Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sprenging í notkun á skíðahjálmum Framkvæmdastjóri Skíðasambandsins segir sprenginu hafa orðið í notkun á skíðahjálmum. En betur má ef duga skal. Börn eiga lögum samkvæmt að nota hjálma á reiðhjóli en hvergi er kveðið á um að þau noti hjálm á skíðum. 9.4.2007 19:04
Níu handteknir eftir hnífabardaga Níu hafa verið handteknir eftir hnífabardaga fyrir utan næturklúbb í Álaborg í Danmörku um helgina. Tuttugu og eins árs karlmaður sem reyndi að skakka leikinn lét lífið eftir að hafa orðið fyrir ítrekuðum hnífsstungum. 9.4.2007 19:02
Björk heldur tónleika í Höllinni í kvöld Stórsöngkonan Björk Guðmundsdóttir heldur tónleika í Laugardalshöllinni í kvöld. Tónleikarnir marka upphaf heimstónleikaferðar til að kynna Volta, nýja breiðskífu Bjarkar. Anthony Hegarthy, söngvari hljómsveitarinnar Anthony and the Johnsons mun meðal annar stíga á svið með Björk. 9.4.2007 19:02
Tókst að rækta hluta úr mannshjarta Breskum vísindamönnum hefur tekist að rækta hluta úr mannshjarta með stofnfrumum. Frumvarp sem hefði heimilað noktun íslenskra fósturvísa til stofnfrumurannsókna var kippt af dagskrá á síðasta degi Alþingis. 9.4.2007 19:01
Mega svipta prest kjól og kalli Stjórn Prestafélags Íslands er heimilt að svipta prest kjól og kalli brjóti hann alvarlega gegn siðareglum félagsins. Mánuðir munu líða áður en siðnefnd félagsins kveður upp úrskurð í kærumáli átta presta Þjóðkirkjunnar á hendur Hirti Magna Jóhannssyni fríkirkjupresti. 9.4.2007 18:58
Þung umferð frá Akureyri í dag Þung umferð myndaðist upp úr hádegi vestur frá Akureyri. Umferðin hefur að mestu gengið vel en tveir voru teknir fyrir hraðaakstur. 9.4.2007 18:56
Íslendingar stórveldi í jarðhitaheiminum Útrás íslenskra orkufyrirtækja getur orðið stór þáttur í efnahagslífi landsmanna á næstu árum. Þetta er mat forstjóra Geysis Green Energy sem segir Íslendinga vera stórveldi í jarðhitaheiminum sem heimsbyggðin horfi til. 9.4.2007 18:50
Útilokar ekki samstarf með Sjálfstæðisflokki Ómar Ragnarsson formaður Íslandshreyfingarinnar útilokar ekki að Íslandshreyfingin starfi með Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki eða Frjálslyndum í ríkisstjórn. Hann segir að fyrsti kosturinn sé þó að sjálfsögðu þeir flokkar sem vilji skrúfa fyrir stóriðjuvæðinguna en ýmislegt væri unnið með því að koma í veg fyrir hreina stóriðjustjórn. Þetta kemur fram í þætti fréttastofunnar, Nærmynd af formanni sem er á dagskrá strax að loknum fréttum í kvöld. 9.4.2007 18:47
Heimilin fjármagna 20% fræðslumála Um tuttugu prósent útjalda til fræðslumála eru fjármögnuð af heimilunum og hefur sá hlutur farið vaxandi síðustu ár. Þá eru um sautján prósent heilbrigðisútgjalda fjármögnuð beint af heimilum landsins. Þrátt fyrir að þetta sé svipuð útgjaldaskipting á milli hins opinbera og heimilanna og gerist í nágrannaríkjunum, er þetta breyting á því fyrirkomulagi sem verið hefur í íslensku samfélagi í heilbrigðis- og menntamálum. 9.4.2007 18:44
Mega ekki hagnast fjárhagslega á frásögnum sínum Varnarmálaráðuneyti Bretlands hefur bannað fleiri sjóliðum að selja frásagnir sínar af dvöl þeirra í Íran. Áður hafði þeim verið leyft að sekja frádagnir sínar og tókst tveimur þeirra að gera það. Faye Turney, eina konan sem var með í för, fékk víst um 100.000 pund fyrir að hafa selt sögu sína til ITV1 og dagblaðsins the Sun. 9.4.2007 17:50
Bandaríkin kæra Kínverja Bandaríkin hafa lagt fram tvær kærur á hendur Kína hjá Alþjóðaverslunarráðinu (World Trade Organization) vegna þess hversu auðvelt er að fjölfalda og selja amerískar bíómyndir, tónlist, bækur og hugbúnað ólöglega. „Það er allt of mikið um sjóræningjastarfsemi og falsanir í Kína.“ sagði Susan Schwab, verslunarfulltrúi Bandaríkjanna í tilkynningu sem hún sendi frá sér í dag. 9.4.2007 17:34
Hvíta húsið harmar ákvörðun Írana Hvíta húsið hefur lýst yfir áhyggjum vegna yfirlýsinga Írana í dag um að þeir hafi hafið framleiðslu á auðguðu úrani í iðnaðarmagni. „Við höfum miklar áhyggjur af tilkynningu Írana.“ sagði Gordon Johndroe, talsmaður öryggisráðs Hvíta hússins. „Íranar halda áfram að ögra alþjóðasamfélaginu og einangra sig enn frekar með því að auka við kjarnorkuáætlun sína frekar en að draga úr henni.“ 9.4.2007 17:02
Vilja lækka skatta, hægja á virkjunarmálum og stórauka vegaframkvæmdir Samkvæmt drögum að ályktunum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins vill flokkurinn lækka skatta á einstaklinga og fyrirtæki, athuga með lækkun áfengisgjalds, leggja áherslu á að auka tekjur af ferðaþjónustu, gera stórátak í að jafna launamun kynjanna og hægja á ferðinni í virkjunarmálum. Á sama tíma vill flokkurinn stórauka vegaframkvæmdir og koma þjóðvegakerfi landsins í sómasamlegt horf. 9.4.2007 16:27
Vilja ekki að hermenn hagnist persónulega Breska varnarmálaráðuneytið ætlar sér að endurskoða reglur sínar varðandi það að gefa hermönnum og fyrrum starfsfólki leyfi til þess að selja sögur sínar til fjölmiðla. Mikil umræða varð um málið í Bretlandi í kjölfar þess að ákveðið var að leyfa sjóliðunum sem Íranar handtóku að selja fjölmiðlum sögur sínar. 9.4.2007 15:52
Lögregla lýsir eftir ungri konu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 21 árs gamalli konu, Rakel Ómarsdóttur. Rakel sást síðast laust eftir hádegi 06. apríl sl. við Freyjugötu í Reykjavík. Rakel er grannvaxin, um 1.70 sm. á hæð, með sítt dökkthár sem er tekið í tagl og stór brún augu. Hún er íklædd brúnleitum jakka með loðkraga, stuttar ljósbláar gallabuxur og hvíta strigaskó með röndum á. 9.4.2007 15:41
Vegið að málfrelsi í Rússlandi Talsmenn málfrelsis í Rússlandi vöruðu við því í dag að hafin væri herferð gegn stjórnarandstæðingum eftir að stjórnmálamenn hliðhollir stjórnvöldum réðust gegn dagblaði sem birti viðtal við formann flokks sem er í stjórnarandstöðu. 9.4.2007 15:09
Náði öðrum áfanga að alþjóðlegum meistaratitli Ingvar Þór Jóhannesson náði öðrum áfanga sínum að alþjóðlegum meistaratitli eftir stutt jafntefli við Hjörvar Stein Grétarsson í níundu og síðustu umferð Kaupþingsmóts Hellis og TR, sem nú er í gangi. Fyrri áfanganum náði Ingvar Þór á Ístaksmóti Hróksins sem fram fór árið 2004. 9.4.2007 14:41
Íranar stefna ótrauðir á kjarnorku Íranar skýrðu frá því í dag að þeir myndu endurskoða aðild sína að samningnum um að takmörkun á útbreiðslu kjarnavopna (NPT) ef frekari þrýstingi er beitt gegn þeim vegna kjarnorkuáætlunnar þeirra. Ali Larijani, helsti samningamaður Írana í kjarnorkumálum, skýrði frá þessu í dag. 9.4.2007 14:30
Skortur á hjúkrunarfræðingum alvarlegt vandamál Skortur á hjúkrunarfræðingum er mjög alvarlegt vandamál hér á landi og fer versnandi samkvæmt nýútkominni skýrslu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um manneklu í hjúkrun. Þetta kemur fram á vef Landlæknisembættisins en þar segir að í skýrslunni komi fram að alls vanti nú 582 hjúkrunarfræðinga til að leysa úr skorti á hjúkrunarfræðingum. 9.4.2007 14:21
Íhuga stofnun samráðshóps Heimsins stærstu gasútflytjendur eru nú að skoða möguleikann á því að stofna með sér samráðshóp til þess að geta stjórnað verðinu á gasi. Á meðal þessara útflytjenda eru Rússland, sem sér stórum hluta Evrópu fyrir gasi, Íran og Qatar. 9.4.2007 14:13
Íranar halda kjarnorkuáætlun sinni áfram Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, tilkynnti á fréttamannafundi í dag að Íranar myndu ekki láta undan þrýstingi vesturveldanna og gefa kjarnorkuáætlun sína upp á bátinn. Ahmadinejad er enn að tala og hefur ekki skýrt nákvæmlega frá því hvað felst í yfirlýsingu hans. 9.4.2007 13:41
Ráðist á Ísland, ekki Íran Bandarískur háskólaprófessor birti í dag grein á vefsíðu Princeton háskóla. Í henni leggur hann til að ráðist verði á Ísland í stað Íran og að slík árás geti hagnast öllum, jafnvel Íslendingum. 9.4.2007 13:28
Íranar sýna ný myndbönd af sjóliðunum Írönsk sjónvarpsstöð hefur birt myndbandsupptökur af bresku sjóliðunum sem voru í haldi, þar sem þeir sjást tefla, spila borðtennis og horfa á sjónvarpið. Stjórnvöld í Teheran segja myndbandið sýna að fullyrðingar um að sjóliðarnir hafi verið beittir harðræði haldi ekki vatni. 9.4.2007 12:42
Írakar mótmæla í Najaf Allt að milljón Sjíja múslimar mun í dag fylkja liði um götur Najaf í Írak til að mótmæla hersetu Bandaríkjamanna, fjórum árum eftir að Baghdad var hernumin. Öllu rólegra er í höfuðborginni sjálfri á þessum tímamótum, enda öll bílaumferð bönnuð í sólarhring af ótta við hryðjuverk. 9.4.2007 12:40
Níu handteknir eftir hnífabardaga Níu hafa verið handteknir eftir hnífabardaga fyrir utan næturklúbb í Álaborg í Danmörku um helgina. Tuttugu og eins árs karlmaður lét lífið eftir að hafa orðið fyrir ítrekuðum hnífsstungum og sex til viðbótar slösuðust. 9.4.2007 12:22
Allt á suðupunkti í Afganistan Allt er á suðupunkti í Afghanistan, eftir að uppreisnarmenn úr röðum Talibana skáru afganskan túlk á háls í gær. Sex Kanadamenn féllu í bílsprengjuárás í suðurhluta landsins. 9.4.2007 12:20
Páskahelgin sífellt stærri ferðahelgi Páskahelgin verður sífellt stærri ferðahelgi meðal Íslendinga. Mikill straumur fólks lá á Akureyri um helgina og býst lögreglan þar við mikilli umferð út úr bænum í dag. 9.4.2007 12:18
Ólafur Ragnar semur kennsluefni Fyrirlestur sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti í Harvard háskóla verður notaður sem kennsluefni í á annað hundrað háskólum víða um heim. Gamli stjórnmálafræðiprófessorinn er því enn að semja kennsluefni. 9.4.2007 12:05
Líðan mæðginanna eftir atvikum Líðan mæðginanna sem lentu í vélsleðaslysinu í Grenjaárdal ofan Grenivíkur í gær er eftir atvikum. Bæði beinbrotnuðu en meiðsl þeirra eru þó ekki alvarleg. Mæðginin misstu stjórn á sleðanum sem valt yfir þau. 9.4.2007 12:02
Byggja stíflu og bjarga hafinu Stjórnvöld í Kasakstan fengu í gær vilyrði fyrir 128 milljóna dollara láni frá Heimsbankanum (e. World Bank) til þess að fylla Aralhafið á ný. Peningarnir verða notaðir til þess að hleypa af stokkunum öðrum hluta verkefnis sem miðar að því að koma sjó aftur í Aralhafið. Sameinuðu þjóðirnar segja að hvarf Aralhafsins sé eitthvert mesta og stærsta umhverfisslys sögunnar. Þetta verkefni mun þó verða til þess að hafið snýr aftur. 9.4.2007 11:59
Allt að verða klárt fyrir kvöldið Það styttist í lævi blandið loftið í Laugardalshöllinni en þar er allt að verða klárt fyrir tónleika stórsöngkonunnar Bjarkar í kvöld. Þetta verða fyrstu tónleikar listakonunnar á Íslandi í sex ár en þeir marka upphaf tónleikaraðar hennar um heiminn vegna útkomu nýrrar breiðskífu, Volta. 9.4.2007 11:41
Búist við tilkynningu um kjarnorkuáætlun Búist er við því að Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, skýri frá því í dag að Íranar ætli að hefja auðgun úrans í stórum stíl. Hingað til hafa þeir aðeins verið með örfáar skilvindur, eða um 350, í tilraunaskyni. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (IAEA) hefur sagt að Íranar hafi sett upp 300 skilvindur í viðbót og hugsanlegt er að nú verði tilkynnt að hafin hafi verið uppsetning á 3.000 skilvindum. 9.4.2007 11:15
Kosningabaráttan í Frakklandi formlega hafin Kosningabaráttan fyrir fyrstu umferð forsetakosninganna í Frakklandi 22. apríl er hafin. Tólf frambjóðendur ætla sér að feta í fótspor Jacques Chirac, hins aldna forseta sem nú lætur af völdum. Nicolas Sarkozy, frambjóðandi hægri flokksins UMP þykir líklegastur til sigurs. Segolene Royal, frambjóðandi sósíalista fylgir honum fast á hæla. Ekki langt á eftir þeim er Francis Bayrou og Jean-Marie Le Pen situr í fjórða sæti. 9.4.2007 10:49
Kirkjan í Zimbabwe varar stjórnvöld við Biskupar rómversk-kaþólsku kirkjunnar í Zimbabwe vöruðu við því að ef ekki yrðu haldnar frjálsar kosningar myndi almenningur rísa upp á afturlappirnar og bylting yrði raunin. Þetta var fullyrt í bréfi sem hengt var upp í kirkjum víðs vegar um landið í gær. 9.4.2007 10:29
Búast við mikilli umferð úr bænum Lögreglan á Akureyri býst við mikilli umferð í kringum bæinn í dag enda lagði mikill fjöldi fólks leið sína á Akureyri um páskana. Margir komu til að skella sér á skíði en fjölmennt hefur verið í Hlíðarfjalli síðustu daga. 9.4.2007 09:54
Stöðvaður á 160 km hraða og hélt fótgangandi á brott Rúmlega þrítugur karlmaður var sviptur ökuréttindum í nótt eftir hafa verið stöðvaður á hundrað og sextíu kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni. 9.4.2007 09:53
Íranar segja sjóliðana ljúga Írönsk sjónvarpsstöð hefur birt myndbandsupptökur af bresku sjóliðunum sem voru í haldi, þar sem þeir sjást tefla, spila borðtennis og horfa á sjónvarpið. Stjórnvöld í Teheran segja myndbandið sýna að fullyrðingar um að sjóliðarnir hafi verið beittir harðræði haldi ekki vatni. 9.4.2007 09:52
Reyndist ekki alvarlega slasaður Ökumaður fjórhjóls, sem fluttur var með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi í gær, reyndist ekki eins alvarlega slasaður og talið var í fyrstu. Hann var undir eftirliti lækna í nótt en verður útskrifaður af spítalanum í dag. 9.4.2007 09:50
Slóveni lýkur Amazon sundi Rúmlega fimmtugur Slóveni afrekaði um helgina fyrstur allra að synda niður Amazon fljótið eins og það leggur sig. Slóveninn var skiljanlega hálf vankaður þegar hann kom á leiðarenda, enda meira en fimm þúsund kílómetrar að baki og mikil og hörð barátta við ofskynjanir, örmögnun og pírana fiska. 9.4.2007 09:47
Lýst eftir sextán ára stúlku Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu leitar að Kristínu Diljá Þorgeirsdóttur 16 ára en ekkert hefur spurst til hennar síðan á föstudaginn langa. 8.4.2007 18:54
Innbrot á Tangarhöfða Bíræfnir þjófar stálu rándýru nýju bifhjóli á verkstæði á Tangarhöfða í Reykjavík um helgina og settu það inní sendiferðabíl fyrir utan verkstæðið og námu bæði hjól og bíl á brott. Eigandinn segir tjónið nema um tveimur og hálfri milljón króna en sem betur fer sé hann tryggður fyrir tjóninu. Hvorki bíllinn né bifhjólið hafa komið í leitirnar. 8.4.2007 18:47
Kjósendur neikvæðastir út í formann Samfylkingar Kjósendur annarra flokka en Samfylkingarinnar eru neikvæðastir út í Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur af leiðtogum stjórnmálaflokkanna og eru kjósendur Sjálfstæðisflokksins sérstaklega neikvæðir út í hana. Stuðningsmenn flokkanna eru hins vegar flestir jákvæðir til Geirs H. Haarde formanns Sjálfstæðisflokksins. 8.4.2007 18:33
Fluttur með þyrlu á slysadeild Jeppabifreið og fjórhjól skullu saman í Skarðsfjöru, rétt fyrir utan Vík í Mýrdal seinnipartinn í dag. Ökumaður fjórhjólsins kvartaði undan eymslum í baki og var þyrla Landhelgisgæslunnar send á staðinn. Hún lenti við Landspítalann í Fossvogi nú rétt fyrir fréttir. Maðurinn er ekki eins alvarlega slasaður og talið var í fyrstu. Þá valt jeppabifreið skammt frá Selfossi í dag og barn flutt með sjúkrabifreið til Reykjavíkur þar sem grunur lék á innvortis meiðslum. 8.4.2007 18:16
Róstursamt í Írak í dag Að minnsta kosti þrjátíu létust í átökum í Írak í dag. Á meðal látinna eru fimmtán almennir borgarar sem létust í bílsprengju í Mahmoudiyah suður af Bagdad höfuðborg Íraks. 8.4.2007 18:15
Dorrit heppin að vera á lífi Dorrit Mussayef, forsetafrú, var heppin að láta ekki lífið, þegar hún rakst nýlega harkalega á málmskilti í skíðabrekku í Aspen í Bandaríkjunum. Forsetafrúin brotnaði illa en er byrjuð í endurhæfingu og vonast læknar til þess að hún nái sér að fullu. 8.4.2007 17:55
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent