Forsetinn fluttur með þyrlu á Landspítala 6. maí 2007 19:00
Forseti Íslands var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi vegna veikinda. Hann gengst nú undir rannsóknir en ekki er talið að veikindi hans séu alvarleg. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og forsetafrúin voru viðstödd opnun vatnasafns í Stykkishólmi í gær og í gærkvöldi sátu þau kvöldverð í boði bankastjóra Kaupþings. Kvöldverðurinn stóð langt fram eftir kvöldi en forsetahjónin gistu síðan á Hótel Búðum. Ekki er talið að veikindi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, séu alvarleg og líklegt að hann verði útskrifaður af spítalanum á morgun. Örnólfur Thorsson, forsetaritari, segir það hafa verið mat lækna sem skoðuðu forsetann á Búðum að rétt væri að færa hann til rannsóknar á Landspítala-háskólasjúkrahús. Hann segir Forsetann hafa sýnt ákveðin þreytueinkenni sem rekja mætti til mikillar vinnu. Þá segir Örnólfur að Rannsóknir á spítalanum hafi ekki sýnt neitt alvarlegt og því sé gert er ráð fyrir að Ólafur Ragnar verði útskrifaður af spítalanum á morgun. Örnólfur segir að fram til þessa hafi forsetinn verið heilsuhraustur og ekki kennt sér neins meins.
Fréttir Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Erlent Fleiri fréttir Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Sjá meira