Fleiri
Murder trial possibly moved to Iceland 26.4.2007 14:14 Bush dansar í þágu baráttunnar við malaríu George Bush Bandaríkjaforseti brá á leik í gær til þess að vekja athygli á baráttunni við malaríu í heiminum. Boðað var til blaðamannafundar á túninu fyrir utan Hvíta húsið til þess að vekja athygli á svokölluðum Malaríudegi en hann var haldinn í fyrsta sinn í gær. 26.4.2007 14:09 Bein útsending frá blaðamannafundi um varnarmál Bein útsending er að hafin frá Stjórnarráðinu þar sem Geir H. Haarde forsætisráðherra fjallar um nýgert samkomulag við Norðmenn í varnarmálum og viljayfirlýsingu sama efnis sem gerð var við Dani. 26.4.2007 13:48 Samkrull borgaralegra og hernaðarlegra þátta varhugavert Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og fulltrúi flokksins í utanríkismálanefnd, gerir alvarlegar athugasemdir við öll vilyrði í nýgerðu samkomulagi Íslendinga við Norðmenn og samstarfsyfirlýsingu við Dani um öryggismál sem gefin eru af hálfu Íslendinga um aukinn kostnað sem fellur á Íslendinga. 26.4.2007 13:31 Risamoska í Kaupmannahöfn Alheimssamband múslima hefur tekið fagnandi teikningum af risastóru bænahúsi í Kaupmannahöfn. Moskan er nokkuð nútímaleg, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Hún er hvorki með spírum né hvolfþaki, eins og bænahús múslima í Miðausturlöndum. Hönnuður hennar segir að það hafi vakið mikla hrifningu múslima. 26.4.2007 13:30 Nóg komið af norrænum verðlaunum Forsætisnefnd Norðurlandaráðs ætlar ekki að stofna til nýrra norrænna verðlauna. Þetta var samþykkt á fundi í Kaupmannahöfn á fundi í gær. Undanfarin ár hafa komið tillögur um orku-, matvæla- og nýsköpunarverðlaun í nafni Norðurlandaráðs. 26.4.2007 13:30 Malarflutningabíll valt við Þorlákshöfn Malarflutningabíll valt á hliðina við hringtorg í Þorlákshöfn í hádeginu. Eftir því lögregla á Selfossi segir var ökumaður flutningabílsins í belti og tókst honum að komast að sjálfsdáðum út úr bílnum. 26.4.2007 13:24 1400 Úkraínumenn læddust inn í Danmörku Um 1400 ólöglegir innflytjendur frá Úkraínu komu til Danmerkur á síðasta ári, og enginn veit hvar þeir eru niðurkomnir. Samkomulag er milli Úkraínu og Danmerkur um að landbúnaðarverkafólk fái dvalarleyfi í Danmörku. Á síðasta ári vöknuðu grunsemdir hjá danska útlendingaeftirlitinu vegna mikils fjölda sem streymdi til landsins. Gefin voru út 1800 dvalarleyfi. 26.4.2007 13:15 Slys í Kópavogslaug Fimmtán ára gamall unglingspiltur fannst meðvitundarlaus í Kópavogslaug klukkan tíu í morgun. Drengurinn var í skólasundi þegar atvikið átti sér stað. Þegar lögregla og sjúkralið kom á staðinn höfðu lífgunartilraunir þegar verið hafnar og var hann fluttur í skyndi á bráðamóttöku. 26.4.2007 13:06 Stakk af frá deyjandi syni 26.4.2007 13:06 Fulltrúadeildin samþykkir að hefja heimflutning hermanna Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær að hefja heimflutning hermanna frá Írak í haust þrátt fyrir hótun Bush forseta um að beita neitunarvaldi gegn lagasetningunni. 26.4.2007 13:00 Alvarlegustu umferðarslysin á þjóðvegum í dreifbýli Alvarlegustu bílslysin hér á landi eiga sér stað á þjóðvegum í dreifbýli og nær 75% banaslysa í umferðinni eru fyrir utan borgarmörkin. Þjóðvegir landsins eru hættulegir og laga þarf umhverfi þeirra til að draga úr alvarlegum bílslysum vegna útafaksturs segir deildarstjóri hjá Vegagerðinni. 26.4.2007 12:45 Sjá næstu 50 fréttir
Rostropovich látinn Hinn heimsfrægi sellóleikari og tónskáld Mstislav Rostropovich lést í dag, 80 ára að aldri. Rostropovich var elskaður og dáður fyrir list sína um allan heim. Hann var einnig dáður fyrir hetjulega mannréttindabaráttu sína á tímum Sovétríkjanna. 27.4.2007 10:11
Æfð viðbrögð við flugslysi við Sauðárkrók Á þriðja hundrað manns munu taka þátt í umfangsmikilli flugslysaæfingu á Sauðárkróki á morgun. Er þetta stærsta æfing sinnar tegundar í umdæminu í áraraðir. 27.4.2007 10:06
Forstjóri Alcan segir álverskosninguna ekki bindandi Forstjóri Alcan, Dick Evans, segir að íbúakosning um framtíð álversins í Straumsvík hafi ekki verið bindandi. Hann segir kosningaúrslitin vissulega tefja fyrir stækkun álversins en hann sé þess fullviss að fyrirtækið nái að afla sér stuðnings almennings. 27.4.2007 09:58
SAS hefur aftur flug SAS flugfélagið hefur hafið flug að nýju eftir að flugfreyjur þess aflýstu ólöglegu verkfalli sínu. Verkfallið hófst á þriðjudag og setti úr skorðum ferðaáætlanir tugþúsunda manna. Nokkur tími mun líða áður en flugið kemst í eðlilegt horf, þar sem mikið þarf að vinna upp. 27.4.2007 09:56
Topp al-Kaída liðsmaður skotinn til bana Hersveitir í Alsír skutu annan æðsta liðsmann al-Kaída í Norður-Afríku til bana í dag. Samir Moussaab, sem réttu nafni hét Samir Saioud, fannst eftir að hersveitir fengu upplýsingar frá fyrrum meðlimum hreyfingarinnar, sem hlutu sakaruppgjöf á síðasta ári. Opinbera fréttastofan APS í Alsír greinir frá þessu. 26.4.2007 22:45
Fáfræðin lengir lífið Eitt hundrað og sextán ára úkraínskur geitahirðir segir að ástæðuna fyrir langlífi sínu megi rekja til þess að hann hafi aldrei verið með konu. Auk þess hafi hann ekki verið forvitinn. Fólk sem viti of mikið eigi ekki langa lífdaga. Grigoriy Nestor er frá þorpinu Stariy Yarichev nálægt höfuðborginni Kiev í Úkraínu. 26.4.2007 22:15
Maraþonhlaupari í hægagangi Einn keppendanna sem hóf maraþonið í London á sunnudag er enn að hlaupa ... og mun ekki ljúka maraþoninu fyrr en á sunnudag. Greg Billingham hleypur afar hægt í átaki til styrktar börnum með hvítblæði. Hann hleypur einungis eitt skref á hverjum fimm eða sex sekúntum. 26.4.2007 21:30
Kökur og brauð fyrir kindurnar Sauðburður er hafinn á Hafralæk í Þingeyjarsýslu. Nýburarnir þar fá ekki bara gras að bíta heldur kökur og brauð einnig. Bóndinn á bænum segir terturnar njóta mestra vinsælda. Fréttastofu Stöðvar 2 bar að garði á Hafralæk í Aðaldalnum um hádegisbil í þeim tilgangi að mynda einhver fyrstu lömb ársins. 26.4.2007 20:52
Samstarfsmaður Orkuveitunnar fær “Litla Nóbelinn” Wallace S. Broecker helsti samstarfsmaður Orkuveitur Reykjavíkur í verkefninu CO2á Hengilssvæðinu hlaut í dag Crafoord verðlaunin. Verðlaunin eru virtustu jarðvísindaverðlaun heims. Þau eru oft kölluð Litli Nóbelinn og eru veitt af Sænsku vísindaakademíunni, eins og Nóbelsverðlaunin. 26.4.2007 20:20
Þjónusta við geðfatlaða færist til borgarinnar Til stendur að Reykjavíkurborg taki að sér uppbyggingu búsetu og þjónustu við geðfatlað fólk í Reykjavík. Velferðarráð borgarinnar samþykkti á fundi í gær að verða við beiðni Félagsmálaráðuneytisins um viðræður þess efnis. 26.4.2007 20:00
Ekki verið að gefa út óútfyllta ávísun Geir H. Haarde forsætisráðherra segir samningana við Norðmenn og Dani í varnar- og öryggismálum tímabæra jafnvel þótt Bandaríkjaher hefði verið hér enn á landi. Hann segir stjórnvöld ekki vera að gefa út óútfyllta ávísun þó kostnaður Íslendinga af samkomulaginu sé ekki enn ljós. 26.4.2007 19:25
Kirkjan gengur ekki í takt með þjóðinni Fáránlegt er að halda því fram að íslenska þjóðkirkjan hefði sagt sig úr lögum við aðrar kirkjur hefði hún heimilað samkynhneigðum að ganga í hjónaband. Þetta segir prestur sem telur kirkjuna ekki ganga í takt með þjóðinni. Þegar greidd voru atkvæði um hvort leyfa ætti samkynhneigðum að ganga í hjónaband á Prestastefnunni á Húsavík í gær sögðu 66 nei en 22 já. 26.4.2007 19:24
Sjálfstæðismenn heimsóttu Ölgerðina Málefni Barna og unglingingageðdeildar, fyrirhugað álver í Helguvík og mannekla á spítölum var meðal þess sem frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins voru spurðir að þegar þeir heimsóttu starfsmenn Ölgerðar Egils Skallagrímssonar í dag. 26.4.2007 19:21
Aukið eftirlit með oíu- og gasflutningum umhverfis Ísland Eftirlit með flutningum á olíu og gasi á svæðinu umhverfis Ísland verður stóraukið samkvæmt samningi um samstarf í varnar- og öryggismálum, sem utanríkisráðherrar Íslands og Norges undirrituðu í Ósló í dag. Einnig er gert ráð fyrir að Íslendingar beri hundruð milljóna króna kostnað af staðsetningu og æfingum norskra hermanna á Íslandi. 26.4.2007 19:19
Ólík afstaða meðal formanna stjórnarandstöðuflokkanna Formaður Vinstri-grænna gagnrýnir aðdraganda og innihald samkomulagsins að ýmsu leyti og segir að réttar hefði verið að bíða fram yfir kosningar með að skrifa undir það. Formaður Samfylkingarinnar segir hins vegar samkomulagið eðlilega þróun í ljósi breyttrar heimsmyndar. 26.4.2007 19:12
Fíkniefnahundur finnur efni í bifreið Fíkniefnahundurinn Bea sem er í eign lögreglunnar á Selfossi fann 29 grömm af hassi við leit í bifreið á Eskifirði. Lögreglumenn höfðu stöðvað bifreiðina í almenni eftirliti. Grunur vaknaði um að fíkniefni væru í bifreiðinni og var hundateymi kallað til aðstoðar. Í framhaldiinu varð gerð húsleit á heimili hins grunaða. Honum var sleppt að loknum yfirheyrslum. 26.4.2007 18:13
Fimm teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu Fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Þrír voru stöðvaðir í Hafnarfirði og tveir í Reykjavík en þetta voru allt karlmenn. Tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. Sá þriðji var með löngu útrunnið ökuskírteini og lenti þar að auki í umferðaróhappi. 26.4.2007 18:10
Ný skrifstofa barna- og fjölskyldumála Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur ákveðið að setja á stofn skrifstofu barna- og fjölskyldumála í Félagsmálaráðuneytinu. Meginverkefni hennar verða að vinna að stefnumótun og þróun í málefnum barna, ungmenna og fjölskyldna. Það verður meðal annars gert í samvinnu við Barnaverndarstofu. 26.4.2007 17:38
Skemmdir unnar á lögreglubifreiðum Nokkuð hefur borið á því undanfarin misseri að unnar séu skemmdir á lögreglubifreiðum. Slík atvik eru litin afar alvarlegum augum af embætti ríkislögreglustjóra. Fyrir nokkru var ákveðið að fela lögmannsstofu að útbúa ítarlegar bótakröfur í slíkum tilvikum og fylgja innheimtu þeirra eftir. Það hefur gefið góða raun og verður þess vegna haldið áfram. 26.4.2007 17:12
Viljayfirlýsing um samstarf við Dani undirrituð eftir hádegi Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra undirritaði nú eftir hádegið ásamt Per Stig Möller, utanríkisráðherra Danmerku, viljayfirlýsingu um samstarf um öryggis- og varnarmál. 26.4.2007 16:57
Fimm ára fangelsi fyrir líkamsárásir og nauðganir Hæstiréttur dæmdi í dag Jón Pétursson í fimm ára fangelsi fyrir þrjár líkamsárásir á hendur fyrrverandi sambúðarkonu sinni og húsbrot þegar hann ruddist í heimildarleysi inn í húsnæði þar sem hún var stödd. Hann var jafnframt sakfelldur fyrir frelsissviptingu og kynferðisbrot gagnvart annarri fyrrverandi unnustu sinni. 26.4.2007 16:50
Átta manns létust í bílslysi í Indiana Að minnsta kosti átta manns létu lífið í bílslysi í Indiana fylki í Bandaríkjunum í dag. Um margra bíla árekstur var að ræða á hraðbraut í fylkinu þar sem þrír flutningabílar og fjórir fólksbílar skullu saman. 26.4.2007 16:48
Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna peningafölsunar Karlmaður um tvítugt var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 4. maí vegna peningafölsunarmála sem rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur haft til meðferðar að undanförnu. 26.4.2007 16:32
Þriggja ára fangelsi fyrir að stinga fyrrverandi unnustu Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi í dag Hans Alfreð Kristjánsson í þriggja ára fangelsi fyrir alvarlega líkamsárás með því að stinga fyrrverandi unnustu sína í bakið. Þá var hann dæmdur til að greiða henni hálfa milljón króna í bætur. 26.4.2007 16:22
Átta hæða hús hrynur í Tyrklandi Íbúðarblokk hrundi í Istanbul í Tyrklandi seinnipartinn í dag. Engar fréttir hafa borist af því hvort einhver hafi látist eða slasast en yfirvöld segja að flestir íbúanna hafi náð að forða sér þegar braka fór í húsinu. Óljóst er hve margir voru í húsinu sem er í evrópska hluta borgarinnar, en fjöldi björgunarfólk er á vettvangi. 26.4.2007 16:08
Dýrkeypt að mjólka of mikið Ítalskir kúabændur þurfa að greiða 17,6 milljarða sekt til Erópusambandsins fyrir að framleiða mjólk umfram þá kvóta sem þeim hafði verið úthlutað. Hvert land innan ESB hefur ákveðinn mjólkurkvóta og gilda strangar reglur um að ekki megi framleiða umfram það magn sem hann segir til um. 26.4.2007 15:41
Stefna að því að stækka miðborgina Til stendur að stækka miðborg Reykjavíkur svo um munar með því að byggja upp á svokölluðu Höfðatorgi sem liggur á milli Borgartúns, Skúlatúns, Skúlagötu og Höfðatúns. 26.4.2007 15:38
Landsvirkjun greiðir hálfan milljarð í arð til ríkisins Samþykkt var á aðalfundi Landsvirkjunar að greiða hálfan milljarð í arð til eiganda fyrirtækisins, íslenska ríkisins. Á fundinum urðu einnig þær breytingar á stjórn að Páll Magnússon, bæjarritari Kópavogsm tók við af Jóhannesi Geir Sigurgeirssyni sem stjórnarformaður Landsvirkjunar en aðrir í stjórn voru endurkjörnir. 26.4.2007 15:21
Verslingar í morgunmat hjá framsókn Peysufatadagurinn var haldinn hátíðlegur í Verzlunarskóla Íslands í dag og var mikið um dýrðir. Um 300 nemendur eru að ljúka verslunarprófi eftir tveggja ára nám og við það tilefni klæða þeir sig upp og gera sér glaðan dag. Nemendur hófu daginn á því að gæða sér á morgunverði í Ýmishúsinu í boði Framsóknarflokksins. 26.4.2007 15:17
Fann nokkuð af fíkniefnum við húsleit í Breiðholti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann nokkuð magn fíkniefna við húsleit í Breiðholti í gær. Þar á meðal voru um 100 grömm af hassi, amfetamín og marijúana. 26.4.2007 14:51
Magnús Oddson heiðraður Ferðamálaráð Evrópu heldur í dag aðalfund sinn á Nordica hóteli í dag. Þetta er í annað sinn í 59 ára sögu samtakanna sem aðalfundur þeirra er haldinn hér á landi. Magnúsi Oddsyni, ferðamálastjóra Íslands, var veitt viðurkenning fyrir „úrvalsþjónustu við Ferðamálasamtök Evrópu í yfir 15 ár,”. 26.4.2007 14:42
Tímabært samkomulag þótt herinn hefði verið áfram Geir H. Haarde forsætisráðherra segir samningana við Norðmenn og Dani í varnar- og öryggismálum tímabæra jafnvel þótt Bandaríkjaher hefði verið hér enn á landi. Geir sagðist ánægður með samkomulagið og að það væri í grunninn pólitísk yfirlýsing um samvinnu milli landanna. 26.4.2007 14:39
Mannekla og ófullnægjandi húsakostur hamlar starfsemi Landspítalans Mannekla og og ófullnægjandi húsakostur hefur hamlað starfsemi Landspítalans háskólasjúkrahúss að sögn Birnu Kr. Svavarsdóttur, formanns stjórnarnefndar Landspítalans háskólasjúkrahúss. Þetta kom fram í ræðu hennar á ársfundi spítalans sem haldinn er í dag. Hún segir nauðsynlegt í ljósi breyttra aðstæðna í samfélaginu að skoða fleiri möguleika við fjármögnun og framkvæmd heilbrigðisþjónustunnar. 26.4.2007 14:15
Bush dansar í þágu baráttunnar við malaríu George Bush Bandaríkjaforseti brá á leik í gær til þess að vekja athygli á baráttunni við malaríu í heiminum. Boðað var til blaðamannafundar á túninu fyrir utan Hvíta húsið til þess að vekja athygli á svokölluðum Malaríudegi en hann var haldinn í fyrsta sinn í gær. 26.4.2007 14:09
Bein útsending frá blaðamannafundi um varnarmál Bein útsending er að hafin frá Stjórnarráðinu þar sem Geir H. Haarde forsætisráðherra fjallar um nýgert samkomulag við Norðmenn í varnarmálum og viljayfirlýsingu sama efnis sem gerð var við Dani. 26.4.2007 13:48
Samkrull borgaralegra og hernaðarlegra þátta varhugavert Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og fulltrúi flokksins í utanríkismálanefnd, gerir alvarlegar athugasemdir við öll vilyrði í nýgerðu samkomulagi Íslendinga við Norðmenn og samstarfsyfirlýsingu við Dani um öryggismál sem gefin eru af hálfu Íslendinga um aukinn kostnað sem fellur á Íslendinga. 26.4.2007 13:31
Risamoska í Kaupmannahöfn Alheimssamband múslima hefur tekið fagnandi teikningum af risastóru bænahúsi í Kaupmannahöfn. Moskan er nokkuð nútímaleg, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Hún er hvorki með spírum né hvolfþaki, eins og bænahús múslima í Miðausturlöndum. Hönnuður hennar segir að það hafi vakið mikla hrifningu múslima. 26.4.2007 13:30
Nóg komið af norrænum verðlaunum Forsætisnefnd Norðurlandaráðs ætlar ekki að stofna til nýrra norrænna verðlauna. Þetta var samþykkt á fundi í Kaupmannahöfn á fundi í gær. Undanfarin ár hafa komið tillögur um orku-, matvæla- og nýsköpunarverðlaun í nafni Norðurlandaráðs. 26.4.2007 13:30
Malarflutningabíll valt við Þorlákshöfn Malarflutningabíll valt á hliðina við hringtorg í Þorlákshöfn í hádeginu. Eftir því lögregla á Selfossi segir var ökumaður flutningabílsins í belti og tókst honum að komast að sjálfsdáðum út úr bílnum. 26.4.2007 13:24
1400 Úkraínumenn læddust inn í Danmörku Um 1400 ólöglegir innflytjendur frá Úkraínu komu til Danmerkur á síðasta ári, og enginn veit hvar þeir eru niðurkomnir. Samkomulag er milli Úkraínu og Danmerkur um að landbúnaðarverkafólk fái dvalarleyfi í Danmörku. Á síðasta ári vöknuðu grunsemdir hjá danska útlendingaeftirlitinu vegna mikils fjölda sem streymdi til landsins. Gefin voru út 1800 dvalarleyfi. 26.4.2007 13:15
Slys í Kópavogslaug Fimmtán ára gamall unglingspiltur fannst meðvitundarlaus í Kópavogslaug klukkan tíu í morgun. Drengurinn var í skólasundi þegar atvikið átti sér stað. Þegar lögregla og sjúkralið kom á staðinn höfðu lífgunartilraunir þegar verið hafnar og var hann fluttur í skyndi á bráðamóttöku. 26.4.2007 13:06
Fulltrúadeildin samþykkir að hefja heimflutning hermanna Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær að hefja heimflutning hermanna frá Írak í haust þrátt fyrir hótun Bush forseta um að beita neitunarvaldi gegn lagasetningunni. 26.4.2007 13:00
Alvarlegustu umferðarslysin á þjóðvegum í dreifbýli Alvarlegustu bílslysin hér á landi eiga sér stað á þjóðvegum í dreifbýli og nær 75% banaslysa í umferðinni eru fyrir utan borgarmörkin. Þjóðvegir landsins eru hættulegir og laga þarf umhverfi þeirra til að draga úr alvarlegum bílslysum vegna útafaksturs segir deildarstjóri hjá Vegagerðinni. 26.4.2007 12:45