Fleiri fréttir

Kínverjar gera gagnárás

Kínverskir netverjar hafa hafið herferð gegn frönskum vörum og fyrirtækjum vegna mótmælanna sem brutust út þegar farið var með ólympíukyndilinn um París í síðustu viku.

Ógilti hjónaband átta ára stúlku

Dómstóll í Jemen ógilti í gær hjónaband átta ára gamallar stúlku og þrítugs manns auk þess að úrskurða eiginmanninum fyrrverandi bætur að jafnvirði tæplega 20.000 króna úr hendi fjölskyldu stúlkunnar.

Hrefnuveiðimenn hyggja á veiðar

Hrefnuveiðimenn hér á landi undirbúa nú veiðar sem hefjast eiga í næsta mánuði en ráðherra hefur ekki gefið út neinn kvóta.

Sjö kenndir við stýrið

Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt samkvæmt upplýsingum á vef lögreglunnar.

Vilja að íbúar fái að kjósa um Fríkirkjuveginn

Salan á Fríkirkjuvegi 11 er á dagskrá borgarráðs á morgun. Þorleifur Gunnlaugsson, Vinstri-grænum, segir að VG muni greiða atkvæði gegn sölunni og því þurfi málið að fara fyrir borgarstjórn á ný. Þorleifur segist á þeirri skoðun að til greina komi að leggja málið í dóm íbúa á svæðinu.

Vilja efla útvist í Gufunesi

Reykjavíkurborg undirritaði í morgun samning við Fjörefli ehf. um afnot af landsspildu í Gufunesi til að koma upp afþreyingar- og þjónustumiðstöð.

Stjórnarandstæðingar handteknir í Simbabve

Öryggissveitir í Simbabve hafa í morgun handtekið um fimmtíu stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar í landinu fyrir að hvetja til verkfalla. Með aðgerðum sínum vildu þeir knýja yfirvöld til að birta úrslit forsetakosninga í landinu sem fóru fram fyrir átján dögum.

Flugmenn og Icelandair funda um kjaramál

Það kann að ráðast á fundi fulltrúa Icelandair með flugmönnum félagsins sem hófst á Ríkissáttasemjara klukkan níu í morgun hvort flugmenn hefja undirbúning að verkfallsaðgerðum.

Fullt út úr dyrum í fjármálaráðgjöf

„Við erum búin að bóka alveg út apríl, því miður verð ég nú eiginlega að segja,“ segir Ásta S. Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna.

Neitar sök í manndrápsmáli við Hringbraut

Karlmaður á fertugsaldri sem ákærður er fyrir manndráp í íbúð í fjölbýlishúsi við Hringbraut í október síðastliðnum neitaði sök við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Áætlanir um lækkun matvælaverðs gengu ekki eftir

Þær áætlanir fyrrverandi ríkisstjórnar um að lækka matvælaverð um allt að 14-16 prósent með ýmsum aðgerðum í fyrra gengu ekki eftir. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu viðskiptaráðuneytisins um verðþróun á matvælum og veitingum í tengslum við aðgerðir ríkisstjórnarinnar.

Aukin nýskráning ökutækja milli ára

Fyrstu 102 daga ársins 2008 hafa 6.955 ökutæki verið nýskráð miðað við 5.999 eftir jafnmarga skráningardaga í fyrra, segir Umferðarstofa.

Prófessor segir auglýsingar til barna vera misnotkun

Prófessor í félagsfræði segir auglýsingar sem beint er til barna vera misnotkun. Formaður Samtaka auglýsenda segir börn stýra innkaupum heimila og auglýsendur finni alltaf leiðir, verði bannað að auglýsa í barnatímum. Betra sé að auka auglýsingalæsi barna.

Spyr um kostnað heilbrigðiskerfis vegna slysa á Reykjanesbraut

Guðný Hrund Karlsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi þar sem hún spyr dómsmálaráðherra hvað það myndi kosta að hafa lögreglubifreið við eftirlit á Reykjanesbraut allan sólarhringinn alla daga vikunnar.

Frakkar setja lög gegn lystarstoli

Franska þingið hefur samþykkt ný lög sem gera það að glæpsamlegu athæfi að ýta undir anorexiu eða lystarstol í fjölmiðlum landsins.

Yfir tuttugu fórust í flugslysi í Kongó

Yfir tuttugu manns fórust er flugtak DC-9 farþegaþotu af flugvellinum í Goma í Lýðveldinu Kongó misheppnaðist með þeim afleiðingum að þotan hafnaði í íbúðahverfi við flugvöllinn og eyðilagðist.

Tæplega 40 fórust í rútuslysi á Indlandi

Að minnsta kosti 39 fórust er rúta steyptist niður í fljótið Narmada í héraðinu Gujarat í vesturhluta Indlands í gær. Margir hinna látnu eru börn sem voru á leið í skóla sinn.

Leita enn að stolnum rafmagnslyftara

Lögreglan á Suðurnesjum leitar enn að appelsínugulum rafmagnslyftara, sem stolið var úr fiskverkunarhúsi í Sandgerði um helgina.

Enginn bilbugur á Brixtofte

Engan bilbug er að finna á Peter Brixtofte fyrrum borgarstjóra Farum sem nýlega var dæmdur í tveggja ára fangelsi í hæstarétti Danmerkur fyrir ýmsa spillingu í starfi.

Segir sjálfstæðismenn nú fylgjandi útrás REI

Borgarfulltrúi Framsóknarflokksins segir sjálfstæðismennina sem sett hafi allt upp í loft í október vegna útrásarverkefna Orkuveitu Reykjavíkur nú fara fremsta í flokki við að fylgja þeirri stefnu sem samræmdist ekki grundvallarlíffsýn þeirra fyrir rétt fimm mánuðum og sprengdi þáverandi meirihluta.

Davíð vildi ekki ljóð eftir Matthías Johannessen

Vegna óánægju með leiðaraskrif Morgunblaðsins um vígslu Ráðhúss Reykjavíkur lét Davíð Oddsson skipta út gluggarúðu í Ráðhúsinu með ljóði eftir Matthías Johannessen þáverandi ritstjóra Morgunblaðsins.

Bálskotin á elliheimilinu Grund

„Ég varð strax hrifin af honum þegar ég sá hann," segir kona á níræðisaldri um kærasta sinn sem hún kynntist á elliheimilinu Grund. Þau eru óaðskiljanleg í dag.

Segja borgarstjóra liggja flatan fyrir auðmönnum

Hallargarðurinn er í eigu almennings og borgaryfirvöld eiga að hafa fullan og óskoraðan rétt til að sinna honum eins og öðrum opnum svæðum borgarinnar án íhlutunar einkaaðila.

Sextíu og fimm ár síðan að gettó reis í Varsjá

Þess hefur verið minnst í dag að 65 ár eru síðan að gettó reis í Varsjá. Aðalathöfnin var haldin við minnismerki þar sem minnst var hundruða gyðinga sem risu upp gegn tilraunum Þjóðverja til þess að ráða niðurlögum gettósins.

Kennslustofur eins og vígvellir

Kennslustofur grunnskólanna eru oft á tíðum eins og vígvellir og kennarar flosna upp úr störfum sínum vegna vanlíðunar.

Fengu fíkniefnahund að gjöf

Síðastliðinn fimmtudag fékk lögreglan í Vestmannaeyjum fíkniefnahundinn Lunu formlega að gjöf frá Kiwanisklúbbnum Helgarfelli.

Gola er komin í leitirnar

Hundurinn Gola er komin í leitirnar og dvelur nú í góðu yfirlæti á dýraspítala. Hún týndist í dag eftir að keyrt var á hana á Hafnarfjarðarveginum. Eigendur hennar sögðu hana vera mikið slasaða og höfðu miklar áhyggjur af henni.

Viðskotaillir ríkisstarfsmenn í stuttbuxum

Opinberum starfsmönnum í Serbíu er legið á hálsi fyrir að vera heldur fornir í skapi í samskiptum við samborgara sína en að auki þykir klæðaburður þeirra oft nokkuð óformlegur miðað við þann starfa sem þeir rækja.

Sjá næstu 50 fréttir