Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kjarasamningur við grunnskólakennara undirritaður Samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara skrifuðu undir nýjan kjarasamning klukkan fimm í dag. Samningurinn gildir frá 1. maí 2011 til 31. mars 2014 og felur í sér sambærilegar hækkanir launa og nýgerðir kjarasamningar á almennum vinnumarkaði. 14.5.2011 18:43
Fjöldi prúðbúinna gesta fagnaði Hörpunni Fjöldi prúðbúinna gesta mætti til opnunarhófs í tónlistarhúsinu Hörpu í gær. Þar voru meðal annars forsetahjónin, Björgólfur Guðmundsson, ráðherrar og fyrrverandi ráðherrar, borgarfulltrúar og fleiri. 14.5.2011 18:08
Vonar að Ísland verði meðal 10 efstu Eyjólfur Kristjánsson, ein af mestu Eurovision hetjum Íslendinga, segist vona að Íslendingar nái að verða á meðal tíu efstu í Eurovision í kvöld .Hann gerir samt ekki ráð fyrir að strákarnir okkar, eins og vinir Sjonna eru núna kallaðir, muni vinna keppnina. 14.5.2011 17:12
Símaskráin komin út Nýjasta útgáfa Símaskrárinnar kom út í dag. Símaskránni er dreift í 150 þúsund eintökum og fer hún inn á meirihluta heimila og fyrirtækja á landinu. Í bókinni eru um 400 þúsund símanúmer og á Gulu síðunum má finna gagnagrunn yfir meira en 2.000 þjónustuflokka. Í tilefni af útgáfunni var blásið til veislu í Smáralind í dag þar sem Egill Einarsson og Gerplustúlkur árituðu Símaskrána, en þau prýða forsíðu hennar að þessu sinni. 14.5.2011 16:37
Þúsundir hafa lagt leið sína í Hörpu Þúsundir manna hafa lagt leið sína í tónlistarhúsið Hörpu í dag. Nú um helgina fer þar fram opnunarhátíð með fjölbreyttri dagskrá. 14.5.2011 16:03
Flugvél hlekktist á í flugtaki Cessna flugvél, í eigu Flugklúbbs Flugskóla Íslands, hlekktist á í flugtaki á þriðja tímanum í dag á flugvellinum við Hvolsvöll. Fjórir voru í vélinni. Þeir sluppu með minniháttar meiðsl en voru fluttir á Heilsugæsluna á Hvolsvelli til aðhlynningar. 14.5.2011 15:20
Bretar spyrja sig hvort Íslendingar hafi efni á Hörpu Ítarleg umfjöllun var um tónlistarhúsið Hörpu á BBC 3 í dag. Þar er velt upp þeirri spurningu hvort Íslendingar, sem urðu fyrir gríðarlegum efnahagsáföllum fyrir tveimur og hálfu ári, hafi efni á jafn stóru tónlistarhúsi og Harpa er. 14.5.2011 14:12
Dylan sakaður um að svíkja málstaðinn Söngvarinn Bob Dylan hafnar því með öllu að stjórnvöld í Kína hafi ritskoðað tónlist sem hann flutti á tónleikum þar í landi. Hann hefur verið gagnrýndur fyrir það að hafa látið yfirvöld í landinu í té lista yfir þau lög sem hann flutti áður en tónleikarnir hófust. Með þessu var Dylan sakaður um að hafa svikið hippamálstaðinn sem hann varð frægur fyrir þegar byrjaði að flytja tónlist á sjöunda áratug síðustu aldar. Dylan segist ekkert hafa vitað um neina ritskoðun og hann hafi flutt alla þá tónlist sem hann hafi í upphafi ætlað sér að flytja. 14.5.2011 13:51
Forsetinn á afmæli í dag Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands er sextíu og átta ára gamall í dag. Hann fæddist á Ísafirði þennan dag árið 1943. 14.5.2011 13:08
Eldur kom upp í Álftröð Eldur kom upp í einbýlishúsi við Álftröð í Kópavogi nú í hádeginu. Tvö reykkafarateymi voru umsvifalaust send inn í húsið til að slökkva, en allt tiltækt lið slökkviliðsins var á staðnum. Búið er að slökkva mestan eldinn. 14.5.2011 12:44
Veiðigjald hækki um 70% Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra kynnti breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu fyrir blaðamönnum í sjávarútvegsráðuneytinu í dag. Um er að ræða tvö frumvörp. Annars vegar frumvarp sem snýst um aukningu á strandveiðum, aukningu í byggðartengdum aðgerðum og hækkun veiðigjalds um 70%. 14.5.2011 12:06
Vinir Sjonna í góðri stemningu fyrir lokakvöldið Það hefur sjálfsagt ekki farið framhjá neinum að Íslendingar munu taka þátt í aðalkeppni Eurovision sem fram fer í Dusseldorf í kvöld. Benedikt Brynleifsson, betur þekktur sem Benni trommari, segir að stemningin fyrir lokakvöldinu sé góð. 14.5.2011 11:36
Slökkviliðsmenn standa vaktina í Hörpu Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn standa vaktina í Hörpu þessa dagana. Ástæðan er sú að ekki er búið að ljúka við frágang á húsinu. 14.5.2011 11:04
Taivan fagnar húnafullri pandabirnu Mikil gleði ríkir í Taívan en frægasta Panda-birna landsins, Yuan Yuan, er sögð húnafull. Talsmenn Taipei dýragarðsins segja hana sofa mikið, borða lítið og óvenjulega pirraða. Yuan Yuan var send í tæknifrjóvgun í febrúar því pandabjörninn í dýragarðinum, Tuan Tuan, sýndi henni lítinn sem engan áhuga. 14.5.2011 10:01
Kvótafrumvarpið mun hafa áhrif á stöðu útgerða Verði frumvarp ríkisstjórnarinnar um ný fiskveiðistjórnunarlög að veruleika á næsta ári mun það hafa umtalsverð áhrif á fjárhagslega stöðu útgerða og banka sem þjónusta þær. Þetta hefur Morgunblaðið eftir Friðriki J. Arngrímssyni, framkvæmdastjóra LÍÚ. 14.5.2011 09:50
Nafn konunnar sem lést Unga konan sem komið var með látna á Landspítalann í Fossvogi í fyrrakvöld hét Þóra Elín Þorvaldsdóttir en hún var búsett í Hafnarfirði. Þóra var fædd þann 19. júlí árið 1990 og lætur eftir sig rúmlega tveggja ára son. Sambýlismaður hennar, Axel Jóhannsson fæddur árið 1986, var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í gær en hann hefur játað að hafa orðið henni að bana. 14.5.2011 09:42
Lagðist til hvílu hjá ókunnugum karlmanni Íbúi í austurhluta Reykjavíkurborgar vaknaði við það um fimmleytið í nótt að karlmaður lagðist upp í rúm til hans á nærbuxunum einum klæða og sofnaði þar. Húsráðandinn, sem átti ekki von á þessum næturgesti, rauk á fætur og hringdi á lögreglu. Lögreglumenn brugðust snarlega við og komu til að vekja manninn. Maðurinn reyndist hafa lagst til hvílu með kærustu sinni fyrr um nóttina. 14.5.2011 09:22
Pössuð eins og aðrar ömmur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist ekki vita til þess að öryggi Söruh, ömmu Baracks Obama Bandaríkjaforseta, hafi verið sérstaklega ógnað hér á landi, spurður hvort íslensk yfirvöld muni tryggja öryggi hennar í væntanlegri heimsókn á næstu dögum. 14.5.2011 09:00
Díoxínrannsókn svæfð af ráðuneytinu Hollustuvernd ríkisins fór fram á það við umhverfisráðuneytið árið 1997 að allsherjarúttekt yrði gerð á losun díoxíns frá íslenskum fyrirtækjum og hugsanlegri mengun. Ráðuneytið varð ekki við þeirri beiðni heldur hóf vinnu við að fá undanþágu frá tilskipun ESB um takmarkanir á mengun frá helsta mengunarvaldinum – sorpbrennslum. 14.5.2011 09:00
Forsprakki vélhjólagengis í einangrun Forsprakki vélhjólagengisins Black Pistons, Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, situr nú í gæsluvarðhaldi og einangrun, ásamt öðrum meðlimi gengisins, Davíð Frey Rúnarssyni, eftir að þeir réðust á mann og héldu honum nauðugum í meira en hálfan sólarhring, að því er talið er. Þá hafa tveir meðlimir Black Pistons verið kærðir fyrir að reyna að hafa áhrif á rannsókn málsins. 14.5.2011 08:30
Allt að helmingur af umframkvóta í potta Allt að helmingur aflaheimilda þorsks á hverju fiskveiðiári, umfram 160.000 tonn, gæti runnið í svokallað pottakerfi sem ráðherra ráðstafar árlega ef nýtt frumvarp um stjórn fiskveiða verður afgreitt óbreytt. 14.5.2011 08:00
Við munum ekki líða neina vitleysu „Við munum ekki líða neina vitleysu,“ segir Páll E. Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar, spurður um viðbrögð fangelsismálayfirvalda við því að vista nú tvo menn úr íslenska vélhjólagenginu Black Pistons í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni. 14.5.2011 07:45
Afnema skilarétt verslana á kjötvöru Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga (KS) hyggst afnema skilarétt verslana á kjötvöru frá fyrirtækinu. Er þetta gert til að bregðast við banni á forverðmerkingum á kjötvöru. 14.5.2011 06:00
Sérstakur saksóknari stofnun ársins að mati SFR Val á Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins er samvinnuverkefni SFR stéttarfélags í almannaþjónustu og VR en þetta er í sjötta sinn sem SFR velur Stofnun ársins. Umfang könnunarinnar hefur aukist umtalsvert frá því í fyrra. 13.5.2011 17:46
Farið varlega í umferðinni Með hækkandi sól hefur talsvert borið á hraðakstri á höfuðborgarsvæðinu og því vill lögreglan beina þeim tilmælum til ökumanna að þeir flýti sér hægt. Nú er mikið af nýjum vegfarendum í umferðinni, m.a. á reiðhjólum og bifhjólum, og því afar mikilvægt að sýna aðgæslu samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni. 13.5.2011 17:22
Innkalla suðusúkkulaðidropa og spæni Nói Síríus hefur í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur innkallað tímabundið vörurnar Síríus Konsum suðusúkkulaðidropa og Síríus Konsum suðusúkkulaðispæni þar sem ofnæmis- og óþolsvaldar voru ekki nægjanlega vel merktir á umbúðum þessara vara. 13.5.2011 17:15
Íslenska konan kom í kreppunni Lífið er einfaldara eftir að bankahrunið varð, segir Guðfinnur Halldórsson bílasali, betur þekktur sem Guffi, í samtali við bandaríska stórblaðið New York Times. Guffi segist hafa minni peninga á milli handanna, en það geri lífið einfaldara. Hann segist hafa selt marga bíla í uppsveiflunni en ekki hafa sparað mikið. Að eigin sögn notaði hann peningana í að ferðast, fara á skíði og njóta lífsins með útlenskum kærustum. "Taktu eftir þessum fallegu stelpum frá Úkraínu og Sviss," segir Guffi í samtali við blaðamann N 13.5.2011 16:32
Hringitónn með fagnaðarlátum Hrafnhildar Fagnaðarlæti Evróvisjón-þulunnar Hrafnhildar Halldórsdóttur þegar Vinir Sjonna komust áfram í aðalkeppni Evróvisjón vöktu mikla athygli. Hrafnhildur mátti vart mæla og afsakaði sig með því að hún þyrfti að hætta að tala, því að hún væri alveg að fara að gráta. 13.5.2011 16:05
Fjölmenningardagur í Reykjavík á morgun Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar verður haldinn hátíðlegur á morgun þegar að Jón Gnarr borgarstjóri setur hátíðina við Hallgrímskirkju klukkan 13. 13.5.2011 16:01
Föstudagsviðtalið: Treysta ber ákvörðunum kvenna Karen Busby er lagaprófessor við Háskólann í Manitoba. Hún hefur gert ýmsar rannsóknir og hefur nú beint sjónum sínum að staðgöngumæðrun. Hún var á Íslandi fyrr í vikunni á vegum samtakanna Tilveru, sem eru samtök um ófrjósemi, og Staðgöngu, sem er stuðningsfélag staðgöngumæðrunar á Íslandi. Þórunn Elísabet Bogadóttir spurði hana nokkurra spurninga. 13.5.2011 16:00
Sömu sæti í rútunni annað kvöld - frábær stemning í hópnum "Það er frábær stemning í hópnum og þetta leggst svo vel í okkur, við erum svo ánægð að vera komin í úrslitin,“ Benedikt Brynleifsson, trommari í Vinum Sjonna, en stóra stundin hjá þeim félögum er annað kvöld þegar sjálft úrslitakvöldið fer fram í Eurovision. 13.5.2011 15:15
Dæmdur til að greiða lögmanni sínum laun Kristján Sveinbjörnsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi á Álftanesi, hefur verið dæmdur til að greiða Jóni Egilssyni lögmanni 1700 þúsund krónur með dráttarvöxtum vegna lögfræðiaðstoðar sem lögmannnstofa Jóns veitti Kristjáni. 13.5.2011 15:12
Meint dýraníð: "Getur bara ekki lýst því hvað þetta er ógeðslegt" "Menn eru bara dofnir," segir umráðamaður hryssu sem talið er að hafi verið skorin í kynfærin með eggvopni. Honum var virkilega brugðið þegar hann fékk fregnir af því að grunur léki á dýraníðingur hafi ráðist á hryssuna og skorið í skeið hennar. "Maður getur bara ekki lýst því hvað þetta er ógeðslegt," segir hann. Vísir greindi frá því í gær að meint dýraníð hefði verið kært til lögreglunnar á Egilsstöðum eftir að tveir skurðir fundust í skeið hryssunnar, eins og sjö sentimetra langir. Lögreglan hefur engar vísbendingar fengið um hver hefur getað verið þarna að verki og er málið í rannsókn. Hestamenn á svæðinu eru slegnir óhug vegna atviksins og finnst erfitt að ímynda sér að þarna hafi í raun verið um mannanna verk að ræða. Tíðkast hefur víða á Héraði að hesthús séu ólæst en nú er svo komið að vegna ótta um öryggi hrossanna tryggja menn sérstaklega að hesthúsin séu læst. "Við erum farin að læsa hjá okkur," segir umráðamaður hryssunnar og tekur fram að það eigi við um fleiri hestamenn á svæðinu. Hryssan er á batavegi en hún var hin rólegasta við skoðun dýralæknis eftir að tilkynnt var um áverkana á sunnudag. Þá taldi læknir að áverkarnir væru um 8 til 24 tíma gamlir. Hjörtur Magnason, héraðsdýralæknir á Egilsstöðum, sem hlúði að hryssunni eftir að tilkynnt var um áverkana, sagði í samtali við Vísi í gær að hann hefði aldrei séð viðlíka áverka á kynfærum dýrs. 13.5.2011 14:35
Úrskurðaður í gæsluvarðhald Gæsluvarðhaldskrafa yfir manninum sem játað hefur að hafa orðið barnsmóður sinni að bana í gær var tekin fyrir í héraðsdómi Reykjaness nú rétt fyrir tvö. Dómari féllst á kröfuna og hefur maðurinn verið úrskurðaður í varðhald til 27. maí næstkomandi. Yfirheyrslur fóru fram yfir manninum í gærkvöldi og stóðu þær fram eftir nóttu. 13.5.2011 14:10
Var með barnið í bílnum Maðurinn sem játaði í gær að hafa orðið barnsmóður sinni að bana var, eftir því sem næst verður komist, með barn þeirra í bílnum þegar hann framdi voðaverkið. Heimildir fréttastofu herma að áður en hann fór með lík konunnar á Landspítala í Fossvogi í gærkvöldi, hafi hann farið með barnið heim til foreldra sinna. 13.5.2011 13:59
Telja sig hafa fundið Monu Lisu Fornleifafræðingar telja sig hafa fundið gröf konunnar sem sögð er vera Mona Lisa á málverki Leonardo da Vinci. 13.5.2011 13:50
Google spáir Íslandi 12. sæti Google spáir Íslandi 12. sæti í Eurovision á morgun, en Þýskaland er líklegasti sigurvegarinn. 13.5.2011 13:33
Davíð skrifar leiðara langt fram á ævikvöld ef heilsan leyfir Engin tímamörk eru á ráðningu Davíðs Oddssonar sem ritstjóra Morgunblaðsins og það er ekkert fararsnið á honum, segir útgefandi blaðsins. 13.5.2011 12:15
Viðbrögð Vina Sjonna þegar Ísland komst áfram Þvílík gleði braust út þegar að Ísland komst áfram úr fyrri undanúrslitariðli Eurovision síðastliðið þriðjudagskvöld. Í meðfylgjandi myndbandi sést hvernig Vinir Sjonna gjörsamlega farast úr gleði þegar að Íslenski fáninn birtist á skjánum. 13.5.2011 11:51
Innbyrðis deilur í Black Pistons Tveir karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir eftir frelsissviptingu og ítrekaðar líkamsárásir á karlmann á þrítugsaldri. Allir mennirnir tengjast Black Pistons afbrotagenginu samkvæmt heimildum fréttastofu. Eftir að hafa verið haldið nauðugum í rúmlega hálfan sólarhring, komst þolandinn út úr bíl árásarmannanna, þegar þeir voru að flytja hann milli staða í fyrradag, og bjargaði sér á hlaupum. 13.5.2011 11:50
Líklega farið fram á gæsluvarðhald síðar í dag Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun líklega fara fram á gæsluvarðhald síðar í dag yfir 25 ára gömlum manni sem játaði í gær að hafa banað barnsmóður sinni. 13.5.2011 11:30
Strætóbílstjóri talaði í símann undir stýri Forsvarsmenn Strætó bs. hafa veitt vagnstjóra hjá fyrirtækinu tiltal vegna farsímanotkunar við akstur eftir að ljósmynd barst af bílstjóranum þar sem hann sást tala í símann á sama tíma og hann ók strætisvagni. Ljósmyndin barst til fréttastofu sem síðan kom henni áleiðis til Strætó bs. Upplýsingar frá ljósmyndara um tíma og staðsetningu vagns þegar myndin var tekin leiddi til þess að starfsfólk Strætó bs. gat haft uppi á vagnstjóranum. Gert er ráð fyrir að vagnstjórum verði sent tilkynning á allra næstu dögum þar sem ítrekaðar eru upplýsingar um starfsreglur, þar á meðal að ólöglegt sé að tala í síma við akstur. "Lögbrot og brot á starfsreglum vagnstjóra eru litin alvarlegum augum hjá Strætó bs. og farsímanotkun í akstri án handfrjálss búnaðar er ekki einungis lögbrot heldur er það einnig brot á starfsreglum vagnstjóra að tala í síma í akstri - með eða án handfrjáls búnaðar," segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. Brot á lögum og starfsreglum fara eftir ákveðnum ferlum innan fyrirtækisins og kunna að leiða til áminningar og ef til vill síðar til brottreksturs ef svo ber undir. "Þetta er allt skráð," segir Reynir. Hann leggur áherslu á að fyrirtækið reyni eftir fremsta megni að vinna með sínu starfsfólki og aðstoða það við að bæta ráð sitt þegar þörf krefur, frekar en að segja upp góði fólki sem verður á að gera mistök í starfi. Ef um endurtekin brot sé að ræða er þó engin þolinmæði fyrir því. "Flestir taka ábendingum vel og brjóta ekki af sér aftur," segir Reynir. Þó hann geti ekki gefið upplýsingar um einstaka starfsmenn segir Reynir aðspurður að sá sem á myndinni sést tala í símann við akstur er ekki þekktur hjá fyrirtækinu nema af góðu einu. Reynir bindur því vonir við að eitt tiltal sé allt sem til þurfi. Reynir segir ekki algengt að ábendingar berist vegna þess að vagnstjórar tali í síma á meðan á akstri stendur, en það komi þó fyrir. Hann beinir því til viðskiptavina Strætó bs. að hafa sjálfir samband við fyrirtækið ef þeir vilja koma með athugasemdir, og segir þar fullum trúnaði heitið. 13.5.2011 11:15
Transfólk fordæmir orðaval þulu í Eurovision "Bleiki hnefinn fordæmir niðrandi ummæli Hrafnhildar Halldórsdóttur Eurovision-þulu og krefst þess að hún, ásamt Ásgrími Angantýssyni málfarsráðunaut RÚV og Páli Magnússyni útvarpsstjóra, biðjist afsökunar vegna fordómafullra ummæla Hrafnhildar frá því í gær um keppanda Eurovision sem farið hefur í aðgerð til leiðréttingar á kyni." Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Bleika hnefanum, aðgerðahópi róttækra kynvillinga. Áður en ísraelska söngkonan Dana International steig á svið í fyundankeppninni á þriðjudag, sagði Hrafnhildur: "Dana heitir í raun Yaron Cohen og er tæplega fertugur karlmaður. Eftir kynskiptingu heitir hún Sharon Cohen, þetta vita auðvitað allir því Dana sigraði Eurovision keppnina árið 1998 í Birmingham," Krafa Bleika hnefans er að Hrafnhildur biðji almenning, sérstaklega transfólk, afsökunar á ummælunum í beinni útsendingu frá Eurovision-söngvakeppninni á morgun 14. maí. Jafnframt skorar hópurinn á Pál og Ásgrím að biðjast afsökunar skriflega. Dana International er ekki karlmaður - hún er kona sem fæddist í karlmannslíkama og fór í aðgerð til leiðréttingar á kyni. Hún heitir ekki Yaron Cohen heldur Sharon Cohen, hið rétta er að hún hét Yaron. "Ummæli Hrafnhildar bæði einkennast af og ýta undir skilningsleysi og fáfræði gagnvart transfólki. Það er sérlega alvarlegt í ljósi þess að leitandi er að öðrum hópi í íslensku samfélagi sem verður fyrir álíka miklum fordómum. Félagsleg og lagaleg réttindi hópsins eru í óvissu og andlegt álag mikið. Það er því mjög alvarlegt þegar sjónvarp allra landsmanna ýtir undir fordóma með þeim hætti sem gert var í beinni útsendingu frá Eurovision á fimmtudaginn sl.,“ segir í tilkynningunni. 13.5.2011 11:14
Norðmenn í leynilegum flóttamannaflutningum Norðmenn hafa leynilega í tvö ár hjálpað stjórnarandstæðingum að komast frá Sri Lanka og veitt þeim pólitískt hæli í Noregi. Tvö ár eru liðin frá því blóðugu borgarastríði lauk í landinu. 13.5.2011 11:07
Milljarðamæringur sneri á ættingjana áður en hann dó Ættingjar bandarísks auðjöfurs fá nú loksins að njóta auðæva karlsins, 92 árum eftir að hann lést. 13.5.2011 10:53