Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Maður féll fram af klettum við Laxárvirkjun Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út fyrir stundu vegna manns sem féll fram af klettum við brúnna við Laxárvirkjun. Féll maðurinn í ánna en náðist að komast upp á bakka hennar af sjálfsdáðum en kemst ekki alla leið upp vegna kletta. Sigmenn frá Björgunarsveitinni Garðari á Húsavík og Hjálparsveit skáta í Aðaldal eru á leið á staðinn til aðstoðar lögreglu og sjúkraliði. 29.6.2007 18:29
Landsvirkjun gefur Alcan frest Landsvirkjun mun ekki hefja samningaviðræður við aðra um örkusölu til stóriðju fyrr en erindi Alcan um framlengingu forgangs að orku hefur verið afgreitt. Þó að þessi forgangur rennur úr gildi um helgina ætlar Landsvirkjun að taka sér einhverjar vikur í að afgreiða erindi Alcan. 29.6.2007 18:23
Rýr efirtekja í Baugsmáli segir Tryggvi Jónsson Baugsmálið hefur verið keyrt áfram af hörku og með saumnálaleit, segir Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs. Hann hlaut þriggja mánaða fangelsisdóm í gær meðal annars fyrir að draga sér fé vegna garðsláttuvélar og golfsetts. Hann segir þetta rýra eftirtekju eftir fimm ár og þegar lagt hafi verið upp með ákærur um ellefuhundurð milljóna króna fjársvik. 29.6.2007 18:19
Vestmannaeyjabær selur hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar ákvað í morgun að selja hlut Vestmannaeyjabæjar í Hitaveitu Suðurnesja á genginu 7,1. 29.6.2007 18:04
Tugir bifreiða hafa skemmst Lögreglan á Akureyri telur að tugir bíla hafi eyðilagst í hlýindunum í dag eftir að hafa farið um þjóðveginn norðan Akureyrar. Nýlega er búið að leggja vegaklæðningu á 10 kílómetra kafla rétt utan við bæinn og hefur hún bráðnað í hitanum í dag með þeim afleiðingum að tjara og grjót hefur slettst á bílana og skemmt lakkið á þeim. 29.6.2007 17:59
Talið að tugir bíla hafi skemmst Lögreglan á Akureyri telur að tugir bíla hafi eyðilagst í hlýindunum í dag eftir að hafa farið um þjóðveginn norðan Akureyrar. Nýlega er búið að leggja vegaklæðningu á 10 kílómetra kafla rétt utan við bæinn og hefur hún bráðnað í hitanum í dag með þeim afleiðingum að tjara og grjót hefur slettst á bílana og skemmt lakkið á þeim. 29.6.2007 17:55
Tafla gegn offitu Ítalskir vísindamenn hafa þróað einfalda töflu til inntöku sem gæti komið offitusjúklingum að góðum notum. Taflan er gerð úr sérstöku vatnshlaupi og þenst út í maga. Þannig dregur hún úr hungri og megrun ætti því að auðveldast fyrir vikið. 29.6.2007 17:45
Stakk af frá vettvangi umferðarslyss Ökumaður vélhjóls var fluttur á slysadeild eftir að bíll kastaðist á hjól hans á Höfðabakkabrúnni á fimmta tímanum í dag. Slysið varð með þeim hætti að bíl var ekið aftan á annan bíl sem kastaðist á vélhjólið. 29.6.2007 17:10
Hjóluðu gegn stóriðju og mengun í miðbænum Um fimmtíu hjólreiðamenn úr hópnum Saving Iceland lokuðu umferðargötum í miðborg Reykjavíkur í dag til að mótmæla bílamengun og álversuppbyggingu á Íslandi. Ferð hópsins endaði fyrir utan Alþingishúsið þar sem spiluð var tónlist og fólki á staðnum boðið upp á ókeypis mat. 29.6.2007 16:51
Öflugt umferðareftirlit í lofti og á landi um helgina Lögregla á höfuðborgarsvæðinu verður í samstarfi við Landhelgisgæslu og Umferðarstofu með umferðareftirlit úr lofti við helstu umferðaræðar í og við höfuðborgina, austur í Árnessýslu og til Borgarfjarðar. 29.6.2007 16:36
Endeavour á loft þann sjöunda ágúst Nasa hefur staðfest brottfaradag næstu mönnuðu geimsferðar sinnar. Það er geimskutlan Endeavour sem tekst á loft þann sjöunda ágúst og heldur til Alþjóðageimstöðvarinnar. Erindi skutlunnar er að halda áfram uppbyggingu stöðvarinnar. Til dæmis verður haldið áfram að klæða stöðina og fyllt verður á byrðarnar. 29.6.2007 16:31
Búið að opna Fleet street Lögregla í Lundúnum hefur nú opnað Fleet street aftur. Götunni var lokað vegna grunsamlegrar bifreiðar sem þar var. Fyrr í dag var Park Lane, sem er gata við Hyde Park, lokað vegna grunsamlegs bíls í neðanjarðarbílastæði undir garðinum. Hyde Park var einnig lokað. Mikill viðbúnaður hefur verið í Lundúnum frá því í nótt þegar lögregla fann og aftengdi bílsprengju við skemmtistað rétt hjá Piccadilly Circus og Leicester Square. Talið er víst að með því hafi lögreglan komið í veg fyrir stórfellt manntjón. 29.6.2007 16:24
Leitað eftir hugmyndum að uppbyggingu í Kvosinni Reykjavíkurborg hefur valið sex arkítektastofur til að setja fram tillögur að uppbyggingu í Kvosinni eftir brunann á horni Austurstrætist og Lækjargötu í apríl síðastliðnum. Þá geta aðrir einnig komið hugmyndum sínum að uppbyggingu á framfæri. 29.6.2007 16:04
Jón Þór verður aðstoðarmaður Björgvins Jón Þór Sturluson verður að líkindum aðstoðarmaður Björgvins G. Sigurðssonar, nýs viðskiptaráðherra, en verið er að ganga frá ráðningu hans þessi dægrin. Jón Þór er dósent og forstöðumaður meistaranáms í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík en hann er með doktorspróf í hagfræði frá Stokkhólmsháskóla. 29.6.2007 15:56
Líbanskir hermenn skutu á mótmælendur Líbanskir hermenn skutu í dag á palestínska mótmælendur með þeim afleiðingum að þrír létust og að minnsta kosti 20 særðust. Mótmælendurnir voru að reyna að komast í gegnum eftirlitshlið á leið sinni aftur í flóttamannabúðirnar Nahr al-Bared í norður Líbanon. Vitni sögðu hermennina í fyrstu hafa skotið upp í loftið en þegar mótmælendurnir sem voru að minnsta kosti hundrað talsins. 29.6.2007 15:46
Hæstiréttur ákveður að fjalla um rétt fanga í Guantanamo Bandaríkjastjórn varð fyrir enn einu áfallinu í stríði sínu gegn hryðjuverkum í dag þegar Hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað að taka fyrir mál fanga í Guantanamo-búðunum sem snýr að því hvort þeim sé heimilt að láta taka mál sín upp fyrir alríkisdómstólum. 29.6.2007 15:42
Yfir 120 milljarða króna tjón í Bretlandi vegna flóða Samtök breskra tryggingafélaga telja að kröfur vegna tjóns í flóðunum á Bretlandi undanfarnar daga muni nema einum milljarði punda, jafnvirði um 125 milljarða króna. 29.6.2007 15:16
Frumbyggjar mótmæla í Kanada Lögregla í Kanada hefur neyðst til þess að loka hluta af fjölförnustu hraðbraut landsins og lestarsamgöngur á milli Toronto og Montreal hafa verið stöðvaðar vegna mótmæla frumbyggja á götum úti. Mikil ferðamannahelgi er framundan enda þjóðhátíðardagurinn 1. júlí á sunnudaginn og hafa mómælin skapað talsverð vandræði. 29.6.2007 15:04
Vilja að ríkið haldi sínum hlut í HS Þingflokkur Vinstri - grænna vill að ríkisstjórnin endurheimti aftur fimmtán prósenta hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja en ríkið bauð hann út á dögunum. Fram kemur í tilkynningu frá þingflokknum að hann vilji að fyrirtækið verði áfram í samfélagslegri eigu til þess að koma í veg fyrir að raforkuverð verið hækkað neytendum til skaða. 29.6.2007 14:57
Marsjeppi á barmi hyldýpis Geimjeppi Nasa Opportunity sem ekur um reikistjörnuna Mars og safnar gögnum til rannsókna á henni stendur frammi fyrir nýju og krefjandi verkefni. Honum er ætlað að renna niður í djúpan loftsteinagíg á yfirborði Mars og safna þar sýnum. Förin er hættuleg og gera Nasaliðar ekki ráð fyrir að jeppanum verði afturkvæmt úr gígnum. 29.6.2007 14:27
Skilorðsbundið fangelsi fyrir umfangsmikla kannabisræktun Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir umfangsmikla kannabisræktun og fyrir að hafa ætlað að selja efnin. 29.6.2007 14:26
Björgunarsveitir halda á hálendið Fjórar Björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar halda upp á hálendið í dag og verða í fimm hópum til 12. ágúst. Tilgangurinn er að fækka slysum, veita ferðamönnum aðstoð og upplýsingar og vera með viðbragðsstaðsetningar á hálendinu. 29.6.2007 14:16
Forsetinn ræddi fíkniefnavarnir í Istanbúl Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti í morgun ítarlegan fund með Kadir Topbas, borgarstjóra Istanbúl í Tyrklandi, og yfirmönnum borgarinnar í félags- og heilbrigðismálum. 29.6.2007 14:11
Frestað að taka ákvörðun um hugsanleg kaup á hlutum í HS Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur frestaði því fram yfir helgi að taka ákvörðun um hvort fyrirtækið kaupi hlut í Hitaveitu Suðurnesja. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitunnar, sagði fjölmörg sveitarfélög sem eiga hlut í Hitaveitunni, hafa haft samband við Orkuveituna með það fyrir augum að selja henni hlut sinn. 29.6.2007 14:01
Eyborg á leið til Möltu með laumufarþega Togarinn Eyborg frá Hrísey er nú á leið til Möltu með 21 laumufarþega frá Afríku sem fundust í gærmorgun í þremur flotkvíum sem torgarinn dró á Miðjarðarhafi. Skipstjóri togarans er íslenskur en auk hans eru tveir Rúmenar og sex Indónesíumenn í áhöfninni. 29.6.2007 13:50
Bifreið við Hyde Park tengist rannsókn á bílsprengju í nótt Lögregla í Bretlandi hefur lokað götunni Park Lane við Hyde Park Í Lundúnum vegna grunsamlegs bíls við götuna. Frá þessu greindi Sky-fréttastöðin og hefur eftir heimildarmönnum sínum að bifreiðin tengist rannsókn á bílsprengju sem fannst nærri Piccadilly Circus í nótt. Talið er að sprengja hafi átt hana með farsíma. 29.6.2007 13:36
Áhöfn Gnár bárust óvenjulegar þakkir Áhöfn Landhelgisgæsluþyrlunnar Gnár bárust í gær nokkuð óvenjulegar þakkir frá áhöfninni á bandaríska rannsóknaskipinu Knorr. Gná hafði ferjað nýjan rannsóknakapal til skipsins í stað kapals sem hafði skemmst. Þyrlan sótti einnig bátsmanninn sem var meiddur á fæti og kom honum til læknis á Landspítala Háskólasjúkrahúsi í Fossvogi. 29.6.2007 13:32
Sótti fund matvælaráðherra Norðurlanda Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sótti í gær sumarfund matvælaráðherra Norðurlanda sem haldinn var í Björneborg í Finnlandi. 29.6.2007 13:02
Nítján ára í lífstíðarfangelsi Hinn nítján ára Stuart Harling frá Rainham hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða hjúkrunarkonuna Cheryl Moss fyrir aftan St George's sjúkrahúsið í Hornchurch austan við London í apríl 2006. Moss var í sígarettupásu þegar Harling réðst að henni og stakk hana með sjötíu og tvisvar sinnum með hnífi. 29.6.2007 12:24
iPhone á markað í Bandaríkjunum í dag Fyrstu iPhone-tæki Apple tölvufyrirtækisins verða seld í New York í Bandaríkjunum í kvöld og hafa spenntir kaupendur þegar safnast saman við búðir í borginni. 29.6.2007 12:22
SMS-helgi í uppsiglingu Svonefnd SMS-helgi fer nú í hönd, en þá eiga unglingar það til að mæla sér mót á laun með SMS-skilaboðum og slá upp teiti á ólíklegustu stöðum. 29.6.2007 12:15
Áformar að hefja innanlandsflug og millilandaflug frá Reykjavíkurflugvelli Flugfélagið Iceland Express áformar að hefja innanlandsflug og millilandaflug frá Reykjavík til Lundúna og Kaupmannahafnar. Fái félagið úthlutað 6500 fermetra lóð við Reykjavíkurflugvöll sem það hefur sótt um er ráðgert að flug þaðan hefjist næsta vor. Forstjóri félagsins segir skorta verulega á samkeppni í innanlandsflugi. 29.6.2007 12:14
Minningarathafnir um hundinn Lúkas Minningarathafnir um hundinn Lúkas voru haldnar bæði í Reykjavík og á Akureyri í gærkvöldi. Grunur leikur á að hópur unglingspilta hafi rænt hundinum og murkað úr honum lífið. 29.6.2007 12:05
Dómur útilokar setu í stjórnum fyrirtækja Ef Hæstiréttur staðfestir refisdóma yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Tryggva Jónssyni í Baugsmálinu eru þeir útilokaðir frá því að sitja í stjórnum fyrirtækja samkvæmt hlutafélagalögum. Lögmaður Tryggva segir að það verði látið á það reyna hvort lögin stangist á við stjórnarskrá, staðfesti Hæstiréttur dóminn. 29.6.2007 12:02
Vegurinn sem ekki er verið að leggja í Álafosskvos Fréttastofu Vísis barst í morgun myndband af fráveituframkvæmdunum í Álafosskvosinni, sem margir íbúar þar vilja reyndar meina að séu vegaframkvæmdir. 29.6.2007 11:58
Skógareldar svíða Grikkland Mestu skógareldar í meira en tíu ár ógna nú höfuðborg Grikklands, Aþenu, en slökkviliðsmenn, hermenn og sjálfboðaliðar berjast nú við logana. Hundruð elda loga um allt Grikkland. Talið er að einhverjir séu komnir til vegna íkveikja en margir hófst vegna rafmagnslína sem kviknaði í vegna hitans. 29.6.2007 11:42
Stofna rannsóknarsjóð fyrir hjúkrunarfræðinga og ljósmæður Nýr styrktarsjóður við Háskóla Íslands, Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur, var stofnaður í morgun. Með sjóðnum á að veita hjúkrunarfræðingum og ljómæðrum í meistara- og doktorsnámi styrki til rannsókna en markmið HÍ er að efla framhaldsnám í þessum greinum. 29.6.2007 11:30
Pólverjar vilja endurskoða Evrópusáttmála Pólverjar vilja taka upp viðræður um nýundirskrifaðan sáttmála Evrópusambandsins að nýju. Forsætisráðherra landsins, Jaroslaw Kaczynski, sagði þetta á fréttamannafundi í morgun. Viðbúið er að yfirlýsingin eigi eftir að valda mikilli úlfúð meðal annarra landa Evrópusambandsins. 29.6.2007 11:26
Fjölmennar kertavökur til minningar um Lúkas Milli hundrað og fimmtíu og tvö hundruð manns komu saman á Geirsnefi í Reykjavík klukkan átta í gærkvöldi þar sem haldin var kertavaka til að minnast hundsins Lúkasar sem drepinn var á hrottalegan hátt á Akureyri á dögunum. Um hundrað manns hittust hjá Blómavali og Húsasmiðjunni á Akureyri og var eigandi Lúkasar, Kristjana Margrét Svansdóttir, þar á meðal. 29.6.2007 10:59
Mikil neyð í Pakistan eftir flóð Mikill skortur virðist vera á neyðaraðstoð í þeim héruðum í vesturhluta Pakistans sem hafa orðið illa úti af völdum flóða undanfarna viku. Fram kemur á fréttavef BBC að um 800 þúsund manns eigi um sárt að binda vegna flóðanna í Balúkistanhéraði í suðvesturhluta landsins en hundruð þúsunda heimila hafa eyðilagst. 29.6.2007 10:31
750 nýir íbúar á Keflavíkurflugvelli í haust Líklegt er að um 750 íbúar verði á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli í ágúst þar sem mikil eftirspurn hefur verið í 300 íbúðir þær sem Keilir hefur til umráða. Nú hafa alls borist um 350 umsóknir þannig að greinilegt er að "Vallarlífið" höfðar til margra. 29.6.2007 10:23
Segir frummatsskýrslu alsendis ófullnægjandi Landvernd telur frummatsskýrslu vegna álvers í Helguvík alsendis ófullnægjandi til frekari málsmeðferðar og gagnrýnir hversu mikið álverið muni menga, eða 40 prósentum meira en álver Alcoa í Reyðarfirði. 29.6.2007 10:02
Galdraráðstefna í Noregi Meira en sextíu sérfræðingar í fjölkynngi víðs vegar að úr heiminum ætla að hittast í bænum Vardo í Noregi til skrafs og ráðagerða. Ráðstefnan, sem ber heitið Alþjóðlega miðnætur fjölkyngis ráðstefnan, er skipulögð af skandínavískum og bandarískum háskólum. 28.6.2007 23:27
Eldsvoði í Stokkhólmi Mikill eldur kom upp í líkamsræktarstöð á Långholmsgatan í Stokkhólmi um hádegisbilið í dag. Einungis liðu tíu mínútur frá því að brunavarnarkerfið fór í gang og þar til staðurinn var orðinn alelda. Snör viðbrögð starfsmanna urðu til þess að allir komust út en að sögn Anders Bergqvist sem leiddi björgunaraðgerðirnar munaði mjóu þar sem eldurinn breiddist gífurlega hratt út. 28.6.2007 23:09
Vélhjóli ekið aftan á bíl Vélhjóli var ekið aftan á bifreið við Jórusel í Reykjavík í kvöld. Tveir sjúkrabílar og lögregla voru send á staðinn en ekki er vitað um slys á fólki. 28.6.2007 22:24
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent