Fleiri fréttir

Gjaldið hækkar í göngin

Veggjald í Hvalfjarðargöngum hækkar um um það bil tíu prósent um næstu mánaðamót. Í tilkynningu frá rekstrarfélagi ganganna segir að hækkunina megi rekja til samdráttar í umferð og þar með skertra tekna, þyngri greiðslubyrði af lánum og mikillar fjárfestingar til að uppfylla kröfur Evrópusambandsins um öryggi vegfarenda um veggöng. Venjulegt gjald fyrri fólksbíl aðra leið hækkar úr 900 krónum í þúsund krónur.

Gríska stjórnin hélt velli

Gríska ríkisstjórnin hélt velli í nótt þegar þingið greiddi atkvæði um traust til hennar. 155 þingmenn greiddu atkvæði með ríkisstjórninni en 143 voru á móti. Tveir þingmenn sátu hjá. Næsta mál á dagskrá er að koma umdeildum niðurskurðartillögum í gegnum þingið en líklegt er talið að það takist í ljósi úrslita atkvæðagreiðslunnar í nótt. Ráðherrar evruríkjanna hafa sagt að niðurskurðurinn sé forsenda þess að Grikkir fái frekari lán frá ríkjunum en þúsundir Grikkja hafa hinsvegar mótmælt tillögunum síðustu vikur.

Upplýsingar um tafir mikilvægar

„Ég tel að hagsmunir neytenda af því að fá upplýsingar um tíðni tafa og fjölmiðla fyrir þeirra hönd vegi þyngra en viðskiptahagsmunir fyrirtækja að halda svona upplýsingum leyndum,“ segir Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda.

Flugmenn funda aftur í dag

Flugmenn hjá Icelandair og viðsemjendur þeirra koma aftur til samningafundar hjá Ríkissáttasemjara í dag, eftir langan samningafund í gær.

Brotist inn í skartgripaverslun - þjófanna leitað

Brotist var inn í skartgripaverslun í Hafnarfirði í nótt, en þjófarnir komust undan áður en lögregla kom á vettvang. Vitni segir að þeir hafi verið í hermannabuxum, dökkum hettupeysum og með klúta bundna fyrir andlitin. Lögregla hóf þegar leit í nágrenninu, en hún bar ekki árangur.

Eldur á Hótel Selfossi - hótelið rýmt

Hótel Selfoss var rýmt í skyndingu á örðum tímanum í nótt eftir að eldur kom upp í þvottahúsi hótelsins í kjallara þess. 130 gestir voru í hótelinu og gekk rýmingin vel.

Stórsókn í vændum

Talsmenn norska olíurisans Statoil blása á bölspár þrátt fyrir að framleiðsla hafi dregist saman jafnt og þétt síðustu átta ár og segja stórsókn í vændum.

Dulin verðmæti liggja í hreinni orku

Möguleikar norðurslóða í orkumálum liggja ekki síst á sviði endurnýjanlegra orkugjafa, jarðhita og fallvatna, sem eru hluti af duldum verðmætum svæðisins.

Dimmuborgir friðlýstar í dag

Dimmuborgir og Hverfjall í Skútustaðahreppi verða friðlýst í dag við hátíðlega athöfn. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra undirritar friðlýsinguna. Athöfnin fer fram við rætur Hverfjalls og inni í Dimmuborgum.

Dró sér fé frá fólki á sambýli

Ríkissaksóknari hefur ákært konu á fertugsaldri fyrir að draga sér fé af bankareikningum tveggja heimilismanna á sambýli Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Vesturlandi.

Vildi að gjaldkerinn myndi afhenta sér einn dollara

James Verone fimmtíu og níu ára gamall maður frá Norður-Karólínu, gekk inn í banka á dögunum og afhenti gjaldkeranum miða þar sem stóð á: Þetta er bankarán. Vinsamlegast afhentu mér einn dollara.

75 ný störf vegna 200 milljóna frá ríkinu

Sjötíu og fimm ný störf hafa orðið til vegna 200 milljóna króna sem ríkið veitti til að mæta samdrætti vegna kvótaniðurskurðar. Það slagar upp í helming af þeim störfum sem verða til við fyrsta áfanga Helguvíkur.

Tveimur mönnum bjargað af Esjunni

Mönnunum tveimur, sem voru í sjálfheldu á Esjunni, hefur nú verið komið til bjargar, en björgunarsveitarmenn voru langt komnir upp í fjallið þegar þyrla Landhelgisgæslunnar kom á staðinn.

ASÍ samþykkir kjarasamningana

Samninganefnd ASÍ hefur ákveðið að staðfesta gildistöku þeirra kjarasamninga sem undirritaðir voru þann fimmta maí síðastliðinn og hafa Samtök atvinnulífsins í dag einnig staðfest gildistöku samninganna. Samningarnir munu því gilda til 31.1 2014 með umsömdum endurskoðunarákvæðum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Alþýðusambandinu en þar segir orðrétt:

Björgunarsveit kölluð upp í Esjuna

Kallað var í björgunarsveitina á höfuðborgarsvæðinu nú fyrir skömmu þar sem tveir menn eru í sjálfheldu á Esjunni. Ekki er vitað hvert ástand mannanna er en björgunarsveitarmenn eru nú á leið upp í fjallið til að koma mönnunum til hjálpar.

Kóngavegur á virta kvikmyndahátíð í Tékklandi

Kvikmyndinni Kóngavegur í leikstjórn Valdísar Óskarsdóttur hefur verið boðið að taka þátt í hinni virtu kvikmyndahátíð Karlovy Vary í Tékklandi sem hefst nú fyrstu vikuna í júlí.

Keisaramörgæs á villigötum

Nýsjálendingar fengu óvenjulegan gest á dögunum þegar ung keisaramörgæs sást á strönd einni í landinu. Keisaramörgæsir eyða ævinni jafnan á Suðurskautinu og 44 ár eru liðin frá því villt mörgæs sást síðast við strendur Nýja-Sjálands.

Hestamenn fá margvíslegan stuðning

Landssamband hestamannafélaga, Landsmót hestamanna ehf. og Samskip hf. hafa undirritað víðtækan samstarfs- og styrktarsamning sem tekur til nokkurra af helstu viðburðum hestamennsku og hestaíþrótta til loka árs 2013, þar á meðal landsmóta, Íslandsmóta og bæði heimsmeistaramóts og Norðurlandamóts íslenskra hesta. Stuðningur Samskipa er með margvíslegum hætti, svo sem flutningar og flutningatengd þjónusta, verðlaunagripir, tæki og búnaður. Haraldur Þórarinsson, stjórnarformaður Landssambands hestamannafélaga og Landsmóts hestamanna ehf., og Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa, undirrituðu samstarfssamninginn. Haraldur segir að stuðningur Samskipa sé afar mikilvægur og hafi þau áhrif að auðveldara verði að halda niðri kostnaði við mótshald og útgerð landsliða, sem ella myndi lenda á hestamönnum og mótsgestum að greiða í formi hærri aðgangseyris og þátttökugjalda. Ásbjörn segir að Samskip horfi meðal annars til þess að íslenski hesturinn beri hróður lands og þjóðar víða um veröld og höfði til fjölda fólks á öllum aldri. Það sjáist best á því að um 11.500 manns manns stundi hestamennsku á Íslandi og um 60.000 manns innan alþjóðasamtaka íslenska hestsins í 19 þjóðlöndum og þremur heimsálfum. Hestamót hérlendis og erlendis séu fjöldasamkomur sem dragi sífellt að sér meiri athygli fólks, langt út fyrir raðir sjálfra iðkendanna. Samskip vilji leggja samtökum hestmanna lið og styrkja enn frekar öfluga starfsemi þeirra í þágu iðkenda hestaíþrótta og allra aðdáenda íslenska hestsins nær og fjær. Hestaíþróttaviðburðir sem samningurinn tekur til: Landsmót hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði 2011 og í Reykjavík 2012, Íslandsmót fullorðinna á Selfossi 2011, Íslandsmót barna- og unglinga í Keflavík 2011, Íslandsmót fullorðinna á Vindheimamelum 2012, Íslandsmót barna- og unglinga á Hellu 2012, Hestadagar í Reykjavík 2012, ístölt landsliðsins í Skautahöllinni í Reykjavík heimsmeistaramótið í Austurríki 2012 og Norðurlandamótið 2013.

Rafmagnslaust í 5 mínútur

Rafmagnslaust varð í hluta Grafarvogs, Mosfellsbæjar og á Kjalarnesi laust eftir klukkan 14:30 í dag vegna bilunar í spenni í aðveitustöð við Korpu. Rafmagn var komið aftur á 5 mínútum síðar. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur er verið að kanna orsakir bilunarinnar.

Bótakröfu hafnað - hugar að málsókn

Anna Kristín Ólafsdóttir hugar nú að málsókn í kjölfar höfnunar ríkislögmanns á 5 milljóna króna bótakröfu sem Anna Kristín lagði fram á þeim grundvelli að jafnréttislög hefðu verið brotin þegar karlmaður var ráðinn framyfir hana við ráðningu skrifstofustjóra í Forsætisráðuneytinu.

SA staðfesta kjarasamninga

Samtök atvinnulífsins hafa ákveðið að staðfesta gildistöku kjarasamninga frá 22. júní 2011 í samræmi við ákvæði kjarasamninganna sem undirritaðir voru 5. maí síðastliðinn. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá SA. Þar segja samtökin að þau fallist á samingana, þrátt fyrir það sem SA telja vanefndir ríkisstjórnarinnar.

Aukið umferðareftirlit við borgarmörkin

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun í sumar halda uppi auknu umferðareftirliti á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut í tengslum við umferðaröryggisáætlun. Meginmarkmiðið með eftirlitinu er að draga úr ökuhraða en jafnframt að tryggja eins og hægt er að vanbúin ökutæki séu ekki á ferð um þjóðvegi landsins. Eftirlitið stendur yfir alla daga en þungi þess verður þó yfir helgarnar þegar umferðin og þörfin er mest. Sérstaklega verður hugað að ljósabúnaði, skráningu og hleðslu ökutækja, tjaldvagna, fellihýsa og hjólhýsa. Einnig verður fylgst með því að hliðarspeglar ökutækja sem draga breiða eftirvagna séu samkvæmt reglum. Lögreglan hvetur ökumenn sem fyrr til aðgæslu og tillitssemi í umferðinni svo ekki þurfi að grípa til sekta og jafnvel kyrrsetningar tækja. Sent fyrir hönd Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Níu mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot

Karlmaður frá Suðurnesjum var dæmdur í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir kynferðisbrot gegn sextán ára dreng. Þá er hann dæmdur fyrir að gefa honum og öðrum sextán ára dreng, áfengi, en slíkt er ólöglegt samkvæmt áfengis- og barnaverndarlögum.

Lamdi rangan mann fyrir að kalla félaga sína "þræla og górillur“

Karlmaður var sektaður í dag um 75 þúsund krónur fyrir að hafa slegið og sparkað í höfuð manns við skyndibitastaðinn Hlöllabáta í miðborg Reykjavíkur í júní árið 2009. Ástæðan var sú að hann taldi að fórnarlambið hefði kallað þeldökka félaga sína "svertingja, górillu og þræl“ eins og fram kemur í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.

Leitað eftir hugmyndum um þróun Þingvalla

Þingvallanefnd leitar eftir hugmyndum almennings um hvernig taka megi á móti þeim þúsundum Íslendinga og erlendra gesta sem á ári hverju vilja upplifa sérstöðu Þingvalla án þess að ganga á tækifæri komandi kynslóða til að njóta staðarins.

Grímuklæddir menn rændu tveimur stúlkubörnum í Noregi

Tveimur ungum stúlkum var í dag rænt af frístundaheimili í Hadeland í Noregi. Tveir grímuklæddir menn ruddust inn vopnaðir táragasi og rafmagnsbyssum og hrifsuðu börnin frá írakskri móður þeirra. Gríðarleg leit hefur verið gerð að börnunum í Noregi í dag og fyrir stundu voru tveir menn handteknir í bíl sem lýst hafði verið eftir. Stúlkurnar voru þó ekki í bílnum og er þeirra enn leitað. Þær eru eins árs og þriggja ára gamlar.

Dimmuborgir og Hverfjall friðuð

Dimmuborgir og Hverfjall í Skútustaðahreppi verða friðlýst á morgun við hátíðlega athöfn. Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, undirritar friðlýsinguna og mun athöfnin fara fram við rætur Hverfjalls og inni í Dimmuborgum

Bubbi Morthens endurheimti þýfi fyrir Hugleik

"Bubbi skipaði glæpónunum að senda þetta upp í Efstaleiti,“ segir rithöfundurinn Hugleikur Dagsson, sem endurheimti efnið sem var á tölvunni hans sem var stolið fyrir skömmu.

Tveir sextán ára piltar lentu í vinnuslysi

Tveir sextán ára gamlir drengir slösuðust í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Annar drengjanna flækti hanska í færibandi með þeim afleiðingum að hann handleggsbrotnaði.

Sprauta vatni á smábátana svo ferjan komist áfram

Sannkallað ferjuæði hefur skapast í Noregi vegna sjónvarpsútsendingar frá Hurtigruten, siglingu ferjunnar Nordnorge. Útsendingin slær áhorfsmet og hvarvetna sem ferjan kemur mætir henni mannhaf á bryggjunum til að fagna henni.

Björgunarvestaþjófa leitað

Brotist var inn í bílskúr við Kirkjubæjarbraut í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Þjófurinn stal fjórum björgunarvestum.

Dagur hjólabrettisins haldinn hátíðlegur

Dagurinn í dag er alþjóðlegur dagur hjólabrettisins og af því tilefni ætla áhugamenn um íþróttina, eða lífstílinn, að hittast við Hallgrímskirkju klukkan tólf í hádeginu og renna sér niður á Ingólfstorg. Brettafélag Reykjavíkur stendur fyrir viðburðinum hér á landi en um allan heim koma menn saman á þessum degi og renna sér.

Mál Müller til ákæruvaldsins

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er búin að rannsaka kynferðisbrot, sem beinist að Margréti Múller heitinni, þegar hún var kennari við Landakotsskóla. Málið hefur verið sent ákærusviði að sögn Björgvin Björgvinssonar, yfirmanns kynferðisbrotadeildar lögreglunnar.

Nýr sýningasalur opnar á Hornafirði

Nýr sýningasalur Listasafns Hornafjarðar verður opnaður við hátíðlega athöfn þann 24. júní næstkomandi. Salurinn er til húsa í Gömlu Slökkvistöðina og verður opnunarsýningin á verkum Svavars Guðnasonar.

Lögregla sökuð um að skilja mann tvívegis eftir í óbyggðum

Aðalmeðferð fer fram í dag í máli ríkissaksóknara gegn lögregluvarðstjóra á Selfossi sem hefur verið ákærður fyrir að fara offari í framkvæmd lögreglustarfans og ekki gætt lögmætra aðferða sem stjórnandi lögregluaðgerðar.

Mannskæð árás í Írak

Að minnsta kosti tuttugu og tveir eru látnir eftir sprengjuárás í miðhluta Íraks í nótt. Árásin var gerð fyrir utan hús ríkisstjórans í Diwaniya en héraðið er rúmlega 100 kílómetra suður af Bagdad. Talið er líklegt að um sjálfsmorðsárás hafi verið að ræða og að tilræðismennirnir hafi verið tveir. Mjög hefur dregið úr ofbeldi í landinu síðustu misserin en þrátt fyrir það eru árásir af þessari tegund enn tíðar.

Áhöfn skorar á þingmenn

Áhöfnin á fjölveiðiskipinu Barða frá Neskaupstað segir í áskorun til þingmanna, að allt tal um eflingu sjávarbyggða, í nýsamþykktu frumvarpi um stjórn fiskveiða, sé blekking, því til að auka veiðiheimildir á einum stað þurfi að minnka þær á öðrum.

Fyrrverandi forseti dæmdur í 35 ára fangelsi

Dómstóll í Túnis hefur dæmt forsetann fyrrverandi, Zine Ben Ali og eiginkonu hans Leilu í 35 ára fangelsi fyrir fjárdrátt og misnotkun á almannafé. Hjónin sem flúðu land til Sádí Arabíu í Janúar eftir að almenningur hafði mótmælt ástandinu í landinu, voru einnig sektuð um 66 milljónir dollara.

Sjá næstu 50 fréttir