Fleiri fréttir

Slasaðist alvarlega á fjórhjóli

Maður slasaðist alvarlega á fjórhjóli við Hvítársíðu skammt frá Húsafelli um tvö leitið í nótt. Hann var fluttur á slysadeild í Reykjavík. Samkvæmt vakthafandi lækni er maðurinn hryggbrotinn og liggur á gjögræslu. Hann fer í aðgerð seinna í dag. Tildrög slyssins eru ókunn.

Búið að opna þjóðveginn á Öxnadalsheiði

Búið er að opna þjóðveginn á Öxnadalsheiði eftir að vegurinn lokaðist þegar tengivagn af olíubíli valt þar í morgun. Enginn slys urðu á fólki en vagninn fór á hliðina ofan við Bakkaselsbrekku og úr honum lak skipaolía. Lögregla beindi umferð um Lágheiði, en nú er umferð stjórnað um svæðið þar sem óhappið varð.

Maðurinn sem fannst í blóði sínu í húsi í Hveragerði er látinn

Karlmaður á sextugsaldri sem fannst liggjandi í blóði sínu í heimahúsi í Hveragerði lést á sjúkrahúsi í Reykjavík í gærkvöldi. Ekki er talið að átök hafi átt sér stað, en húsráðandi gisti fangageymslur lögreglu í nótt vegna málsins. Vegna ölvunarástands var ekki unnt að yfirheyra hann fyrr en í morgun. Hann er nú frjáls ferða sinna.

Léttir að sleppa við stigafrádrátt

„Aðalmálið er að það voru ekki tekin af okkur stig. Það er langstærsta atriðið,“ sagði Eggert Magnússon, stjórnarformaður enska fótboltaliðsins West ham, sem í gær var sektað um jafnvirði 709 milljóna íslenskra króna.

Fékk meldingar og ræddi ekki Palestínu

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra undrast að Geir H. Haarde forsætisráðherra taki ekki afstöðu til samskipta við Palestínu því málið hafi ekki verið rætt í ríkisstjórn. Hún hafi fengið meldingar um málið úr forsætisráðuneytinu.

Heyrnarlausar og þroskaheftar konur misnotaðar

Liðsmaður misnotaði kynferðislega tvær heyrnarlausar og þroskaheftar konur á menningarhátíð heyrnarlausra á síðasta ári. Konurnar hafa notið aðstoðar ráðgjafa en málið hefur ekki verið kært til lögreglu.

Grátbiðja Uribe um að hefja viðræður

Tólf kólumbískir þingmenn sendu í dag forseta landsins, Alvaro Uribe, skilaboð um að hefja viðræður við uppreisnarmenn, FARC, sem hafa haldið þeim föngnum síðastliðin fimm ár. Fjölskyldur mannanna grétu á meðan þær horfðu á myndband þar sem þeir minntust barnanna sinna, heilsuðu eiginkonum sínum og grátbáðu Uribe að hefja viðræður við uppreisnarmennina.

Ætla að auka viðskipti yfir Atlantshafið

Leiðtogar Bandaríkjanna og Evrópusambandsins munu á mánudaginn kemur taka stórt skref í áttina að því að auka viðskipti yfir Atlantshafið. Þá skrifa Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, undir rammasamkomulag um frekari viðskipti. Þau ætla sér einnig að reyna að ljúka Doha viðræðunum, sem núna eru á sjötta ári, fljótlega.

Knattspyrna hvetur til kynlífs

Þýsk yfirvöld hafa skýrt frá því að fæðingar hafa aukist um 30 prósent miðað við sama tíma í fyrra. Og hver gæti ástæðan verið? Jú, knattspyrna.

Wolfowitz yfirheyrður á mánudaginn

Paul Wolfowitz, forseti Alþjóðabankans, og kærastan hans, Shaha Riza, munu koma fram fyrir sérstaka nefnd Alþjóðabankans á mánudaginn kemur til þess að svara spurningum um aðkomu hans að stöðu- og launahækkun Riza. Lögfræðingur Wolfowitz segir að þar muni koma fram að engir hagsmunaárekstrar hafi átt sér stað og að allt sé með felldu.

Kona giftist fjórum konum

Nígerísk lesbía frá ríkinu Kano, sem giftist fjórum konum um síðustu helgi, hefur farið í felur til þess að forðast íslömsku lögregluna. Samkvæmt íslömskum Sharia-lögum, sem voru sett á fyrir sjö árum, er samkynhneigð sem og hjónabönd fólks af sama kyni bönnuð. Bæði brotin eru talin mjög alvarleg. Til að mynda var leikhúsið þar sem brúðkaupið fór fram brotið niður.

Tyrkneski herinn segist verndari stjórnkerfisins

Herinn í Tyrklandi sendi í kvöld frá sér yfirlýsingu um að hann fylgdist vel með forsetakosningum þar í landi. Herinn sagðist hafa áhyggjur af stöðu mála eftir að fyrsta umferð kosninganna leiddi til pattstöðu á milli stjórnarflokka og stjórnarandstöðu. Tyrkneska þingið kýs forseta landsins.

Eldur í heimahúsi í Hafnarfirði

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk klukkan 21:10 í kvöld tilkynningu um eld í heimahúsi við Öldugötu í Hafnarfirði. Íbúum hafði tekist að slökkva eldinn þegar að slökkvlið og lögreglu bar að garði en það var aðeins fjórum mínútum síðar. Á meðan reykræstingu stóð þurfti að loka götunni. Talið er að um minniháttar tjón hafi verið að ræða. Engin slys urðu á fólki.

Solana hvetur Bandaríkin til viðræðna

Utanríkismálaráðherra Evrópusambandsins, Javier Solana, hvatti í kvöld Bandaríkin til þess að hefja beinar viðræður við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra. Solana sagðist jafnframt öruggur um að Íranar væru tilbúnir til slíkra viðræðna.

Kostnaður við endurbætur margfaldast

Kostnaður við endurbætur á Grímseyjarferju verður margfalt meiri en áætlun gerði ráð fyrir. Klúður segir þingmaður í samgöngunefnd alþingis sem telur að ódýrara hefði verið að kaupa nýtt skip.

Fannst liggjandi í blóði sínu

Í dag kl. 17:13 barst lögreglunni á Selfossi tilkynning um að maður á sextugsaldri lægi í blóði sínu í húsi í Hveragerði. Lögregla og sjúkraflutningamenn fóru þegar á vettvang . Maðurinn var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík og er þungt haldinn.

Viðskipti með demanta frá Líberíu leyfð

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna aflétti í dag sex ára banni á útflutning á líberískum demöntum. Banninu hafði verið ætlað að koma í veg fyrir viðskipti með svokallaða blóðdemanta en slík viðskipti fjármagna oftar en ekki stríðsherra í borgarastyrjöldum.

Sorpa fékk sjö metanknúna bíla

Sorpa bs. fékk í gær afhenta sjö metanknúna Volkswagen bíla frá Heklu. Þetta kom fram í fréttatilkynningu sem Hekla sendi frá sér í kvöld. Um er að ræða fjóra VW Caddy life EcoFuel og þrjá VW Caddy EcoFuel. Bílarnir eru með tvíbrennihreyfli, sem þýðir að þeir geta gengið bæði fyrir metani og bensíni.

Lýsir yfir vonbrigðum með þjóðkirkjuna

Formaður Samtakanna '78 segir vonbrigði að þjóðkirkjan sé ekki tilbúin að leggja hjúskap samkynhneigðra til jafns við gagnkynhneigðra. Tillaga um að þjóðkirkjan fari þess á leit við Alþingi, að lögum verði breytt á þann veg að prestar fái að gefa saman samkynhneigð pör, var felld á Prestastefnu sem lauk í gær.

Uppsagnir í Bolungarvík

Stærsti vinnuveitandi Bolungarvíkur hefur sagt upp meginhluta starfsfólks síns. 48 starfsmönnum hjá rækjuvinnslunni Bakkavík í Bolungarvík hefur verið sagt upp í landvinnslu félagsins. Hjá landvinnslunni störfuðu 60 manns áður en til uppsagna kom Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að rekstur rækjuvinnslunnar hafi gengið erfiðlega undanfarin ár.

Reyndu að senda inn framboð eftir að frestur rann út

Baráttusamtökin náðu aðeins að skila inn framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar í einu kjördæmi áður en framboðsfrestur rann út á hádegi í dag. Samtökin gerðu hins vegar tilraun til að skila inn framboðum í hinum fimm kjördæmunum eftir að fresturinn rann út. Alls bjóða sex flokkar fram á landinu öllu en tæplega átta hundruð einstaklingar eru í framboði.

Kom ekki nálægt umsókn tengdadóttur sinnar

Umhverfisráðherra segist ekki hafa komið nálægt afgreiðslu umsóknar tengdadóttur sinnar um íslenskan ríkisborgararétt. Formaður allsherjarnefndar Alþingis segir nefndina ekki hafa vitað af tengslunum og ekkert athugavert sé við að henni var veittur ríkisborgararéttur eftir fimmtán mánaða dvöl á landinu.

Sláandi lík lógó

Umræða um það hve vörumerki geta oft verið keimlík kviknaði fyrr í mánuðinum þegar sameinuð félög ESSO, Bílanausts og fleiri fyrirtækja kynntu nýja nafnið sitt N1 og þar með nýtt vörumerki. ESSO merkið gamla var þurrkað út og N1 kom í staðinn. Vakti merkið reiði hjá forsvarsmönnum fjölmiðlafyrirtækisins N4 á Akureyri. Þótti merkið hjá N einum sláandi líkt N fjórum.

Þéttriðið varnarnet á Atlantshafi

Samningarnir við Dani og Norðmenn um öryggis- og varnarmál er liður í að þróa þéttriðið varnarnet á Norður-Atlantshafi. Það þurfi eftir brotthvarf Bandaríkjamanna. Þetta segir ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu. Nú sé samið við Breta og Kanadamenn og Þjóðverjar væntanlegir hingað til lands í næta mánuði að skoða aðstöðu.

172 al-Kaída liðar handteknir í Sádi-Arabíu

Yfirvöld í Sádi-Arabíu segjast hafa komið upp um ráðagerð al-Kaída um að ráðast á olíu- og herstöðvar í landinu. Lögreglan handtók 172, þar á meðal menn sem voru í þjálfun til þess að gerast sjálfsmorðsflugmenn. Þá lagði lögreglan hald á fjölvörg vopn og meira en 340 milljónir íslenskra króna.

Hættan liðin hjá?

Svissneska lyfjafyrirtækið Roche, framleiðandi inflúensulyfsins Tamiflu, hefur dregið úr framleiðslu á lyfinu þar sem framboð er orðið meira en eftirspurn. Lyfið er það sem helst hefur verið talið gagnast gegn mögulega mannskæðu afbrigði fuglaflensunnar, H5NI. Þá er lyfið einnig notað við hefðbundnum inflúensufaröldrum.

Líkamsmeiðingum fjölgar um helming

Fjöldi líkamsmeiðinga sem tilkynntar voru til lögreglu í mars fjölgaði um 50 prósent miðað við marsmánuð á síðasta ári. Ölvunarakstursbrot jukust um rúmlega 40 prósent. Þá hefur tíðni fíkniefnabrota stigvaxið í mánuðinum frá árinu 2003, en flest þeirra eru framin frá miðnætti til klukkan sex að morgni. Þetta kemur fram í nýrri samantekt lögreglunnar um fjölda afbrota á landinu í marsmánuði síðastliðin ár.

Landshlutafréttir streyma á Vísi

Íslendingar sem vilja fylgjast með fréttum utan höfuðborgarsvæðisins geta nú gert það á einum stað. Fréttir nokkurra helstu landshlutamiðla á Íslandi birtast nú á visir.is, á sérstökum vefhluta sem nefnist Landið, samkvæmt samkomulagi milli Vísis og viðkomandi miðla. "Þetta er liður í að efla enn fréttaþjónustu á visir.is," segir Þórir Guðmundsson ritstjóri Vísis. "Nú þegar starfar rúmur tugur fréttamanna við fréttaskrif á Vísi auk þess sem við birtum fréttir úr Fréttablaðinu og af Stöð tvö. Beinar útsendingar á Vísi af viðburðum innan- lands og utan eru stundum nokkrar á dag. Með þessari viðbót fá notendur okkar fréttir af landsbyggðinni skrifaðar af fagmönnum úr sinni heimabyggð." Fréttir frá vikurfrettir.is, skessuhorn.is, horn.is og austurlandid.is eru þegar farnar að birtast á Landinu. Gert er ráð fyrir að fleiri landshlutamiðlar bætist við á næstu vikum.

Sjóvarnargarðar verði hækkaðir

Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar hefur látið gera úttekt á sjóvörnum við Ánanaust og Eiðsgranda en síðustu misseri hefur verið töluverð ágjöf yfir núverandi sjóvarnir með tilheyrandi skemmdum í miklum óveðrum. Tillögur til úrbóta hafa verið lagðar fram og í þeim er gert ráð fyrir hækkun varnargarðanna.

Hræðilegar myndir af misþyrmingu hests

Sjónvarpsþættinum Kompás hafa borist ógnvekjandi myndir af illri meðferð á íslensku hrossi. Það sem virðist vera tamningamaður lemur hrossið ítrekað í kvið og andlit.

Al-Kæda foringi til Gvantanamo

Háttsettur íraskur foringi í Al-Kæda var sendur í fangabúðirnar í Gvantanamo flóa á Kúbu í þessari viku, að sögn bandaríska varnarmálaráðuneytisins.

Markaðsvæðing heilbrigðisþjónustu ESB

Róið er að því öllum árum að markaðsvæða heilbrigðisþjónustu í aðildarríkjum Evrópusambandsins. Þetta sagði Dorte Sindbjerg Martinsen frá Kaupmannahafnarháskóla í erindi sem hún flutti á ársfundi norrænna verkalýðsfélaga í vikunni. Hún segir ekki fara mikið fyrir áformunum, en ýmsir hagsmunaaðilar séu á bakvið þau. Þetta kemur fram í frétt á vef BSRB.

Harry hótar að hætta í hernum

Breska herstjórnin er orðin hikandi við að senda Harry prins til Íraks með hersveit sinni. Síðasti mánuður var sá blóðugasti sem breskir hermenn hafa upplifað í Írak, síðan innrásin var gerð árið 2003. Prinsinn er sagður hafa hótað því að hætta í hernum, ef hann verði ekki sendur. Harry er þriðji í erfðaröðinni til bresku krúnunnar.

Afar óheppilegt að listinn barst til Impregilo

Heilbrigðisstofnun Austurlands og Impregilo hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu. Þar segir að afar óheppilegt hafi verið að bráðabirgðalisti um sjúklinga sem mögulega urðu fyrir mengunaráhrifum í aðrennslisgöngum virkjunarinnar skuli hafa borist Impregilo. Listanum verður skilað til HSA.

Bakkavík segir upp 48 starfsmönnum

48 starfsmönnum hjá rækjuvinnslunni Bakkavík í Bolungarvík hefur verið sagt upp í landvinnslu félagsins. Hjá landvinnslunni störfuðu 60 manns áður en til uppsagna kom. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að rekstur rækjuvinnslunnar hafi gengið erfiðlega undanfarin ár.

Lærðu flug fyrir hryðjuverkaárásir

Grunaðir hryðjuverkamenn sem voru handtekinir í Saudi-Arabíu, voru að læra að fljúga til þess að geta gert sjálfsmorðsárásir á mikilvæg skotmörk eins og olíustöðvar og herstöðvar bæði innanlands og utan.

Víkingar með atgeir á lofti í bankaráni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um bankarán í útibúi Glitnis í Lækjargötu klukkan 13:25 í dag. Hópur fólks í víkingabúningum réðist inn í bankann. Þegar lögreglan kom á staðinn kom í ljós að um fíflalæti dimmiterandi skólakrakka var að ræða. Þau höfðu ráðist inn í bankann með miklum látum og öskrað að um bankarán væri að ræða.

Berlusconi sýknaður aftur

Áfrýjunardómstóll í Mílanó sýknaði í dag Silvio Berlusconi fyrrverandi forsætisráðherra, af ákærum um spillingu. Þetta er í annað skipti sem hann er sýknaður í þessu sama máli. Í fyrra skiptið var það árið 2004.

Skora á veitingamenn að lækka matarverð

Ákvörðun stórs hóps veitingamanna að lækka ekki verðskrá sína í kjölfar lækkun virðisaukaskatts veldur áhyggjum. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar Samtaka ferðaþjónustunnar. Stjórnin segir veitingamenn með þessu skaða trúverðugleika samtakanna.

Dansflokkurinn slær í gegn í Kína

Mikil eftirspurn hefur verið eftir miðum á sýningu Íslenska dansflokksins í Shanghai í Kína, segir Bryndís Nielsen, kynningarfulltrúi dansflokksins. Starfsfólk Shanghai Dramatic Arts Centre Theatre, þar sem sýningin fer fram, sagt að fáir atburðir hafi verið jafn vinsælir.

Sáttatillaga Hótel Sögu til klámframleiðenda

Hótel Saga hefur svarað kröfu lögmanna aðstandenda klámráðstefnunnar sem halda átti hér á landi með sáttatillögu. Ekki hefur verið gefið upp hver upphæð sáttatillögunnar er en aðstandendur ráðstefnunnar krefjast rúmlega 10 milljóna króna í skaðabætur frá hótelinu.

Einn lést og 60 særðust í óeirðum í Tallin

Maður var stunginn til bana og hátt í sextíu manns særðust í miklum óeirðum í Tallinn í Eistlandi í gærkvöldi. Átökin brutust út þegar hópur fólks mótmælti niðurrifi sovésks minnismerkis um afrek Rauða hersins í seinni heimsstyrjöldinni, sem staðið hefur í miðborg Tallinn í áratugi.

Framboðsfrestur útrunninn

Frestur til að skila inn framboðum fyrir komandi alþingiskosningar rann út klukkan tólf á hádegi. Tvö ný framboð hafa sótt um listabókstaf og hyggjast bjóða fram, Íslandshreyfingin og Baráttusamtökin. Ekki er þó enn ljóst hvort þau skiluðu inn framboðslistum í öllum kjördæmum.

Sjá næstu 50 fréttir