Fleiri fréttir

Efna til frekari mótmæla í Kenía

Helsti stjórnarandstöðuflokkur Kenía hyggur á frekari mótmælaaðgerðir eftir misheppnaðar tilraunir til málamiðlunar eftir umdeildar forsetakosningar í landinu. Tilkynning þess efnis var gefin út eftir að málamiðlunarviðræður undir stjórn John Kufuor forseta Ghana og yfirmanns Afríkubandalagsins sigldu í strand.

Reisugill hæstu byggingar landsins er í dag

Byggingaraðilarnir sem standa að byggingu hæsta húss Íslands á Smáratorgi í Kópavoginum hafa náð þeim áfanga að ljúka uppsteypun og utanhússfrágangi. Hafist var handa við bygginguna síðla árs 2006 og nú rúmu ári síðar er verið að reka smiðshöggið á verkið. Reisugill verður haldið til heiðurs þeim verka- og iðnaðarmönnum sem komið hafa að byggingu turnsins og eru þeir þegar þetta er skrifað að gæða sér á dýrindis humarsúpu.

Meintur kanadískur barnaníðingur neitar sök

Kanadamaður sem sendi myndir af sér með tölvuruglað andlit á netið, þar sem hann var að nauðga börnum víða í Asíu, neitaði allri sök þegar mál hans var tekið fyrir í Bangkok í dag.

Ekki var farið að reglum í ákveðnum tilfellum

Forsvarsmenn VALITORS, sem áður var Greiðslumiðlun, viðurkenna að ekki hafi verið farið að reglum í ákveðnum tilfellum á árunum 1995-2006, en félagið var ásamt tveimur öðrum sektað um samtals 735 milljónir fyrir samkeppnisbrot.

John Kerry styður Obama í forkosningunum

Frétt dagsins af forkosningum Demókrata í Bandaríkjunum er sú að öldungardeildarþingmaðurinn John Kerry hefur ákveðið að styðja Barak Obama í kosningnum.

Fjórir handrukkarar teknir í Vogum

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gærkvöldi fjóra unga menn í Vogum á Vatnsleysuströnd, sem voru að handrukka og höfðu í hótunum um ofbeldi.

Tveir fíkniefnalögreglumenn á slysadeild eftir fólskulega árás

Tveir lögreglumenn úr fíkniefnadeild voru fluttir slasaðir með sjúkrabílum á slysadeild Landsspítalans og tveir til viðbótar þurftu að leita þar lækninga eftir fólskulega árás á þá við störf á Laugaveginum, laust upp úr klukkan eitt í nótt.

Björguðu hundi úr Rauðavatni

Slökkviliðið var kallað að Rauðavatni á fimmta tímanum í dag til að bjarga labradorhundi úr vatninu. Hundurinn hafði verið á göngu með eiganda sínum umhverfis vatnið en hljóp út á þunnan ís á yfirborði vatnsins án þess að gæta að sér.

Forviða á skrifum saksóknara

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segist forviða á skrifum Mikes Trent saksóknara í máli Arons Pálma Ágústssonar.

Saksóknari í Texas segir Aron Pálma hættulegan börnum

Mike Trent aðstoðar saksóknari í Harris sýslu í Texas er maðurinn sem ákærði Aron Pálma Ágústsson fyrir kynferðisbrot á sínum tíma og fékk hann dæmdan til tíu ára vistar í unglingafangelsi. Trent skrifaði fyrir nokkrum dögum færslu á heimasíðuna www.icelandweatherreport.com þar sem hann lýsir sinni hlið málsins og fullyrðir að Aron sé sekur um fleiri og mun grófari brot en það sem hann var dæmdur fyrir.

Undrast framkomu gagnvart gagnrýnanda

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar lýsa yfir undrun sinni á því að einn helsti leiklistargagnrýnandi landsins hafi verið tekinn af boðslista frumsýningargesta í Borgarleikhúsinu, að því er virðist vegna óánægju með skrif hans. Þetta kemur fram í bókun sem sjálfstæðismenn lögðu fram á fundi ráðsins í gær.

Vilja aukaakrein meðfram Reykjanesbraut

Hverfisráð Breiðholts vill að gatnamótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar verði breytt þannig að gerð verði aukaakrein meðfram Reykjanesbraut í norður sem liggur í göng undir Reykjanesbrautina.

Rasmussen vill skipta olíugróðanum jafnt

Danir og Grænlendingar ættu að skipta til helminga tekjum af olíu sem hugsanlega er að finna á Grænlandi, segir Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur.

Hans Aðalsteinn fundinn

Hans Aðalsteinn Helgason, 17 ára, sem lýst var eftir í fyrradag er fundinn. Hans var saknað síðan á laugardag.

Sveitarfélög sökuð um græðgi

Borgarstjórinn í Reykjavík er, ólíkt bæjarstjóranum í Hafnarfirði, tregur að lækka fasteignaskatta en býður verkalýðshreyfingunni þess í stað upp á viðræður um húsnæðisvanda láglaunafólks. Græðgi segir formaður Starfsgreinasambandsins.

Vígtennurnar sýndar

Verkalýðshreyfingin brýnir nú klærnar og tók í dag fyrstu skref til undirbúnings átökum á vinnumarkaði með því að vísa kjaradeilu sinni við atvinnurekendur til ríkissáttasemjara.

Sex ákærðir í Pólstjörnumálinu

Sex karlmenn hafa verið ákærðir vegna innflutnings á tugum kílóa af fíkniefnum í smyglskútumálinu svokallaða. Lögreglan fann efnin í skútu sem tveir þeirra sigldu til landsins og kom til í Fáskrúðsfirði í haust. Mennirnir eru allir ákærðir fyrir mismunandi stóran hlut í málinu en fimm þeirra hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því þeir voru handteknir í haust.

Aron Pálmi ætlar að lögsækja Trent saksóknara

Aron Pálmi Ágústsson segist í samtali við Vísi vera staðráðinn í því að sækja Mike Trent, aðstoðar saksóknara í Texas til saka fyrir ofsóknir gegn sér. Trent heldur því fram að Aron Pálmi hafi brotið gegn fleiri börnum en hann var dæmdur fyrir á sínum tíma og í samtali við Vísi sagði hann að börnum stæði ógn af honum. Trent sendi Vísi meðal annars gögn úr málinu og vitnisburði sálfræðinga sem hann segir sýna fram á að Aron hafi viðurkennt fleiri brot.

Þorsteinn lætur gagnrýni ekki hafa áhrif

Þorsteinn Davíðsson segist ekki ætla að hætta störfum sem dómari við héraðsdóm Norðurlands eystra og Austurlands þrátt fyrir gagnrýni á ráðninguna. Árni M. Mathiesen segir dómnefnd um hæfi umsækjenda fara með rangt mál, en formaður nefndarinnar segir Árna fara með rangfærslur.

Bílbelti komu í veg fyrir stórslys

Nokkur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Sem betur fer var lítið um slys á fólki en ljóst er að um talsvert eignatjón er að ræða. Um hádegi rákust saman fólksbíll og jeppi í Grafarvogi og er fólksbíllinn jafnvel talinn ónýtur.

Farbann staðfest í Vesturgötumáli

Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag farbannsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness yfir pólskum karlmanni sem grunaður er um að hafa ekið á hinn 4 ára Kristinn Veigar Sigurðsson í lok síðasta árs með þeim afleiðingum að Kristinn lést.

Hvaða barn ?

Saksóknari í Texas hefur ákveðið að leggja ekki fram ákæru í máli fjölskyldu sem skildi tveggja ára telpu eftir á pizzastaðnum Chuck E. Cheese.

Heimamaður í haldi grunaður um íkveikju á Hvanneyri

Einn maður er í haldi lögreglunnar í Borgarnesi vegna bruna í íbúðarhúsi á Hvanneyri í nótt. Grunur leikur á að um íkveikju sé að ræða en sá sem er í haldinu er heimamaður að sögn yfirlögregluþjóns í Borgarnesi.

Nizza með hrís og hambjöllum

Sælgætisgerðin Nói Siríus hefur nú til meðferðar ábendingu frá neytanda sem varð fyrir þeirri óskemmtilegu lífsreynlu í dag að finna tvö lítil skordýr í súkkulaðistykki af gerðinni Nizza.

Bréf drottningamannsins til Díönu miskunnarlaus

Philip drottningamaður skrifaði miskunnarlaus og niðurlægjandi bréf til Diönu prinsessu þar sem hann gagnrýndi siðsemi hennar og lífstíl. Simone Simmons vinkona Díönu bar vitni um þetta við réttarhöldin á dauða Díönu í dag. Hún sagði að prinsessan hefði sýnt sér tvö bréf frá hertoganum af Edinborg frá 1994 eða 1995.

Hitti konuna á hóruhúsi

Pólskur maður er að skilja við eiginkonu sína til fjórtán ára eftir að hann hitti hana meðal starfsstúlkna þegar hann fór á hóruhús.

Klökk yfir góðmennsku fólks

Guðleif Hallgrímsdóttir móðir Sindra Dags Garðarssonar vill koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra sem styrktu Sindra í söfnun Vísis um jólin. „Við erum bara hálf klökk yfir góðmennsku fólks og svona stuðningur gefur manni svo mikinn styrk," segir Guðlaug. Hún segir að nú geti þau keypt ýmislegt sem Sindri þarf sem ekki er greitt af tryggingastofnun.

Lögmaður kvótalausa skipstjórans: Vonandi tímamótadómur

„Í mínum huga eru íslensk fiskveiðilög búin til úr engu,“ segir Lúðvík Kaaber, lögmaður Arnar Sveinssonar, sem sýknaður var af Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna í Genf fyrir brot á íslenskum fiskveiðilögum fyrir skömmu.

Dorrit veitir Eyrarrósina í dag

Dorrit Moussaieff forsetafrú afhendir í dag Eyrarrósina, sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Kvótalaus skipstjóri sýknaður í Genf

„Það eru átján nefndarmenn sem dæma í málinu og tólf af þeim dæma okkur í hag. Ég er að sjálfsögðu mjög ánægður yfir því,“ segir Örn Sveinsson stýrimaður og fyrrum skipstjóri á Sveini Sveinssyni BA 325 frá Patreksfirði.

Ungur síbrotamaður slapp við refsingu

Ungur maður, sem árið 2006 var dæmdur í tveggja ára ára fangelsi fyrir mannrán og handrukkun, var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur fyrir að hafa haft rúm tvö grömm af hassi í klefa sínum á Litla-Hrauni í sumar.

Sjá næstu 50 fréttir