Fleiri fréttir

Pólitískum föngum fækkar á Kúbu

Pólitískum föngum á Kúbu hefur fækkað það sem af er ári samkvæmt nýrri skýrslu mannréttindasamtaka í landinu. Samtökin segja þó að nýjum forseta, Raul Castro, fylgi þó ekki grundvallarbreytingar í mannréttindamálum.

Bush á heimavelli á hafnaboltaleik í Peking

George Bush Bandaríkjaforseti sagði að Ólympíuleikarnir hefðu farið fram úr væntingum hans. Forsetinn var í fjóra daga í Peking og náði að vera við fjölmargan íþróttaviðburðinn áður en hann sneri aftur til Washington.

Ekki smart tími fyrir launahækkun forstjóra LSH

Formaður Læknafélags Íslands segir það ekki góða tímasetningu að laun forstjóra Landspítalans skuli vera hækkuð um fjórðung á sama tíma og læknar og ljósmæður standi í erfiðum samningaviðræðum.

Framkvæmdum á Skólavörðustíg að ljúka

Framkvæmdum við ofanverðan Skólavörðustíg, sem staðið hafa yfir undanfarna mánuði, er nú að ljúka og keppast verktakar nú við að leggja loka hönd á yfirborðsfrágang til að allt verði klárt fyrir sérstaka opnunarhátíð næstkomandi laugardag.

Vill nýjan meirihluta í Reykjavík

Fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins segir að þörf sé á nýjum borgarstjórnarmeirihluta. Þetta kemur fram í leiðara sem Þorsteinn Pálsson ritar í Fréttablaðið í dag.

Elsti Íslendingurinn látinn

Þuríður Samúelsdóttir, sem var elsti Íslendingurinn, lést 2. Ágúst, 105 ára og 42 daga gömul. Útförin fór fram í gær í kyrrþey, að hennar eigin ósk.

Falsaðir flugeldar á opnunarhátíðinni í Peking

Sjónvarpsáhorfendur um allan heim sem fylgdust spenntir með opnunarhátíð Ólympíuleikanna og tóku margir hverjir andköf af hrifningu þegar nokkurskonar fótspor voru mynduð með flugeldum á sjónvarpsskjánum. Nú hefur hinsvegar komið í ljós að þar var tæknin á ferð, því fótsporin voru búin til í tölvu. Jafnvel stórir tölvuskjáir sem voru inni á leikvangnum sýndu tölvugerðu flugeldana.

Rússar láta af árásum í Georgíu

Dimitri Medvedev, forseti Rússlands, hefur ákveðið að aðgerðum hersins gegn Georgíu verði hætt. Samkvæmt BBC sagðist Medvedev á fundi með embættismönnum í Kreml hafa ákveðið að binda enda á hernaðaraðgerðirnar og þvinga ráðamenn í Gerogíu til að gera friðarsamkomulag.

Sagði Obama vera óamerískan

Minnisblöð sýna að Mark Penn sem var einn helsti ráðgjafi Hillary Clinton vildi ráðast harkalega að Barack Obama, keppinaut hennar í kosningabaráttunni um útnefninguna sem forsetaefni Demókrataflokksins, og gera að umtalsefni það sem hann kallaði óamerískan bakgrunn Obama.

Brotist inn í dansskóla

Brotist var inn í dansskóla í Lágmúla 9 í Reykjavik um hálffjögurleytið í nótt. Það var öryggisvörður sem tilkynnti lögreglu um innbrotið. Þegar lögregla kom á vettvang var innbrotsþjófurinn enn á staðnum og hafði hann ekki náð að stela neinu.

Áframhaldandi átök í Georgíu

Aðskilnaðarsinnar í sjálfstjórnarhéraðinu Abkhazía í Georgíu hafa hafið mikla gagnsókn gegn georíska stjórnarhernum á svæðinu í því augnarmiði að hrekja herinn frá hernaðarlega mikilvægum svæðum.

Úrskurði í nauðgunarmáli í Bretlandi breytt

Bresk yfirvöld hafa viðurkennt að hafa brotið á 25 ára konu sem var nauðgað fyrir fimm árum. Konan átti rétt á bótum en var sagt að þær myndu skerðarst um 25% vegna þess að hún var ölvað þegar henni var nauðgað.

Salmonella í Danmörku

Heilbrigðiseftirlitið í Danmörku fullyrðir nú að salmonellu sýking sem hefur geysað í Danmörku í allt sumar hafi ekki borist með innfluttu kjöti.

Skaftárhlaup í rénun

Rennsli í Skaftá hefur lækkað ört í nótt. Sjálfvirkar mælingar Vatnamælinga Orkustofnunar benda til að hlaupið hafi náð hámarki í rúmum 390 rúmmetra á sekúndu laust eftir miðnætti, en fór svo niður i um 370 rúmmetra í nótt. Áður en hlaup hófst var meðalrennslið um 150 rúmmetrar á sekúndu.

Fundum haldið áfram í Zimbabwe

Forseta Zimbabwe og leiðtoga stjórnarandstöðunnar tókst ekki að ná samkomulagi um nýja ríkisstjórn í gær. Robert Mugabe forseti segir að viðræðunum verði haldið áfram og telur hann að samkomulag verði undirritað á næstunni.

Sarkozy á leið til fundar við ráðamenn í Moskvu

Forseti Frakklands, Nicolas Sarkozy, mun á morgun, þriðjudag, halda áleiðis til fundar við ráðamenn í Moskvu. Þangað fer Sarkozy fyrir hönd Evrópusambandsins en þar eru Frakkar í forsvari um þessar mundir.

Rússar stjórna háloftunum í Georgíu

Rússneskar herþotur hafa nú fullkomna stjórn yfir háloftunum á mestu átakasvæðunum í Georgíu. Engar herþotur Georgíumanna eru í loftinu. Þetta segir fréttastofa CNN.

Formaður Samiðnar segir tilboð ekki hafa verið metin rétt

Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Samiðnar, krefst þess að Reykjavíkurborg rökstyðji hvers vegna hún tók tilboði litháíska verktakafyrirtækisins Adakris í byggingu Sæmundarskóla í Grafarholti. Þetta kom fram í tíufréttum Sjónvarpsins.

Jákvæður sandsílaleiðangur

Talsverð aukning var í magni sílis miðað við árin 2006 og 2007 og má rekja hana að langmestu leyti til eins árs sílis af 2007 árgangi ef marka má niðurstöður nýlegan sandsílaleiðangur Hafrannsóknastofnunnar.

Nýlegar hækkanir ekki faldar á bakvið kaupauka

Toyota á Íslandi býður nú upp á sérstakan sólarlandaferðakaupauka upp á 550 þúsund með flestum seldum bifreiðum. Kaupaukinn kemur þó nokkuð ankannalega fyrir sjónir með tilliti til þess bifreiðar umboðsins hækkuðu um 5% í verði þann 1. ágúst síðastliðinn. Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi, segir að þetta tvennt tengist á engan hátt saman og því sé ekki verið að fela hækkanirnar á bakvið kaupaukann.

Tæknivæddur fornleifauppgröftur

Fornleifafræðingar hafa tekið stökk inn í framtíðina og nota nú rafmagns- og örbylgjusenda til að grennslast fyrir um lifnaðarhætti landnámsmanna í Skagafirði.

Ríkið skuldar Impregilo hátt í tvo milljarða

Skuldir íslenska ríkisins við ítalska verktakafyrirtækið Impregilo nálgast tvo milljarða króna. Þar af er hálfur milljarður vegna dráttarvaxta. Skattgreiðendur sitja uppi með tapið segir lögmaður Impregilo.

Utanríkisráðherra vinnur að samstarfi Ísafjarðar og A-Grænlands

Möguleikar Vestfjarða sem þjónustumiðstöð fyrir atvinnustarfsemi og auðlindanýtingu á Austur-Grænlandi og ný störf á Ísafirði á vegum utanríkisráðuneytisins voru á meðal þess sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ræddi við sveitastjórnarmenn á Vestfjörðum í heimsókn sinni til Ísafjarðar í dag, samkvæmt tilkynningu utanríkisráðuneytisins.

Enn bið á vegaúrbótum

Til stendur að bjóða út fyrsta áfanga í tvöföldun Suðurlandsvegar næsta vor en leiðin milli Selfoss og Hveragerðis verður þó látin bíða.

Lifir í ótta eftir að nálgunarbanni var hafnað

Kona sem var beitt afar grófu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi af sambýlimanni sínum í rúmlega þrjú ár er mjög ósátt við niðurstöðu Hæstaréttar frá því fyrir helgi, að sögn Gunnhildar Pétursdóttur, lögfræðings hennar.

Báru brenndan dreng þrjá kílómetra

Tíu ára drengur sem brenndist annars stigs bruna á fæti á göngu í Reykjadal ofan við Hveragerði í síðustu viku var borinn þriggja kílómetra leið að sjúkrabíl.

Rússar komnir inn í Vestur-Georgíu

Rússneskar hersveitir hafa nú farið inn í Vestur-Georgíu úr héraðinu Abkasíu sem líkt og Suður-Ossetía krefst sjálfstæðis frá Georgíu. Er þetta í fyrsta sinn sem Rússar fara úr þessu héraði inn í Georgíu.

Fannst látin í Glerá

Lögreglan á Akureyri ásamt Slökkviliði Akureyrar og Björgunarsveitinni Súlum hófu leit að konu á tólfta tímanum í dag eftir að tilkynnt hafði verið um að hennar væri saknað.

Móðir geymdi barn sitt inn í skáp til sjö ára aldurs

Nýverið kom fram í bandarískum fjölmiðlum harmræn saga stúlku sem fannst sjö ára gömul liggjandi inn í skáp í bleyju í eigin úrgangi. Stúlkan var sem nýfætt barn, brást ekki við snertingu né samskiptum við annað fólk og var með öllu ótalandi.

Stofufangelsi Aung San Suu Kyi framlengt

Stofufangelsi Aung San Suu Kyi, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Búrma, hefur verið framlengt um eitt ár. Þrátt fyrir umleitanir Sameinuðu þjóðanna hefur hún ekki losnað úr prísundinni.

Bílstjórinn bjargaði því sem bjargað varð

Bílstjórinn í rútunni sem lenti í hörðum árekstri við jeppa á Suðurlandsvegi brást hárrétt við og forðaði frekara slysi. Þetta segir Sigríður Ásta Hallgrímsdóttir, starfsmannastjóri Kynnisferða, félagsins sem á rútuna.

Sjá næstu 50 fréttir