Fleiri fréttir Nowak kærð fyrir morðtilraun Lögreglan í Orlando í Flórída hefur ákært geimfara vegna tilraunar til morðs. Geimfarinn, Lisa Nowak, reyndi að ræna konu sem hún hélt að væri samkeppnisaðili um ástir annars geimfara, William A. Oefelein. Nowak var handtekin fyrir líkamsárás í gær og átti að sleppa henni gegn tryggingu í dag. 6.2.2007 18:01 Samfylkingin vill fresta stóriðjuframkvæmdum Samfylkingin vill fresta stóriðjufamkvæmdum í Straumsvík og Helguvík. Þetta kom fram í ræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í umræðu sem fram fór á Alþingi í dag. Umræðan var vegna frumvarps um rammaáætlun um náttúruvernd. 6.2.2007 17:31 Æsispennandi sjónvarp 6.2.2007 17:10 Morðingi Önnu Lindh fær ekki að fara heim Hinn serbneski morðingi Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, fær ekki að afplána lífstíðar fangelsisdóm sinn í Serbíu. Sænsk fangelsisyfirvöld höfnuðu beiðni þar um, eftir að hafa fengið þau svör frá Serbíu að óljóst væri hvort refsing hans yrði stytt þar. 6.2.2007 16:51 Mótmæla í rúminu Bandarískt par mótmælir nú í rúminu heima hjá sér að hætti Johns Lennons og Yoko Ono, gegn stríðinu í Írak. Ernie og Lynn Seewer frá Mobile í Alabama hafa fært rúmið sitt inn í stofu og vilja að aðrir fylgi fordæmi sínu. Ernie sagði Press-Register að eins og John Lennon væri honum sama að gera sig að fífli, ef skilaboðin kæmust áfram. Ernie kennir fjölmiðlaframleiðslu í háskólanum í suður Alabama. 6.2.2007 16:39 Tuttugu og fimm ára rútuferð Jaeyaena Beuraheng er múslimi af malaiskum uppruna sem hvorki kann að tala eða skrifa taílensku. Hún bjó í einu af þrem múslimahéruðum syðst í Thaílandi, sem voru innlimuð í Taíland fyrir meira en eitthundrað árum. Þau hafa hinsvegar aldrei runnið saman við Taíland og tungumál og siðir eru allt aðrir. 6.2.2007 16:25 Tengibrautin í samræmi við lög Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir að heimild til að veita framkvæmdaleyfi fyrir tengibraut um Álafosskvísl hafi verið skýr og í fullu samræmi við lög og reglur. Gengið hafi verið úr skugga um það á fundi bæjarins með fulltrúum Umhverfisstofnunar 5. febrúar. Ekki hafi þurft að leita umsagnar Umhverfisstofnunar í þriðja sinn. 6.2.2007 15:54 Ódýrara að aka um Hvalfjarðargöngin Veggjöld um Hvalfjarðagöngin lækka frá og með 1. mars næstkomandi. Þannig lækkar stök ferð fólksbíla úr eitt þúsund krónum í níu hundruð krónur. Gjaldið fyrir staka ferð hefur verið þúsund krónur frá því göngin voru opnuð 1998. Bæði er um lækkun virðisaukaskatts að ræða og lækkun fyrirtækisins. 6.2.2007 15:33 Bandarísk herstjórn fyrir Afríku 6.2.2007 15:23
Sjá næstu 50 fréttir
Nowak kærð fyrir morðtilraun Lögreglan í Orlando í Flórída hefur ákært geimfara vegna tilraunar til morðs. Geimfarinn, Lisa Nowak, reyndi að ræna konu sem hún hélt að væri samkeppnisaðili um ástir annars geimfara, William A. Oefelein. Nowak var handtekin fyrir líkamsárás í gær og átti að sleppa henni gegn tryggingu í dag. 6.2.2007 18:01
Samfylkingin vill fresta stóriðjuframkvæmdum Samfylkingin vill fresta stóriðjufamkvæmdum í Straumsvík og Helguvík. Þetta kom fram í ræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í umræðu sem fram fór á Alþingi í dag. Umræðan var vegna frumvarps um rammaáætlun um náttúruvernd. 6.2.2007 17:31
Morðingi Önnu Lindh fær ekki að fara heim Hinn serbneski morðingi Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, fær ekki að afplána lífstíðar fangelsisdóm sinn í Serbíu. Sænsk fangelsisyfirvöld höfnuðu beiðni þar um, eftir að hafa fengið þau svör frá Serbíu að óljóst væri hvort refsing hans yrði stytt þar. 6.2.2007 16:51
Mótmæla í rúminu Bandarískt par mótmælir nú í rúminu heima hjá sér að hætti Johns Lennons og Yoko Ono, gegn stríðinu í Írak. Ernie og Lynn Seewer frá Mobile í Alabama hafa fært rúmið sitt inn í stofu og vilja að aðrir fylgi fordæmi sínu. Ernie sagði Press-Register að eins og John Lennon væri honum sama að gera sig að fífli, ef skilaboðin kæmust áfram. Ernie kennir fjölmiðlaframleiðslu í háskólanum í suður Alabama. 6.2.2007 16:39
Tuttugu og fimm ára rútuferð Jaeyaena Beuraheng er múslimi af malaiskum uppruna sem hvorki kann að tala eða skrifa taílensku. Hún bjó í einu af þrem múslimahéruðum syðst í Thaílandi, sem voru innlimuð í Taíland fyrir meira en eitthundrað árum. Þau hafa hinsvegar aldrei runnið saman við Taíland og tungumál og siðir eru allt aðrir. 6.2.2007 16:25
Tengibrautin í samræmi við lög Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir að heimild til að veita framkvæmdaleyfi fyrir tengibraut um Álafosskvísl hafi verið skýr og í fullu samræmi við lög og reglur. Gengið hafi verið úr skugga um það á fundi bæjarins með fulltrúum Umhverfisstofnunar 5. febrúar. Ekki hafi þurft að leita umsagnar Umhverfisstofnunar í þriðja sinn. 6.2.2007 15:54
Ódýrara að aka um Hvalfjarðargöngin Veggjöld um Hvalfjarðagöngin lækka frá og með 1. mars næstkomandi. Þannig lækkar stök ferð fólksbíla úr eitt þúsund krónum í níu hundruð krónur. Gjaldið fyrir staka ferð hefur verið þúsund krónur frá því göngin voru opnuð 1998. Bæði er um lækkun virðisaukaskatts að ræða og lækkun fyrirtækisins. 6.2.2007 15:33
Dæmdir fyrir að ræna manni og misþyrma honum Héraðsdómur Reykjaness dæmi í dag þrjá unga karlmenn fyrir að ræna í maí á síðasta ári tvítugum karlmanni og misþyrma honum. Þeir námu manninn á brott af heimili hans í Garðabæ, óku með hann upp í Heiðmörk og gengu í skrokk á honum þar. 6.2.2007 15:19
Lýst eftir 16 ára stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 16 ára stúlku Guðrúnu Maríu Pálsdóttur. Ekkert hefur til hennar spurst síðan þriðjudaginn 30. janúar. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Guðrúnar Maríu eru beðnir að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1100. 6.2.2007 15:15
Brúðarmeyjar til leigu Kínversk stúlka hefur stofnað fyrirtæki sem séhæfir sig í leigu á brúðarmeyjum. Xu Lisha er nemandi í Tækniskólanum í Tianjin. Í auglýsingu á internetinu leitar hún að grönnum háskólanemum, glæsilegum í útliti, sem hafi hæfileika til að bregðast fljótt og vel við atvikum í brúðkaupum. 6.2.2007 15:00
Frumvarp um losun gróðurhúsalofttegunda Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun frumvarp umhverfisráðherra um losun gróðurhúsalofttegunda. Frumvarpinu er ætlað að gefa stjórnvöldum tæki til að stjórna losun koldíoxíðs frá stóriðju. 6.2.2007 14:43
Segja „draumalandsverð“ afvegaleiðingu Íslenskir kjúklingaframleiðendur bregðast við fréttum um fuglaflensu í Bretlandi og salmonellusmit í Svíþjóð. Þeir vilja benda á að allt innra eftirlit hér á landi er mjög virkt og litlar líkur á að hér komi upp skæðir faraldrar eins verið hafa í fréttum. 6.2.2007 14:36
Kjósa um framboð Félagsmenn í Framtíðarlandinu munu kjósa um það á morgun hvort þeir bjóði sig fram til Alþingis eða ekki. Til þess að af framboðinu verði þurfa 66,6% félagsmanna að samþykkja tillögu þess efnis. 6.2.2007 13:59
Álaborg seld með kvóta frá Þorlákshöfn Bergur Huginn í Vestmannaeyjum hefur keypt tog- og netabátinn Álaborg ÁR 25 af Eyrum ehf. í Þorlákshöfn. Báturinn er seldur með öllum kvóta, sem er 364 þorskígildistonn. Álaborg er 138 brúttórúmlestir, smíðuð á Ísafirði árið 1974. 6.2.2007 13:48
Vill láta rannsaka drengjaheimilið í Breiðuvík Félagsmálaráðherra telur mikilvægt að starfsemi á drengjaheimilinu í Breiðuvík á Vestfjörðum verði rannsökuð. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, vakti máls á fréttaflutningi Kastljósins af slæmri meðferð drengjanna sem þar dvöldu við upphaf þingfundar í dag. 6.2.2007 13:37
Samfylkingin hvergi bangin Varaformaður Samfylkingarinnar segir að nægur tími sé til að hífa upp fylgi flokksins fyrir kosningar og að formaður flokksins sé trompið í þeirri viðleitni. Helstu niðurstöður skoðanakannannar Blaðsins um fylgi stjórnmálaflokkana sem birt var í dag sýnir mikið fylgistap hjá Samfylkingunni frá síðustu kosningum og mælist hún nú með liðlega 19 prósenta fylgi en var með 31 prósent í kosningum 2003. 6.2.2007 12:45
Málið á Laugum fullrannsakað Sigurður Brynjúlfsson, yfirlögregluþjónn á Húsavík, segir að það muni ráðast á næstu dögum hvort mál nokkurra drengja sem námu á brott stúlkur undir lögaldri úr heimavistarskólanum á Laugum verði sent til ríkissaksóknara. Málið þykir fullrannsakað og hefur lögfræðingur embættisins það nú undir höndum. 6.2.2007 12:30
Bæjarstjóri á „flæmingi“ undan lögunum Varmársamtökin segja að bæjarstjóri Mosfellsbæjar hafi farið með rangt mál í fréttum í gærkvöldi varðandi mat á umhverfisáhrifum af tengibraut um Álafosskvos. Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri sagði að vegna úrskurðar umhverfisráðherra um náttúruminjaskrá, hafi bænum ekki borið skylda til að óska eftir umsögn Umhverfisstofnunar um umhverfisáhrif. Þetta segja Varmársamtökin rangt. 6.2.2007 12:19
Forsætisráðherra segir Byrgismálið hneyksli Forsætisráðherra segir að Byrgismálið sé bæði fjárhagslegt og mannlegt hneykslismál, en telur að félagsmálaráðherra þurfi ekki að segja af sér embætti vegna þess. Málið sé allt til rannsóknar hjá réttum aðilum. 6.2.2007 12:15
Tekist á um Baugsmálið Skattrannsóknastjóri segir að ríkislögreglustóri hafi ekki lagaheimildir til að krefja embætti sitt um upplýsingar um skattamál einstaklinga, sem tengjast Baugsmálinu. Saksóknari efnahagsbrota hjá Ríkislögreglustjóra segir hins vegar að sér beri að sjá til þess að sekir menn sæti refsimeðferð. 6.2.2007 12:15
Bandaríkjamenn skutu á Breta Breska götublaðið Sun og AP fréttastofan hafa komist yfir upptökur úr stjórnklefa bandarískrar orustuþotu sem skaut á bílalest breskra hermanna í Basra í Írak fyrir tæpum fjórum árum. 6.2.2007 12:00
Fasteignaverð lækkar í höfuðborginni Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur nálgast þolmörk og lækkaði á síðasta ári. Sveitarfélögin auka óvissu á fasteignamarkaði með því að upplýsa ekki um lóðaframboð. Forstöðumaður Rannsóknaseturs um húsnæðismál segir þó enga holskeflu lækkana framundan. 6.2.2007 12:00
Börn sjá klám á netinu Nærri sex af hverjum tíu breskum börnum hafa fyrir slysni rambað inn á klámsíður á netinu. Prófessor í geðlækningum við London School of Economics sem gerði rannsókn með þessum niðurstöðum segir engan sýnilegan árangur af forritum og netvörnum sem eiga að sía út óæskilegt efni. 6.2.2007 11:52
Uppbygging Vatnsmýrarinnar rædd í dag Tillaga Samfylkingarinnar um uppbyggingu þekkingarklasa í Vatnsmýrinni verður til umræðu í borgarstjórn í dag. Byggir hún stefnumótun og þróun síðustu ára, m.a. samningum við Háskóla Íslands, Háskólan í Reykjavík og Landsspítala-háskólasjúkrahús. 6.2.2007 11:38
Dæmdur fyrir gagnastuld frá Decode Fyrrverandi starfsmaður Íslenskrar erfðagreiningar var í dag dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir að stela gögnum frá Íslenskri erfðagreiningu. Dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. Verjandi mannsins segir niðurstöðuna byggða á misskilningi. 6.2.2007 11:38
Sænskt fjölskyldufólk háð hinu opinbera Í nýrri bók sænska hagfræðingsins Dr. Fredrik Bergström er tekið fyrir hvernig háskattapólitík í Svíþjóð hefur gert venjulegt sænskt fjölskyldufólk háð hinu opinbera um efnahagslegt og félagslegt öryggi. Höfundurinn heldur fyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík um efni bókarinnar og annarar bókar þar sem borin eru saman lífskjör í Svíþjóð og Bandaríkjunum. 6.2.2007 11:37
Önnur bréfsprengja í Englandi Tveir særðust þegar bréfsprengja sprakk í skrifstofubyggingu í Berkshire í suðurhluta Englands í morgun. Í gær slasaðist ein kona þegar önnur bréfsprengja sprakk á skrifstofu í London. Byggingin í Berkshire var rýmd eftir sprenginguna í morgun. Lögregla segir of snemmt að segja til um það hvort sprengingin í dag og sú í gær tengist. 6.2.2007 11:13
Lunga Björns Bjarnasonar féll saman Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, þurfti að leita sér læknisaðstoðar í gær en við skoðun kom í ljós að hægra lunga hans hafði fallið saman. 6.2.2007 11:07
Mældist á tvöföldum hámarkshraða Tveir ökumenn voru stöðvaðir í Vestfjarðagöngunm í síðustu viku fyrir of hraðan akstur. Mældist annar þeirra á 114 km. 6.2.2007 10:55
Stjórn mynduð í Hollandi Kristilegir demókratar, Verkamannaflokkurinn og Kristilegi flokkurinn virðast vera að ná saman um samsteypustjórn í Hollandi. Tveir mánuðir eru frá þingkosningum í landinu. 6.2.2007 10:40
Bilaði bíllinn Bifvélavirki í New York fékk verkbeiðni sem á stóð; Það heyrist alltaf "klúnk" þegar bíllinn beygir. Bifvélavirkinn fór út með bílinn í reynsluakstur. Hann tók hægri beygju, og mikið rétt, það heyrðist "klúnk." Þá tók hann vinstri beygju og það heyrðist aftur "klúnk." 6.2.2007 10:25
Seldi ungabarn á 600 dollara Hjúkrunarkona í Bishkek í Kyrgistan seldi ungabarn til lögreglumanna í dulargervi á 600 bandaríkjadali. Lögreglumennirnir máttu velja hvort þeir keyptu dreng eða stúlku. Hjúkrunarkonan hefur verið fangelsuð fyrir athæfið. Lögreglu grunar að barnasala sé algeng í Kyrgistan enda búa allt að 80% barna þar í landi við sára fátækt. Nú hefur verið skorin upp herör gegn þessu í landinu. 6.2.2007 10:22
„Meint misnotkun“ á Framkvæmdasjóði aldraðra Aðstandendafélag aldraðra – AFA – segir að heilbrigðisráðuneytið og ráðherrar þess hafi ráðskast með fé Framkvæmdasjóðs aldraðra til óskyldra hluta. Þannig hafi þeir beinlínis stuðlað að því ástandi sem nú ríkir í hjúkrunar- og dvalarmálum aldraðra. Fram hefur komið að gerð og dreyfing kynningarbæklings heilbrigðisráðherra um áherslur í öldrunarmálum var kostuð af sjóðnum. 6.2.2007 10:19
Annar laus úr gæsluvarðhaldi Lögreglan á Selfossi lét í gærkvöldi lausan annan tveggja manna sem sat í gæsluvarðhaldi vegna gruns um innflutning á fíkniefnum frá Suður-Ameríku. Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir þeim báðum 6.2.2007 10:15
Írönskum erindreka rænt í Bagdad Utanríkisráðuneyti Íran staðfesti í dag að írönskum diplómata hafi verið rænt í Bagdad í Írak. Manninum var rænt af byssumönnum sem voru klæddir í írakska herbúninga. Íransstjórn segir honum hafa verið rænt af undirlagi Bandaríkjamanna. 6.2.2007 10:02
Indverjar ræða við Google Google á nú í viðræðum við indversku ríkisstjórnina vegna Google Earth forritsins. Indversk yfirvöld eru hrædd um að of mikið sjáist á myndunum sem eru í Google Earth og að öfgamenn geti notað þær sem teikningar. 5.2.2007 23:25
Öldungadeildin styður Bush Öldungadeild bandaríska þingsins hafnaði í kvöld tillögu sem hefði lýst yfir óánægju þingsins með aukningu hermanna í Írak. Frumvarpið var ekki bindandi fyrir George W. Bush, forseta Bandaríkjanna. Það var hugsað sem opinber yfirlýsing um andstöðu við áætlanir Bush. 5.2.2007 23:16
Íranar segja frá framförum 11. febrúar FARS, fréttastofa íranska ríkisins, sagði frá því á laugardaginn var, að 11. febrúar yrði sagt frá stórkostlegum framförum í kjarnorkuáætlun landsins. 11. febrúar er lokadagur hátíðahalda sem minnast uppreisnarinnar í Íran árið 1979. 5.2.2007 22:26
Bítlarnir og Apple ná sáttum Tæknifyrirtækið Apple hefur loksins náð sátt í deilum sínum við Bítlana en þeir eiga útgáfufyrirtæki sem heitir Apple Corps. Allt síðan 1981 hafa Bítlarnir og Apple deilt um réttinn á vörumerkinu Apple. 5.2.2007 22:20
Hraðstefnumót þeirra ríku og fallegu Sumir segja að án peninga geti rómantíkin aldrei blómstrað. Það orðatiltæki varð til þess að ný tegund af svokölluðum hraðstefnumótum varð til. Á þeim eru aðeins ríkir karlmenn og aðeins fallegar konur. Þau hittast síðan öll og finna, ef allt gengur að óskum, ástina. 5.2.2007 21:57
Khodorkovsky ákærður á ný Rússneskir saksóknarar lögðu fram í dag nýjar ákærur á hendur Mikhail Khodorkovsky, fyrrum olíujöfri sem nú situr í fangelsi fyrir skattsvik. 5.2.2007 21:30
Hertar reglur um knattspyrnuleiki á Ítalíu Fótboltavellir á Ítalíu munu ekki opna á ný fyrr en öryggiskröfum hefur verið framfylgt og gæsla á leikjum hert. Þetta sagði innanríkisráðherra Ítalíu, Giuliano Amato, í dag eftir neyðarfund með knattspyrnuyfirvöldum þar í landi. 5.2.2007 21:00
Egypsk stúlka lést úr fuglaflensu 17 ára egypsk stúlka lést í dag af völdum fuglaflensu, eða H5N1 vírusins. Hún er tólfti Egyptinn sem lætur lífið af völdum hennar. Þetta kom fram í fréttum frá ríkisfréttastöð Egyptalands í dag. 5.2.2007 20:30