Fleiri fréttir

Frambjóðandi segir tilkynningar VR villandi

Kristinn Örn Jóhannesson, formannsframbjóðandi í VR, harmar vinnubrögð núverandi formanns og trúnaðarmanna sem hann segir að sendi frá sér tilkynningar um gölluð mótframboð sem erfitt sé að skilja.

Lyfjanotkun beint í ódýrari lyf - milljarður sparast

Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, hefur gefið út reglugerð sem hefur í för með sér umtalsverðar breytingar á niðurgreiðslum vegna lyfjakostnaðar sjúklinga. Lögð er áhersla á að beina lyfjanotkun í ódýrari lyf. Ögmundur telur að lyfjakostnaður allra barnafjölskyldna muni lækka. Aðgerðir hans gera ráð fyrir að lyfjaútgjöld sjúkratrygginga lækki um milljarð miðað við heilt ár.

Enn er þoka á Hellisheiði

Enn er þoka á Hellisheiði en vegir eru víðast hvar auðir á Suðurlandi. Þó eru sumstaðar hálkublettir á útvegum og raunar er flughált er á Grafningsvegi.

Björn: Þagnarmúr um formannssæti rofinn

Framganga Jóns Baldvins verður líklega til að skapa enn meira los innan forystusveitar Samfylkingarinnar, að mati Björn Bjarnasonar fyrrverandi ráðherra. Björn segir í pistli á heimasíðu sinni að með yfirlýsingum sínum í gær hafi Jón Baldvin gefið flokksmönnum leyfi til að ræða um formennsku og forystu Ingibjargar Sólrúnar á annan veg en áður.

Tekur ekki sæti í stjórn undir forystu Netanyahus

Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels og leiðtogi Kadimaflokksins, lýsti því yfir á fundi flokksins í dag að verði hún ekki forsætisráðherra í nýrri ríkisstjórn mun flokkurinn taka sér stöðu í stjórnarandstöðu. Hún útilokaði þannig að mynduð verði ríkisstjórn undir forystu Benjamins Netanyahus, leiðtoga Likudbandalagsins, með Kadimaflokkinn innanborðs.

Paul sækist eftir 1.-3. sæti hjá VG

Paul Nikolov, varaþingmaður, hefur ákveðið að sækjast eftir fyrsta til þriðja sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar – Græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmunum sem fer fram þann 7. mars.

Jón Baldvin reyni á styrk sinn í prófkjöri

Ungir jafnaðarmenn lýsa yfir óskoruðum stuðningi við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem formann Samfylkingarinnar. Tilefni yfirlýsingarinnar eru orð Jóns Baldvins Hannibalssonar um að hún ætti ekki að gefa kost á sér áfram.

Tekist á um ályktun sjálfstæðismanna á Selfossi

Sjálfstæðismenn á Selfossi takast á um ályktun sem stjórn sjálfstæðisfélagsins Óðins í bæjarfélaginu sendi frá sér í gær. Þar var skorað á nýja frambjóðendur að gefa kost á sér í prófkjöri flokksins í Suðurkjördæmi sem fer fram 14. mars. Almenn og víðtæk krafa um breytingar og lýðræðislegar umbætur kalli á endurnýjun á framboðslistum.

Vestmannaeyingar skora á Steingrím

Bæjarráð Vestmannaeyja kom saman í dag á aukafundi til að fjalla um loðnuveiðar. Ráðið skorar á Steingrím J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að gefa tafarlaust út 30 til 50 þúsundtonna upphafskvóta í loðnu.

Ísaksskóli grýttur

Lögregla var kölluð að Ísaksskóla í Bólstaðahlíð í hádeginu þar sem tveir drengir höfðu gert sér að leik að kasta grjóti í skólann. Rúða brotnaði í atganginum. Ekki er vitað hvað drengjunum gekk til.

Gunnar vill 2. sæti VG í Reykjavík

Gunnar Sigurðsson, stjórnmálafræðingur, hefur ákveðið að óska eftir öðru sæti í forvali Vinstrihreyfingarinnar -græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmunum sem fram fer 7. mars. Hann starfaði sem kosningastjóri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi vorið 2007.

Fá frest til að leggja fram fullgildan framboðslista

Lúðvík Lúðvíksson frambjóðandi til formanns VR og 82 félagsmenn sem gáfu kost á sér í trúnaðarráð VR frá frest til þriðjudags til að lagfæra ágalla og leggja fram fullgildan framboðslista. Þetta kemur fram í úrskurði kjörstjórnar. Trúnaðarráð VR unir niðurstöðunni.

Íslendingar erlendis vilja vera á kjörskrá

Íslendingar búsettir erlendis vilja að Alþingi setji bráðabirgðalög sem geri þeim kleyft á að komast á kjörskrá fyrir þingkosningarnar í apríl. Íslendingar búsettir erlendis þurfa að sækja um fyrir 1. desember að verða teknir á kjörskrá til að viðkomandi geti öðlast kosningarrétt við alþingiskosningar og forsetakjör sem efnt yrði til fram að næsta 1. desember.

Hefur ekki tekið ákvörðun um formannsframboð

Kristján Þór Júlíusson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, hefur ekki tekið ákvörðun um formannsframboð eða til annarra forystustarfa í flokknum. Nýr formaður verður kjörinn á landsfundi flokksins sem fer fram dagana 26. til 29. mars. Kristján Þór er meðal þeirra sem nefndir hafa verið sem hugsanlegir eftirmenn Geirs H. Haarde sem formaður flokksins. Enn sem komið er hefur Bjarni Benediktsson einn tilkynnt um framboð sitt.

Efnahagslægðin verður hugsanlega dýpri

Óttast er að efnahagslægðin sem nú gengur yfir heiminn verði mun dýpri en áður hefur verið spáð. Verulega hefur dregið úr eftirspurn og neyslu á síðustu mánuðum og allt bendir til þess að framundan sé tímabil verðhjöðnunar verði ekkert að gert.

Þúsundir flutt á brott vegna eldgoss

Hafist var handa við það í nótt að flytja á brott um átta þúsund manns frá bænum Pasto í suðurhluta Kólumbíu eftir að eldgos hófst í fjallinu Galeras.

Öldungar hafa gefist vel, segir Jón Baldvin

Jón Baldvin Hannibalsson segir að framundan sé stríð upp á líf og dauða um örlög þjóðarinnar. Hann segist tilbúinn að gefa kost á sér til forystu og vitnar í Bryndísi þegar hann segist vera við hestaheilsu.

Varað við flughálku

Vegagerðin varar við flughálku á Vatnskarði, Sauðárkróksbraut og upp Norðurárdal. Vegfarendur eru beðnir um að fara sérstaklega varlega. Hálka og hálkublettir eru víðsvegar um landið.

Fyrsta loðnan til Norðfjarðar

Börkur NK er væntanlegur til Neskaupstaðar nú klukkan tvö með þúsund tonna loðnufarm, en þetta er fyrsta loðnan sem þangað berst á þessari vertíð. Loðnan var veidd út á takmarkaðan rannsóknakvóta en skipstjórar í Eyjum krefjast þess í kjarnyrtri ályktun að stjórnvöld heimili nú þegar almennar loðnuveiðar.

Gagnrýna forystu Frjálslynda flokksins harðlega

,,Það virðist sem forysta flokksins skorti áhuga á að stækka flokkinn, efla innra starf flokksins og hleypa nýju fólki að," segja Guðrún María Óskarsdóttir og Ásgerður Jóna Flosadóttir um forystu Frjálslynda flokksins í opnu bréfi til Guðjóns Arnars Kristjánssonar, formanns flokksins. Þær hafa gefið kost á sér sem formaður og varaformaður flokksins á komandi landsþingi.

Fjölmiðlar unnu fyrir eigendur sína

Sturla Böðvarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrum forseti Alþingis, fullyrðir að eigendur fjölmiðla hafi stjórnað þeim og komið í veg fyrir óþægilega umfjöllun. Hann segir að svo virðist sem að fjölmiðlar hafi verið notaðir til að dreifa yfir margt af því sem átti sér stað í bönkunum.

Áhrif loftslagsbreytinga verri en áður var talið

Loftlagsbreytingar á næstu 100 árum verða meiri og á áhrifin verri en hingað til hefur verið talið að mati vísindamannsins Chris Field, sérfræðings í loftlagsmálum. Þetta kom fram í máli hans á ráðstefnu um loftlagsbreytingar í Bandaríkjunum um helgina.

Reyndu að smygla vörum til Gaza

Breska lögreglan upplýsti í morgun að hún hefði handtekið þrjá menn á föstudaginn grunaða um að tengjast hryðjuverkastarfssemi. Mennirnir reyndu að smygla vörum með bílalest sem var á leið til Gaza strandarinnar á vegum breskra góðgerðarsamtaka.

Átta nótaveiðiskip gulldepluveiðum

Átta nótaveiðiskip eru nú á gulldepluveiðum á Reykjaneshrygg, Álfsey, Birtingur, Hoffell, Huginn, Jóna Eðvalds, Jón Kjartansson og Júpiter. Skipin eru flest 60 til 70 sjómílur suðvestur af landinu og voru tvö þeirra að kasta á torfur í morgun, Álfsey og Jón Kjartansson.

Ríkisstjórnin láti af mannaveiðum - vilja loðnuveiðar strax

Íslenskt þjóðfélag er á hausnum í orðsins fyllstu merkingu og það eina sem Ríkisstjórn Íslands hefur hugann við er allt annað en sjávarútvegur. Svo segir í ályktun stjórnarfundur Skipstjóra og- stýrimannafélagsins Verðanda í Vestmannaeyjum sem haldinn var í gær þar sem skorað er á ríkisstjórnina að láta hefja loðnuveiðar strax. Þar segir að fullmönnuð ríkisstjórn af fólki sem hafi ekki hundsvit á sjávarútvegi sé hneisa fyrir Ísland. Mörg hundruð milljónir séu að tapast á hverjum degi "meðan þið sem stjórnið landinu okkar vitið ekki að sjávarútvegurinn er það eina sem getur bjargað þessari þjóð frá gjaldþroti.

Hálka um land allt

Á Suðurlandi er þoka á Hellisheiði og sumstaðar eru enn hálkublettir á útvegum. Flughált er á Grafningsvegi, samkvæmt Vegagerðinni.

Rólegt víðs vegar um landið

Lögreglan á Selfossi handtók mann á fimmta tímanum í nótt grunaðan um ölvun við akstur. Þá stöðvaði lögreglan á Ísafirði mann í nótt sem talinn var aka undir áhrifum fíkniefna.

Eldar kveiktir við Lækjartorg - tveir handteknir

Rúmlega 100 mótmælendur komu saman á Lækjartorgi í gærkvöldi með flautur og ýmis búsáhöld til að framkalla hávaða, að sögn lögreglu. Að auki var kveikt í bálköstum.

Samskipti Tyrkja og Ísraela versna

Undanfarnar vikur hafa samskipti Tyrkja og Ísraela verið afar stirð eða allt eftir að Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, rauk öskureiður af ársþingi Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í Sviss í lok janúar eftir snörp orðaskipti við Simon Peres, forseta Ísraels. Deiluefnið var árásir Ísraela á Gaza. Erdogan var fagnað sem hetju við heimkomuna til Tyrklands.

Jóhanna Guðrún sigraði í Eurovision

Í kvöld varð ljóst hvaða lag verður framlag Íslands í söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva sem haldin verður í Moskvu 16. maí. Jóhanna Guðrún Jónsdóttir sigraði með laginu Is it true eftir Óskar Pál Sveinsson.

Formennska Jóns styrkti ekki Alþýðuflokkinn

,,Fyrr í vikunni ritaði ég grein í Morgunblaðið og rifjaði upp, að formennska Jóns Baldvins í Alþýðuflokknum styrkti ekki flokkinn, hann mældist með 5% fylgi, þegar hann skreið í skjól Samfylkingarinnar í kosningbandalagi árið 1999," segir Björn Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, á heimasíðu sinni.

Mótmælendum hótað

Nokkuð hefur borið á hótunum í garð þeirra sem hafa staðið framarlega í mótmælum hér á landi. Í síðustu viku var ráðist á konu á fimmtugsaldri en hún hafði það eitt til saka unnið að hafa tekið þátt í mótmælaaðgerðum gegn efnhagsástandinu. Þetta staðfesti Hörður Torfason, talsmaður Radda fólksins, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Ekki er vitað hverjir standa á bak við hótanirnar.

Hulda þarf að skera niður um þrjá milljarða

Stjórnendur á Landsspítalanum þurfa að skera niður kostnað um tæpa þrjá milljarða á þessu ári, samkvæmt kröfum frá heilbrigðisráðuneytinu. Gert er ráð fyrir að um helmingur þessa sparnaðar komi til með því að lækka launakostnað. Til greina kemur að fækka starfsfólki. Erfitt verkefni, segir Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri spítalans. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins.

Bundnir við bryggju eins og beljur við bása

Sjómennirnir á loðnuskipinu Lundey segjast vera bundnir við bryggju eins og beljur við bása meðan milljarðaverðmæti syndi framhjá þjóðarbúinu. Þeir segja ranga þéttleikastuðla Hafrannsóknastofnunar við mælingu loðnutorfa koma í veg fyrir að grænt ljós verði gefið á loðnuveiðar.

Framboðsmál Framsóknarflokksins skýrast

Framsóknarmenn héldu aukakjördæmaþing í öllum kjördæmum landsins í dag. Á þeim voru teknar ákvarðanir um hvernig staðið verður að vali á framboðslista flokksins vegna þingkosninganna í vor. Póstkosning verður í tveimur kjördæmum og prófkjör í öðru.

Jón Baldvin segir Davíð minna á Hitler í byrginu

Jón Baldvin Hannibalsson varpaði pólitískri sprengju í dag þegar hann krafðist þess að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir axlaði pólitíska ábyrgð og viki sem formaður Samfylkingarinnar. Hann kvaðst styðja Jóhönnu Sigurðardóttur til að taka við en ef gera ætti systralag til að hylma yfir ábyrgð væri hann tilbúinn að gefa kost á sér til forystu.

Einn með allar tölurnar réttar

Það var heppinn áskrifandi sem var með allar aðaltölurnar réttar í Lottóinu í kvöld og hlaut hann 9.758.130 krónur í vinning. Þrír skiptu bónuspottinum á milli sín og fékk hver 77.460 krónur í sinn hlut.

Reynslulítill Framsóknarflokkur

Nú þegar Valgerður Sverrisdóttir hefur tilkynnt að hún ætli að hætta í stjórnmálum stendur eftir reynslulítill þingflokkur að Siv Friðleifsdóttur undanskilinni, að mati Ástu Möller þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hún bendir á að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sé ungur, með engan bakgrunn í stjórnmálum og hafi gengið í flokkinn skömmu fyrir formannskjörið.

Framhjól lét undan í lendingu

Betur fór en á horfðist þegar AVRO-146 flugvél breska flugfélagsins British Airways hlekktist á í lendingu á London City flugvellinum í gær. Framhjól flugvélarinnar lét undan í lendingu með þeim afleiðingum að vélin skall á flugbrautina.

Fengu að snúa til baka eftir skógareldanna

Íbúar bæjarins Marysville í Ástralíu fengu í dag að snúa aftur eftir eina verstu skógarelda á svæðinu í manna minnum. Bærinn varð illa úti í eldunum og er nánast í rúst.

Vongóður um áhrif björgunarpakkans

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, er vongóður um að björgunarpakki upp á tæpa 790 milljarða dollara, sem Bandaríkjaþing samþykkti í gær, muni blása nýju lífi í bandarískan efnhag.

Sjá næstu 50 fréttir