasilíu undanfarna daga, en nú lítur út fyrir að öskuskýið úr fjallinu sé farið að teygja sig vestur til Nýja Sjálands. 11.6.2011 13:30
Frekari niðurskurður upphafið að endalokunum Framkvæmdarstjóri Heilsustofnunarinnar í Hveragerði segir að frekari niðurskurður hjá stofnuninni sé upphafið að endalokunum en niðurskurðurinn hefur verið 100 milljónir á síðustu þremur árum. 11.6.2011 12:27
Sólbaðsstemning á höfuðborgarsvæðinu á morgun? Margir íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa eflaust verið vonsviknir þegar þeir litu út um gluggann í morgun, en spár um sumarkomu virðast ekki hafa gengið eftir eins og vonir margra stóðu til. 11.6.2011 12:17
Einstaklingar geti boðið sig fram til þings Hægt verður að bjóða sig fram til þings einsamall og mögulegt verður að kjósa frambjóðendur þvert á flokka og kjördæmi, verði tillögur C-nefndar stjórnlagaráðs samþykktar. 11.6.2011 10:32
Lögreglan í Lúxemborg frystir eignir Íslendinga Lögreglan í Lúxemborg hefur fyrst eignir nokkurra Íslendinga og félaga í þeirra eigu á bankareikningum þar í landi, en málið tengist rannsóknum á málefnum gamla Kaupþings. Morgunblaðið greinir frá þessu í dag og vitnar í Ólaf Þór Hauksson, sérstakan saksóknara, sem segir fjárhæðirnar umtalsverðar. 11.6.2011 10:26
Boðar endurfundi lýðveldisbarnanna Fjöldinn allur af börnum fylgdi foreldum sínum á Þingvöll við stofnun íslenska lýðveldisins 17. júní árið 1944. Nú hefur Þór Jakobsson veðurfræðingur boðað til endurfunda hinna svokölluðu lýðveldisbarna í tilefni tímamótanna á lýðveldisdaginn næstkomandi föstudag. 11.6.2011 10:00
Harkalega tekist á í þingsal Þingmenn tókust harkalega á um minna kvótafrumvarp landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra við aðra umræðu um málið í gærkvöld. Umræðurnar stóðu frá um hálf ellefu til tuttugu mínútur í eitt í nótt, en þegar leið á tóku að heyrast framíköll og jafnvel hlátrasköll á tíðum. 11.6.2011 09:59
Erill á Akureyri en rólegt á höfuðborgarsvæðinu Töluverður erill var hjá lögreglunni á Akureyri í nótt en alls voru sex handteknir, þar af fjórir fyrir vörslu fíkniefna. 11.6.2011 09:51
Metfjöldi brautskráður á aldarafmæli Háskóla Íslands Metfjöldi nemenda verður brautskráður frá Háskóla Íslands í dag en þá verður þess jafnframt minnst að hundrað ár eru liðin frá stofnun skólans. Brautskráningin fer fram í Laugardalshöll en alls verða 1.816 prófskírteini afhent; 1.138 í grunnnámi og 678 í framhaldsnámi. 11.6.2011 09:41
Maður féll af mótorhjóli Slys varð í Gnúpverjahreppi um fjögurleytið í nótt þegar maður féll af mótorhjóli. Hann var fluttur til Reykjavíkur í skoðun en er ekki talinn alvarlega slasaður. 11.6.2011 09:34
Fréttaskýring: Íslendingum ber að borga Eftirlitsstofnun EFTA hefur gefið út rökstutt álit um að Íslendingum beri að borga lágmarkstryggingar til eigenda innstæðureikninga Icesave. Málið fer fyrir dómstóla verði ekki greitt innan þriggja mánaða. 11.6.2011 09:30
Stjórnlagaráð leggur til að kosningakerfinu verði bylt Kjósendur munu geta valið frambjóðendur þvert á flokka og kjördæmi í alþingiskosningum verði róttækar tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á kosningakerfinu að veruleika. Þar er lagt til að atkvæðavægi skuli vera jafnt alls staðar á landinu. 11.6.2011 08:30
Ingvi Hrafn og frú eiga ekki fyrir áfrýjun málsins „Við erum dæmd fyrir skattalagabrot sem aldrei voru framin af ásetningi heldur vegna vanrækslu og afglapa löggilts endurskoðanda sem við treystum,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarpsstjóri ÍNN. 11.6.2011 07:30
Sambland af fræðslu og fróðleik í Búrfellsstöð Ný sýning verður opnuð almenningi í Búrfellsstöð á morgun en þar eru endurnýjanlegir orkugjafar kynntir á gagnvirkan hátt. 11.6.2011 07:00
Forseti ESA: Nú verðið þið að borga "Við höfum verið mjög þolinmóð og gefið lengri frest en aðrir fá. En nú verðið þið að borga,“ segir Per Sanderud, forseti Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA. ESA sendi stjórnvöldum áminningarbréf í maí í fyrra þar sem lýst var þeirri skoðun að Íslendingar hefðu ekki farið eftir tilskipun samnings Evrópska efnahagssvæðisins (EES) um innstæðutryggingar. Stjórnvöld svöruðu bréfinu í maí síðastliðnum og mótmæltu. 11.6.2011 06:00
Siðlausar og ólöglegar aðgerðir stjórnvalda í Sýrlandi Fjöldi fólks hefur flúið frá Sýrlandi til Tyrklands frá því á miðvikudagskvöld. Óttast er að árás á borgina Jisr al-Shughour sé yfirvofandi. Stjórnvöld segja að þar hafi vopnaðir hópar uppreisnarmanna drepið yfir 120 öryggissveitarmenn. 10.6.2011 21:00
Hlaupagarpar komnir í Mývatnssveit Fjórmenningarnir sem hlaupa nú um landið til að safna fé til styrktar krabbameinssjúkum börnum eru komnir í Mývatnssveit. Í gær var hlaupið frá Egilsstöðum og um Möðrudalsöræfi en þá lenti hópurinn í snjókomu, slyddu og slabbi. Einn úr hópnum átti afmæli og hafði á orði að hann hefði aldrei á sínum 42 árum fagnað afmæli í snjókomu. 10.6.2011 18:30
Ingvi Hrafn: Ég er bara dæmdur maður "Fjögurra ára martröð er lokið,“ segir sjónvarps- og blaðamaðurinn Ingvi Hrafn Jónsson sem í dag var dæmdur, ásamt eiginkonu sinni, til að greiða 23 milljónir fyrir skattalagabrot. Hann segir að ástæða ákærunnar sé vanræksla endurskoðenda. 10.6.2011 17:17
Tveggja og fjögurra mánaða fangelsi fyrir Khat-smyglið Þrír karlmenn voru dæmdir til tveggja mánaða fangelsisvistar og sá fjórði í fjögurra mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir smygl á 58 kílóum af fíkniefninu Khat hingað til lands. 10.6.2011 16:46
Katrín Jakobsdóttir búin að eiga Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, eignaðist sextán marka strák í dag en það er þriðja barn hennar og eiginmanns hennar, Gunnars Sigvaldasonar. Fyrir eiga þau tvo stráka, þá Illuga og Jakob. 10.6.2011 16:28
Vítisenglar sverja af sér kannabisræktendur „Við könnumst ekkert við þetta. Það hefur enginn Vítisengill eða nokkur okkur tengdur verið handtekinn,“ segir Einar Marteinsson, forseti Hells Angels á Íslandi, en lögreglan tilkynnti á vef sínum í dag að tveir karlmenn grunaðir um að tengjast Vítisenglunum hefðu verið handteknir og væru grunaðir um kannabisræktun auk vopnalagabrota. 10.6.2011 15:54
Rafmagn komið á í Vogahverfinu Rafmagn er nú komið á í Vogahverfinu í Reykjavík að nýju en á fjórða tímanum varð það óhapp að verktaki sem vann við borun við Langholtsveg setti borinn í háspennustreng. Óhappið olli rafmagnsleysi í hluta hverfisins. Ekki er vitað til neinna óhappa vegna þessa en verktakar geta aflað sér allra upplýsinga um legu strengja hjá Orkuveitu Reykjavíkur, að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. 10.6.2011 15:50
Rafmagnslaust í hluta Vogahverfis Rafmagnslaust er í hluta Vogahverfisins í Reykjavík eftir að háspennustrengur bilaði. Vinnuflokkar frá Orkuveitu Reykjavíkur vinna að viðgerð og er vonast til að rafmagn komist aftur á innan stundar. 10.6.2011 15:47
Metfjöldi sækir um í Háskóla Íslands Metfjöldi umsókna hefur borist Háskóla Íslands vegna skólavistar á komandi haustmisseri, eða ríflega 9200 umsóknir. Á síðasta ári var fjöldinn 8.300. Rúmlega sex þúsund umsóknir um grunnnám bárust skólanum og nemur fjölgun slíkra umsókna á milli ára tæpum 14 prósentum. Þá fjölgaði umsóknum um framhaldsnám um tæp 12 prósent en þær reyndust rúmlega þrjú þúsund talsins Þegar horft er til einstakra sviða Háskólans bárust flestar umsóknir um grunnnám á Hugvísindasviði eða 1.735. . 10.6.2011 15:39
Vildi milljónir í miskabætur - kyrrsetning olli hugarangri Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið, Tollstjóra og Skattrannsóknarstjóra ríkisins af skaðabótakröfu Skarphéðins Bergs, fyrrverandi stjórnarformanni FL Group. 10.6.2011 15:30
Sjónvarpsstjóri dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarps- og blaðamaður, var í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir skattalagabrot. Þá var hann dæmdur til að greiða 15 milljónir króna í sekt. Eiginkona hans, fékk þriggja ára mánaða skilorðsbundinn dóm og þarf að greiða átta milljónir króna í sekt. 10.6.2011 14:49