Fleiri fréttir

Ófært og ólíðandi að SA dragi kvótann inn í kjarasamninga

Það er ófært og ólíðandi að Samtök atvinnulífsins (SA) blandi áformum stjórnvalda um að endurskoða löggjöf um stjórn fiskveiða inn í viðræður um kjarasamninga, sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á Alþingi í gær.

Stofnar nýjan þingflokk

Ehud Barak, innan­ríkisráðherra Ísraels, hefur sagt sig úr Verkamannaflokknum og stofnað nýjan þingflokk. Barak verður áfram ráðherra, en búast má við því að Verkamannaflokkurinn segi sig úr stjórnarsamstarfi með Benjamin Netanjahú forsætisráðherra.

Stjórnarandstaðan fær að vera með

Mohammed Ghannouchi verður forsætisráðherra áfram í nýrri þjóðstjórn í Túnis, sem tók við völdum í gær, aðeins fáeinum dögum eftir að Zine al-Abidine Ben Ali forseta var steypt af stóli.

Staðgöngumóðir eignast barn fyrir Nicole Kidman

Leikkonan Nicole Kidman og eiginmaður hennar, Keith Urban, eignuðust dóttir milli jóla og nýárs með hjálp staðgöngumóður. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hjónin sendu frá sér fyrr í kvöld.

Níumenningarnir fyrir dóm: Þriggja daga réttarhöld

Aðalmeðferð í máli ríkissaksóknara gegn níumenningunum svokölluðu sem ákærð eru fyrir árás á Alþingi hefst í Héraðsdómur Reykjavíkur á morgun. Gert er ráð fyrir að aðalmeðferðin muni standa yfir í þrjá daga.

Sjónvarpskóngur ákærður: Við erum saklaus

„Við komum fyrir dómara í dag og lýstum okkur algjörlega saklaus af öllum ásetningi. Þetta mál er með hreinum ólíkindum,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarpsstjóri ÍNN. Hann og eiginkona hans voru í desember ákærð fyrir skattalagabrot og krafin um rúmar 11 milljónir króna.

Líkir málflutningi Landsbankamanna við Nurnberg réttarhöldin

„Ég held að það væri nær að Íslendingar bæðu Breta afsökunar," segir Vilhjálmur Bjarnason, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Hann er ekki par hrifinn af ummælum Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, sem sagði í samtali við The Wall Street Journal að Gordon Brown ætti að biðjast afsökunar á því að hafa sagt að Ísland væri gjaldþrota í miðju efnahagsfárviðrinu.

Byssumaðurinn frá Arizona sýnir enga iðrun

Byssumaðurinn Jared Loughner, sem skaut bandarísku þingkonuna Gabrielle Giffords í höfuðið á dögunum, er miskunnarlaus morðingi. Þetta segja fangaverðir sem hafa umsjón með Jared þar sem honum er haldið föngnum í Arizona.

Glee og Social Network sigruðu á Golden Globe - Gervais fór á kostum

Golden Globe hátíðin fór fram í Hollywood í nótt. Á Golden Globe eru bestu kvikmyndir og sjónvarpsþættir ársins verðlaunaðir og eru úrslitin þar oft talin sterk vísbending um hvað koma skal þegar Óskarsverðlaunin verða afhent. Helstu sigurvegarar í þetta skiptið var kvikmyndin The Social Network, sem segir söguna af því þegar samskiptasíðan Facebook varð til, og sjónvarpsþátturinn Glee, sem segir frá söngelskum krökkum í amerískum menntaskóla.

Fleiri finnast látnir í Brasilíu

Á sjöunda hundrað eru látnir eftir flóðin skammt frá Rio de Janiero í Brasilíu í síðustu viku. Yfirvöld segja að minnsta kosti 655 látna og að búist sé við að sú tala eigi eftir að hækka ennfrekar.

Ók á ljósastaur

Umferðaróhapp varð á Miklubraut skammt frá gatnamótunum við Grensásveg á áttunda tímanum í kvöld. Bifreið var ekið á ljósastaur og þurfti að flytja ökumanninn á slysadeild. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var ökumaðurinn ekki mikið slasaður. Hann var einn í bifreiðinni.

Afhentu þingflokksformönnum ályktun um fiskinn

Formaður Vinstri grænna í Reykjavík og formaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík afhentu í dag, þingflokksformönnum Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs ályktun stjórna félaganna um fiskiauðlindina í þjóðareign.

Miskunnarlausari og hættulegri árásir

„Ég skyldi ætla að fólk vissi að það væri hættulegt að sparka í höfuðið á mönnunum því innan kúpunnar er afskaplega viðkvæmt líffæri sem ekki endurnýjar sig svo auðveldlega eftir áverka eða uppákomur," segir Elísabet Benediktz, yfirlæknir Slysa- og bráðamóttöku Landspítala.

Foreldrar kaupi umhverfisvottaðar barnavörur

Ýmsar vörur sem ætlaðar eru börnum gætu haft skaðleg áhrif á þroska þeirra. Sérfræðingur Umhverfisstofnunnar hvetur foreldra til að kynna sér málið og velja vörur sem eru umhverfisvottaðar.

Mótmælendum fjölgaði þegar líða tók á daginn

Fátt fólk kom saman á Austurvelli og barði í tunnur þegar þingið kom saman í dag. Mótmælin reyndust þó ekki jafn fjölmenn og í október á síðasta ári þó mótmælendum hafi fjölgað þegar líða tók á daginn.

Á fjórða tug vitna og sakborninga yfirheyrðir

Á fjórða tug vitna og sakborninga hafa verið yfirheyrðir af embætti sérstaks saksóknara vegna meintrar markaðsmisnotkunar Landsbankans fyrir hrun. Sex teymi vinna að yfirheyrslunum en búist er við því að fjöldi sakborninga og vitna aukist.

Eignarnám kemur til greina

Forsætisáðherra segir koma til greina að gripið verði til eignarnáms vegna sölunnar á HS Orku en skynsamlegra sé að ná samningum við forystumenn Magma áður, svo ekki komi til skaðabótakröfu.

Flugmaðurinn fékk heiftarlega magakveisu

Boeing 777 farþegaþota Air France flugfélagsins með 232 farþega innanborðs neyddist til að lenda óvænt á Keflavíkurflugvelli um hádegisbil. Annar flugmaðurinn fékk heiftarlega magakveisu og var fluttur á sjúkrahús, en var útskrifaður nú síðdegis.

Barak stofnar nýjan flokk

Ehud Barak, varnarmálaráðherra Ísraels, hefur látið af embætti formanns Verkamannaflokksins. Hann hyggst stofna nýjan flokk, miðjuflokk, ásamt fjórum öðrum þingmönnum flokksins.

Lögreglan mótmælir málflutningi kráareiganda

Fjórum skemmtistöðum var lokað um helgina þar sem fjöldi gesta var yfir hámarki, leyfi vantaði og dyraverðir voru réttindalausir. Formaður félags kráareigenda sendi lögreglu tóninn í dag og sagði aðgerðirnar ólöglegar en lögreglan segir það alrangt.

Þrír handteknir til viðbótar vegna árásar á Players

Þrír til viðbótar hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á fólskulegri líkamsárás nærri veitingastaðnum Players í Kópavogi aðfaranótt sunnudags. Um er að ræða þrjá karla en þeir eru á þrítugs- og fertugsaldri.

„Of mikið gert úr áhrifum þessara breytinga“

„Það er bara staðreynd að það eru afgerandi fæstir farþegar í þessum síðustu ferðum á kvöldin," segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. „Þegar við fáum þau skilaboð frá eigendum okkar, sveitarfélögunum, að við verðum að hagræða, þá förum við bara niður í leiðarkerfið og skoðun hvernig við getum sparað sem mest þannig að það hafi áhrif á sem fæsta farþega," segir Reynir.

Einn handtekinn vegna mótmælanna

Um tuttugu til þrjátíu manns eru komnir saman á Austurvelli til að mótmæla, samkvæmt upplýsingum frá sjónarvotti. Einn hefur verið handtekinn en hann var að reyna að stöðva mótmælendur við iðju sína og taldi þá raska ró Alþingis. Maðurinn var færður í lögreglubíl. Þingfundur hófst klukkan þrjú og byrjuðu mótmælendur að koma saman þá, en mótmælin voru boðuð klukkan hálffimm.

Segir sig úr VG: Illdeilur, átök og skoðanakúgun

Karólína Einarsdóttir, formaður Vinstri Grænna í Kópavogi, hefur sagt sig úr flokknum. Hún segir Vinstri Græna loga í illdeilum, þar sé stunduð skoðanakúgun og fólk sett á svartan lista. Karólína segist hafa misst trúnna á flokkinn.

Alþingishúsið girt af

Verið er að girða af Alþingishúsið en búist er við fjölda mótmælanda í dag þegar þing kemur saman eftir jólafrí.„Við erum tilbúnir," segir vakstjóri hjá lögreglunni.

Enginn Íslendingur verið drepinn af ísbjörnum

„Ísbirnir ráðast bara á menn ef þeim er ógnað. Samkvæmt Polar Bears International eru einungis skráð 10 tilvik mannslát í Kanada og Bandaríkjunum og 19 í Rússlandi af völdum ísbjarna. Enginn Íslendingur hefur fallið af völdum ísbjarnar," segir í undirskriftarsöfnun sem Besti flokkurinn hefur hrundið af stað til að vekja athygli á stöðu ísbjarna í heiminum.

Niðurskurður hjá Strætó bitnar á Landspítalanum

Fyrirhugaðar breytingar á leiðakerfi Strætó bs. munu hafa í för með sér óhagræði fyrir starfsfólk Landspítalans og aukinn kostnað fyrir spítalann. Erna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Landspítalans, hefur sent erindi til Strætó bs. þar sem hún vekur athygli á þessum atriðum

Lent með veikan flugmann í Keflavík

Frönsk farþegaflugvél frá Air France lendir á Keflavíkurflugvelli klukkan eitt í dag. Viðbúnaðarstigi 2 hefur verið lýst yfir, sem er næst hæsta hættustig. Hjördís Guðmundsdóttir hjá Isavia segir að um veikan einstakling sé að ræða sem þurfi að komast undir læknishendur. Viðbúnaðarteymi er til taks.

Líkamsárás í Kópavogi: Tveir í gæsluvarðhald

Karl og kona hafa verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 21. janúar að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Farið var fram á varðhaldið í gær en dómari tók sér frest til dagsins í dag til þess að taka afstöðu til málsins.

Yfir helmingur starfsmanna verður fyrir hótunum og ofbeldi

Yfir helmingur starfsmanna á bráðasviði Landspítalans segist hafa orðið fyrir niðurlægjandi framkomu, hótunum eða ofbeldi af hálfu sjúklings eða aðstandenda, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar á starfsumhverfi starfsmanna Landspítalans. Hvergi annarsstaðar á Landspítalanum segjast jafnmargir hafa orðið fyrir viðlíka reynslu. En tæplega 50% starfsmanna á geðsviði telja sig hafa orðið fyrir henni.

Giffords á batavegi

Bandaríska þingkonan Gabrielle Giffords sem skotin var í höfuðið í Arizona á dögunum er á batavegi að sögn lækna. Læknar segja meta ástand hennar nú alvarlegt, en segja hana ekki í lífshættu.

Davíð Oddsson fagnar afmælinu á dapurlegasta degi ársins

Jólin eru liðin, greiðslukortareikningarnir ná áður óþekktum hæðum, kuldinn nístir og myrkrið virðist endalaust. Þegar allir þessir þættir eru teknir saman eftir ákveðnum reiknikúnstum er ljóst að mánudagurinn 17. janúar er dapurlegasti dagur ársins 2011. Það er allavega niðurstaða sálfræðinganna Cliff Arnall og Dan Kruger við Háskólann í Michigan.

Túnis: Þjóðstjórn sennilega mynduð í dag

Mikil spenna er enn í Túnis þar sem landsmenn bíða eftir því að tilkynnt verði um nýja þjóðstjórn. Stríðsástand hefur verið í landinu allt frá því að forsetinn Ben Ali flúði land fyrir helgi. Stuðningsmenn forsetans hafa barist á götum úti við lögreglu og hermenn en forsætisráðherra landsins segir að eftir samningaviðræður um helgina hafi tekist samkomulag um þjóðstjórn allra flokka. Búist er við því að nýja stjórnin verði kynnt formlega í dag.

Berlusconi á föstu og því óhugsandi að hann hafi keypt vændi

Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu segist hafa verið í föstu sambandi allar götur frá því hann skildi við síðustu eiginkonuna og því séu ásakanir um að hann hafi keypt þjónustu vændiskonu fráleitar. Hann er nú til rannsóknar hjá ítölskum saksóknurum fyrir að hafa keypt þjónustu vændiskonu sem að auki var undir lögaldri. Berslusconi hefur nú sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir ásakanirnar bull. hann hafi raunar aldrei borgað fyrir kynlífsþjónustu, enda væri slíkt niðurlægjandi að hans mati.

Þingfundir hefjast á ný

Þingfundir hefjast í dag á Alþingi að loknu jólaleyfi. Þá mun Róbert Marshall, formaður allsherjarnefndar, meðal annars mæla fyrir frumvarpi um breytingar á lögreglulögum sem felur í sér að hætt verður að greiða

250 fluttu frá Íslandi til Noregs

318.500 manns bjuggu á Íslandi í lok 4. ársfjórðungs 2010 bjuggu, 160.000 karlar og 158.500 konur. Landsmönnum fjölgaði um 280 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 21.200 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 202.400 manns.

Forsetinn vill afsökunarbeiðni frá Brown

„Ef Gordon Brown vill vera heiðarlegur maður ætti hann að biðjast afsökunar á að hafa sagt að Ísland væri gjaldþrota,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í samtali við Wall Street Journal.

Varað við hálku víða

Hálka er nú á öllum aðalleiðum út frá höfuðborgarsvæðinu, eða á Reykjanesbraut, Hellisheiði og Vesturlandsvegi, en Vegagerðarmenn eru að hálkuverja vegi.

Baby Doc snýr aftur

Fyrrverandi einræðisherra Haítí, "Baby Doc" Duvalier, hefur snúið aftur til heimalands síns eftir 25 ár í útlegð. Fréttavefur BBC segir ástæðu heimkomunna ólósa en Jean Claude Duvalier, eða Baby Doc, hann kom frá Frakklandi þar sem hann hefur búið frá því honum var steypt af stóli í byltingu árið 1986.

Boða til tunnumótmæla í dag

Mótmælendur, sem kalla sig Tunnurnar, ætla að efna til mótmæla við Alþingi þegar þingfundur hefst þar klukkan þrjú, að loknu jólaleyfi þingmanna. Í tilkynningu frá mótmælendunum segir að þeir sætti sig ekki við að hagsmunir fjármálakerfisins séu teknir farm yfir heimilin, atvinnulífið og velferðarkerfið.

Norðmenn mættir á loðnu

Tíu norsk loðnuskip eru komin inn í íslenska lögsögu til loðnuveiða, samkvæmt samkomulagi Íslendinga og Norðmanna um gagnkvæmar veiðar úr stofninum.

Reyndu að brjótast inn í skartgripaverslun

Tveir þjófar gerðu tilraun til að brjótast inn í skartgripaverslun í Spönginni í Reykjavík í nótt. Styggð kom að þeim áður en þeir höfðu stolið nokkru, en þeir sjást glöggt á upptöku úr eftirlitsmyndavél og er þeirra leitað.

Sjá næstu 50 fréttir