Fleiri fréttir

Markmiðið að tryggja sameiginlega hagsmuni

Markmið samninga Íslendinga við Dani og Norðmenn um öryggis- og varnarmál, sem undirritaðir voru í Ósló í gær, er að tryggja sameiginlega hagsmuni landanna í Norður-Atlantshafi. Auknu eftirliti með skipaferðum er ætlað að forða slysum við flutning á olíu og gasi.

Áhyggjur af viðbrögðum veitingamanna

Samtök ferðaþjónustunnar hefur miklar áhyggjur af viðbrögðum þeirra veitingamanna sem ekki lækkuðu verðskrár eftir 1. mars þegar virðisaukaskattur lækkaði. Þau segja samtöðu í málinu auka trúverðugleika samtakanna gagnvart stjórnvöldum. Hins vegar hafi skammtímasjónarmið ráðið ferðinni hjá mörgum á tímabilinu.

Hrottaleg árás unglinga á leigubílsstjóra

Leigubílstjóri liggur talsvert meiddur á Landsspítalanum, eftir að sextán ára unglingur og félagi hans réðust á hann og veittu honum alvarlega áverka með barefli í nótt. Bílstjóranum tókst að kalla á hjálp og var hann fluttur í sjúkrabíl á slysadeild. Snemma í morgun sást svo til unglings við að stela bíl við Sundlaugarnar í Laugardalnum og bar lýsing á honum saman við við útlit árásarmannsins. Hófst þá gríðarleg leit með þáttöku tuga leigubíla, að stolna bílnum, sem fanst mannlaus skömmu síðar. Eftir snarpa leit lögreglumanna þar á vettvangi, fanst unglingurinn og er nú verið að yfirheyra hann. Vitorðsmaðurinn er ófundinn.

Siðmennt fylgjandi hjónabandi samkynhneigðra

Siðmennt félag siðrænna húmanista á Íslandi vill að trúfélög fái heimild til að gefa saman samkynhneigð pör. Þeir telja að samkynhneigðir eigi að njóta sömu réttinda og aðrir í íslensku samfélagi. Þetta segir í fréttatilkynningu frá félaginu. Siðmennt sendi Allsherjarþingi Alþingis umsögn sína um frumvarp til laga um réttarstöðu samkynhneigðra á síðasta ári.

Flaska á viku

Breskar stúlkur á aldrinum ellefu til þrettán ára sem á annað borð innbyrða áfengi drekka að meðaltali flösku af léttvíni á viku, eða átta áfengiseiningar. Þetta kemur fram í skýrslu sem samtökin Alcohol Concern létu gera þar í landi. Breskir drengir á þessum aldri drekka enn meira, eða sem samsvarar einni og hálfri léttvínsflösku á viku.

Hafði ekki hugmynd um að stúlkan tengdist ráðherra

Guðrún Ögmundsdóttir, þingmaður, segir ekkert athugavert við að hinni 22 ára gömlu Luciu Celeste Molina Sierra var veittur íslenskur ríkisborgararéttur eftir fimmtán mánaða búsetu hér á landi. Hún segist ekki muna hvers vegna stúlkan hafi talist hæf til að hljóta undanþágu frá venjulegum reglum um veitingu ríkisborgararéttar.

Nú má svipta ökuníðinga bílnum

Ökuníðingar eiga framvegis yfir höfði sér að missa bíla sína fyrir fullt og fast til ríkissjóðs vegna ítrekaðra umferðarlagabrota. Þetta er samkvæmt nýrri reglugerð, sem tók gildi í gær. Að auki þurfa þeir að greiða sektir eins og hingað til, og missa ökuréttindin

Starfshópur til höfuðs mengun

Ríki og sveitarfélög hafa komist að samkomulagi um stofnun starfshóps um almenningssamgöngur sem finna á leiðir til að draga úr mengun af völdum bílaumferðar. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, undirrituðu samkomulagið í morgun.

Ugluhausar hata Travolta

Íbúar smábæjarins Ugluhöfuðs í Maine í Bandaríkjunum eru þreyttir mjög á nágranna sínum John Travolta. Ástæðan er sú að við Ugluhöfuð er lítill flugvöllur, fyrir litlar einkaflugvélar. Það er óskrifuð regla hjá flugmönnum sem nota hann hann ekki eftir klukkan tíu á kvöldin til klukkan sex á morgnana.

Slasaðist illa þegar hún féll af hestbaki

Kona á fimmtugsaldri slasaðist alvarlega í gær þegar hún féll af hestbaki í Hegranesi skammt austan við Sauðárkrók. Flytja þurfti hana með sjúkraflugi til Reykjavíkur til frekari aðhlynningar.

Marijúana í austurborginni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haldlagði 120 grömm af ætluðu marijúana í fyrirtæki í austurborginni í gær, að því er kemur fram í tilkynningu. Á sama stað fannst lítilræði af ætluðu amfetamíni í neysluskömmtum.

Rostropovich látinn

Hinn heimsfrægi sellóleikari og tónskáld Mstislav Rostropovich lést í dag, 80 ára að aldri. Rostropovich var elskaður og dáður fyrir list sína um allan heim. Hann var einnig dáður fyrir hetjulega mannréttindabaráttu sína á tímum Sovétríkjanna.

Forstjóri Alcan segir álverskosninguna ekki bindandi

Forstjóri Alcan, Dick Evans, segir að íbúakosning um framtíð álversins í Straumsvík hafi ekki verið bindandi. Hann segir kosningaúrslitin vissulega tefja fyrir stækkun álversins en hann sé þess fullviss að fyrirtækið nái að afla sér stuðnings almennings.

SAS hefur aftur flug

SAS flugfélagið hefur hafið flug að nýju eftir að flugfreyjur þess aflýstu ólöglegu verkfalli sínu. Verkfallið hófst á þriðjudag og setti úr skorðum ferðaáætlanir tugþúsunda manna. Nokkur tími mun líða áður en flugið kemst í eðlilegt horf, þar sem mikið þarf að vinna upp.

Átján umferðaróhöpp í gær

Tilkynnt var um átján umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu í gær samkvæmt lögreglunni. Flest voru þau minniháttar. Þá var einn tekinn fyrir ölvun við akstur.

Færist í vöxt að ökumenn stingi af frá slysstað

Sífellt fleiri ökumenn kjósa að stinga af frá slysstað eftir að hafa keyrt á kyrrstæðan bíl að sögn lögreglunnar. Vilja hinir óprúttnu ökumenn komast hjá því að greiða fyrir skemmdirnar sem þeir hafa unnið. Tveir stungu af bara í gær.

Topp al-Kaída liðsmaður skotinn til bana

Hersveitir í Alsír skutu annan æðsta liðsmann al-Kaída í Norður-Afríku til bana í dag. Samir Moussaab, sem réttu nafni hét Samir Saioud, fannst eftir að hersveitir fengu upplýsingar frá fyrrum meðlimum hreyfingarinnar, sem hlutu sakaruppgjöf á síðasta ári. Opinbera fréttastofan APS í Alsír greinir frá þessu.

Fáfræðin lengir lífið

Eitt hundrað og sextán ára úkraínskur geitahirðir segir að ástæðuna fyrir langlífi sínu megi rekja til þess að hann hafi aldrei verið með konu. Auk þess hafi hann ekki verið forvitinn. Fólk sem viti of mikið eigi ekki langa lífdaga. Grigoriy Nestor er frá þorpinu Stariy Yarichev nálægt höfuðborginni Kiev í Úkraínu.

Maraþonhlaupari í hægagangi

Einn keppendanna sem hóf maraþonið í London á sunnudag er enn að hlaupa ... og mun ekki ljúka maraþoninu fyrr en á sunnudag. Greg Billingham hleypur afar hægt í átaki til styrktar börnum með hvítblæði. Hann hleypur einungis eitt skref á hverjum fimm eða sex sekúntum.

Kökur og brauð fyrir kindurnar

Sauðburður er hafinn á Hafralæk í Þingeyjarsýslu. Nýburarnir þar fá ekki bara gras að bíta heldur kökur og brauð einnig. Bóndinn á bænum segir terturnar njóta mestra vinsælda. Fréttastofu Stöðvar 2 bar að garði á Hafralæk í Aðaldalnum um hádegisbil í þeim tilgangi að mynda einhver fyrstu lömb ársins.

Samstarfsmaður Orkuveitunnar fær “Litla Nóbelinn”

Wallace S. Broecker helsti samstarfsmaður Orkuveitur Reykjavíkur í verkefninu CO2á Hengilssvæðinu hlaut í dag Crafoord verðlaunin. Verðlaunin eru virtustu jarðvísindaverðlaun heims. Þau eru oft kölluð Litli Nóbelinn og eru veitt af Sænsku vísindaakademíunni, eins og Nóbelsverðlaunin.

Þjónusta við geðfatlaða færist til borgarinnar

Til stendur að Reykjavíkurborg taki að sér uppbyggingu búsetu og þjónustu við geðfatlað fólk í Reykjavík. Velferðarráð borgarinnar samþykkti á fundi í gær að verða við beiðni Félagsmálaráðuneytisins um viðræður þess efnis.

Ekki verið að gefa út óútfyllta ávísun

Geir H. Haarde forsætisráðherra segir samningana við Norðmenn og Dani í varnar- og öryggismálum tímabæra jafnvel þótt Bandaríkjaher hefði verið hér enn á landi. Hann segir stjórnvöld ekki vera að gefa út óútfyllta ávísun þó kostnaður Íslendinga af samkomulaginu sé ekki enn ljós.

Kirkjan gengur ekki í takt með þjóðinni

Fáránlegt er að halda því fram að íslenska þjóðkirkjan hefði sagt sig úr lögum við aðrar kirkjur hefði hún heimilað samkynhneigðum að ganga í hjónaband. Þetta segir prestur sem telur kirkjuna ekki ganga í takt með þjóðinni. Þegar greidd voru atkvæði um hvort leyfa ætti samkynhneigðum að ganga í hjónaband á Prestastefnunni á Húsavík í gær sögðu 66 nei en 22 já.

Sjálfstæðismenn heimsóttu Ölgerðina

Málefni Barna og unglingingageðdeildar, fyrirhugað álver í Helguvík og mannekla á spítölum var meðal þess sem frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins voru spurðir að þegar þeir heimsóttu starfsmenn Ölgerðar Egils Skallagrímssonar í dag.

Aukið eftirlit með oíu- og gasflutningum umhverfis Ísland

Eftirlit með flutningum á olíu og gasi á svæðinu umhverfis Ísland verður stóraukið samkvæmt samningi um samstarf í varnar- og öryggismálum, sem utanríkisráðherrar Íslands og Norges undirrituðu í Ósló í dag. Einnig er gert ráð fyrir að Íslendingar beri hundruð milljóna króna kostnað af staðsetningu og æfingum norskra hermanna á Íslandi.

Ólík afstaða meðal formanna stjórnarandstöðuflokkanna

Formaður Vinstri-grænna gagnrýnir aðdraganda og innihald samkomulagsins að ýmsu leyti og segir að réttar hefði verið að bíða fram yfir kosningar með að skrifa undir það. Formaður Samfylkingarinnar segir hins vegar samkomulagið eðlilega þróun í ljósi breyttrar heimsmyndar.

Fíkniefnahundur finnur efni í bifreið

Fíkniefnahundurinn Bea sem er í eign lögreglunnar á Selfossi fann 29 grömm af hassi við leit í bifreið á Eskifirði. Lögreglumenn höfðu stöðvað bifreiðina í almenni eftirliti. Grunur vaknaði um að fíkniefni væru í bifreiðinni og var hundateymi kallað til aðstoðar. Í framhaldiinu varð gerð húsleit á heimili hins grunaða. Honum var sleppt að loknum yfirheyrslum.

Fimm teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu

Fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Þrír voru stöðvaðir í Hafnarfirði og tveir í Reykjavík en þetta voru allt karlmenn. Tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. Sá þriðji var með löngu útrunnið ökuskírteini og lenti þar að auki í umferðaróhappi.

Ný skrifstofa barna- og fjölskyldumála

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur ákveðið að setja á stofn skrifstofu barna- og fjölskyldumála í Félagsmálaráðuneytinu. Meginverkefni hennar verða að vinna að stefnumótun og þróun í málefnum barna, ungmenna og fjölskyldna. Það verður meðal annars gert í samvinnu við Barnaverndarstofu.

Skemmdir unnar á lögreglubifreiðum

Nokkuð hefur borið á því undanfarin misseri að unnar séu skemmdir á lögreglubifreiðum. Slík atvik eru litin afar alvarlegum augum af embætti ríkislögreglustjóra. Fyrir nokkru var ákveðið að fela lögmannsstofu að útbúa ítarlegar bótakröfur í slíkum tilvikum og fylgja innheimtu þeirra eftir. Það hefur gefið góða raun og verður þess vegna haldið áfram.

Fimm ára fangelsi fyrir líkamsárásir og nauðganir

Hæstiréttur dæmdi í dag Jón Pétursson í fimm ára fangelsi fyrir þrjár líkamsárásir á hendur fyrrverandi sambúðarkonu sinni og húsbrot þegar hann ruddist í heimildarleysi inn í húsnæði þar sem hún var stödd. Hann var jafnframt sakfelldur fyrir frelsissviptingu og kynferðisbrot gagnvart annarri fyrrverandi unnustu sinni.

Átta manns létust í bílslysi í Indiana

Að minnsta kosti átta manns létu lífið í bílslysi í Indiana fylki í Bandaríkjunum í dag. Um margra bíla árekstur var að ræða á hraðbraut í fylkinu þar sem þrír flutningabílar og fjórir fólksbílar skullu saman.

Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna peningafölsunar

Karlmaður um tvítugt var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 4. maí vegna peningafölsunarmála sem rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur haft til meðferðar að undanförnu.

Þriggja ára fangelsi fyrir að stinga fyrrverandi unnustu

Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi í dag Hans Alfreð Kristjánsson í þriggja ára fangelsi fyrir alvarlega líkamsárás með því að stinga fyrrverandi unnustu sína í bakið. Þá var hann dæmdur til að greiða henni hálfa milljón króna í bætur.

Átta hæða hús hrynur í Tyrklandi

Íbúðarblokk hrundi í Istanbul í Tyrklandi seinnipartinn í dag. Engar fréttir hafa borist af því hvort einhver hafi látist eða slasast en yfirvöld segja að flestir íbúanna hafi náð að forða sér þegar braka fór í húsinu. Óljóst er hve margir voru í húsinu sem er í evrópska hluta borgarinnar, en fjöldi björgunarfólk er á vettvangi.

Dýrkeypt að mjólka of mikið

Ítalskir kúabændur þurfa að greiða 17,6 milljarða sekt til Erópusambandsins fyrir að framleiða mjólk umfram þá kvóta sem þeim hafði verið úthlutað. Hvert land innan ESB hefur ákveðinn mjólkurkvóta og gilda strangar reglur um að ekki megi framleiða umfram það magn sem hann segir til um.

Stefna að því að stækka miðborgina

Til stendur að stækka miðborg Reykjavíkur svo um munar með því að byggja upp á svokölluðu Höfðatorgi sem liggur á milli Borgartúns, Skúlatúns, Skúlagötu og Höfðatúns.

Landsvirkjun greiðir hálfan milljarð í arð til ríkisins

Samþykkt var á aðalfundi Landsvirkjunar að greiða hálfan milljarð í arð til eiganda fyrirtækisins, íslenska ríkisins. Á fundinum urðu einnig þær breytingar á stjórn að Páll Magnússon, bæjarritari Kópavogsm tók við af Jóhannesi Geir Sigurgeirssyni sem stjórnarformaður Landsvirkjunar en aðrir í stjórn voru endurkjörnir.

Verslingar í morgunmat hjá framsókn

Peysufatadagurinn var haldinn hátíðlegur í Verzlunarskóla Íslands í dag og var mikið um dýrðir. Um 300 nemendur eru að ljúka verslunarprófi eftir tveggja ára nám og við það tilefni klæða þeir sig upp og gera sér glaðan dag. Nemendur hófu daginn á því að gæða sér á morgunverði í Ýmishúsinu í boði Framsóknarflokksins.

Magnús Oddson heiðraður

Ferðamálaráð Evrópu heldur í dag aðalfund sinn á Nordica hóteli í dag. Þetta er í annað sinn í 59 ára sögu samtakanna sem aðalfundur þeirra er haldinn hér á landi. Magnúsi Oddsyni, ferðamálastjóra Íslands, var veitt viðurkenning fyrir „úrvalsþjónustu við Ferðamálasamtök Evrópu í yfir 15 ár,”.

Sjá næstu 50 fréttir