Fleiri fréttir

Tölur kl. 20:30 - Pétur virðist saxa á Ástu

Pétur Blöndal virðist saxa á Ástu Möller í sjötta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þegar talin hafa verið 6.474 atkvæði vantar Pétur aðeins 27 atkvæði til að ná 6. sætinu af Ástu. Hún hefur hlotið samtals 5.165 atkvæði en Pétur er með samtals 4.885 atkvæði í 1. - 7. sæti.

Dómsmálaráðherra gefur ekki færi á viðtali í kvöld

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, var á kosningaskrifstofu sinni þegar fréttastofa náði tali af honum kl. 20 í kvöld og bað um viðtal þegar síðustu tölur yrðu birtar. hann sagðist ekki ætla að veita fleiri viðtöl í kvöld og vildi ekki að fjölmiðlar kæmu og mynduðu á kosningaskrifstofu hans. Hann gaf ekkert uppi um hvenær hann myndi gefa færi á viðtali á morgun.

Tölur kl. 20:00 - Staðan óbreytt, Björn tjáir sig ekki

Guðlaugur Þór Þórðarson heldur enn öðru sætinu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þegar 5.759 atkvæði hafa verið talin. Guðlaugur Þór hefur hlotið 4.654 atkvæði en Björn Bjarnason er í þriðja sæti, hefur hlotið 4.060 atkvæði. Geir Haarde hefur hlotið 5.525 atkvæði í fyrsta sæti eða tæplega 96% greiddra atkvæða. Guðfinna Bjarnadóttir hedlur fjórða sætinu, Illugi Gunnarsson er í þvi fimmta og Ásta Möller í sjötta sæti. Björn Bjarnason vill ekki tjá sig um hvort hann taki 3. sætið á lista Sjálfstæðismanna ef úrslit verða á þann veg í prófkjörinu. Þessi afstaða Björns eykur á spennuna í talningu atkvæða í prófkjörinu.

Afskaplega þakklátur

"Ég er afskaplega þakklátur fyrir þann stuðning sem ég hef fengið í þessu prófkjöri. Það skiptir mig þó engu sérstöku máli hvort ég verð í 5. eða 6. sæti," sagði Illugi Gunnarsson í samtali við Vísi þegar tölur höfðu verið birtar klukkan 19:30. Samkvæmt þeim er Illugi í 5. sæti með 4.477 atkvæði.

Spurt verður hvaðan peningarnir komi

Aðalritstjóri Ekstra blaðsins danska segir marga spyrja sig hvernig svo fámenn þjóð eins og Ísland geti fjárfest eins mikið og raun beri vitni. Spurt sé hvaðan peningarnir komi og blaðið reyni að svara því. Árni Matihesen, fjármálaráðherra, segir það koma sér á óvart að blaðið boði umfjöllun um íslenska útrás.

Tölur kl. 19:30 - Óræð ummæli Björns Bjarnasonar auka enn á spennuna

Óræð ummæli Björns Bjarnasonar um hvort hann taki sæti á lista samkvæmt úrslitunum í prófkjörinu auka enn á spennuna í talningu atkvæða í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Björn Bjarnason sagði í viðtali við NFS um klukkan 19:30, að hann myndi ræða það þegar úrslitin lægju fyrir hvaða sæti hann myndi taka. Hann játar sig þó ekki sigraðan en Guðlaugur Þór Þórðarsson er enn í öðru sæti þegar búið er að telja 5.512 atkvæði. Allt bendir svo til þess að Sjálfstæðismenn eignist tvo nýja þingmenn, Guðfinnu Bjarnadóttur, sem er nú í fjórða sæti og Illuga Gunnarsson, sem er í fimmta sæti. Í sjötta sæti núna er Ásta Möller.

Fjórtán hundruð mættu á kjörstað

Fjórtán hundruð manns hafa tekið þátt opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í norðvesturkjördæmi sem er heldur minna en búist var við. Þrettán hundruð manns eru skráðir í flokkinn í kjördæminu.

Tölur kl. 18:30 - Guðlaugur nú í öðru sæti

Guðlaugur Þór Þórðarsson er í öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík þegar 3057 atkvæði hafa verið talin. Björn Bjarnason er í þriðja sæti, og Guðfinna Bjarnadóttir í því fjórða. Í fimmta sæti er Ásta Möller og í sjötta Illugi Gunnarsson.

Búið að slökkva eld í nótaskipinu Beiti

Búið er að slökkva eld sem logaði um borð í nótaskipinu Beiti NK 123 þar sem það var statt um tólf sjómílur út af Reyðarfirði. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni tókst áhöfn að einangra eldinn og slökkva hann og er nú verið að reykhreinsa. 14 manns eru í áhöfn. Eldurinn logaði í vélarrúmi skipsins. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslu verður skipinu líkast til siglt til Eskifjarðar.

Fyrstu tölur - Björn Bjarnason í 2. sæti

Björn Bjarnason er í öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík þegar 2066 atkvæði hafa verið talin. Guðlaugur Þór Þórðarsson er í þriðja sæti, og Guðfinna Bjarnadóttir í því fjórða. Í fimmta sæti er Ásta Möller og í sjötta Illugi Gunnarsson.

Stórgrýti féll á veginn um Óshlíð

Mikið grjóthrun varð á Óshlíð, við Sporhamar innan Óshólavita, síðdegis í gær og í gærkvöldi. Geirs Sigurðsson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Ísafirði, segir í samtali við blaðið Bæjarins besta, að stórt grjót hafi komið niður hlíðina og yfir veginn og skemmt vegrið.

Pétur K. Maack skipaður flugmálastjóri

Samgönguráðherra hefur skipað Pétur K. Maack í embætti flugmálastjóra frá 1. janúar 2007. Pétur hefur í tæpan áratug starfað sem framkvæmdastjóri flugöryggissviðs Flugmálastjórnar Íslands.

Skráðu nöfn kjósenda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Á fyrri degi prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sátu fulltrúar Guðlaugs Þórs Þórðarssonar, alþingismanns og frambjóðanda í prófkjörinu, í kjördeildum og skráðu niður nöfn þeirra sem kusu. Hafði Guðlaugur Þór farið fram á það á fimmtudaginn að kjörstjórn sendi upplýsingar til frambjóðenda um alla þá sem hefðu kosið að loknum kjörfundi kl. 21 í gær.

Heimildir um að Ólafur Jóhannesson hafi vitað um öryggisþjónustuna

Heimildir Guðna Th. Jóhannessonar, sagnfræðings, gefa til kynna, að Ólafi Jóhannessyni, forsætis- og dómsmálaráðherra árin 1971-74, hafi verið kunnugt um flesta þætti í starfsemi öryggisþjónustu lögreglunnar, sem deilt hefur verið um að undanförnu. Aðrir fyrrverandi ráðherrar, þar á meðal, Jón Baldvin Hannibalsson og Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi utanríkis- og forsætisráðherra, segjast ekki hafa vitað um slíka starfsemi.

Útlit fyrir að Gilad Shalit fái frelsi

Útlit er fyrir að Gilad Shalit, ísraelski hermaðurinn sem herskáir Palestínumenn rændu í sumar, verði látinn laus á næstu dögum. Ránið á Shalit varð kveikjan að átökum Ísraela og Palestínumanna á Gaza-svæðinu í sumar.

Verðlaunum heiti fyrir upplýsingar um brennuvarga

Yfirvöld í Suður-Kaliforníu hafa boðið jafnvirði tæpra 35 milljóna íslenskra króna fyrir upplýsingar sem leitt geta til handtöku þeirra sem grunaðir eru um að hafa kveikt kjarr- og skógarelda sem loga í ríkinu. Fjórir slökkviliðsmenn hafa týnt lífi í baráttunni við eldana og sá fimmti liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi.

Enn er grjóthrun í Óshlíð

Vegagerðin biður fólk um að vera ekki á ferð um Óshlíð í dag að tilefnislausu. Hætta er þar enn á grjóthruni. Vegagerðin varar einnig við hálkublettum víða á Vestfjörðum og segir að hálka og hálkublettir séu líka víða á Norðaustur- og Austurlandi. Á Öxi er snjóþekja.

Friðarviðræður hafnar í Genf

Friðarviðræður milli stríðandi fylkinga á Srí Lanka hófust í morgun í Genf í Sviss. Þar munu fulltrúar stjórnvalda og uppreisnarmanna Tamíltígra reyna hvað þeir geta til að koma í veg fyrir að allsherjar borgarastyrjöld brjótist út í landinu.

Veit ekki um tengsl við ólögleg viðskipti í Rússlandi

Fjármálaráðherra segist ekki vita um nokkuð sem tengi íslenska kaupsýslumenn við peningaþvætti eða ólögleg viðskipti í Rússlandi. Ekstrablaðið í Danmörku hefur lofað umfjöllun um íslenska útrás á morgun sem sögð taka fram villtustu spennusögum.

Hrefnuveiðibátar tilbúnir á veiðar

Hrefnuveiðibátarnir Halldór á Ísafirði og Njörður í Kópavogi eru tilbúnir til veiða. Njörður gerði tilraun til veiða á fimmtudag og sigldi út á Faxaflóa en varð að snúa við sökum veðurs. Til stóð að báðir bátarnir færu út í dag en líkurnar eru taldar litlar vegna brælu. Hrefnuveiðimenn hafa tíma þar til fyrsta september á næsta ári að veiða þau þrjátíu dýr sem veiða má atvinnuskyni

Kosið um stjórnarskrá Serbíu

Kjósendur í Serbíu ganga í dag og á morgun að kjörborðinu í morgun til að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá landsins. Samkvæmt henni telst Kósóvó óaðskiljanlegur hluti Serbíu.

Prófkjör Samfylkingarinnar í NV-kjördæmi hafið

Prófkjör Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi hófst nú á hádegi. Kosið er á sextán stöðum í kjördæminu og verður opið til klukkan sex í dag og aftur á morgun á milli klukkan tíu og tólf. Fimm gefa kost á sér í fyrsta sæti listans og ætla má að slagurinn verði harður. Sveinn Kristinsson bíður sig aðeins fram í fyrsta sætið. Í fyrsta til annað sætið bjóða sig fram Anna Kristín Gunnarsdóttir, alþingismaður, Guðbjartur Hannesson og séra Karl Matthíasson. Sigurður Pétursson bíður sig fram í fyrsta til fjórða sæti.

Fjórða langreyðurin skorin í Hvalfirði í dag

Yfir tvöhundruð manns eru nú í hvalstöðinni í Hvalfirði en þar er hvalskurður að hefjast í hádeginu. Fjórða langreyðin, sem veiðst hefur á vertíðinni, var dregin þar á land klukkan hálftólf.

Rifbeinsbraut lögregluþjón

Maður sem tekinn var fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í nótt brákaði rifbein í lögreglumanni. Eftir að hann hafði verið færður inn í lögreglubíl reyndi maðurinn að flýja út úr bílnum en náðist á hlaupum. Hann sló til lögregluþjónsins með þessum afleiðingum.

Rúmlega fjögur þúsund hafa kosið

605 manns höfðu mætt á kjörstaði í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík klukkan ellefu í dag en þá höfðu kjörstaðir verið opnir í klukkutíma. Í gær kusu 2734 en kosning hófst á hádegi og var opið til klukkan níu í gærkvöldi. Með utankjörfundaratkvæðum hafa því rúmlega fjögur þúsund manns tekið þátt í prófkjörinu en um tuttugu og eitt þúsund er á kjörskrá í Reykjavík. Kjörstaðiur verða opnir til klukkan sex síðdegis og þá verða fyrstu tölur birtar.

Bíll valt í hálku á Öxnadalsheiði

Bílvelta varð á Öxnadalsheiði um kl. 19 í kvöld. Að sögn lögreglu virðist sem ökumaður hafi misst stjórn á bíl sínum á lúmskum hálkukafla á 1-2 km kafla á veginum. Bíllinn fór eina og hálfa veltu og útaf veginum.

7 týndu lífi þegar súrefniskútur sprakk

Minnst 7 týndu lífi þegar súrefniskútur sprakk í Tiblisi, höfuðborg Georgíu í dag. Sprengingin varð á áfyllingarstöði Isani-Samgori hverfi. Byggingin, þar sem fyllt var á súrefniskúta, hrundi. Björgunarmenn eru enn að störfum í rústunum og óttast að fleiri eigi eftir að finnast látnir þar.

Framkvæmdum á Íslandi og Trínídad og Tóbago mótmælt í Lundúnum

Umhverfisverndarsinnar frá Bretlandi, Íslandi og Tríndídad og Tóbago komu saman á Sloane-torgi í Lundúnum í dag til að mótmæla stóriðjuframkvæmdum tengdum álverum í þessum þremur löndum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá náttúruverndarsamtökunum Saving Iceland.

Vilja leyfa 30 grömm af maríjúana til einkaneyslu

Íbúar í Nevada-ríki í Bandaríkjunum greiða atkvæði um það í næsta mánuði hvort leyfa eigi fólki sem hefur náð 21. árs aldri að eiga allt að tæpum 30 grömmum af maríjúana og geyma það á eigin heimili. Sem stendur er Alaska eina ríkið í Bandaríkjunum sem refsar ekki þeim sem hafa maríjúana til eigin neyslu undir höndum.

Djúpsteikt Coca Cola vekur lukku í Texas

Tölvunarfræðingur frá Bandaríkjunum bætti á dögunum við úrval djúpsteiktra matvæla þegar hann bauð, fyrstur manna, upp á djúpsteikt Coca Cola.

2764 höfuð greitt atkvæði kl. 21

2764 höfðu greitt atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir Alþingiskonsingarnar næsta vor þegar kjörstað í Valhöll var lokað kl. 21 í kvöld, samkvæmt upplýsingum frá starfsmönnum flokksins í kvöld. Þar af höfðu 680 greitt atkvæði utan kjörfundar. Kjörstaðir verða 7 á morgun, þar með talin Valhöll, og verða þeir opnaðir kl. 10 í fyrramálið og hægt að kjósa til kl. 18 annað kvöld. Þá verða fyrstu tölur birtar.

Bildt selur hlutabréf

Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hefur selt hlutabréf sín í fyrirtæki sem fjárfestir í rússneska orkugeiranum. Andstæðingar hans sögðu hættu á hagsmunaárekstrum ef hann héldi þeim. Bildt segist hafa selt hlutabréf sín í fyrirtækinu fyrir nokkrum vikum.

Fagnar stuðningi við vopnaviðskiptasáttmála

Íslandsdeild Amnesty International fagnar víðtækum stuðningi ríkja heims við gerð alþjóðlegs vopnaviðskiptasáttmála sem hefur þann tilgang að styrkja eftirlit með vopnaviðskiptum og koma í veg fyrir ólöglega vopnasölu. Alþjóðlegur vopnaviðskiptasáttmáli muni tryggja að vopn verði ekki seld til landa þar sem mannréttindabrot séu framin og hætta er á vopnuðum átökum.

Varað við grjóthruni á Óshlíð

Vegagerðinn varar við ferðum á Óshlíð vegna hættu á grjóthruni. Fólk beði um að vera ekki á ferð þar um að tilefnislausu.

Ósamræmi milli stofnstærðamats Hafró og IUCN

Hafrannsóknarstofnun segir að svo virðist sem mikið ósamræmi sé milli flokkunar Alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna IUCN og mats stofnunarinnar á langreyðastofninum við Ísland. Þetta kemur fram í pistli á vefsíðu Hafrannsóknarstofnunar. Þar segir að í umræðunni um hvalveiðar Íslendinga hafi ítrekað verið skírskotað til válista IUCN. Þar sé langreyður skráð sem tegund í útrýmingarhættu og gefið í skyn að veiðarnar muni enn auka hættu á útrýmingu tegundarinnar. Samkvæmt pistli Hafrannsóknarstofnunar varpar það villandi ljósi á ráðgjöf stofnunarinnar um þessa stofna. Samkvæmt mati Hafrannsóknarstofnunar sé langreyðarstofninn hér við land um 25.800 dýr. Það mat hafi verið formlega samþykkt af vísindanefndum Alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC) og Norður Atlantshafs Sjávarspendýraráðsins (NAMMCO). Vísindanefnd NAMMCO hafi auk þess komist að þeirri niðurstöðu að langreyðarstofninn hér við land sé nálægt þeirri stærð sem var fyrir tíma hvalveiða á seinni hluta 19. aldar. Fram kemur í pistlinum á vefsíðu Hafrannsóknarstofnunar að Alþjóðahvalveiðiráðið hafi gefið út yfirlýsingu á heimasíðu sinni vegna nýhafinna hvalveiða Íslendinga. Þar komi fram að ofangreint misræmi stafi af því að IUCN meti alla langreyðarstofna heimsins sem eina heild og ráði þar langmestu ástand langreyðarstofna við Suðurheimskautið. Þar hafi verið langstærstu stofnar langreyðar og annarra skíðishvala og jafnframt verstu ofveiðarnar langt fram eftir síðustu öld. Þessir stofnar eiga enn langt í land með að ná fyrri stærð og meðan svo sé muni mat á langreyði á heimsvísu leiða til þess að tegundin sé flokkuð í útrýmingarhættu samkvæmt þeim mælikvörðum sem notaðir séu innan IUCN. Hafrannsóknarstofnun segir að bent hafi verið á galla þessa fyrirkomulags, enda sé enginn samgangur milli hinna fjölmörgu langreyðarstofna heimsins sem séu í mjög misjöfnu ástandi. Þessu megi líkja við að allir þorskstofnar heimsins væru settir undir einn hatt og alfriðaðir vegna ástands stofnsins í Norðursjó. Í pistli Hafrannsóknarstofnunar er bent á að einnig sé nokkuð ósamræmi innan IUCN í þessum efnum, þar sem t.d. norðhvalur, sem standi undir veiðum Bandaríkjamanna, sé ekki flokkaður í útrýmingahættu þótt stofnar tegundarinnar í Norður Atlantshafi séu réttilega flokkaðar í útrýmingarhættu. Á heimasíðu Alþjóðahvalveiðiráðsins sé ennfremur staðfest stofnstærðarmat Hafrannsóknastofnunarinnar fyrir hrefnu og langreyði.

Neysla sjávarafurða í Kína að aukast

Neysla sjávarafurða í Kína mun aukast um 40% fram til ársins 2020 samkvæmt nýrri skýrslu Greiningar Glitnis um stöðu og horfur í kínverskum sjávarútvegi. Árleg neysla sjávarafurða í Kína nam 25 kílóum á mann árið 2004 en reiknað er með að neyslan verði orðin 36 kíló á mann árið 2020.

Norræn samvinna gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi

Íslendingar leggja áherslu á norræna samvinnu í baráttunni gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi, að því er fram kemur í nýrri skoðanakönnun Norðurlandaráðs. Formaður Íslandsdeildar ráðsins veit ekki hvort íslensk stjórnvöld sækist eftir framkvæmdastjórastöðu norrænu ráðherranefndarinnar.

Samúræji í Þýskalandi

Samúræjarnir svonefndu eru sjaldséð sjón nú til dags. Einn slíkur virðist þó hafa verið á ferli um Hamborg í Þýskalandi í nótt. Sá hafði tekið sér far með neðanjarðarlest en neitaði að greiða fargjaldið. Þegar lögregla kom á vettvang dró þessi þýski samúræi upp stóreflis sverð og sveiflaði því í kringum sig af miklum móð.

Boða átak gegn einkavæðingu

Bandalag starfsmanna ríkis og bæja boðar átak gegn einkavæðingu og ætlar í herferð undir kjörorðunum "Eflum almannaþjónustuna - eflum lýðræðið".

Úranvinnsla á öðru stigi

Íranar hafa hafið annars stigs auðgun á úrani en slík vinnsla er talin færa þá nær því að geta búið til kjarnorkusprengju.

Í hart vegna gagna um hleranir

Ragnar Arnalds ætlar að stefna þjóðskjalaverði fyrir dóm fyrir að ritskoða og breyta hlerunargögnum sem hann fékk afhent um sjálfan sig.

Prestsfrú sökuð um að hlera sóknarnefndarfund í hesthúsi

Sóknarnefndarmenn í Garðasókn töldu lögreglukonu, eiginkonu sóknarprests sem hatrammar deilur stóðu um, hafa hlerað sóknarnefndarfund í hesthúsi fyrir tveimur árum og fóru með málið til ríkislögreglustjóra. Þar á bæ segja menn umræðuna minna á skrípaleik og þessar ásakanir hafi verið gjörsamlegar fráleitar.

Hefndum hótað

Talibanar saka herlið Atlantshafsbandalagsins í Afganistan um þjóðarmorð og hóta grimmilegum hefndum vegna loftárása á saklausa hirðingja í vikunni.

Sjá næstu 50 fréttir