Innlent

Slíkar rangfærslur í yfirlýsingu að nefndin vill ekki elta ólar við þær

MYND/GVA

Pétur Kr. Hafstein, formaður dómnefndar sem metur hæfni dómara, segir slíkar rangfærslur yfirlýsingu Árna M. Mathiesen, setts dómsmálaráðherra, í dómaramálinu að nefndin vilji ekki elta ólar við þær í fjölmiðlum.

Hann vill að öðru leyti ekki tjá sig um yfirlýsingu ráðherra frá því í morgun en vísar í greinagerð nefndarinnar frá því í gær og segir að nefndin standi við hana að öllu leyti.

Ákvörðun Árna Mathiesen, að skipa Þorstein Davíðsson í embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og Austurlands þrátt fyrir að þrír menn hafi verið metnir hæfari en Þorsteinn, hefur dregið dilk á eftir sér.

Einn þeirra sem metinn var hæfari en Þorsteinn hefur þegar ákveðið að kvarta til umboðsmanns Alþingis eftir rökstuðning ráðherra. Þá sendi nefndin sem mat hæfni umsækjenda um dómarastöðuna frá sér greinargerð í gær þar sem Árni Mathiesen er gagnrýndur harðlega.

Sagði hún settan dómsmálaráðherra hafa tekið ómálefnalega ákvörðun og hafa vegið að starfsheiðri og tilverugrundvelli dómnefndarinnar. Enn fremur sakaði dómnefndin ráðherra um óvönduð vinnubrögð og að aldrei hafi í 16 ára sögu nefndarinnar verið gengið gegn áliti hennar.

Árni svaraði dómnendinni í morgun og sagði umsögn hennar um umsækjendur um dómaraembætti gallaða, ógagnsæja, lítt rökstudda og innra ósamræmis hafi gætt við mat á reynslu sem hin ýmsu störf gefa.

Benti Árni enn fremur á að ráðherra bæri í störfum sínum að taka sjálfstæða afstöðu til mála sem fyrir hann væru lögð. Það væri ráðherrann sem hefði skipunarvaldið og þar með ábyrgðina og umsögn nefndarinnar væri ekki bindandi samkvæmt lögum. Enn fremur væri það rangt hjá nefndinni að það væri einsdæmi að ráðherra færi ekki að áliti nefndarinnar. Um það væri bæði nýleg og eldri dæmi.

Fréttamaður Stöðvar 2 leitaði eftir viðtali við Árna vegna málsins í morgun en hann vildi ekki tjá sig um málið og vísaði aðeins á yfirlýsinguna.

Yfirlýsingu Árna Mathiesen og greinargerð dómnefndarinnar má sjá hér að neðan.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×