Fleiri fréttir Dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás Tveir ungir menn voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Norðurlands eystra í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás sem framin var við skíðahótelið í Hlíðarfjalli í október í fyrra. Annar maðurinn var dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi en hinn í 30 daga. 7.6.2006 23:06 Tugi hafa látist vegna flóða í Kína Tugir manna hafa farist og hundruð þúsunda hafa misst heimili sín í flóðum í Kína undanfarna daga. Stormar hafa gengið yfir suðurhluta landsins síðastliðna viku með tilheyrandi flóðum og aurskriðum. 7.6.2006 22:46 Framúrskarandi Íslendingar Íslandsdeild JCI kynnti í dag í Norræna húsinu árlega útnefningu sína á sex framúrskarandi ungum Íslendingum. JCI er alþjóðleg hreyfing sem leitast eftir því að efla stjórnunarhæfileika og frumkvæði ungs fólks. Hreyfingin útnefnir árlega framúrskarandi þjóðfélagsþegna, ungt fólk sem þykir skara fram úr á sínu sviði. 7.6.2006 22:30 Ártúnsskóli fær Íslensku menntaverðlaunin í ár Ártúnsskóli fékk íslensku Menntaverðlaunin í ár sem Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti í kvöld. Alls voru veitt verðlaun í fjórum flokkur en þrír grunnskólakennarar fengu einnig viðurkenningu fyrir störf sín. 7.6.2006 22:27 Nemendur skoða kynímyndir á MTV Viðamikið jafnréttisverkefni félagsfræðikennara við Menntaskólann í Kópavogi tryggði skólanum jafnréttisviðurkenningu Kópavogsbæjar í dag. 7.6.2006 22:15 Stjórnarformaður Árs og dags hefur átt í samningaviðræðum um kaup á Fróða Stjórnarformaður Árs og dags, sem meðal annars gefur út Blaðið, hefur átt í samningaviðræðum um kaup á tímaritaútgáfunni Fróða. 7.6.2006 22:12 Einn lést og sex særðust á Gaza í dag Palestínumaður var skotinn til bana og sex liggja sárir eftir skotbardaga þeirra við ísraelska hermenn á landamærum á Gaza-ströndinni í dag. Að sögn sjúkraflutningamanna sem hlúðu að mönnunum var sá sem lést lögreglumaður, sem og þrír hinna særðu, en hinir þrír voru óbreyttir borgarar. 7.6.2006 22:00 Myndband af sprengingu í Manchester gert opinbert Lögreglan í Manchesterborg í Englandi birti í dag myndband sem sýnir þegar sendibíll, fullur af sprengiefni, var sprengdur í loft upp fyrir utan matvöruverslun í miðborg Manchester fyrir tíu árum. Enginn lést í sprengingunni en 200 manns særðust. 7.6.2006 20:03 Framsóknarkonur í Reykjavík vilja flýta flokksþingi Félag Framsóknarkvenna í Reykjavík vill að landsþingi flokksins verði flýtt og að konum flokksins í ríkisstjórn verði fjölgað. Stjórn félagsins sendi frá sér ályktun í dag þar sem skorað er á alla flokksmenn að nýta tækifærið á næsta flokksþingi til að jafna hlut kvenna í forystusveit Framsóknarflokksins. 7.6.2006 19:59 Megn stækja í frystihólfaleigu í Reykjavík Viðskiptavini frystihólfaleigu í Dugguvoginum brá heldur betur þegar hann kom að sækja matvæli í frystihólf sitt í dag. Frost hafði verið tekið af geymslunni og blóð úr matvælum rann eftir gólfinu. 7.6.2006 19:49 Tvöfalt hærra orkuverð á Íslandi en í Brasilíu Alcoa greiðir helmingi lægra verð fyrir raforkuna frá Kárahnjúkavirkjun en fyrir orku frá álveri í Brasilíu, samkvæmt grein sem birt var á heimasíðu Alcoa í Brasilíu. Verðið er sagt þrjátíu Bandaríkjadalir á megavattsstund í Brasilíu en helmingi lægra, eða fimmtán dollarar, á Íslandi. Greinin hvarf af neti Alcoa í dag í kjölfar fyrirspurnar um hana - og hið lága verð - til Landsvirkjunar. 7.6.2006 18:59 Framsókn í Reykjavík klofin Framsóknarfélög í norðurkjördæmi Reykjavíkur þakka Halldóri Ásgrímssyni fyrir að víkja til að efla frið innan flokksins og hvetja um leið Guðna Ágústsson og Siv Friðleifsdóttur til að axla ábyrgð með sama hætti og víkja. Framsóknarmenn í borginni eru klofnir í afstöðu sinni: Framsóknarfélögin í Reykjavík suður taka ekki undir þessa kröfu. 7.6.2006 18:54 Sjálfstæðismenn þrýsta á endurnýjun ríkisstjórnar Sjálfstæðismenn leggja ofurkapp á að endurnýjuð ríkisstjórn undir forsæti Geirs H. Haarde taki til starfa á allra næstu dögum. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, segir að of löng óvissa geti reynst skaðleg. Björn Bjarnason er nú talinn líklegastur til að verða utanríkisráðherra, fari fjármálaráðuneytið til framsóknarmanna. 7.6.2006 18:43 Íslenska ríkið sýknað af kröfum Nígeríumanns sem sótti um hæli hér á landi Íslenska ríkið var í dag sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfum Nígeríumanns sem sótt hafði um hæli hér á landi sem flóttamaður en umsókn hans var hafnað. 7.6.2006 18:23 Oddný Hanna er fundin Oddný Hanna Helgadóttir, sem lögreglan í Kópavogi hefur leitað að frá því síðastliðinn sunnudag, er fundin heil á húfi. Lögreglan í Kópavogi vill þakka öllum sem komu að málinu og veittu aðstoð. 7.6.2006 17:52 Fimm konur og ungabarn særðust í átökum Sagan endalausa af mannfalli í Írak heldur áfram. Í dag féllu fjórtán manns, þar af faðir og sonur hans, í skotbardaga norður af borginni Bakúba. Fimm konur og ungabarn eru sögð hafa særst í átökunum. 7.6.2006 17:45 Tilnefningar til Íslensku leiklistarverðlaunanna kynnt Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og verndari Íslensku leiklistarverðlaunanna kynnti þá sem tilnefndir eru til Grímunnar árið 2006 í Borgarleikhúsinu í dag og var leikkonan Björk Jakobsdóttir honum til halds og trausts. Þetta er í fjórða sinn sem tilnefningar til verðlaunanna fara fram en þau voru fyrst veitt sumarið 2003. 7.6.2006 17:06 Neitar ásökunum um aðild að fangaflutningum Forsætisráðherra Póllands neitaði í dag staðfastlega þeim ásökunum að pólsk stjórnvöld hafi komið að leynilegum fangaflutningum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA. Í nýrri skýrslu Evrópuráðsins eru fjórtán Evrópulönd, en Ísland er ekki þar á meðal, sögð tengjast flutningum á grunuðum hryðjuverkamönnum til landa þar sem pyntingar eru ekki ólöglegar. 7.6.2006 17:00 What's Right and What's Hype? 7.6.2006 16:43 Engin sérstök rök fyrir því að einkaaðilar leggi Sundabraut Engin sérstök rök mæla með því að einkaaðilar leggi og reki Sundabraut fremur en ríkið þar sem lítil óvissa er um verkið og kostnað við það. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um mat á kostum og göllum einkaframkvæmdar. 7.6.2006 15:46 Vilja að Siv og Guðni víki Öll Framsóknarfélög í kjördæmi Halldórs Ásgrímssonar, Reykjavík norður, vilja að Guðni Ágústsson og Siv Friðleifsdóttir víki líka úr forystusveit flokksins til þess að binda enda á áralanga togstreitu í flokknum. 7.6.2006 14:12 Aðalmeðferð í meiðyrðamáli vegna Skerjafjarðarskýrslu Aðalmeðferð var í morgun í meiðyrðamáli Friðriks Þór Guðmundssonar á hendur Sigurði Líndal lagaprófessor vegna ummæla Sigurðar í tenglsum við rannsókn flugslyssins í Skerjafirði. Sigurður Líndal var formaður nefndar sem rannsakaði rannsóknina á flugslysinu og fleiri skýrslur því tengdu og skilaði skýrslu um málið. 7.6.2006 13:15 Indverski herinn skýtur meinta skæruliða Indverski herinn skaut í gær átta menn til bana sem heryfirvöld segja hafa verið íslamska hryðjuverkamenn sem hafi laumast yfir landamærin til hins umdeilda Kasmírhéraðs. 7.6.2006 13:00 Sjúklingum mismunað eftir sjúkdómum og efnum Formaður Læknafélags Íslands, Sigurbjörn Sveinsson, segir fólk sem þurfi að leita til hjartalækna ekki hafa sömu fjárhagslegu stöðu og aðra sem þurfi að leita sér lækninga. Það fyrirkomulag sem nú er í gildi mismuni fólki eftir sjúkdómi þeirra og efnum. Til útskýringar bendir Sigurbjörn á að erfitt geti reynst öldruðum og efnalitlu fólki að leggja út fyrir þeim rannsóknum sem það þarf að ganga í gegnum. Sigurbjörn bendir einnig á að þó sjúklingar geti fengið endurgreiðslu frá Tryggingastofnun eftir að hafa fengið greiðsluheimild frá heimilislækni geti falist í því mikil fyrirhöfn fyrir aldraða eða sjúka einstaklinga. Stjórn Læknafélags Íslands fer fram á það við stjórnvöld að hyggist þau koma á tvöföldu heilbrigðiskerfi, þá verði þær fyrirætlanir gerðar opinberar og ræddar undanbragðalaust með þátttöku þjóðarinnar. Stjórn Læknafélags Íslands lýsti í ályktun sem gerð var í gær yfir áhyggjum sínum yfir að heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skuli ekki geta boðið landsmönnum þjónustu samningsbundinna hjartalækna. Ástæður þeirra stöðu sem hjartalæknar og sjúklingar þeirra eru nú komir í segir Sigurbjörn þá að hjartalæknar vildu ekki starfa lengur undir þeim samningum sem þeim voru gerðir. Ekki hafi verið ágreiningur um taxta heldur afsláttarákvæði sem fól í sér að læknum voru ætluð ákveðið mörg verk á ári og ef þeir fóru fram úr þeim fjölda áttu þeir að gefa ríkinu afslátt af verulegum hluta af andvirði verka þeirra. Litlar sem engar viðræður hafi verið til að rétta hlut þeirra. 7.6.2006 12:37 Þurfa að endurskoða frístundabyggð við Úlfljótsvatn Orkuveita Reykjavíkur og fasteignafélagið Klasi þurfa að endurskoða hugmyndir sínar um frístundabyggð við Úlfljótsvatn vegna óskar borgarstjórnar Reykjavíkur þar um. Endurskoðunin hefst þó væntanlega ekki fyrr en ný stjórn Orkuveitunnar hefur verið kosin. 7.6.2006 12:30 Olíufélagið hækkar bensínverð Olíufélagið, sem rekur meðal annars ESSO-stöðvarnar, hefur hækkað verð á öllu eldsneyti. Bensín hækkar um tvær og hálfa krónu á lítrann og verður algengasta verð á bensíni tæpar 127 krónur eftir hækkunina. Skýringin er hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu og veik staða krónunnar gagnvart Bandaríkjadal. 7.6.2006 12:20 Von á svari á tilboði Samtaka avinnulífsins um launahækkanir Alþýðusamband Íslands mun að öllum líkindum svara tilboði Samtaka atvinnulífsins um taxta- og launahækkanir í kringum helgina. Tilboðið miðar að því að koma í veg fyrir uppsögn kjarasamninga um næstu áramót, en miðað við verðbólguhorfur í landinu eru forsendur kjarasamninga að óbreyttu brostnar. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, segir aðildarfélög sambandsins enn að skoða hugmyndir Samtaka atvinnulífsins en svör ættu að liggja fyrir í kringum helgina. 7.6.2006 12:11 CIA hylmdi yfir með stríðsglæpamanninum Eichmann Hulunni var í gær lyft af skjölum bandarísku leyniþjónustunnar frá því á árunum eftir stríð. Þar kemur meðal annars fram að CIA, hylmdi á sjötta áratugnum yfir með Adolf Eichmann, einum helsta skipuleggjanda helfararinnar, af ótta við að hann upplýsti um óþægilegar staðreyndir um háttsetta menn. 7.6.2006 12:05 Economy in for a hard landing? 7.6.2006 11:41 Íslensku menntaverðlaunin afhent Íslensku menntaverðlaunin verða veitt annað sinni í kvöld. Athöfnin fer fram í Hjallaskóla og er það Ólafur Ragnar Grímsson sem afhendir verðlaunahöfum þau. 7.6.2006 11:38 Sigur Rós Summershows and a Film 7.6.2006 11:16 Íþróttasamband Fatlaðra styrkt til næstu Ólympíuleika Íþróttasamband Fatlaðra og Visa Ísland hafa framlengt samstarfssamningi sínum til þriggja ára. Styrkurinn er ætlaður til undirbúning og þátttöku á Ólympíumóti fatlaðra sem fram fer í Peking 2008. Í fréttatilkynningu segir að árangur fatlaðra íþróttamanna að undanförnu árum hafi vakið verðskuldaða athygli og hafi íslenskt íþróttafólk staðið sig afar vel á Ólympíumótum sem og öðrum mótum. Árangurinn sé afrakstur markvissrar vinnu en Íþróttasambands Fatlaðra kappkosti að undirbúa keppendur sína sem best undir þau verkefni sem framundan séu hverju sinni. .Ljóst sé að á næstu Óllympíuleikum muni nýtt afreksfólk halda hróðri landsins og því sé nauðsyn á markvissum undirbúningi. Styrkveiting til Íþróttasambands Fatlaðra, fellur að mati Visa Íslands því vel að stefnu fyrirtækisins varðandi stuðning við framúrskarandi afreksfólk hvort heldur úr röðum fatlaðra eða ófatlaðra en fatlaðir íslenskir afreksmenn hafa um langt árabil verið á meðal þeirra bestu í heiminum. 7.6.2006 11:04 Orri verður framkvæmdastjóri Frumherja Orri Hlöðversson, fráfarandi bæjarstjóri í Hveragerði, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Frumherja í Reykjavík frá og með 1. ágúst. Á fréttavefnum suðurland.is kemur fram að Orra hafi verið boðin staða bæjarstjóra í mörgum nýmynduðum meirihlutum á landinu, meðal annars Árborg, Mosfellsbæ og Fjarðarbyggð. 7.6.2006 10:00 Stórtónleikar í München vegna HM Fótboltamenn og áhugamenn fengu fullt fangið af tónlist á upphitunartónleikum fyrir HM sem haldnir voru í München í gær. Placido Domingo söng fyrir gestina og hafði heilar þrjár hljómsveitir sér til halds og trausts. 7.6.2006 09:45 Ólína formaður Vestfjarðaakademíunnar Ólína Þorvarðardóttir, fráfarandi skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, var kjörin formaður Vestfjarðaakademíunnar á fyrsta aðalfundi félagsins fyrir helgi. Þetta kemur fram á fréttavef Bæjarins besta í dag. 7.6.2006 09:30 Rusl eykst um 78 kíló á ári með tilkomu fríblaða Rusl á dönskum heimilum mun aukast um 78 kíló á ári með tilkomu tveggja fríblaða í landinu. Þetta kemur fram í Jótlandspóstinum. Þar er fjallað um boðaða útgáfu 365 Medier á fríblaði og sams konar blað í útgáfu JP og Politiken. 7.6.2006 09:15 Ölvaður í hraðakstri í Ártúnsbrekkunni Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í nótt ökumann sem mælst hafði á yfir hundrað og tuttugu kílómetra hraða í Ártúnsbrekku, þar sem hámarkshraði er áttatíu. Kom þá í ljós að hann var talsvert ölvaður og var því bundinn endir á ferðarlag hans. 7.6.2006 09:00 Sögð hafa greitt fyrir fangaflutningum Nokkur Evrópulönd eru sökuð um að hafa aðstoðað við leynilega fangaflutninga bandarísku leyniþjónustunnar CIA í nýrri skýrslu Evrópuráðsins. Fangaflutningarnir komust í hámæli á síðasta ári þegar greint var frá því að CIA hefði flogið með grunaða hryðjuverkamenn til landa þar sem pyntingar væru leyfilegar. 7.6.2006 08:45 Frjáls markaður að bregðast á sviði lyfjainnflutnings Halda má því fram með fullum rétti að frjáls markaður sé að bregðast landsmönnum á sviði lyfjainnflutnings, ef innflutningur á ódýrum samheitalyfjum verður ekki stór aukinn, segir Sigurður Guðmundsson landlæknir í grein í Morgunblaðinu í morgun. 7.6.2006 08:30 Bændur ruddust inn í brasilíska þingið Hundruð brasilískra bænda sem ekki hafa landnæði réðust inn í brasilíska þingið í gær til að krefjast úrbóta í landbúnaðarkerfinu. Tuttugu slösuðust í klukkutíma langri baráttu bændanna við lögreglu og öryggisverði en bændurnir köstuðu steinum og öðru lauslegu og börðu mann og annan með prikum. 7.6.2006 08:15 Féll af vélhjóli og slasaðist á Reykjavíkurvegi Ökumaður mótorhjóls slasaðist þegar hann féll af hjólinu á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í gærkvöldi og veltist eftir götunni en hjólið hafnaði mannlaust framan á bíl sem kom úr gagnstæðri átt. 7.6.2006 08:00 Líkur á harðri lendingu vaxandi að mati Danske Bank Danske Bank telur að líkur á harðri lendingu í íslensku efnahagslífi fari vaxandi og telur að mat Standard og Poors frá í fyrradag um horfur á versnandi lánshæfismati sé slæmt fyrir íslenskt efnahagslíf. 7.6.2006 07:45 Viðskiptahalli aldrei meiri á fyrsta ársfjórðungi Viðskiptahalli Íslands gagnvart útlöndum hefur aldrei verið meiri en á fyrsta fjórðungi þessa árs. Bæði viðskiptahalli og vöruskiptajöfnuður eru tvöfalt meiri en á sama tíma í fyrra. Viðskiptahalli við útlönd nam rúmum 66 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi en stóð 32 komma 6 milljörðum á sama tíma í fyrra. 7.6.2006 07:34 Banaslys á Elliðavatnsvegi í gærkvöld Maður á þrítugsaldri beið bana þegar bíll hans fór út af Elliðavatnsvegi við gatnamótin að Kaldárselsvegi og valt, á tólfta tímanum í gærkvöldi. Annar maður á svipuðum aldri, sem var farþegi í bílnum, slasaðist og var fluttur á slysadeild Landspítalans en mun ekki vera í lífshættu. 7.6.2006 07:32 Ítalskir hermenn ekki kallaðir fyrr heim Ítalir munu ekki kalla herlið sitt fyrr heim frá Írak en áður var áætlað. Romano Prodi, sem tók við forsætisráðherraembættinu á Ítalíu í síðasta mánuði, tilkynnti þetta á ítalska þinginu í dag. 6.6.2006 22:51 Sjá næstu 50 fréttir
Dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás Tveir ungir menn voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Norðurlands eystra í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás sem framin var við skíðahótelið í Hlíðarfjalli í október í fyrra. Annar maðurinn var dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi en hinn í 30 daga. 7.6.2006 23:06
Tugi hafa látist vegna flóða í Kína Tugir manna hafa farist og hundruð þúsunda hafa misst heimili sín í flóðum í Kína undanfarna daga. Stormar hafa gengið yfir suðurhluta landsins síðastliðna viku með tilheyrandi flóðum og aurskriðum. 7.6.2006 22:46
Framúrskarandi Íslendingar Íslandsdeild JCI kynnti í dag í Norræna húsinu árlega útnefningu sína á sex framúrskarandi ungum Íslendingum. JCI er alþjóðleg hreyfing sem leitast eftir því að efla stjórnunarhæfileika og frumkvæði ungs fólks. Hreyfingin útnefnir árlega framúrskarandi þjóðfélagsþegna, ungt fólk sem þykir skara fram úr á sínu sviði. 7.6.2006 22:30
Ártúnsskóli fær Íslensku menntaverðlaunin í ár Ártúnsskóli fékk íslensku Menntaverðlaunin í ár sem Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti í kvöld. Alls voru veitt verðlaun í fjórum flokkur en þrír grunnskólakennarar fengu einnig viðurkenningu fyrir störf sín. 7.6.2006 22:27
Nemendur skoða kynímyndir á MTV Viðamikið jafnréttisverkefni félagsfræðikennara við Menntaskólann í Kópavogi tryggði skólanum jafnréttisviðurkenningu Kópavogsbæjar í dag. 7.6.2006 22:15
Stjórnarformaður Árs og dags hefur átt í samningaviðræðum um kaup á Fróða Stjórnarformaður Árs og dags, sem meðal annars gefur út Blaðið, hefur átt í samningaviðræðum um kaup á tímaritaútgáfunni Fróða. 7.6.2006 22:12
Einn lést og sex særðust á Gaza í dag Palestínumaður var skotinn til bana og sex liggja sárir eftir skotbardaga þeirra við ísraelska hermenn á landamærum á Gaza-ströndinni í dag. Að sögn sjúkraflutningamanna sem hlúðu að mönnunum var sá sem lést lögreglumaður, sem og þrír hinna særðu, en hinir þrír voru óbreyttir borgarar. 7.6.2006 22:00
Myndband af sprengingu í Manchester gert opinbert Lögreglan í Manchesterborg í Englandi birti í dag myndband sem sýnir þegar sendibíll, fullur af sprengiefni, var sprengdur í loft upp fyrir utan matvöruverslun í miðborg Manchester fyrir tíu árum. Enginn lést í sprengingunni en 200 manns særðust. 7.6.2006 20:03
Framsóknarkonur í Reykjavík vilja flýta flokksþingi Félag Framsóknarkvenna í Reykjavík vill að landsþingi flokksins verði flýtt og að konum flokksins í ríkisstjórn verði fjölgað. Stjórn félagsins sendi frá sér ályktun í dag þar sem skorað er á alla flokksmenn að nýta tækifærið á næsta flokksþingi til að jafna hlut kvenna í forystusveit Framsóknarflokksins. 7.6.2006 19:59
Megn stækja í frystihólfaleigu í Reykjavík Viðskiptavini frystihólfaleigu í Dugguvoginum brá heldur betur þegar hann kom að sækja matvæli í frystihólf sitt í dag. Frost hafði verið tekið af geymslunni og blóð úr matvælum rann eftir gólfinu. 7.6.2006 19:49
Tvöfalt hærra orkuverð á Íslandi en í Brasilíu Alcoa greiðir helmingi lægra verð fyrir raforkuna frá Kárahnjúkavirkjun en fyrir orku frá álveri í Brasilíu, samkvæmt grein sem birt var á heimasíðu Alcoa í Brasilíu. Verðið er sagt þrjátíu Bandaríkjadalir á megavattsstund í Brasilíu en helmingi lægra, eða fimmtán dollarar, á Íslandi. Greinin hvarf af neti Alcoa í dag í kjölfar fyrirspurnar um hana - og hið lága verð - til Landsvirkjunar. 7.6.2006 18:59
Framsókn í Reykjavík klofin Framsóknarfélög í norðurkjördæmi Reykjavíkur þakka Halldóri Ásgrímssyni fyrir að víkja til að efla frið innan flokksins og hvetja um leið Guðna Ágústsson og Siv Friðleifsdóttur til að axla ábyrgð með sama hætti og víkja. Framsóknarmenn í borginni eru klofnir í afstöðu sinni: Framsóknarfélögin í Reykjavík suður taka ekki undir þessa kröfu. 7.6.2006 18:54
Sjálfstæðismenn þrýsta á endurnýjun ríkisstjórnar Sjálfstæðismenn leggja ofurkapp á að endurnýjuð ríkisstjórn undir forsæti Geirs H. Haarde taki til starfa á allra næstu dögum. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, segir að of löng óvissa geti reynst skaðleg. Björn Bjarnason er nú talinn líklegastur til að verða utanríkisráðherra, fari fjármálaráðuneytið til framsóknarmanna. 7.6.2006 18:43
Íslenska ríkið sýknað af kröfum Nígeríumanns sem sótti um hæli hér á landi Íslenska ríkið var í dag sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfum Nígeríumanns sem sótt hafði um hæli hér á landi sem flóttamaður en umsókn hans var hafnað. 7.6.2006 18:23
Oddný Hanna er fundin Oddný Hanna Helgadóttir, sem lögreglan í Kópavogi hefur leitað að frá því síðastliðinn sunnudag, er fundin heil á húfi. Lögreglan í Kópavogi vill þakka öllum sem komu að málinu og veittu aðstoð. 7.6.2006 17:52
Fimm konur og ungabarn særðust í átökum Sagan endalausa af mannfalli í Írak heldur áfram. Í dag féllu fjórtán manns, þar af faðir og sonur hans, í skotbardaga norður af borginni Bakúba. Fimm konur og ungabarn eru sögð hafa særst í átökunum. 7.6.2006 17:45
Tilnefningar til Íslensku leiklistarverðlaunanna kynnt Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og verndari Íslensku leiklistarverðlaunanna kynnti þá sem tilnefndir eru til Grímunnar árið 2006 í Borgarleikhúsinu í dag og var leikkonan Björk Jakobsdóttir honum til halds og trausts. Þetta er í fjórða sinn sem tilnefningar til verðlaunanna fara fram en þau voru fyrst veitt sumarið 2003. 7.6.2006 17:06
Neitar ásökunum um aðild að fangaflutningum Forsætisráðherra Póllands neitaði í dag staðfastlega þeim ásökunum að pólsk stjórnvöld hafi komið að leynilegum fangaflutningum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA. Í nýrri skýrslu Evrópuráðsins eru fjórtán Evrópulönd, en Ísland er ekki þar á meðal, sögð tengjast flutningum á grunuðum hryðjuverkamönnum til landa þar sem pyntingar eru ekki ólöglegar. 7.6.2006 17:00
Engin sérstök rök fyrir því að einkaaðilar leggi Sundabraut Engin sérstök rök mæla með því að einkaaðilar leggi og reki Sundabraut fremur en ríkið þar sem lítil óvissa er um verkið og kostnað við það. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um mat á kostum og göllum einkaframkvæmdar. 7.6.2006 15:46
Vilja að Siv og Guðni víki Öll Framsóknarfélög í kjördæmi Halldórs Ásgrímssonar, Reykjavík norður, vilja að Guðni Ágústsson og Siv Friðleifsdóttir víki líka úr forystusveit flokksins til þess að binda enda á áralanga togstreitu í flokknum. 7.6.2006 14:12
Aðalmeðferð í meiðyrðamáli vegna Skerjafjarðarskýrslu Aðalmeðferð var í morgun í meiðyrðamáli Friðriks Þór Guðmundssonar á hendur Sigurði Líndal lagaprófessor vegna ummæla Sigurðar í tenglsum við rannsókn flugslyssins í Skerjafirði. Sigurður Líndal var formaður nefndar sem rannsakaði rannsóknina á flugslysinu og fleiri skýrslur því tengdu og skilaði skýrslu um málið. 7.6.2006 13:15
Indverski herinn skýtur meinta skæruliða Indverski herinn skaut í gær átta menn til bana sem heryfirvöld segja hafa verið íslamska hryðjuverkamenn sem hafi laumast yfir landamærin til hins umdeilda Kasmírhéraðs. 7.6.2006 13:00
Sjúklingum mismunað eftir sjúkdómum og efnum Formaður Læknafélags Íslands, Sigurbjörn Sveinsson, segir fólk sem þurfi að leita til hjartalækna ekki hafa sömu fjárhagslegu stöðu og aðra sem þurfi að leita sér lækninga. Það fyrirkomulag sem nú er í gildi mismuni fólki eftir sjúkdómi þeirra og efnum. Til útskýringar bendir Sigurbjörn á að erfitt geti reynst öldruðum og efnalitlu fólki að leggja út fyrir þeim rannsóknum sem það þarf að ganga í gegnum. Sigurbjörn bendir einnig á að þó sjúklingar geti fengið endurgreiðslu frá Tryggingastofnun eftir að hafa fengið greiðsluheimild frá heimilislækni geti falist í því mikil fyrirhöfn fyrir aldraða eða sjúka einstaklinga. Stjórn Læknafélags Íslands fer fram á það við stjórnvöld að hyggist þau koma á tvöföldu heilbrigðiskerfi, þá verði þær fyrirætlanir gerðar opinberar og ræddar undanbragðalaust með þátttöku þjóðarinnar. Stjórn Læknafélags Íslands lýsti í ályktun sem gerð var í gær yfir áhyggjum sínum yfir að heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skuli ekki geta boðið landsmönnum þjónustu samningsbundinna hjartalækna. Ástæður þeirra stöðu sem hjartalæknar og sjúklingar þeirra eru nú komir í segir Sigurbjörn þá að hjartalæknar vildu ekki starfa lengur undir þeim samningum sem þeim voru gerðir. Ekki hafi verið ágreiningur um taxta heldur afsláttarákvæði sem fól í sér að læknum voru ætluð ákveðið mörg verk á ári og ef þeir fóru fram úr þeim fjölda áttu þeir að gefa ríkinu afslátt af verulegum hluta af andvirði verka þeirra. Litlar sem engar viðræður hafi verið til að rétta hlut þeirra. 7.6.2006 12:37
Þurfa að endurskoða frístundabyggð við Úlfljótsvatn Orkuveita Reykjavíkur og fasteignafélagið Klasi þurfa að endurskoða hugmyndir sínar um frístundabyggð við Úlfljótsvatn vegna óskar borgarstjórnar Reykjavíkur þar um. Endurskoðunin hefst þó væntanlega ekki fyrr en ný stjórn Orkuveitunnar hefur verið kosin. 7.6.2006 12:30
Olíufélagið hækkar bensínverð Olíufélagið, sem rekur meðal annars ESSO-stöðvarnar, hefur hækkað verð á öllu eldsneyti. Bensín hækkar um tvær og hálfa krónu á lítrann og verður algengasta verð á bensíni tæpar 127 krónur eftir hækkunina. Skýringin er hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu og veik staða krónunnar gagnvart Bandaríkjadal. 7.6.2006 12:20
Von á svari á tilboði Samtaka avinnulífsins um launahækkanir Alþýðusamband Íslands mun að öllum líkindum svara tilboði Samtaka atvinnulífsins um taxta- og launahækkanir í kringum helgina. Tilboðið miðar að því að koma í veg fyrir uppsögn kjarasamninga um næstu áramót, en miðað við verðbólguhorfur í landinu eru forsendur kjarasamninga að óbreyttu brostnar. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, segir aðildarfélög sambandsins enn að skoða hugmyndir Samtaka atvinnulífsins en svör ættu að liggja fyrir í kringum helgina. 7.6.2006 12:11
CIA hylmdi yfir með stríðsglæpamanninum Eichmann Hulunni var í gær lyft af skjölum bandarísku leyniþjónustunnar frá því á árunum eftir stríð. Þar kemur meðal annars fram að CIA, hylmdi á sjötta áratugnum yfir með Adolf Eichmann, einum helsta skipuleggjanda helfararinnar, af ótta við að hann upplýsti um óþægilegar staðreyndir um háttsetta menn. 7.6.2006 12:05
Íslensku menntaverðlaunin afhent Íslensku menntaverðlaunin verða veitt annað sinni í kvöld. Athöfnin fer fram í Hjallaskóla og er það Ólafur Ragnar Grímsson sem afhendir verðlaunahöfum þau. 7.6.2006 11:38
Íþróttasamband Fatlaðra styrkt til næstu Ólympíuleika Íþróttasamband Fatlaðra og Visa Ísland hafa framlengt samstarfssamningi sínum til þriggja ára. Styrkurinn er ætlaður til undirbúning og þátttöku á Ólympíumóti fatlaðra sem fram fer í Peking 2008. Í fréttatilkynningu segir að árangur fatlaðra íþróttamanna að undanförnu árum hafi vakið verðskuldaða athygli og hafi íslenskt íþróttafólk staðið sig afar vel á Ólympíumótum sem og öðrum mótum. Árangurinn sé afrakstur markvissrar vinnu en Íþróttasambands Fatlaðra kappkosti að undirbúa keppendur sína sem best undir þau verkefni sem framundan séu hverju sinni. .Ljóst sé að á næstu Óllympíuleikum muni nýtt afreksfólk halda hróðri landsins og því sé nauðsyn á markvissum undirbúningi. Styrkveiting til Íþróttasambands Fatlaðra, fellur að mati Visa Íslands því vel að stefnu fyrirtækisins varðandi stuðning við framúrskarandi afreksfólk hvort heldur úr röðum fatlaðra eða ófatlaðra en fatlaðir íslenskir afreksmenn hafa um langt árabil verið á meðal þeirra bestu í heiminum. 7.6.2006 11:04
Orri verður framkvæmdastjóri Frumherja Orri Hlöðversson, fráfarandi bæjarstjóri í Hveragerði, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Frumherja í Reykjavík frá og með 1. ágúst. Á fréttavefnum suðurland.is kemur fram að Orra hafi verið boðin staða bæjarstjóra í mörgum nýmynduðum meirihlutum á landinu, meðal annars Árborg, Mosfellsbæ og Fjarðarbyggð. 7.6.2006 10:00
Stórtónleikar í München vegna HM Fótboltamenn og áhugamenn fengu fullt fangið af tónlist á upphitunartónleikum fyrir HM sem haldnir voru í München í gær. Placido Domingo söng fyrir gestina og hafði heilar þrjár hljómsveitir sér til halds og trausts. 7.6.2006 09:45
Ólína formaður Vestfjarðaakademíunnar Ólína Þorvarðardóttir, fráfarandi skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, var kjörin formaður Vestfjarðaakademíunnar á fyrsta aðalfundi félagsins fyrir helgi. Þetta kemur fram á fréttavef Bæjarins besta í dag. 7.6.2006 09:30
Rusl eykst um 78 kíló á ári með tilkomu fríblaða Rusl á dönskum heimilum mun aukast um 78 kíló á ári með tilkomu tveggja fríblaða í landinu. Þetta kemur fram í Jótlandspóstinum. Þar er fjallað um boðaða útgáfu 365 Medier á fríblaði og sams konar blað í útgáfu JP og Politiken. 7.6.2006 09:15
Ölvaður í hraðakstri í Ártúnsbrekkunni Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í nótt ökumann sem mælst hafði á yfir hundrað og tuttugu kílómetra hraða í Ártúnsbrekku, þar sem hámarkshraði er áttatíu. Kom þá í ljós að hann var talsvert ölvaður og var því bundinn endir á ferðarlag hans. 7.6.2006 09:00
Sögð hafa greitt fyrir fangaflutningum Nokkur Evrópulönd eru sökuð um að hafa aðstoðað við leynilega fangaflutninga bandarísku leyniþjónustunnar CIA í nýrri skýrslu Evrópuráðsins. Fangaflutningarnir komust í hámæli á síðasta ári þegar greint var frá því að CIA hefði flogið með grunaða hryðjuverkamenn til landa þar sem pyntingar væru leyfilegar. 7.6.2006 08:45
Frjáls markaður að bregðast á sviði lyfjainnflutnings Halda má því fram með fullum rétti að frjáls markaður sé að bregðast landsmönnum á sviði lyfjainnflutnings, ef innflutningur á ódýrum samheitalyfjum verður ekki stór aukinn, segir Sigurður Guðmundsson landlæknir í grein í Morgunblaðinu í morgun. 7.6.2006 08:30
Bændur ruddust inn í brasilíska þingið Hundruð brasilískra bænda sem ekki hafa landnæði réðust inn í brasilíska þingið í gær til að krefjast úrbóta í landbúnaðarkerfinu. Tuttugu slösuðust í klukkutíma langri baráttu bændanna við lögreglu og öryggisverði en bændurnir köstuðu steinum og öðru lauslegu og börðu mann og annan með prikum. 7.6.2006 08:15
Féll af vélhjóli og slasaðist á Reykjavíkurvegi Ökumaður mótorhjóls slasaðist þegar hann féll af hjólinu á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í gærkvöldi og veltist eftir götunni en hjólið hafnaði mannlaust framan á bíl sem kom úr gagnstæðri átt. 7.6.2006 08:00
Líkur á harðri lendingu vaxandi að mati Danske Bank Danske Bank telur að líkur á harðri lendingu í íslensku efnahagslífi fari vaxandi og telur að mat Standard og Poors frá í fyrradag um horfur á versnandi lánshæfismati sé slæmt fyrir íslenskt efnahagslíf. 7.6.2006 07:45
Viðskiptahalli aldrei meiri á fyrsta ársfjórðungi Viðskiptahalli Íslands gagnvart útlöndum hefur aldrei verið meiri en á fyrsta fjórðungi þessa árs. Bæði viðskiptahalli og vöruskiptajöfnuður eru tvöfalt meiri en á sama tíma í fyrra. Viðskiptahalli við útlönd nam rúmum 66 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi en stóð 32 komma 6 milljörðum á sama tíma í fyrra. 7.6.2006 07:34
Banaslys á Elliðavatnsvegi í gærkvöld Maður á þrítugsaldri beið bana þegar bíll hans fór út af Elliðavatnsvegi við gatnamótin að Kaldárselsvegi og valt, á tólfta tímanum í gærkvöldi. Annar maður á svipuðum aldri, sem var farþegi í bílnum, slasaðist og var fluttur á slysadeild Landspítalans en mun ekki vera í lífshættu. 7.6.2006 07:32
Ítalskir hermenn ekki kallaðir fyrr heim Ítalir munu ekki kalla herlið sitt fyrr heim frá Írak en áður var áætlað. Romano Prodi, sem tók við forsætisráðherraembættinu á Ítalíu í síðasta mánuði, tilkynnti þetta á ítalska þinginu í dag. 6.6.2006 22:51