Fleiri fréttir

Mánaðar fangelsi fyrir að skalla kynsystur sína

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvítuga konu í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ýtt annarri konu upp að húsvegg og skallað hana í andlitið með þeim afleiðingum að hún marðist nokkuð.

Bandaríkin viðurkenna Kosovo

Bandaríkin hafa viðurkennt sjálfstæði Kosovo. Búist er við að nú fari slíkar tilkynningar að streyma til hins nýja lands. Því fer þó fjarri að allir séu sáttir.

Danir vilja grænlenskan olíugróða

Danir vilja frá hluta af ágóðanum ef olía finnst á Grænlandi, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Talið er að mikla olíu sé að finna á landgrunni Grænlands og er hennar nú leitað.

Varar verslunarfólk við stolnum kortum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brýnir fyrir afgreiðslufólki að skoða vel myndir á bakhlið greiðslukorta til þess að koma í veg fyrir að óprúttnir aðilar misnoti kort sem þeir eiga ekki.

Stofna ný samtök gegn kvótakerfinu

34 sjómenn hafa gengið í ný samtök sem stofnuð voru á Akureyri í gær. Þeir undirbúa aðgerðir gegn óréttlátu kvótakerfi og munu jafnvel róa í trássi við lög.

Með ólíkindum að fólk hafi sloppið ómeitt

Sjónarvottar segja það með ólíkindum að allir skuli hafa sloppið ómeiddir þegar þrír bílar lentu í hörðum árekstri á mótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar upp úr klukkan tíu í gærkvöldi.

Úrslitatilraun til þess að finna loðnu við landið

Úrslitatilraun til að finna meira af loðnu við landið á þessari vertíð hófst í morgun með tveimur hafrannsóknaskipum og þremur loðnuskipum. Endanleg niðurstaða gæti legið fyrir á miðvikudag.

Þrjátíu særðust í óeirðum við sendiráð Bandaríkjanna í Belgrad

Reiknað er með því að Bandaríkin og fjölmörg ríki Evrópusambandsins viðurkenni í dag sjálfstæði Kosovo frá Serbíu. Því var lýst yfir einhliða í gær. Minnst þrjátíu særðust í óeirðum við bandaríska sendiráðið í Belgrad, höfuðborg Serbíu, í gærkvöldi.

Lýsir áhyggjum af stöðu ríkissjóðs

Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, fagnar því að samningar hafi náðst á vinnumarkaði en lýsir yfir áhyggjum af stöðu ríkissjóðs í ljósi breytinga á markaði og síðustu fjárlagagerðar.

Heimasíða til höfuðs Sláturfélagsforstjóra

Jónas Jónsson, stjórnarformaður Sláturfélags Suðurlands, segir að nokkrir óánægðir starfsmenn, sem nýlega hafi sagt upp hjá fyrirtækinu, vinni nú gegn því og reyni að skapa leiðindi. Heimasíða var stofnuð til höfuðs forstjóranum í gær.

Skjár einn sækir líka í sig veðrið

Skjá miðlar, móðurfélag Skjás eins, gera athugasemdir við viðtal sem birtist í Fréttablaðinu í morgun við Pálma Guðmundsson, sjónvarpsstjóra Stöðvar 2. Í viðtalinu er því haldið fram að í nýrri áhorfsskönnun Capacent Gallup hafi Skjár einn mælst með minna áhorf en áður. Þetta er alrangt að sögn Skjá miðla.

Mótmæla því að frekar sé þrengt að endurhæfingu geðsjúkra

Stjórn Geðlæknafélags Íslands hvetur stjórnvöld eindregið til þess að hætta við að loka starfsendurhæfingur Bergiðjunna við Kleppsspítala og að breyta deild 28 í Hátúni 10 úr sólarhringsdeild í dagdeild. Segir félagið heilsu 60-80 manna stefnt í voða ef síðarnefndu áformin verða að veruleika.

Akropolis í hvítum skrúða

Skólar voru lokaðir í Aþenu í dag vegna mikillar snjókomu um helgina. Það var snjókoma um allt land og samgöngur trufluðust víða.

Rýrt framlag ríkisstjórnarinnar í kjaramálum

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, segir framlag ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga rýrt og segir að þungi gagnrýninnar muni aukast þegar menn átti sig á því hvað framlag hennar er lítið.

Sportlegur Rolls Royce

Yfirleitt sitja bílstjórar með kaskeiti við stýrið á Rolls Royce, og eigandinn situr í þægindum í aftursætinu.

Berjast um ofurkjörmenn Demókrata

Barack Obama og Hillary Clinton takast nú á um stuðning svokallaðra ofurkjörmanna innan Demókrataflokksins. Kosningakerfi flokksins er afar flókið og stuðningur þeirra gæti skipt sköpum.

Tsjetsjenar fagna sjálfstæði Kosovo

Tsjetsjenar hafa fagnað sjálfstæði Kosovo-héraðs. Þeir líkja gangi mála í héraðinu við eigin baráttu fyrir sjálfstæði frá Rússlandi.

Líkurnar aukast á að finna líf á öðrum plánetum

Ný rannsókn hefur leitt í ljós að sennilega séu mun fleiri plánetur sem líkjast jörðinni að gerð í Vetrarbrautinni en áður var talið. Og þar með aukast líkurnar á að líf finnist á öðrum plánetum.

Yfir þúsund lögreglumenn réðust inn í úthverfi Parísar

Yfir þúsund franskir lögreglumenn réðust inn í eitt af úthverfum Parísar í morgun og leituðu að persónum sem stóðu fyrir uppþotunum í borginni í nóvember í fyrra. Alls hafa um 30 manns verið handteknir en ekki er vitað hvort meðal þeirra séu þeir sem lögreglan leitar að.

Ráðherrafundur EB um Kosovo haldinn í dag

Utanríkisráðherrar Evrópubandalagsins koma saman til fundar í dag til að ræða sjálfstæði Kosovo. Reiknað er með að mörg ríki innan bandalagsins muni viðurkenna sjálfstæði Kosovo í dag.

Samningar í höfn í Karphúsinu

Skrifað var undir kjarasamninga á milli Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins nú á níunda tímanum í Karphúsinu eftir langan dag.

Rétt framkvæmd samninga geti leitt til lækkunar vaxta og verðbólgu

Samtök atvinnulífsins segja mikilvægt að fyrirtæki geri ekki aðrar launabreytingar nú en þær sem ákveðnar eru í samningum sem skrifað var undir í kvöld. Segja samtökin að með réttri framkvæmd kjarasamninga og framlagi stjórnvalda séu góðar horfur á að starfskilyrði atvinnulífsins batni, vextir lækki og verðbólga minnki og raunverulegar kjarabætur verði tryggðar.

Áfram óeirðir í Danmörku - um 400 eldar á þremur kvöldum

Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur handtekið tíu manns í eftirmiðdaginn og í kvöld í tengslum við óeirðir og elda sem kveiktir hafa verið til þess að mótmæla endurbirtingu mynda af Múhameð spámanni í dönskum blöðum í síðustu viku.

Lagði út um hálfa milljón vegna morðsins á Bhutto

Talibani af pakistönskum uppruna greiddi rúmlega sjö þúsund dollara, jafnvirði nærri hálfrar milljónar króna, fyrir morðtilræðið við Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans.

Slasaðist þegar hestur fældist vegna torfæruhjóla

Stúlka féll af hestbaki í Grindavík í dag og hlaut áverka á baki þegar hestur hennar fældist við hávaða frá torfæruhjólum sem ekið var um í næsta nágrenni við hesthúsahverfið þar í bæ.

Vegfarendur á Vesturlandi sýni varúð

Við viljum biðja vegfarendur um að sýna varúð vegna skemmda á vegum vegna mikils vatnsveðurs, bæði í Borgarfirði, Norðurárdal sem og í Hrútafirði. Bæði er um að ræða vatn sem að rennur þvert yfir vegi sem og stórar holur í vegi, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Persónuafsláttur hækkar um 7 þúsund krónur

Persónuafsláttur hækkar um 7 þúsund krónur á næstu þremur árum, umfram almenna verðuppfærslu. Skerðingarmörk barnabóta verða hækkuð og tekjuskattur fyrirtækja verður lækkaður í 15%. Þetta er meðal þess sem kemur fram í viljayfirlýsingu sem ríkisstjórnin hefur samþykkt vegna kjarasamninga sem til stendur að undirrita í kvöld.

Umferðalagabrot leiddi til fíkniefnafundar

Lögreglumenn á Akureyri höfðu afskipti af ökumanni á Akureyri seinni partinn í gær vegna umferðarlagabrots. Við afskiptin vaknaði einnig grunur um að ökumaðurinn hefði verið að aka undir áhrifum fíkniefna og var hann handtekinn í kjölfarið.

Sjá næstu 50 fréttir