Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Abbas bannar sveitir Hamas Spennan á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna jókst enn í dag þegar Makmúd Abbas forseti lýsti því yfir að Hamas-samtökunum væri óheimilt að starfrækja eigin öryggissveitir. 6.1.2007 18:45
Óttast að Þormóður Rammi leigi kvóta þriggja skipa Oddvita Samfylkingarinnar í norðausturkjördæmi lýst illa á uppsagnir yfirmanna á þremur skipum Þormóðs ramma. Hann óttast að fyrirtækið muni nota smugu í lögunum til þess að leigja út allar aflaheimildir skipanna á næsta fiskveiðiári. Framkvæmdastjóri Þormóðs ramma segir að samkvæmt lögum megi fyrirtækið ekki leigja út meira en helming aflaheimildanna. 6.1.2007 18:30
Frábiður sér gagnrýni Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, hótaði í dag að endurskoða samskipti við þau ríki sem gagnrýnt hafa aftöku Saddams Hussein, þar sem um íhlutun í írösk innanríkismál sé að ræða. George Bush hyggst senda liðsauka til Íraks en demókratar, sem nú eru í meirihluta á Bandaríkjaþingi, leggjast gegn því. 6.1.2007 18:24
Brotist inn í Verkmenntaskólann Tveir karlmenn brutust inn í Verkmenntaskólann á Akureyri klukkan hálfsex í morgun. Þeir flúðu af vettvangi um leið og viðvörunarkerfi fór í gang þegar þeir voru búnir að spenna upp glugga og höfðu því ekkert þýfi upp úr krafsinu. Þeir náðust skömmu seinna. Engar teljandi skemmdir urðu á húsinu. 6.1.2007 17:36
Þýskir flugumferðarstjórar hóta verkfalli Flugumferðarstjórafélag Þýskalands sagði í dag að verkfall væri líklegt innan 100 klukkustunda, eða fjögurra sólarhringa. Flugmálastjórn Þýskalands Deutsche Flugsicherung boðaði hins vegar til frekari samningaviðræðna og hyggst kalla til sáttasemjara til að leysa deiluna. Verkfall myndi þýða tafir fyrir hundruð þúsunda ferðalanga. 6.1.2007 17:07
13 létust í demantanámu Minnst 13 manns létust þegar demantanáma hrundi í Kongó í gær. 13 lík fundust í gær en sveitarstjórinn segir að verið sé að leita í rústunum, hvort einhverjir fleiri hafi lent í slysinu. Þrír komust lífs af í slysinu en náman er 15 metra djúpur, opinn skurður. 6.1.2007 16:44
Nekt og axir hjá löggunni Lögregla höfuðborgarsvæðisins fær margvísleg verkefni, þeirra á meðal var hún kölluð til til að gá að hálfþrítugum sem sagt var að gengi um klæðalítill í miðbæ Reykjavíkur. Þegar að var komið reyndist maðurinn kviknakinn og í annarlegu ástandi. Þá gerði lögreglan upptækar þrjár axir í bíl ungs manns í gær. 6.1.2007 16:27
Veðjar á að Bláfjöll verði opnuð um næstu helgi Starfsmenn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins vinna nú hörðum höndum að því að troða og safna snjó í brekkur í Bláfjöllum. Grétar Hallur Þórisson, forstöðumaður Bláfjalla og Skálafells, segist hafa trú á því að hægt verði að opna í Bláfjöllum um næstu helgi, þar sem spái áframhaldandi snjókomu á næstu dögum. 6.1.2007 16:16
30 óku of hratt Þrjátíu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Lögregla segir þetta allmikið, ekki síst í ljósi þess að akstursskilyrði voru ekki góð en flestir ökumenn hægja á sér þegar færðin versnar. Þá voru sömuleiðis fjölmargir árekstrar tilkynntir til lögreglu. 6.1.2007 16:05
Tvöfalda liðsstyrk öryggissveitanna Öryggissveitir undir stjórn ríkisstjórnarflokksins Hamas í Palestínu segjast ætla að tvöfalda liðsstyrk sinn, upp í 12 þúsund manns, aðeins nokkrum stundum eftir að forseti Palestínu, Mahmoud Abbas, sagði sveitirnar ekki samræmast lögum. Talmaður sveitanna hvatti alla "ábyrga borgara" í dag til að búa sig undir að ganga í sveitirnar. 6.1.2007 15:32
Fjögur fíkniefnamál í gær Fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Þar af voru þrjú í Reykjavík og eitt í Hafnarfirði. Fimm karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri voru handteknir vegna málanna. 6.1.2007 15:26
Ríkisstjórninni enn mótmælt í Líbanon Stjórnarandstaðan í Líbanon, með Hisbollah í broddi fylkingar, boðar til næsta skrefs í baráttu sinni gegn sitjandi ríkisstjórn. Í næstu viku ætlar stjórnarandstaðan að lama landið með verkföllum og mótmælum, meðal annars með setuverkfalli fyrir utan fjármálaráðuneytið á þriðjudagsmorgun vegna nýrra fjárlaga. 6.1.2007 14:17
Flaggað á Vestfjörðum vegna úrskurðar umhverfisráðherra Bæjarstjóri Vesturbyggðar hefur ákveðið að flaggað skuli á öllum opinberum byggingum sveitarfélagsins, bæði á Patreksfirði og Bíldudal, í dag vegna þeirrar ákvörðunar umhverfisráðherra í morgun að leyfa nýtt stæði Vestfjarðavegar um Þorskafjörð, Djúpafjörð og Gufufjörð. 6.1.2007 14:10
Karlmenn í meirihluta í spurningaprófi Karlmenn voru í áberandi meirihluta meðal þeirra 296 sem spreyttu sig á inntökuprófi í spurningaþáttinn Meistarann klukkan tvö í dag. Prófin voru haldin í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöðum og á Ísafirði. Á prófinu voru 50 spurningar, misþungar, og ráða úrslit því hverjir fá að freista gæfunnar í sjónvarpsþættinum Meistaranum. 6.1.2007 14:00
Einn Sómali látinn í skotbardögum við lögreglu Einn maður lést í skotbardögum milli sómalskra lögreglumanna og hóps manna sem mótmæltu veru eþíópískra hermanna í Mógadisjú í Sómalíu. Stjórnvöld segja lögreglu hafa svarað skothríð frá mótmælendunum en einn hafi látist úr hópi mótmælendanna. Mótmælendur hafa brennt hjólbarða og kastað grjóti í höfuðborginni í dag. 6.1.2007 13:50
DV þá og DV nú "Jú, það er rétt að forsíðan minnir óneitanlega á forsíðuna í apríl 2004. En að öðru leyti vil ég ekki tjá mig um málið,“ segir Mikael Torfason, aðalritstjóri tímaritaútgáfunnar Birtíngs, undrandi þegar Fréttablaðið náði tali af honum. 6.1.2007 13:30
Indónesíska vélin enn ófundin Enn hefur hvorki fundist tangur né tetur af flaki indónesísku farþegaþotunnar sem hvarf sporlaust á nýársdag á leiðinni frá Jövu til Sulawesi með 102 farþega innanborðs. 6.1.2007 12:46
Lögreglukona stungin til bana í Bretlandi Bresk lögreglukona fannst látin á heimili sínu í Leicestershire og hafði verið stungin til bana, ásamt manni sem er talinn hafa verið kærasti hennar, að sögn lögreglu. Krufning sýndi að bæði létust af stungusárum. Lögreglan braust inn í íbúð konunnar eftir að fjölskylda hennar lýsti áhyggjum af því ekki náðist samband við hana. 6.1.2007 12:45
Óljóst hver á að njóta hækkunarinnar Niðurgreiðslur til dagforeldra jukust um ríflega 85 milljónir króna um áramótin. Bæði dagforeldrar og foreldrar virðast ráðvilltir um hver eigi að njóta aukinnar niðurgreiðslunnar. 6.1.2007 12:36
Demókratar andvígir fjölgun hermanna Demókratar, sem nú eru í meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings í fyrsta sinn í tólf ár, leggjast eindregið gegn því að fjölgað verði í herliði Bandaríkjanna í Írak eins og búist er við að George Bush forseti leggi til í næstu viku. 6.1.2007 12:21
Öfgalaus útifundur við Urriðafoss Útifundur verður haldinn við Urriðafoss í Þjórsá klukkan þrjú í dag þar sem náttúruverndarsinnar og heimamenn sem vilja vernda svæðið ræða fyrirhugaðar virkjunarframkvæmdir. Bjarni Harðarson, blaðamaður, skipuleggur fundinn til þess að fá fram öfgalausa umræðu um umhverfismál, að því er segir á heimasíðu hans. 6.1.2007 12:16
Ef Kaupþing gerir upp í evrum verður peningamálastefnan bitlaus Ef stærsti banki landsins fer að gera upp í evrum þá verður peningamálastefnan hér á landi bitlaus. Þetta er mat fyrrverandi forstöðumanns Hagfræðistofnunar HÍ og bankastjóra sem segir það hagsmuni fjármálageirans að Íslendingar taki upp evruna. 6.1.2007 12:08
Umhverfisráðherra heimilar Vestfjarðaveg Umhverfisráðherra hefur heimilað að Vestfjarðavegur verði lagður yfir Gufufjörð og Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum og út með Þorskafirði. Þar með snýr ráðherra við niðurstöðu Skipulagsstofnunar, sem hafnaði framkvæmdinni vegna mikilla umhverfisáhrifa. 6.1.2007 11:56
Rétttrúnaðarjól í dag Rússneska rétttrúnaðarkirkjan fagnar í dag jólum víða um heim, meðal annars á Íslandi. Jólaguðsþjónusta rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi verður haldin í Friðrikskapellu á Valsvellinum í kvöld klukkan 23:00. Messan tekur um tvo og hálfan tíma og á morgun verður jólaball fyrir börnin. 6.1.2007 11:43
Offitulyf fyrir hunda komið á markaðinn Það er á allra vitorði að Bandaríkjamenn eru feitasta þjóð veraldar en hitt vita færri að hið sama gildir um bandaríska hunda. Rannsóknir sýna að allt að þriðjungur hunda í landinu er of þungur og fimm prósent glíma við sjúklega offitu. 6.1.2007 11:30
Veðja á brúðkaup 19. júlí Bretar veðja á að konungurinn tilvonandi William Bretaprins, muni ganga að eiga unnustu sína Kate Middleton þann 19. júlí næstkomandi. Veðlánarinn William Hill er hættur að taka veðmálum um þessa dagsetningu eftir fjölmörg stór veðmál þessa efnis. Hann gæti tapað tæplega þremur milljónum ef dagsetningin reynist rétt. 6.1.2007 11:19
Óttast ólæti á Norðurbrú Lögregla í Kaupmannahöfn er í viðbragðsstöðu vegna fyrirhugaðra mótmæla við félagsmiðstöð róttæklinga á Norðurbrú í dag. Til óeirða kom í síðasta mánuði fyrir framan húsið eftir að yfirvöld ákváðu að róttæklingarnir yrðu að yfirgefa húsið þar sem búið var að selja það. 6.1.2007 11:00
Viltu verða meistari? Þeim sem gekk vel í spurningaspilum við fjölskylduna um jólin býðst nú tækifæri til að setja markið enn hærra. Inntökupróf fyrir spurningaþáttinn Meistarann verður haldið í Hagaskóla í Vesturbænum klukkan 14:00. Spurningarnar eru 50 talsins og þungir kaflar inn á milli, að sögn Loga Bergmanns Eiðssonar, umsjónarmanns þáttarins. 6.1.2007 10:58
Olíuverð hækkar á ný Eftir mikla dýfu undanfarna daga hækkaði heimsmarkaðsverð á olíu undir lok gærdagsins. Fatið af Norðursjávarolíu endaði í 55 dölum og 64 senti en var um tíma komið niður fyrir 55 dali. Vestanhafs var verðið á hráolíufatinu komið upp í 56 dali og 31 sent þegar mörkuðum var lokað þar í gær. 6.1.2007 10:45
„Ekki setja manneskju í þvottavélina.“ Bandarískt félag sem sérhæfir sig í því að berjast gegn lögsóknum hefur safnað saman lista yfir fáránlegustu viðvaranir á vörum á síðasta ári. 150 viðvaranir bárust til félagsins og sú sem bar sigur úr býtum hljóðaði svo: „Ekki setja manneskju í þvottavélina." 5.1.2007 23:30
Bush hættur að nudda aðra þjóðarleiðtoga George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur lofað að gefa Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, ekki fleiri nudd. Frægt er orðið þegar Bush tók sig til á leiðtogafundi í fyrra og labbaði upp að Merkel og fór að nudda á henni axlirnar. 5.1.2007 23:15
Braust inn og kláraði barinn Þjófur í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum skildi eftir fleiri vísbendingar en hafði ætlað sér því hann fékk sér nokkra drykki úr barnum í húsinu sem hann braust inn í og drapst því næst áfengisdauða á stofugólfinu. 5.1.2007 23:00
Ban Ki-moon ræðir ástandið í Darfur Ban Ki-moon hitti í dag sérstakan erindreka Sameinuðu þjóðanna í Darfur sem og fulltrúa Afríkusambandsins til þess að reyna að blása lífi í friðarviðræður í Darfur. Eftir fundinn hvöttu þeir til þess að einhugur yrði varðandi á meðal aðila öryggisráðsins um hvað ætti að gera í Darfur. 5.1.2007 22:45
27 láta lífið í aurskriðum í Brasilíu Að minnsta kosti 27 létu lífið í aurskriðum í suðausturhluta Brasilíu í þessari viku og talið er að allt að 11 þúsund manns hafi þurft að flýja heimili sín. Varnarmálaráðuneytið þar í landi sagði að enn væri verið að leita að fórnarlömbum og því gæti tala látinna aukist töluvert. 5.1.2007 22:30
Heimatilbúnar auglýsingar í Super Bowl Tímaritið TIME virðist hafa haft rétt fyrir sér þegar það valdi Þig, eða hinn virka netnotanda, sem persónu ársins því ansi margar auglýsingar í Super Bowl, sem er úrslitaleikurinn í ameríska fótboltanum, verða gerðar af sigurvegurum ýmissa keppna sem auglýsendur standa fyrir. Þannig getur hver sem er tekið þátt í keppni um Chevrolet og Doritos auglýsingar og verða þær sem bera sigur úr býtum sýndar í hálfleik. 5.1.2007 22:15
Ákærur á föngum í Guantanamo birtar í febrúar Bandaríski herinn býst við því að birta ákærur á hendur hóps fanga í Guantanamo fangelsinu nú í febrúar og að réttarhöld, þar sem sönnunargöng gegn þeim verða sýnd, verði síðan í sumar. Hundruð manna hefur verið haldið í Guantanamo án dóms vegna gruns um að þeir séu hryðjuverkamenn. 5.1.2007 22:00
47 umferðaróhöpp það sem af er degi 47 umferðaróhöpp hafa átt sér stað það sem af er degi á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan segir ástæðuna í flestum tilfellum vera launhálku en mjög hált var í morgun á fáförnum götum. Tíu innbrot hafa einnig verið tilkynnt lögreglunni í dag. Í einu tilviki voru fjórir þjófar handteknir en í hin eru enn í rannsókn. 5.1.2007 21:30
Sarkozy hvetur íbúa Korsíku til að sýna stillingu Innanríkisráðherra Frakklands, Nicolas Sarkozy, skoraði í dag á ungt fólk á Korsíku til þess að hemja sig og snúa baki við ofbeldi en í gær sprungu nokkrar sprengjur á eyjunni, sem vill sjálfstæði frá Frakklandi. Einn lést í árásunum og einn særðist síðan alvarlega þegar sprengja sem þeir voru að koma fyrir sprakk í höndunum á þeim. 5.1.2007 21:15
Bush skipar nýjan yfirmann leyniþjónustna í Bandaríkjunum George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, skipaði í dag fyrrum flotaforingjann Mike McConnell sem yfirmann bandarískra leyniþjónustna en hann tekur við starfinu af John Negroponte sem verður aðstoðarutanríkisráðherra. McConnell þessi vann áður fyrir stjórn föður Bush og þá var hann helsti aðstoðarmaður Colins Powells. 5.1.2007 21:00
Eftirliti með fjárútlátum ríkisins ábótavant Eftirliti með framkvæmd fjárlaga er ábótavant og hvergi í stjórnkerfinu er til listi yfir þá sem fá framlög úr ríkissjóði. Ríkisendurskoðandi vill bæta úr þessu og fór í fyrradag bréflega fram á það, við öll ráðuneytin, að þau taki saman upplýsingar um hverjir fá hvað og í hvað peningarnir fara. 5.1.2007 20:30
Bush hvattur til aðgerða gegn Íran Íran er á bakvið hið aukna ofbeldi í Írak og sér uppreisnarmönnum fyrir vopnum og birgðum. Þetta fullyrti einn helsti andstæðingur íranskra stjórnvalda á fundi nefndar um „Stjórnarskipti í Íran“ í kvöld. Maðurinn, sem heitir Alireza Jafarazadeh, hefur áður fullyrt ýmistlegt um Íran og það hefur jafnan reynst satt. 5.1.2007 20:15
Erkibiskup í Póllandi viðurkennir spillingu Nýskipaður erkibiskup í Varsjá í Póllandi viðurkenndi í dag að hann hefði unnið með leyniþjónustu landsins á þeim tímum sem kommúnistar voru við völd. Hann hafði áður neitað ásökunum þess efnis en þær raddir sem höfðu krafist afsagnar hans gerðust sífellt háværari. 5.1.2007 20:00
20 þúsund flýja ofbeldi í Tsjad Ofbeldi í austurhluta Tsjad, sem upprunnið er í Darfur héraði í Súdan, hefur neytt 20 þúsund manns til þess að flýja heimili sín undanfarnar tvær vikur en Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna skýrði frá þessu í dag. 5.1.2007 19:45
Negroponte aðstoðarutanríkisráðherra George Bush Bandaríkjaforseti gagnrýndi í dag hvernig staðið var að aftöku Saddams Hussein en sagði þó einræðisherrann fyrrverandi hafa fengið réttlátan dóm. John Negroponte, yfirmaður leyniþjónustustofnana ríkisins, var í dag tilnefndur í embætti aðstoðarutanríkisráðherra. 5.1.2007 19:26
Olíuverðslækkanir ósennilegar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur fallið um tíu prósent í þessari viku og hefur ekki verið lægra í hálft annað ár. Ólíklegt er að íslenskir neytendur njóti lækkunarinnar vegna óhagstæðrar gengisþróunar. 5.1.2007 19:17