Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bush vonast eftir lýðræði á Kúbu George Bush Bandaríkjaforseti vonast til að eftirmaður Fidel Castro muni leiða landið til lýðræðis. Bush er nú á ferðalagi um Afríku þar sem hann heimsækir fimm Afríkulönd. Á blaðamannafundi í Rúanda sagði hann; „Ég tel að breytingar á stjórnarfari Fidel Castro ættu að taka við þegar hann fer frá völdum." 19.2.2008 11:16
George Foreman grilli og simbölum stolið úr búslóð í Eyjum Munum úr búslóð að Herjólfsgötu í Vestmannaeyjum var stolið fyrir viku og leitar lögregla nú hins seka eða hinna seku. 19.2.2008 10:54
Opnunartími Hafnarhúss lengdur vegna vinsælda Vatnsmýrarsýningar Ákveðið hefur verið að lengja opnunartíma Hafnarhússins á morgun vegna gríðarlegra vinsælda sýningarinnar Vatnsmýri, 102 Reykjavík. 19.2.2008 10:39
Armenar kjósa forseta Armenar ganga til kosninga í dag og kjósa nýjan forseta landsins. Hörð barátta hefur verið milli frambjóðendanna en margir Armenar telja kosningarnar snúast um atvinnuleysi, fátækt og spillingu. Aðrir segja einnig kosið um hvort gera eigi frekari tilslakanir til að leysa ágreining við Aserbaídsjan vegna Nagorno-Karabakh. 19.2.2008 10:27
Stjórnlausum gervihnetti eytt á fimmtudag Bandaríski flotinn hefur ákveðið að reyna að eyða stjórnlausum gervihnetti á leið til jarðar á fimmtudag eða eftir að geimferjan Atlantis kemur til lendingar úr för sinni á morgun miðvikudag. 19.2.2008 10:26
Heimdellingar fagna lækkun á fyrirtækjaskatti Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem fyrirhugaðri skattalækkun á fyrirtæki úr 18% í 15% er fagnað. 19.2.2008 10:25
Rússar segja sjálfstæðisyfirlýsingu geta aukið óstöðugleika Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, hefur varað starfssystur sína í Bandaríkjunum, Condoleezzu Rice, við því að sjálfstæðisyfirlýsing Kosovo-héraðs geti aukið óstöðugleika í heiminum. 19.2.2008 10:16
Fundu steingerving af risafroski á Madagaskar Vísindamenn hafa fundið 70 milljóna ára gamlan steingerving af risavöxnum froski á Madagaskar. 19.2.2008 10:13
Báðir piltarnir komnir á gjörgæslu Tveir piltar á átjánda sem slösuðust þegar annar þeirra ók bíl á miklum hraða á hús á Akranesi eru báðir komnir á gjörgæslu. 19.2.2008 10:04
Íslensku feðgarnir biðu daglangt eftir túlki Íslensku feðgarnir sem réðust á 49 ára gamlan Dana í bænum Langebæk á Sjálandi síðastliðinn sunnudag þurftu að bíða megnið af mánudeginum í vörslu lögreglunnar meðan leitað var að túlki. 19.2.2008 09:52
Aflaverðmæti eykst um tæp sjö prósent milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa á fyrstu ellefu mánuðum síðasta árs nam rúmum 75 milljörðum samkvæmt samantekt Hagstofunnar. 19.2.2008 09:31
Davíð hvetur Vilhjálm til að halda áfram Davíð Oddsson, Seðlabankastjóri og fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur undanfarna daga lagt hart að Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins að halda sínu striki þrátt fyrir mótbyr. 19.2.2008 09:29
Vill Íslending úr landi eftir dóm tengdan Pólstjörnumáli Saksóknari í Færeyjum vill að Íslendingi, sem handtekinn var vegna Pólstjörnumálsins svonefnda, verði vísað úr landi fyrir fullt og fast, þegar hann hefur afplánað dóm. 19.2.2008 09:11
Par tekið á Selfossi með stolið greiðslukort Lögreglan á Selfossi handtók í gær par, sem hafði tekið út vörur í verslunum út á stolið greiðslukort. 19.2.2008 09:05
Lögðu hald á loftbyssu Lögreglumenn fundu loftskammbyssu í bíl, sem stöðvaður var við reglubundið umferðareftirlit í Reykjavík í nótt. 19.2.2008 08:21
Serbar kalla sendiherra sinn heim frá Washington Serbar hafa kallað sendiherra sinn í Washington heim sem mótmæli gegn viðurkenningu Bandaríkjamanna á sjálfstæði Kosovo. Jafnfram saka Serbar Bandaríkjamenn um brot á alþjóðalögum. 19.2.2008 08:18
Lögreglan lýsir eftir Sigrúnu Maríu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sigrúnu Maríu Líndal, sem er fædd 1994. Hún er 160 sentímetrar á hæð , í brúnni hettupeysu, gallabuxum og með dökkt missítt hár. 19.2.2008 08:16
Fidel Castro lætur af embætti sem forseti Kúbu Fidel Castro hyggst ekki gefa kost á sér aftur sem forseti Kúbu. Þetta kemur fram í bréfi hans sem birt er í opinberu blaði Kommúnistaflokksins, Granma, í dag. 19.2.2008 08:08
Oswald og Ruby ræddu saman fyrir morðið á Kennedy Yfirvöld í Dallas Texas hafa gert opinbert minnisblað sem á er ritað samtal milli Lee Harvey Oswald meints morðingja John F. Kennedy forseta og Jack Ruby sem síðar skaut Oswald til bana. Minnisblaðið fannst í hirslum dómshússins í borginni. 19.2.2008 07:20
Hringvegurinn er enn lokaður við Svignaskarð Hringvegurinn er enn lokaður við Svignaskarð í Borgarfirði eftir að vatnsagi rauf hann í fyrrinótt. Þar stíflaðist ræsi, með fyrrgreindum afleiðingum, og ætlar Vegagerðin að setja mun afkastameira ræsi í staðinn. 19.2.2008 07:16
Fyrstu tölur benda til ósigurs Musharaff í Pakistan Fyrstu tölur í kosningunum í Pakistan benda til að stjórnarandstaðan hafi unnið og stjórnarflokkur undir forystu Musharaff forseta beðið ósigur. 19.2.2008 06:49
Íslenskir feðgar flugu til Danmerkur - lömdu kærasta fyrrum konunnar 49 ára gamall maður varð fyrir líkamsárás í Langebæk skammt frá Vordingsborg á Sjálandi. Það voru íslenskir feðgar sem gengu í skrokk á manninum og notuðu til þess meðal annars járnrör. 18.2.2008 20:30
Lýst eftir ungri stúlku Lögreglan lýsir eftir Sigrúnu Maríu Líndal. Hún er fædd árið 1994 og er klædd í brúna hettupeysu, gallabuxur og er með dökkt millisítt hár. Hún er 160 sm á hæð. 18.2.2008 23:15
Lögreglan kölluðu til vegna unglinga í Kringlunni Lögreglan var kölluð til vegna óláta í unglingum í Kringlunni rétt fyrir klukkan 16:00 í dag. Var einhver hópamyndun í Kringlunni en ekki kom til óláta. 18.2.2008 22:15
Mafíósi handtekinn á Ítalíu Ítalska lögreglan handtók leiðtoga hinnar öflugu Calabrian mafíu í dag. Pasquale Condello, 57 ára, var handtekinn í húsi í Reggio Calabria í suðurhluta Ítalíu. 18.2.2008 21:45
Þriggja ára áætlun borgarinnar kynnt á morgun Mikill stormur hefur verið í borgarstjórn Reykjavíkur undanfarið. Á morgun verður hinsvegar þriggja ára áætlun borgarinnar kynnt. 18.2.2008 20:04
Haldið sofandi í öndunarvél Annar piltanna sem lenti í hörðum árekstri á Akranesi seinni partinn í dag er haldið sofandi í öndunarvél. Líðan hans er stöðug að sögn vakthafandi læknis. 18.2.2008 19:52
Samningar ASÍ aldrei fyrirmynd að kennarasamningum Kjarasamningar Alþýðusambandsins við atvinnurekendur verða aldrei fyrirmynd að samningum við kennara, segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands. Sterkari aðgerðir þurfi til að stöðva flóttann úr stéttinni. Halldóra Friðjónsdóttir, formaður BHM, segir ríkið ekki geta tekið upp hráa samningastefnu atvinnurekenda. 18.2.2008 19:07
Mjólkurvörur gætu hækkað um allt að 20 prósent Verðhækkun á áburði og fóðri gæti orðið til þess að stærstu kúabú landsins fari á hausinn. Viðbúið er að mjólkurvörur til neytenda hækki um allt að 20% vegna ástandsins. 18.2.2008 18:41
Datt af þaki og handleggsbrotnaði Maður féll afturfyrir sig fram af þaki þar sem hann var við vinnu í Dalshverfi í Innri-Njarðvík. 18.2.2008 18:29
Hringvegurinn ekki opnaður fyrr en á morgun Hringvegurinn, sem lokaður er við Svignaskarð í Borgarfirði vegna vatnaskemmda verður ekki opnaður fyrr en um miðjan dag á morgun, þriðjudag, að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 18.2.2008 18:20
Niðurstöðu í flóttarannsókn að vænta í fyrramálið Lögreglan vill ekki gefa neitt upp í tengslum við rannsókn á flótta Annþórs Kristjáns Karlssonar fyrr en í fyrramálið. 18.2.2008 17:28
Fleiri konur en karlar smituðust af HIV í fyrra Þrettán einstaklingar greindust með HIV-smit á síðasta ári samkvæmt því sem fram kemur í nýjasta hefti Farsóttarfrétta frá Landlæknisembættinu. Þá greindust óvenjumargir með lifrarbólgu B á síðasta ári. 18.2.2008 17:13
Jón Baldvin: Ekki eftir neinu að bíða varðandi Kosovo Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir ekki eftir neinu að bíða fyrir Íslendinga með að viðurkenna sjálfstæði Kosovo. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur sagt að hafa verði samráð við Norðurlöndin í málinu. 18.2.2008 17:05
Dökkt útlit hjá Musharraf Vísbendingar eru um að flokkur Pervez Musharrafs hafi fengið lítið fylgi í nýafstöðnum þingkosningum í Pakistan. 18.2.2008 17:02
Tvær af Norðurlandaþjóðunum styðja sjálfstæði Kosovo Danir og Finnar eru meðal þeirra Evrópusambandsþjóða sem vilja viðurkenna sjálfstæði Kosovo-héraðs fljótt en Svíar hyggjast ræða málið í næsta mánuði. 18.2.2008 17:01
Segjast ekki tengjast heimasíðu til höfuðs Steinþóri Starfsfólk sölu og markaðsdeildar Sláturfélags Suðurlands segist í yfirlýsingu ekki standa fyrir heimasíðunni slaturfelagid.com sem sett hefur verið á laggirnar til höfuðs forstóra SS, Steinþóri Skúlasyni. 18.2.2008 16:40
Norðmenn kláruðu nær allan loðnukvóta sinn við landið Norsku loðnuveiðiskipin sem voru við veiðar hér við land veiddu nær allan kvóta sinn eftir því sem Landhelgisgæslan greinir frá. 18.2.2008 16:29
Sekt og svipting fyrir að aka undir áhrifum Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag sviptur ökuréttindum í tvö ár og dæmdur til þess að greiða 180 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir að hafa í september í fyrra ekið undir áhrifum tetrahýdrókannabínólsýru. 18.2.2008 16:23
Amma Madeleine segir fjölskylduna þjást Susan Healey amma Madeleine McCann segir að kvöl fjölskyldunnar líkist því að hún sé „krossfest“ á hverjum degi. Healey, móðir Kate McCann, biður fólk að hætta að gagnrýna fjölskyldu sína og lýsir yfir árás á fjölmiðla. „Þetta er eins og að vera krossfestur dag eftir dag. Ég las þvílíka hluti um að Kate gréti ekki nóg, eða hvað það nú var,“ sagði hún í viðtali við Sky fréttastofuna. 18.2.2008 16:06
Eins og á svíni Höfuðpaurinn í hópi múslima sem ætluðu að myrða breskan hermann og skera af honum höfuðið "eins og á svíni," var í dag dæmdur í 14 ára fangelsi. 18.2.2008 16:01
Langt á eftir nágrannaþjóðum í þjónustu við geðfatlaða Formaður Geðlæknafélags Íslands segir Íslendinga langt á eftir nágrannaþjóðunum í þjónustu við geðfatlaða og kallar eftir því að yfirvöld fari að sinna þessum hópi í stað þess að minnka við það þjónustuna eins og nú sér gert. 18.2.2008 15:59
ESB náði ekki saman um Kosovo Evrópusambandinu tókst ekki að ná samkomulagi um að sambandið í heild sinni viðurkenndi sjálfstæði Kosovo. 18.2.2008 15:45
Þungt haldinn á gjörgæslu eftir bílslys á Akranesi Bíl var ekið á miklum hraða á hús við Vesturgötu á Akranesi rétt fyrir klukkan þrjú í dag. Tveir voru í bílnum. Þeir voru báðir fluttir á sjúkrahúsið á Akranesi en að sögn lögreglu voru þeir báðir meðvitundarlausir þegar að var komið og meiðsl þeirra talin alvarleg. 18.2.2008 15:42
Hljóðlaus geisladiskur mest seldur Lag sem eyra mannsins nemur ekki er nú mest selda lagið á Nýja Sjálandi. Unnið er að útgáfu lagsins á alþjóðavettvangi. Jólalagið „Heims um ból“ var tekið upp á tíðni sem aðeins hundar nema og gefið út í fjáröflunarskyni fyrir samtök sem berjast gegn ofbeldi gegn dýrum. 18.2.2008 15:20