Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Láta ekki liðinn tíma hafa áhrif á komandi samstarf Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir stefnuskrá ríkistjórnarinnar endurspegla þau atriði sem flokkurinn lagði áherslu á fyrir kosningar. Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir flokkana sammála um að láta ekki liðinn tíma hafa áhrif á komandi stjórnarsamstarf. Þetta kom fram í máli formannanna á blaðamannafundi á Þingvöllum fyrir skemmstu. 23.5.2007 11:30
Ankara sprenging var sjálfsmorðsárás Nú er ljóst að sprengjutilræðið sem varð sex manns að bana og særði meira en 100 manns í Ankara í Tyrklandi í gær var sjálfsmorðsárás. Kemal Onal ríkisstjóri höfuðborgarinnar tilkynnti í dag að rannsóknir á vettvangi leiddu þetta í ljós. Sprengingin varð á háannatíma við verslunarmiðstöð í Ulus sem er fjölfarið verslunar og markaðshverfi. 23.5.2007 11:19
Þingvallastjórn vill endurskoða landbúnaðarkerfi og lífeyriskjör þingmanna Áhersla verður lögð á að tryggja stöðugleika í íslenska efnahagslífinu og farið verður í endurskoðun á landbúnaðarkerfinu og eftirlaunum þingmanna og ráðherra ef ásamt því að lengja fæðingarorlof í áföngum. Þetta kom fram á fréttamannafundi á Þingvöllum í morgun þar sem formenn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins fóru yfir stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar. 23.5.2007 11:00
Tólf dæmdir fyrir morð á serbneskum forsætisráðherra Serbneskur dómstóll hefur dæmt 12 menn fyrir morðið á hinum vesturlandasinnaða forsætisráðherra Zoran Djindjic í Belgrad árið 2003. Allir hinna dæmdu höfðu neitað ákærunum, en þeir eru meðal annars meðlimir öryggislögreglunnar og eru taldir tengjast mafíuforsprökkum. 23.5.2007 10:53
Danir styðja hvalveiðar undir eftirliti Dönsk stjórnvöld ætla að styðja hvalveiðar undir ströngu eftirliti vísidanefndar Alþjóðahvalveiðiráðsins. Per Stig Möller utanríkisráðherra segist njóta stuðnings umhverfisnefndar þingsins í þessu máli enda sé hér miðað við sjálfbærar veiðar, sem ekki ógni hvalastofnunum. 23.5.2007 10:42
130 sviptir ökuskírteini fyrir hraðakstur í Danmörku Ríflega 130 manns voru sviptir ökuskírteini í sérstöku umferðarátaki lögreglunnar í Danmörku í síðustu viku. Fram kemur á vef Jótlandspóstsins að alls hafi 1400 ökumenn verið teknir fyrir of hraðan akstur á hraðbrautum Danmerkur. 23.5.2007 10:15
Björn sáttur við niðurstöðuna Björn Bjarnason, sem verður áfram dóms- og kirkjumálaráðherra í nýrri ríkisstjórn, segir að honum lítist vel á þá niðurstöðu sem varð í vali á ráðherrum Sjálfstæðisflokksins og samstarfið við Samfylkinguna. Góð samstaða hafi verið um málefnasamninginn hjá sjálfstæðismönnum og líka um verkaskiptinguna. 22.5.2007 23:13
Kristján segist fara í draumaráðuneytið Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi og nýr samgönguráðherra, sagðist eftir að tilkynnt var um hverjir yrðu ráðherrar flokksins að samgönguráðuneytið hefði verið draumaráðuneytið sitt. Hann hefði lengi haft áhuga á samgöngumálum og setið í samgöngunefnd Alþingis síðastliðin tvö kjörtímabil. 22.5.2007 22:18
Nýr iðnaðarráðherra mun stíga varlega til jarðar Mitt stærsta verkefni verður að skapa sátt á milli verndunarsjónarmiða og nýtingarsjónarmiða,“ segir Össur Skarphéðinsson, nýr iðnaðarráðherra. Hann segir stóriðjumálin hafa skipt þjóðinni í tvennt. „Við ætlum að byrja upp á nýtt.“ 22.5.2007 22:11
Svona er þetta bara „Svona er þetta bara,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, eftir að ljóst var að hún er eina konan af hálfu Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn. Hún verður áfram menntamálaráðherra. 22.5.2007 22:09
Ágúst Ólafur: Þarf að taka tillit til margra sjónarmiða við val á ráðherrum Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segir að líta hafi þurfti til margra sjónarmiða þegar ákveðið var hverjir yrðu ráðherrar flokksins. Hann varð ekki fyrir valinu hjá formanninum í þetta sinn. 22.5.2007 21:58
Viðskiptaráðuneytið spennandi Björgvin G. Sigurðsson nýr viðskiptaráðherra Samfylkingarinnar segir viðskiptaráðuneytið spennandi ráðuneyti og mörg stór verkefni framundan á þeim vettvangi. Hann lýsti ánægju sinni með stjórnarsáttmálann, sáttmálinn væri metnaðarfullur og hefði fengið glymjandi fínar móttökur hjá flokksmönnum. 22.5.2007 21:53
Tími Jóhönnu kominn Jóhanna Sigurðardóttir, verðandi ráðherra velferðarmála, segist hlakka til að setjast aftur í ráðherrastól en hún sat sem félagsmálaráðherra á árunum 1987-1994. Aðspurð segir hún ráðuneytið hafa breyst mikið síðan þá og bendir á að almannatryggingarnar færist nú til þess frá heilbrigðisráðuneytinu. 22.5.2007 21:46
Mikilvæg ráðuneyti undir stjórn Samfylkingarinnar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir það hafa verið erfitt verk að velja fólk á ráðherralista flokksins. Hún segist ánægð með að flokkurinn skuli fara fyrir samgönguráðuneytinu, en Kristján L. Möller er nýr samgönguráðherra. Hún segir flokkinn einnig leggja mikla áherslu á ráðuneyti hins nýja atvinnulífs, iðnaðarráðuneytið og viðskiptaráðnuneytið. 22.5.2007 21:39
Munum standa vörð um hagsmuni landbúnaðarins Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir það spennandi tilhugsun að taka við báðum ráðuneytunum en hann hefur verið sjávarútvegsráðherra í nærri tvö ár. 22.5.2007 21:09
Nýjar þingkonur hefðu viljað sjá fleiri konur á meðal ráðherra Arnbjörg Sveinsdóttir segir að konur innan flokksins finni sinn tíma og að þær komi sterkar inn á öðrum sviðum í störfum flokksins. Nýjir þingmenn flokksins, þær Guðfinna Bjarnadóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir segjast báðar hafa viljað sjá fleiri konur í ráðherraliðinu. 22.5.2007 20:44
Hefði kosið jafnari hlut kynjanna Ásta Möller, þingkona Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna, segist hafa kosið betri hlut kvenna í nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, en fimm af ráðherrum flokksins eru karlar. 22.5.2007 20:34
Kostir einkareksturs nýttir í meiri mæli segir nýr heilbrigðisráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson verður heilbrigðisráðherra í nýrri ríkisstjórn. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu hefur verið skipt upp og í samtali við Stöð 2 sagði Guðlaugur að breytingin felist helst í því að almannatryggingarnar fara úr heilbrigðisráðuneytinu en að sjúkratryggingar verði áfram undir hatti heilbrigðisráðherra. 22.5.2007 20:33
Sturla hefði viljað sitja áfram sem ráðherra Sturla Böðvarsson sem hverfur úr samgönguráðuneytinu og sest í stól forseta Alþingis segist hafa viljað vera ráðherra áfram í nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar en þetta hafi verið niðurstaðan í flokknum. 22.5.2007 20:29
Annasamur dagur hjá Geir og Ingibjörgu Stjórnarsáttmálinn og ríkisstjórnaraðild verða borin undir fundi flokksráðs Sjálfstæðisflokks og flokksstjórnar Samfylkingarinnar í kvöld og ráðherralistar undir þingflokka. Búist er við að formenn flokkanna kynni hvaða ráðherrar sitja í ríkisstjórninni að loknum fundunum. 22.5.2007 19:35
Éta lifandi kýr gestum til skemmtunar Starfsmenn dýragarða í Kína hafa orðið uppvísir af ómannúðlegri meðferð á dýrum. Birnir og apar eru látnir vinna erfiðisverk á meðan tígrisdýrum eru mötuð á lifandi dýrum, gestum til skemmtunar. Fjölskylduskemmtun segja rekstraraðilar. 22.5.2007 19:00
Strætóferðir á 30 mínútna fresti í sumar Öllu leiðarkerfi Strætó bs. verður breytt yfir sumartímann þannig að allar ferðir verða á hálftíma fresti í stað tuttugu mínútna. Ástæðan er sparnaður, starfsmannekla og færri farþegar á sumrin segir nýráðinn framkvæmdastjóri Strætó. 22.5.2007 18:52
Endurvinnsluátak í pappír Aðeins fjörutíu prósent af dagblöðum, tímaritum og bæklingum sem borin eru í hús fara í endurvinnslu og næstum þriðjungur af heimilissorpinu er pappír. Hópur fyrirtækja hefur ákveðið að hefja átak til að hvetja almenning til endurvinnslu á pappír. 22.5.2007 18:45
Segist saklaus Rússar ætla ekki að framselja fyrrverandi KGB mann sem Bretar ætla að ákæra fyrir morðið á njósnaranum Alexander Litvinenko. Sá ákærði segir pólitískar hvatir að baki málinu af hálfu Breta - hann hafi ekki myrt Litvinenko. 22.5.2007 18:45
Aukafréttatími Stöðvar 2 á Vísi Í kvöld verða ráðherralistar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar kynntir. Um leið og tíðindi berast úr herbúðum flokkana fer í loftið bein útsending á Stöð 2 og hér á Vísi. Smellið á takkann spila hér fyrir neðan til þess að fylgjast með útsendingunni. 22.5.2007 18:42
Öflug, frjálslynd umbótastjórn Væntanleg ríkisstjórn verður öflug og frjálslynd umbótastjórn að sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur formanns Samfylkingarinnar. Jafn margar konur og karlar munu skipa ráðherraembætti flokksins. 22.5.2007 18:30
Öflug sprenging í Ankara Að minnsta kosti 4 týndu lífi og rúmlega 60 særðust þegar sprengja sprakk á háannatíma við verslunarmiðstöð í Ankara, höfuðborg Tyrklands, nú síðdegis. Erdogan forsætisráðherra segir hryðjuverk sem verði refsað fyrir. Engin samtök hafa lýst illvirkinu á hendur sér. 22.5.2007 18:30
Framsóknarmenn þöglir um framtíð formannsins Framsóknarmenn gefa ekkert uppi um framtíð Jóns Sigurðssonar formanns flokksins og sjálfur tjáir hann sig ekki við fjölmiðla. Siv Friðleifsdóttir var í dag kjörin þingflokksformaður flokksins og segjast þingmenn Framsóknar ætlað að veita frjálshyggjustjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar harða stjórnarandstöðu. 22.5.2007 18:30
Njálsgötubúar á íbúafundi í Austurbæjarskóla Bakgarðurinn við fyrirhugað heimili fyrir húsnæðislausa á Njálsgötunni verður segull á ógæfumenn miðborgarinnar, segir íbúi við Njálsgötu. Íbúar fjölmenntu nú síðdegis á fund sem borgin hélt um málið. Borgarstjóri boðaði þar samráðshóp með fulltrúum íbúa. 22.5.2007 18:29
Konum fækkar í stjórnum fyrirtækja Engin kona situr í stjórn rúmlega sjötíu af hundrað stærstu fyrirtækjum landsins. Tvær konur gegna í þeim stjórnarformennsku. 22.5.2007 18:26
Ingibjörg Sólrún utanríkisráðherra Í kvöldfréttum RÚV var greint frá því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verði utanríkisráðherra í nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Fréttastofan segist hafa fyrir þessu öruggar heimildir. 22.5.2007 18:06
Geir gengur á fund forsetans í fyrramálið Fundur hefur verið boðaður á Bessastöðum á morgun klukkan hálftíu en þá mun Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, ganga á fund Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu forsetans. 22.5.2007 17:03
Staðfestir gæsluvarðhald vegna líkamsárásar Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir karlmanni á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa brotist inn á heimili á Skólavörðustíg í gengið í skrokk á húsráðanda og skilið hann eftir meðvitundarlausan. 22.5.2007 16:54
Frumherji íhugar að áfrýja úrskurði Samkeppniseftirlitsins Sú ákvörðun Samkeppniseftirlitsins að ógilda samruna bílaskoðunarfyrirtækjanna Frumherja og Aðalskoðunar veldur vonbrigðum að sögn framkvæmdastjóra Frumherja. Hann segir fyrirtækið muni meta það á næstu dögum hvort úrskurðinum verði áfrýjað. 22.5.2007 16:39
Teymishópur ræðir atvinnumál á Vestfjörðum á morgun Teymishópur sveitarfélaga á norðanverðurm Vestfjörðum sem skipaður hefur verið í kjölfar uppsagna hjá útgerðafyrirtækinu Kambi á Flateyri kemur saman í fyrsta sinn í hádeginu á morgun og ræðir hugsanlegar aðgerðir í atvinnumálum á svæðinu. 22.5.2007 16:37
Sprenging í Tyrklandi Sprengja sprakk í Ankara höfuðborg Tyrklands nú fyrir stundu. Fréttastofa CNN hefur eftir borgarstjóranum í Ankara að fjórir hafi látist í sprengingunni sem varð við inngang verslunarkjarna í Ulus hverfi. 56 munu vera særðir. 22.5.2007 16:35
Spá óvenju virku fellibyljatímabili Yfirvöld í Bandaríkjunum spá því að komandi fellibyljatímabil verði virkara en í meðalári, með um 13 til 17 storma, þar af sjö til tíu sem verði að fellibyljum. Af þeim verði þrír til fimm afar sterkir, eða í flokk þrjú, þar sem vindhviður eru um 180 km á klukkustund. 22.5.2007 16:13
Tónlist.is staðið skil á stefgjöldum Eigendur vefsíðunnar Tónlist.is hafa staðið skil á öllum stefgjöldum til Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEF). Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá framkvæmdastjóra STEFs. 22.5.2007 16:04
Lugovoj segist hafa sannanir fyrir sakleysi sínu Andrei Lugovoj, fyrrverandi njósnari hjá KGB, neitar því að hafa hafa orðið fyrrverandi félaga sínum, Alexander Litvinenko, að bana og segir ákæru sem bresk stjórnvöld hafa gefið út í málinu eiga sér pólitískar rætur. 22.5.2007 15:47
Byggja 4 þúsund fermetra gagnageymslu á gamla varnarsvæðinu Stefnt er að því að byggja 4 þúsund fermetra húsnæði fyrir gagnageymslu og gagnaþjónustu á gamla varnarsvæðinu við Sandgerðisbæ. Það er Data Íslandia sem stendur fyrir verkefninu en fyrirtækið skrifaði undir viljayfirlýsingu við Sandgerðisbæ í dag vegna framkvæmdarinnar. Gert er ráð fyrir því að um 20 manns vinni við gagnageymsluna til að byrja með. 22.5.2007 15:38
Demókratar ógna innflytjendafrumvarpi Öldungardeildarþing Bandaríkjanna mun í dag ræða og greiða atkvæði um tvær breytingartillögur demókrata á innflytjendafrumvarpi sem nú liggur fyrir þinginu. Í síðustu viku féllst George Bush Bandaríkjaforseti á tveggja flokka málamiðlunartillögu sem var þrjá mánuði í undirbúningi. Afgreiðslu á frumvarpinu hefur verið frestað um tvær vikur á meðan þingið fjallar um það. 22.5.2007 15:22
Geir fundar með einstökum þingmönnum fram undir kvöldmat Búist er við því að Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, verði fram undir kvöldmat að ræða við þingmenn flokksins og kynna þeim nýgerða stefnuyfirlýsingu flokksins og Samfylkingarinnar. 22.5.2007 15:21
Ísland til fyrirmyndar varðandi fæðingarorlof Íslenska foreldra- og fæðingarorlofskerfið er góð fyrirmynd fyrir önnur Evrópuríki að mati Ursulu von der Leyen, félagsmálaráðherra Þýskalands. Þetta kom fram á máli hennar á blaðamannafundi í tengslum við ráðstefnu félags- og jafnréttismálaráðherra í Evrópu sem haldin var í síðustu viku. 22.5.2007 15:20
Lenda á íseyju Vísindamenn hafa lent á risastóri íseyju sem er á stærð við Manhattaneyju. Eyjan flýtur um Atlandshafið og er nú 600 kílómetra fyrir utan Norðurpólinn. 22.5.2007 15:16
Jafnræði kynja í ríkisstjórninni af hálfu Samfylkingarinnar „Já, við erum að tala við þingmennina og svo verður þingflokksfundur hjá okkur klukkan sjö og flokksstjórnarfundur klukkan átta þannig að það er tíðinda að vænta," sagði Ingibjörg Sólrún Gíslasdóttir, formaður Samfylkingarinnar, í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 nú eftir hádegið 22.5.2007 15:09