Heimilin fjármagna 20% fræðslumála 9. apríl 2007 18:44
Um tuttugu prósent útjalda til fræðslumála eru fjármögnuð af heimilunum og hefur sá hlutur farið vaxandi síðustu ár. Þá eru um sautján prósent heilbrigðisútgjalda fjármögnuð beint af heimilum landsins. Þrátt fyrir að þetta sé svipuð útgjaldaskipting á milli hins opinbera og heimilanna og gerist í nágrannaríkjunum, er þetta breyting á því fyrirkomulagi sem verið hefur í íslensku samfélagi í heilbrigðis- og menntamálum. Ríflega 9,4 prósentum af landsframleiðslu var ráðstafað til heilbrigðismála árið 2005, en það svarar til 96,3 milljarða króna. Þetta kemur fram í Hagtíðindum Hagstofu Íslands. Um 17,5 prósent útgjaldanna voru fjármögnuð af heimilunum, en þáttur heimilanna í kostnaði heilbrigðisþjónustunnar hefur verið á bilinu 17 til 18 prósent síðustu ár. Ef litið er lengra aftur í tímann, sést að útgjöld til heilbrigðisþjónustunnar hafa vaxið um nálægt 28 prósentum síðustu átta ár, en á mann hafa þau aukist um tæplega 18 prósent á þeim tíma. Um 8,4 prósent af landsframleiðslu eða ríflega 85 milljörðum króna er ráðstafað til fræðslumála. Um 19,6 prósent útgjaldanna eru fjármögnuð af heimilunum og hefur sá hlutur farið hækkandi síðustu ár. Frá árinu 1998 hafa fræðsluútgjöld hækkað um ríflega 36 prósent, en á mann hafa þau aukist um rúmlega 26 prósent. Mest er aukningin eftir árið 2001.
Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira