Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lítil umferð um helgina Umferð um nýliðna hvítasunnuhelgi var mun minni en verið hefur undanfarin ár að sögn lögreglumanna víða um land. Sérstaklega var rólegt yfir umferðinni um norðanvert landið og fyrir austan. 14.6.2011 07:44
Heilsu danskra karlmanna hrakar Heilsu danskra karlmanna hrakar samanborið við kynbræður þeirra í öðrum Evrópulöndum. Þeir hafa þyngst að meðaltali meira en aðrir á undanförnum árum og þá hefur tíðni sykursýki 2, sem einnig er kölluð fullorðinssykursýki, aukist meðal danskra karlmanna. 14.6.2011 07:42
Aska truflar flugumferð í Afríku Aska frá eldfjalli í Eritreu truflar nú flugumferð í norðausturhluta Afríku og er þýska flugfélagið Lufthansa meðal þeirra flugfélaga sem hafa þurft að fella niður flug. Elfjallið byrjaði að gjósa í gær en um 150 ár eru frá seinasta gosi. 14.6.2011 07:39
Réttað yfir fyrrverandi forseta Túnis Réttarhöld yfir Zine Ben Ali, fyrrverandi forseta Túnis, hefjast í næstu viku. Bráðabirgðar forsætisráðherra landsins segir að Ben Ali verðI ekki viðstaddur réttarhöldin en hann flúði ásamt fjölskyldu sinni til Saudi-Arabíu í janúar eftir umfangsmikil mótmæli í Túnis. Forsetinn fyrrverandi er ásakaður er um að hafa staðið fyrir morðum á mótmælendum og stolið háum fjármuni úr opinberum sjóðum. Allt lítur út fyrir að Sádar ætli ekki að framselja Ben Ali til Túnis. 14.6.2011 07:37
Tonni landað fram hjá vigt Tveir menn hafa verið ákærðir fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrir brot á reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla. 14.6.2011 06:00
Sakaður um Gnarrisma „Ég þurfti að vinna á móti ákveðnu hugtaki sem nú er orðið þekkt í samfélaginu og kallast Gnarrismi. Það fannst mér mjög óréttlátt því ekkert sem ég sagði eða gerði í kosningabaráttunni var tengt því sem hann gerði," segir Haraldur Freyr Gíslason Pollapönkari og nýkjörinn formaður Félags leikskólakennara, um viðbrögð við framboði sínu. 14.6.2011 06:00
Nær helmingur atvinnulaus á Gaza Atvinnuleysi á Gaza-ströndinni mældist 45,2% um áramótin, samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum. Þetta er eitt hæsta hlutfall atvinnulausra í heiminum. 14.6.2011 15:23
Eitt þúsund manns í druslugöngu í Sidney Um eitt þúsund manns tóku þátt í druslugöngu í miðborg Sidney í Ástralíu í dag til að berjast gegn fordómum í tengslum við klæðaburð kvenna. 13.6.2011 19:39
Skemmtiferðarskipið við Skarfabakka kostaði 83 milljarða Skemmtiferðaskipið Costa Pacifica kom til Reykjavíkur í morgun og liggur nú við Skarfabakka. Þetta er eitt stærsta skemmtiferðaskip sem kemur til landins í sumar en það er tæp 115 þúsund tonn. Þetta er risavaxið skip, 290 metrar á lengd, með 1500 káetur á 17 hæðum. Það tekur 3780 farþega og er með 1100 manna áhöfn. 13.6.2011 19:38
Norðmenn varaðir við aurskriðum Íbúar í Guðbrandsdal í Noregi eru beðnir um að hafa varan á því hætta er á aurskriðum nú þegar flóðin sem þar hafa geisað eru í rénum. Milljarðatjón hefur orðið í hamförunum. 13.6.2011 19:35
Ástandinu við Dyrhólaey líkt við stríð Aukin harka hefur færst í deiluna um lokun Dyrahólaeyjar. Umhverfisstofnun hyggst kæra skemmdarvarga til lögreglu en skiltum var stolið á Dyrhólaey og stjakað við starfsmönnum sem huggðust loka eyjunni fyrir mannaferðum. 13.6.2011 19:11
Berlusconi beið pólitískan ósigur Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, beið mikinn pólitískan ósigur í gær þegar Ítalar felldu úr gildi lög ríkisstjórnar hans um kjarnorku, einkavæðingu og friðhelgi ráðherra. 13.6.2011 18:41
Erdogan er maðurinn Réttlætis- og þróunarflokkurinn, flokkur Recep Erdogan forsætisráðherra, náði hreinum meirihluta í þingkosningunum í Tyrklandi í gær. Flokkurinn hlaut um það bil 50% atkvæða og 326 þingsæti af 550. Réttlætis- og þróunarflokkurinn hefur verið við völd í Tyrklandi frá árinu 2003 eða í tvö kjörtímabil. Flokkurinn vill breyta stjórnarskrá landsins til að auka lýðræði en stjórnarskráin sem nú er í gildi var skrifuð eftir að herinn tók völdin árið 1980. 13.6.2011 18:39
Mikil skelfing í Christchurch Að minnsta kosti 50 slösuðust í tveimur jarðskjálftum við borgina Christchurch á Nýja Sjálandi í morgun. Fyrri skjálfinn mældist 5,2 stig og sá seinni 6 stig. 13.6.2011 18:15
Umferð tekin að þyngjast Umferð til höfuðborgarinnar er tekin að þyngjast og má búast við talsverðri umferð um helstu umferðaræðar til og frá höfuðborgarsvæðinu í dag annan í Hvítasunnu, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu. Fjölmargir lögðu land undir fót á föstudaginn og var umferð meiri í gegnum umdæmi lögreglunnar á Akranesi, Borgarnesi og Selfossi, en gengur og gerist miðað við hefðbundnar helgar að sumri til. 13.6.2011 17:03
Rétt að ákæra Geir "Allt tal um að þetta hafi beinst að einum frekar en öðrum stenst ekki skoðun, né heldur tal um pólitíska herferð. Að öðru leyti vil ég ekki tjá mig um þetta og vísa til þess hvernig málið er komið. Ég held að menn gerðu rétt í að láta það fara sinn gang,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, um yfirlýsingar Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. 13.6.2011 16:30
Þjóðverjar styðja uppreisnarmenn Ríkisstjórn Þýskalands lýsti í dag yfir stuðningi við Líbíska þjóðarráðið, bandalag uppreisnarmanna. Enn geisa hörð átök í Líbíu og er ekkert fararsnið á Moammar Gaddafi. 13.6.2011 16:07
Óskar eftir tilnefningum vegna fjölmiðlaverðlauna Umhverfisráðuneytið óskar eftir tilnefningum til fjölmiðlaverðlauna á Degi íslenskrar náttúru. Ríkisstjórnin ákvað síðastliðið haust, að tillögu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra, að tileinka 16. september ár hvert íslenskri náttúru. Markmiðið með deginum er að beina sjónum landsmanna að náttúru landsins, gögnum hennar og gæðum. 13.6.2011 15:24
Ökumaður tekinn tvívegis um helgina undir áhrifum fíkniefna Karl á þrítugsaldri var tekinn í tvígang fyrir fíkniefnaakstur um helgina. Fyrst var hann stöðvaður í Kópavogi á laugardagskvöld og færður á lögreglustöð en sleppt nokkru síðar en viðkomandi hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. 13.6.2011 15:08
Vefur lögreglunnar lá niðri vegna tölvuhakkara Heimasíða embættis spænska ríkislögreglustjórans lá niðri í um klukkustund í gærkvöld eftir að tölvuhakkarar réðust á síðuna. Málið er litið alvarlegum augum en embættið hefur ekki staðfest að samtökin Anonymous hafi staðið á bak við árásina. Yfirlýsing þess efnis birtist þó á heimasíðu samtakanna. Talið er að þau hafi ráðist á heimasíðu ríkislögreglustjórans vegna þess að þrír einstaklingar sem tengjast samtökunum voru handteknir á föstudaginn. 13.6.2011 14:50
Ræðu biskups beðið Mikil eftirvænting ríkir eftir ræðu Karls Sigurbjörnssonar, biskups, á kirkjuþingi á morgun þegar hann tjáir sig í fyrsta sinn um skýrslu rannsóknarnefndar þjóðkirkjunnar þar sem farið er fyrir biskupsmálið svokallaða og viðbrögð kirkjunnar tilgreind. Viðmælendur fréttastofu úr hópi presta segja að búast megi við uppgjöri. 13.6.2011 14:45
Hönnunarsafnið fékk Heklu að gjöf „Það er Hönnunarsafni Íslands sönn gleði að taka á móti Heklu. Erfitt er að nálgast verðlaunalampann sem er orðinn hluti af skandinavískri hönnunarsögu. Hekla er dæmi um afar vel heppnaða og fallega hönnun sem við Íslendingar eigum að þekkja. Við þökkum Íslandsbanka og Epal kærlega fyrir þetta frábæra framtak,“ segir Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands. 13.6.2011 12:56
Séra Baldur - þögnin knúði mig áfram Séra Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Ölfusi, segir þögnina hafa knúið hann til þess að stíga fram í dag. Hann skammist sín fyrir að hafa tilheyrt því valdakerfi sem tók á málum fórnarlamba Ólafs Skúlasonar á sínum tíma. Í yfirlýsingu frá Baldri segir hann sig frá Kirkjuþingi, sem hefst á morgun, og biður fórnarlömb Ólafs Skúlasonar afsökunar á aðkomu sinni í málinu. 13.6.2011 12:54
Segir breytingar ógna fjárhagslegri stöðu Sjálfstæðisflokksins Allar breytingar á kvótakerfinu koma sér illa fyrir Sjálfstæðisflokkinn og ógnar fjárhagslegri stöðu flokksins, að mati þingmanns VG. Hann segir að það sé eins og að slíta pólitíska hjartað úr Framsóknarflokknum að breyta kvótakerfinu og að það hafi þurft konu að vestan til að berja í gegn breytingar á kvótakerfinu, en þar á þingmaðurinn við Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, formann sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis. Þetta er meðal þess sem fram kemur í pistli Björns Vals Gíslasonar, þingmanns VG, á heimasíðu hans. 13.6.2011 12:32
Aðstoðaði Ísbarónessuna sem reyndist vera eftirlýstur morðingi Spænskur götuspilari í Vín komst í hann krappann þegar hann sá aumur á grátandi konu á lestarstöð í Udine á Ítalíu. Hann bauð konunni gistingu en komst ekki að því fyrr en tveim dögum síðar að konan með tárin var eftirlýstur morðingi frá Vín, þekkt undir nafninu Ísbarónessan. 13.6.2011 12:30
Vélarbilun í flugvél Icelandair Vélarbilun varð í flugvél Icelandair sem var nýlögð af stað frá Billund í Danmörku og var vélinni í framhaldinu snúið við. Farþegar bíða þess nú að gert sé við vélina, að því er Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Icelandair segir. 13.6.2011 12:17
Stjórnarherinn segist hafa hrundið árás uppreisnarmanna Stjórnvöld í Líbíu segjast hafa hrundið árás uppreisnarmanna á bæinn Zawiya í vesturhluta landsins. Harðir bardagar hafa geysað um bæinn undanfarnar vikur en bærinn er um 30 kílómetra fyrir vestan Trípolí, höfuðborg landsins. Ekki liggur fyrir hversu margir hafa látið lífið í átökunum en fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins, BBC, að mannfall í röðum uppreisnarmanna sé töluvert. 13.6.2011 12:08
Flug fellur niður vegna gosösku Nánast allt flug liggur niðri í Ástralíu og á Nýja Sjálandi vegna gosösku. Búist er við áframhaldandi röskun á flugi í Eyjaálfu næstu daga. Askan úr sílenska eldfjallinu Puyehue-Cordon Caulle raskar nú flugi í Eyjaálfu annan daginn í röð. 13.6.2011 12:00
Biskupsritari Ólafs Skúlasonar segir sig frá kirkjuþingi "Ég hef sagt mig frá Kirkjuþinginu á morgun, þriðjudag. Ég tel að viðbrögð þess verði trúverðugri því færri sem þar eru sem komu við sögu,“ segir Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Ölfusi og fyrrum biskupsritari Ólafs Skúlasonar. Hann biður Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur, Dagbjörtu Guðmundsdóttur og Stefaníu Þorgrímsdóttur fyrirgefningar. 13.6.2011 11:07
Stefnir á að leiða VG áfram Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna, segir ekkert benda til annars en að hann muni halda áfram sem formaður VG. „Hitt er þó ljóst að ég hef engin áform um að verða eilífur augnakarl, hvorki á formannsstóli Vinstri grænna né í stjórnmálum. Ég get vel hugsað mér að afhenda öðrum keflið þegar ég met það að tíminn sé réttur,“ segir Steingrímur. Nokkuð hefur verið ritað um hvort hann ætli sér að halda áfram sem formaður. Rætt er við Steingrím í helgarblaði Fréttablaðsins sem hægt er að nálgast hér. 13.6.2011 11:00
Handtekinn með sprengiefni Lögreglan í Kaupmannahöfn handtók í gær 27 ára karlmann eftir að hálft kíló af sprengiefni fannst í bíl mannsins. Við nánari leit fundust einnig þrír rifflar og þrjár haglabyssur í bílnum. Maðurinn var stöðvaður við reglubundið umferðareftirlit en stór sprunga var í framrúðu bílsins. 13.6.2011 10:10
Ólafur Gaukur er látinn Ólafur Gaukur Þórhallsson gítarleikari og tónlistarmaður er látinn, áttræður að aldri. Ólafur fæddist í Reykjavík 1930 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri. Hann hóf ungur að aldri að spila með mörgum af vinsælustu hljómsveitum landsins, meðal annars KK sextett og stýrði svo sinni eigin hljómsveit um árabil. Hann rak sinn eiginn gítarskóla frá árinu 1975. Eftirlifandi eiginkona Ólafs er Svanhildur Jakobsdóttir söngkona og dagskrárgerðarmaður. 13.6.2011 10:00
Flokkur forsætisráðherrans sigraði Réttlætis- og þróunarflokkurinn, flokkur Recep Erdogan forsætisráðherra, vann stórsigur í þingkosningunum í Tyrklandi í gær. Flokkurinn hlaut um það bil 50% atkvæða og hreinan meirihluta á þingi. Flokkurinn fékk 325 þingsæti af 550 sem dugar þó ekki til að hann geti gert einhliða breytingar á stjórnarskrá landsins. 13.6.2011 09:59
Eldur í blaðagámi Kalla þurfti út dælubíl þegar tilkynnt var um eld í blaðagámi við Holtaveg í Reykjavík rétt um klukkan fjögur í nótt. Lítil hætta stafaði af eldinum þar sem gámurinn stóð talsvert frá nærlægum húsum. Það tók slökkviliðsmenn skamma stund að slökkva eldinn. 13.6.2011 09:42
Stútur ók of hratt Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann fyrir of hraðann akstur rétt eftir klukkan átta í morgun á Suðurlandsvegi við Kögunarhól, en hann mældist á 118 km. hraða. Þegar betur var að gáð kom í ljós að hann reyndist einnig ölvaður. Hann var sviptur ökuleyfi í framhaldinu. Um er að ræða karlmann á tvítugsaldri. 13.6.2011 09:33
Handteknir á Reykjanesbraut eftir að hafa kveikt í bíl Tveir karlmenn voru handteknir á Reykjanesbraut á sjötta tímanum í morgun grunaðir um hafa skömmu áður kveikt í bifreið að gerðinni Honda Civic í iðnaðarhverfi í Reykjanesbæ. Engann sakaði í eldsvoðanum en bifreiðin er gjörónýt. Mennirnir gista nú fangageymslur en þeir voru handteknir eftir ábendingar vitna. 13.6.2011 09:26
Sýrlensk stúlka reyndist vera bandarískur karlmaður Samkynhneigð sýrlensk stúlka, sem vakti mikla athygli fyrir blogg sem hún ritaði frá Damaskus, reyndist í gær vera harðgiftur bandarískur karlmaður. 13.6.2011 08:00
Ekkert salt á veitingastöðum Heilbrigðisyfirvöld í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu, vinna þessa dagana að því að sporna við háum blóðþrýstingi borgarbúa og hyggjast í þeim tilgangi gripa til þess ráðs að láta fjarlægja alla saltstauka af borðum veitingahúsa í borginni. 13.6.2011 07:30
Keppir við gróna háskóla Hópur fræðimanna í Bretlandi hefur stofnað nýjan háskóla í London, The New College of the Humanities, sem á að keppa við háskólana Oxford og Cambridge. 13.6.2011 06:00
Fæðubótarefni eru illa merkt Fæðubótarefni eru oft illa merk og innra eftirliti þeirra fyrirtækja sem þau selja er oft ábótavant. Þetta var niðurstaða könnunar sem Matvælastofnun og Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna stóðu að síðastliðinn vetur. 13.6.2011 06:00
Þingmaður Framsóknar vill endurskoðun á lögunum Þingmenn fengu ekki réttar upplýsingar við samþykkt á lögum um útreikninga lána í desember síðastliðnum segir Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknar. Hún telur réttast að lögin verði tekin aftur upp á Alþingi. 12.6.2011 13:45
Þingmaður Sjálfstæðisflokks gagnrýnir breytingar á kvótakerfinu Minna kvótafrumvarp sjávarútvegsráðherra varð að lögum í gær eftir nokkur átök í þingsal. Þingmaður Sjálfstæðisflokks gagnrýnir breytingar á kvótakerfinu fyrir skort á heildarsýn, en þingmaður Vinstri grænna segist stoltur af áfanganum. 12.6.2011 13:27
Prjónað á almannafæri Prjónað verður á almannafæri á Austurvelli þann 16. júní næstkomandi, en viðburðurinn er hluti af "alþjóðlega almenningsprjónadeginum" eða "World Wide knit in public day". Verður þetta í fyrsta skiptið sem dagurinn er haldinn hátíðlegur á Íslandi. 12.6.2011 12:20
Gæti unnið alþjóðlegan meistaratitil. Hinn ungi og efnilegi skákmaður Hjörvar Steinn Grétarsson náði sínum fyrsta áfanga að alþjóðlegum meistaratitli í gær. 12.6.2011 10:30
Skotárás í Svíþjóð Einn maður lést og annar berst nú fyrir lífi sínu eftir skotárás í bænum Åkersberga í Svíþjóða en bærinn er rétt fyrir utan Stokkhólm. 12.6.2011 10:25