Bifreið við Hyde Park tengist rannsókn á bílsprengju í nótt 29. júní 2007 13:36 Lögreglumenn kanna vettvang nærri Piccadilly Circus í morgun. MYND/AP
Lögregla í Bretlandi hefur lokað götunni Park Lane við Hyde Park Í Lundúnum vegna grunsamlegs bíls við götuna. Frá þessu greindi Sky-fréttastöðin og hefur eftir heimildarmönnum sínum að bifreiðin tengist rannsókn á bílsprengju sem fannst nærri Piccadilly Circus í nótt. Talið er að sprengja hafi átt hana með farsíma. Það var skömmu eftir miðnætti í nótt að íslenskum tíma sem sjúkrabíll var kallaður að Tiger Tiger, vel þekktum næturklúbbi í Haymarket nærri Piccadilly Circus og Leicester Square í Lundúnum. Sinna þurfti veikum gesti þar. Sjúkraliðar urðu varir við það sem þeir töldu reyk í silfurgrárri Mercedes Benz bifreið sem hafði verið lagt nærri næturklúbbnum. Lögregla var kölluð á vettvang sem opnaði bílinn og fann í honum fjölmörg ílát full af bensíni, mörg gashylki og töluvert af nöglum. Svæðið var þegar girt af og sprengjusérfræðingar Lundúnalögreglunnar kallaðir á vettvang. Þeir gerðu sprengjuna óvirka. Neyðarnefnd breska ríkisins, COBRA, kom saman til fundar í morgun vegna málsins. Fyrir fundinn hvatti Gordon Brown, forsætisráðherra, landa sína til að vera á verði. Öryggisgæsla hefur verið hert í borginni og gæsla við þinghúsið efld til muna.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Sjá meira