Fleiri fréttir

Breiðhyltingar fá heitt vatn að nýju

Verið er að hleypa heitu vatni á leiðslur á ný eftir viðgerð á heitavatnsæð við Vesturhóla sem bilaði í morgun. Orkuveitan þurfti í kjölfar bilunarinnar að loka fyrir heita vatnið í stórum hluta Hólahverfis til þess að geta gert viðeigandi ráðstafanir.

Skilorðsbundið fangelsi vegna klórgasslyss

Héraðsdómur Austurlands dæmdi í dag stöðvarstjóra hjá Olís á Eskifirði í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir almannahættubrot vegna klórgasslyssins í sundlauginni á Eskifirði í fyrrasumar.

Krefjast tvöföldunar á Suðurlandsvegi sem allra fyrst

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga kallar eftir því í yfirlýsingu að tvöföldun Suðurlandsvegar hefjist sem allra fyrst. Samtökin benda á umferðarteppuna sem myndaðist um síðustu helgi máli sínu til stuðnings og benda á að umferð við Litlu Kaffistofuna hafi aukist um rúmlega fimmtíu prósent á síðustu fimm árum.

Hæstiréttur stöðvar aftöku geðsjúks manns

Hæstiréttur í Washington stöðvaði í dag aftöku geðsjúks manns sem hlaut lífstíðardóm árið 1995. Maðurinn drap foreldra fyrrverandi konu sinnar árið 1992. Maðurinn klæddist fjólubláum kúrekafötum við réttarhöldin og kenndi John F. Kennedy og Jesú um morðin. Atkvæðagreiðsla hæstaréttar um málið endaði 5-4.

Dómum yfir Tryggva og Jóni Gerald áfrýjað

Lögmenn þeirra Tryggva Jónssonar, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs, og Jóns Geralds Sullenberger, fyrrverandi viðskiptafélaga Baugsmanna, sögðu eftir að dómur var kveðinn upp í þeim liðum Baugsmálsins sem Hæstiréttur vísaði til efnismeðferðar í héraðsdómi, að þeir myndu áfrýja dómum skjólstæðinga sinna.

Flugslys í Angólu

TAAG Boeing 737 flugvél hrapaði í norðurhluta Angólu í dag með 78 farþega innanborðs. Að minnsta kosti sex hafa látið lífið og margir slasaðir hafa verið fluttir á sjúkrahús. Samkvæmt ANGPOP fréttastofunni missti flugvélin jafnvægi við lendingu og brotlenti á byggingu sem eyðilagðist.

Jón Ásgeir sýknaður en Tryggvi og Jón Gerald sakfelldir

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi forstjóra Baugs, af öllum ákæruliðum endurákæru í Baugsmálinu sem Hæstiréttur vísaði aftur heim í hérað. Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri fyrirtækisins, fékk hins vegar 12 mánaða skilorðsbundinn dóm og Jón Gerald Sullenberger, fyrrverandi viðskiptafélaga Baugsmanna, þriggja mánaða dóm fyrir að aðstoða við bókhaldsbrot.

11 manns látist á tíu dögum í Texas

Flóð í Texas hafa orðið 11 manns að bana í Marbles Falls síðustu tíu daga. Stanslaus rigning og vindur í gær gerði það að verkum að þyrlur þurftu að gera bið á því að bjarga fólkum af húsþökum heimila sinna.

Eldur nærri kjarnorkuveri í N-Þýskalandi

Eldur kom upp nærri kjarnorkuveri nærri Hamborg í norðurhluta Þýskalands í dag en eftir því sem Reuters-fréttastofan segir komst hann ekki í kjarnakljúfinn.

Hjónum sleppt gegn tryggingu í Pakistan

Hæstiréttur í Pakistan hefur skipað fyrir um að hjón sem hafa verið í haldi verði sleppt gegn tryggingu. Hjónin voru handtekin eftir að í ljós kom að eiginmaðurinn Shumail Raj væri í raun kona. Þau voru upprunalega dæmd í þriggja ára fangelsi.

Vatni hleypt úr Hálslóni í næstu viku

Til stendur að hleypa vatni úr Hálslóni á þriðjudaginn kemur þar sem lónið fyllist fyrr en æskilegt þykir. Er þetta gert í öryggisskyni til að halda fyllingarhraðanum niðri.

Samsvörun í fuglaflensutilvikum í Tékklandi og Þýskalandi

Fuglaflensutilvik sem hafa komið upp í Tékklandi og suðurhluta Frakklands síðustu misseri eru talin eiga sama uppruna. Heilbrigðisyfirvöld í Tékklandi hafa fundið H5N1 afbrigði veirunar í tveimur fuglabúum og í einum dauðum svani á meðan þjóðverjar hafa fundið veiruna í þónokkrum villtum fuglum.

Risabor að Kárahnjúkum bætti heimsmet um 14 metra

Risabor númer 2 að Kárahnjúkum setti um helgina heimsmet í borun á einum sólarhring þegar hann boraði alls 106,12 metra. Þetta hefur fengist staðfest eftir því sem segir á vef Kárahnjúkavirkjunar.

282 krakkar dorguðu á Flensborgarbryggju

Á þriðja hundrað hafnfirskra krakka tóku þátt í dorgveiðikeppni á Flensborgarbryggju í gær. Aflabrögð voru ágæt en talið er að um 300 fiskar hafi verið dregnir á land. Vegleg verðlaun voru veitt fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti og fyrir flesta veidda fiska, þann stærsta og fyrir furðufisk ársins.

S-Kórea mun bæta verkamönnum upp tekjutap

Suður-Kórea mun eyða 140,3 milljörðum dala til að bæta sjómönnum og bændum upp tap sem þeir verða fyrir vegna samnings um frjáls viðskipti við Bandaríkin. Samningurinn gildir til ársins 2013 og búist er við að efnahagur S-Kóreu styrkist til muna.

Lúkasar minnst með kertavökum í kvöld

Kertavaka til minningar um hund sem var drepinn með hrottalegum hætti á Akureyri á dögunum verður haldin í Reykjavík, Akureyri og á Vopnafirði í kvöld. Miklar umræður hafa spunnist á Netinu vegna málsins en þar er því haldið fram að ungir drengir hafi sett hundinn ofan í íþróttatösku og sparkað töskunni á milli sín þar til hann var allur.

Gefur lítið fyrir ráðleggingar Hafró

Guðmundur Einarsson, skipstjóri í Bolungarvík, gefur lítið fyrir ráðleggingar Hafrannsóknarstofnunar um að skera niður aflaheimildir um þriðjung. Hann segir nóg af þorski í sjónum og nær væri að friða loðnuna.

Táningur handtekinn fyrir morð í Englandi

Táningur hefur verið handtekinn fyrir morðið á hinum 14 ára gamla Martin Dinnegan. Dinnegan var stunginn til bana eftir að hann og vinir hans lentu í útistöðum við 20 manna hóp á þriðjudaginn.

Bolungarvík fær 400 tonn af rækju

Fjörkippur hljóp í rækjuvinnslu á norðnverðum Vestfjörðum þegar heilfrystri rækju úr Barentshafi var landað þar í morgun til fullvinnslu en rækjuvinnsla hefur legið þar niðri í röska þrjá mánuði.

Tveir láta lífið í sjálfsmorðsárás í Kabúl

Tveir vestrænir öryggisverðir létu lífið í dag í höfuðborg Afghanistan, Kabúl. Mennirnir létust þegar ráðist var að bílalest þeirra með sjálfmorðssprengjubíl. Talíbanar segjast bera ábyrgð á árásinni.

40 missa vinnuna á Ísafirði við gjaldþrot Miðfells

Stjórnendur rækjuvinnslunnar Miðfells hf. funduðu með starfsfólki í morgun þar sem gjaldþrot fyrirtækisins var kunngjört. Frá þessu er greint á heimasíðu Bæjarins besta í dag. Um 40 manns missa vinnuna í kjölfarið.

Hafa áhyggjur af fé vegna þurrka

Bændur hafa áhyggjur af fé sem komið er á afrétt þar sem vitað er að sum vatnsból sem féð gengur í eru að þorna upp eða eru hreinlega þornuð vegna langvarandi þurrka.

175% hækkun framlaga til Ríkislögreglustjóra

Hækkun á fjárframlögum hins opinbera til embættis Ríkislögreglustjóra á árunum 2002 þúsund og 2006 nemur rúmum 175 prósentum. Ragnar H. Hall hæstaréttarlögmaður efast um að þeim fjármunum hafi verið vel varið.

Menntun flóttabarna

Átta milljón börn flóttamanna munu njóta menntunar ef áætlun Alþjóðasamtaka Barnaheilla nær fram að ganga. Þegar hafa þau komið á þriðju milljón barna til hjálpar. Neyðarteymi samtakanna fundar í Reykjavík þessa dagana.

Inga Dóra ráðin ráðgjafi heilbrigðisráðherra

Dr. Inga Dóra Sigfúsdóttir hefur verið ráðin í tímabundna stöðu sem ráðgjafi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, ráðherra heilbrigðismála, um stefnumótun í heilbrigðismálum með sérstaka áherslu á forvarnir og lýðheilsu. Inga Dóra er forseti Kennslufræði- og lýðheilsudeildar Háskólans í Reykjavík og þangaði mun hún snúa aftur þegar verkefninu lýkur.

Sjúkrahús í Los Angeles losa sig við heimilislausa

Saksóknarar í Los Angeles hafa skráð borgaralega kvörtun gegn tveimur sjúkrahúsum og flutningafyrirtæki fyrir að losa sig við heimilislausa sem þurfa hjálp. Vitað er um fjögur aðskilin atvik. Á meðal þeirra sem hafa verið sendir í burtu er hinn 54 ára gamli Gabino Olvera.

Búist við að viðgerð ljúki eftir hádegi

Enn er heitavatnslaust í stórum hluta Hólahverfis í Breiðholti. Viðgerð stendur yfir og segja Orkuveitumenn hana ganga vel. Búist er við að heitavatnið verði komið á eftir hádegi.

Mikil endurnýjun í stjórn Browns

Gordon Brown, nýr forsætisráðherra Bretlands, skipaði í dag Jacqui Smith innanríkisráðherra í ríkisstjórn sinni og David Miliband, fráfarandi umhverfisráðherra, sem utanríkisráðherra landsins. Smith er fyrsta konan sem gegnir embætti innanríkisráðherra en mikil endurnýjun er í stjórn Browns.

Lockerbie-málið verður tekið upp á ný

Hæstiréttur Skotlands þarf að taka fyrir áfrýjun í máli líbíska leyniþjónustumannsins Abdel Basset al-Megrahi sem sakfelldur var fyrir aðild sína að Lockerbie sprengjuárásinni árið 2001. Sjálfstæð eftirlitsnefnd skoska ríkisins komst að þessari niðurstöðu í morgun. Víst þykir að aðstandendur fórnarlambanna eigi eftir að mótmæla niðurstöðunni harkalega.

Íbúi í Álafosskvos segir vegarlagningu hafna

Helgafellsvegurinn svokallaði, sem ollið hefur miklum deilum síðustu mánuðu hefur verið lagður að mestu án þess að lögbundnu kynningarferli vegna lagningu brautarinnar sé lokið, að sögn íbúa í Álafosshverfi. Formaður skipulagsnefndar segir að aðeins sé um fráveituframkvæmd að ræða.

Dómur í Baugsmálinu í dag

Dómur verður kveðinn upp klukkan þrjú í dag í þeim hluta endurákærunnar í Baugsmálinu sem Hæstiréttur vísaði aftur í hérað. Um er að ræða níu heila ákæruliði og hluta tveggja annarra sem héraðsdómur vísaði frá í upphafi maímánaðar eftir ein umfangsmestu réttarhöld í íslenskri réttarsögu.

FIFA endurskoðar hæðarbann

Forseti FIFA, Sepp Blatter, sagði í dag að hann myndi endurskoða ákvörðun sambandsins um að banna alþjóðlega knattspyrnuleiki 3.000 metrum yfir sjávarmáli og athuga hvort ætti að ógilda hana. Yfirlýsing Blatters kemur í kjölfar fundar með forseta Bólivíu, Evo Morales. Það var í gær sem að FIFA ákvað að hækka viðmiðið úr 2.500 metrum í 3.000. Lokaniðurstöðu í málinu verður að vænta í næstu viku.

Unglingspiltur dregur játningu til baka í Bandaríkjunum

Kenneth Bartley hefur dregið játningu sína til baka, en hann var dæmdur fyrir tæplega tveimur árum fyrir morð á aðstoðarskólastjóranum sínum. Einnig var hann dæmdur fyrir tilraun til manndráps. Bartley, sem er 15 ára, segir nú að þáverandi lögfræðingur sinn hafi sagt honum að játa.

Skiptar skoðanir um ágæti Blairs í hlutverki sáttasemjara

Skiptar skoðanir eru á meðal Palestínumanna um ágæti skipunar Tony Blairs í starf sérstaks erindreka Miðausturlandakvartettsins svokallaða. Forseti Palestínu, Mahmoud Abbas fagnaði tilnefningunni en Hamas, samtök herskárra Palestínumanna eru ekki eins hrifin.

Hörð átök í fátækrahverfum Rio de janeiro

Að minnsta kosti 18 létu féllu í hörðum bardögum brasílískra lögreglumanna og íbúa í fátækrahverfi í Rio de Janeiro í dag. Fjölmennar sveitir lögreglumanna fóru inn í hverfið og segja yfirvöld að hinir föllnu hafi verið grunaðir um eiturlyfjasmygl.

Bíll brann í Ármúla

Eldur kom upp í bíl í Ármúla klukkan tuttugu mínútur í tíu í kvöld. Verið var að draga bílinn þegar eldurinn blossaði upp. Slökkvilið og lögregla mættu á staðinn og slökktu eldinn en bíllinn er talinn ónýtur. Örsök eldsins er ókunn sem stendur.

Vilja aftökur án dóms og laga

Meirihluti íbúa Gvatemala eru þeirrar skoðunar að lögregla og aðrir sjálfskipaðir baráttumenn gegn glæpum sé stætt á því að myrða glæpamenn án dóms og laga. Þetta kom fram í könnun dagblaðs sem sagt er það virtasta þar í landi. Landsmenn trúa því margir að þessháttar aðgerðir myndu draga úr glæpum í landinu.

Ræningjarnir skildu tuttugu milljarða eftir

Réttarhöld standa nú yfir sakborningum í stærsta peningaráni í sögu Bretlands. Ránið var framið í febrúar í fyrra og komust mennirnir á brott með sex og hálfan milljarð íslenskra króna í reiðufé þegar þeir rændu peningageymslu í Kent. Þeir neyddust hins vegar til að skilja um tuttugu milljarða eftir á staðnum, vegna þess að þeir komu þeim ekki fyrir í bílnum sem þeir notuðu við ránið.

Krefjast gagna vegna hlerana

Öldungadeild bandaríska þingsins hefur krafið Hvíta Húsið um skjöl sem tengjast eftirliti stjórnvalda á grunuðum hryðjuverkamönnum. Ráðamenn í Hvíta húsinu hafa hingað til neitað að afhenda gögnin og Bush forseti hefur þvertekið fyrir að lög hafi verið brotin þegar hleranir voru fyrirskipaðar án þess að fyrir þeim væru heimildir.

Sjávarútvegur í Færeyjum vill engan samdrátt

Ráðgjafanefnd sjómanna og útgerðarmanna í Færeyjum leggur til að tillögur fiskifræðinga um samdrátt í veiðum við Færeyjar verði algerlega hunsaðar. Einn nefndarmanna segir nánast ekkert hafi verið hlustað á varnaðarorð fræðinganna í tíu ár og reynslan sýni að ráðgjöf þeirra hafi verið vitlaus.

Nasdaq og OMX funda í Keflavík

Sendinefndir frá Nasdaq og OMX hafa setið á fundum í Reykjanesbæ í allan dag. Frá þessu er greint á heimasíðu Víkurfrétta. Samtals mættu um 30 manns til þessa fundar bandaríska verðbréfamarkaðarins Nasdaq og sænska fyrirtækisins OMX, sem rekur kauphallir á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjum.

Öryrki eftir gálausan akstur

Í einum vetfangi missti fjölskyldumaður í fullri vinnu heilsuna og það líf sem hann áður þekkti - allt vegna bílstjóra sem var að flýta sér milli akreina. Baldvin Jónsson, fyrrverandi formaður Sniglanna, er öryrki í dag og svo fullur af skrúfum að hann þarf röntgenmyndir með til útlanda - svo hann komist í gegnum vopnaleitarhlið flugvallanna.

Hakvæmast að stöðva þorskveiðar

Samkvæmt mati Hagfræðistofnunar er það besta leiðin til að byggja upp þorskstofninn að stöðva veiðar alveg í nokkur ár. Heildarniðurstaða stofnunarinnar styður tillögur Hafró um stórfelldan samdrátt í þorskveiðum. Hagfræðistofnun metur áhrif þess að 250-550 smaár útgerðir leggi upp laupana.

Sjá næstu 50 fréttir