Fleiri fréttir

Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisafbrot

Tvítugur karlmaður var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa þvingað stúlku til að hafa við sig munnmök og að hafa reynt að þröngva henni til samræðis.

Leiðtogar Eystrasaltsráðsins funda á Íslandi

Leiðtogar ellefu ríkja Eystrasaltsráðsins auk Evrópusambandsins funda í Reykjavík á fimmtudag. Með því lýkur formennsku Íslands í ráðinu, sem það hefur gegnt síðan í júlí á síðasta ári. Það verður eitt af síðustu embættisverkum Halldórs Ásgrímssonar, að funda með forsætisráðherrum Rússlands og Póllands í tengslum við fundinn.

Krefjast ekki afsagnar Jónasar

Jónas Garðarsson var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Tveir létust þegar bátur hans steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi í september.

Grunuð um skipulagningu hryðjuverka í Kanada

Sautján manns voru handteknir í Ontario-héraði í Kanada um helgina vegna gruns um aðild þeirra að skipulagningu á hryðjuverkum í landinu. Tólf hinna handteknu komu fyrir dómara í dag í borginni Brampton, vestur af Toronto, þar sem ákærurnar gegn þeim voru kunngjörðar.

Tónleikaröð að Gljúfrasteini

Heimili nóbelskáldsins á að vera sjálfsagður viðkomustaður ferðamanna og heimamanna. Forsvarsmenn Gljúfrasteins kynntu í gær skýrslu um stefnumótun og framtíðarsýn safnsins.

Formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu lokið

Leiðtogar ellefu ríkja Eystrasaltsráðsins auk Evrópusambandsins funda í Reykjavík á fimmtudag. Með því lýkur formennsku Íslands í ráðinu, sem það hefur gegnt síðan í júlí á síðasta ári. Það verður eitt af síðustu embættisverkum Halldórs Ásgrímssonar, að funda með forsætisráðherrum Rússlands og Póllands í tengslum við fundinn. Í formennsku sinni hafa Íslendingar lagt áherslu á umhverfis- og orkumál og mun þessi mál bera hvað hæst á leiðtogafundinum. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, sem situr áfram í því embætti þar til ný stjórn hefur verið skipuð, mun leiða fundi ráðsins. Auk sameiginlegra funda mun Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, eiga tvíhliða fundi með Fradkov, forsætisráðherra Rússlands og Marcinkiewicz, nýjum forsætisráðherra Póllands, og Geir H. Haarde mun eiga fund með utanríkisráðherra Þýskalands. Eystrasaltsráðið er skipað 11 löndum, - Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Rússlandi, Póllandi og Rússlandi, auk Íslands. Ráðið var stofnað árið 1992 en Ísland gekk í ráðið árið 1995.

Hamas-samtökin fá frest til fimmtudags

Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, ákvað í dag að veita Hamas-samtökunum lengri frest til að taka afstöðu til þjóðaratkvæðagreiðslu um viðurkenningu á tilvist Ísraels.

Stjórnvöld ætla að veita 20 milljónum til Rauða krossins

Stjórnvöld ætla að veita 20 milljónum króna til alnæmisverkefna Rauða krossins og Rauða hálfmánans í sunnanverðri Afríku. Framlagið nemur samtals um 320.000 bandaríkjadollurum og verða peningarnir greiddir út í fjórum jöfnum greiðslum á árunum 2006-2009.

Féll um sjö metra ofan í húsgrunn

Karlmaður féll um það bil sjö metra ofan í húsgrunn í Borgartúni í dag. Neyðarlínunni barst tilkynningin um klukkan 14:36 og voru sjúkraflutninga- og slökkviliðsmenn sendir á staðinn. Aðstæður til björgunar voru talsvert erfiðar að sögn vaktstjóra Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík er maðurinn mjög slasaður með höfuðmeiðsl, fótbrot og aðra áverka. Ekki er viðtað hvernig slysið bar að en málið er í rannsókn.

Málverkið við góðaheilsu á Norðurlöndum

Málverkið er við góða heilsu á Norðurlöndum. Það leiðir sýningin Carnegie Art Award í ljós en hún verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur á morgun Carnegie Art Award eru í senn verðlaun og sýning sem komið var á fót fyrir átta árum. Markmið verðlaunanna, sem eru ein þau stærstu í heimi á sviði lista, er að styðja við framúrskarandi listamenn á Norðurlöndum og efla norræna samtímalist. Því er farið með Carnegie Art sýninguna um öll norrænu ríkin og í ár verður einnig farið til Lundúna og Nice í Frakklandi. Verkin sem til sýnis eru í Hafnarhúsinu eru eftir 21 listamann en þeir voru valdir úr hópi 115 listamanna sem tilnefndir voru til þátttöku í sýningunni. Íslendingar eiga fjóra fulltrúa á sýningunni, þá Finnboga Pétursson, Steingrím Eyfjörð, Jón Óskar og Eggert Pétursson. Hafþór Yngvason forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur segir sýninguna sanna að málverkið hafi sterka stöðu á Norðurlöndum. Hann bendir á að í fyrsta sinn sé hljóðverk á sýningunni en það er einmitt eftir Finnboga Pétursson. Þegar fréttastofu bar að garði var einn listamannanna að leggja lokahönd á verk sitt. Það var hin 33 ára Josefine Lyche frá Noregi en hún málar nýtt verk á hverjum sýningarstað. Hún hefur stritað í tíu tíma á dag síðan á föstudag og er nokkuð ánægð með niðurstöðuna. Lyche segir að málverkið samanstandi af sparsli og blönduðum akrýllitum. "Ég málaði alls níu lög á vegginn og pússaði þau svo niður með slípara svo yfirborðið yrði alveg slétt. Ég nota mismunandi liti á hverjum stað og litirnir hér tákna græna náttúru landsins." Með verkinu segir Lyche vilja fá fólk til að velta fyrir sér málverkinu sem miðli. Það gerir hún á óvenjulegan hátt því ólíkt því sem gengur og gerist á söfnum má snerta verkið hennar "Þetta er skemmtilegt en maður má ekki snerta öll verkin, bara þetta. Þetta er tímabundið verk, það verður fjarlægt, málað yfir það, og því er gott að geta þreifað á því þann tíma sem það verður á veggnum," segir listakonan. Sem fyrr segir verður sýniningin opnuð á morgun en hún stendur til 20. ágúst.

Barist við skógarelda í Portúgal

Um tvö hundruð slökkviliðsmenn berjast nú við mikla skógarelda sem geisa í norðurhluta Portúgals. Stjórnvöld segja að eldhafið sé um þrjátíu kílómetra breitt og miklir sviptivindar og hátt hitastig geri að verkum að sífellt stærra landsvæði verði nú eldinum að bráð. Engum hefur þó orðið meint af né tjón orðið á mannvirkjum, enn sem komið er í það minnsta. Eldurinn kviknaði í Barcelos í Norður-Portúgal á sunnudaginn, rúmlega 350 kílómetra norður af höfuðborginni, Lissabon. Á síðasta ári beið tuttugu og einn bana í Portúgal af völdum skógarelda og um 800 þúsund ekrur af skóglendi eyðilögðust.

Vélarbilun varð í flugtaki

Betur fór en á horfðist þegar lítil flugvél, af gerðinni Cessna 180, missti afl mótors í flugtaki síðdegis í gær með þeim afleiðingum að vélin lenti í Fljótavatni. Einn maður var um borð í vélinni og sakaði hann ekki. Upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar Íslands segir að Rannsóknarnefnd flugslysa hafi farið af staðinn í gær og málið sé nú í rannsókn.

Jónas Garðarsson dæmdur í þriggja ára fangelsi

Jónas Garðarsson formaður Sjómannafélags Reykjavíkur var nú áðan dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi af Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir manndráp af gáleysi. Jónas var ákærður fyrir að hafa þann tíunda september síðastliðinn, stýrt skemmtibátnum Hörpu undir áhrifum áfengis, en báturinn steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi með þeim afleiðingum að tveir létust. Jónas var ekki viðstaddur uppkvaðningu dóms í Héraðsdómi Reykjavíkur en fullvíst má telja að dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar.

Óvissa í efnahagsmálum gæti aukist

Óvissa í efnahagsmálum getur aukist vegna afsagnar Halldórs Ásgrímssonar og stöðunnar sem komin er upp í stjórn landsins. Úrvalsvísitalan lækkaði í morgun um 1,8 prósent og gengi bréfa í viðskiptabönkunum sömuleiðis.

Vilja að boðað verði til kosninga

Formenn allra stjórnarandstöðuflokkanna telja réttast að boðað verði til þingkosninga sem fyrst vegna þeirra hræringa sem séu í ríkisstjórninni. Þeir segja stjórnina þrotna að kröftum og ekki geta tekist á við þau stóru mál sem blasi við í samfélaginu. Eins og kunnugt er tilkynnti Halldór Ásgrímsson í gærkvöld að hann hygðist bæði segja af sér sem forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins og að Geir H. Haarde tæki við sem forsætisráðherra á næstunni eftir viðræður stjórnarflokkanna þar um. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - hreyfingarinnar græns framboðs, segir um brotthvarf Halldórs úr pólitík að það hafi líklega ekki borið að eins og forsætisráðherra vildi. Steingrímur segir tíðindin sýna að ríkisstjórnin sé laskað fley og því sé réttast að boða til þingkosninga. Steingrímur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir samtarf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins ekki lengur snúast um málefni og stefnu heldur um að halda völdum. Hún bendir á að ákveðin upplausn sé í efnahagsmálum, kjaramálum og varnarmálu. Ingibjörg Sólrún Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir atburði síðustu daga sýna að alger upplausn sé innan Framsóknarflokksins. Halldór hafi ekki fundið sig í embætti forsætisráðherra og feli nú Geir H. Haarde að stjórna þannig að það sé forysta í ríkisstjórninni sem sé ekki alveg sundruð inn á við. En telur hann að boða beri til kosninga 1:11-1:30 Formaður Sjálfstæðisflokksins og verðandi forsætisráðherra gefur hins vegar lítið fyrir þær kröfur.

Tilboð sem á að fá Írana til að hætta auðgun úrans

Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, er kominn til Írans með tilboð frá vesturlöndum, sem á að fá Írana til að hætta við auðgun úrans. Tilboðið sem Solana hefur í farteskinu, hefur ekki verið gert opinbert. Frumdrög að því benda hinsvegar til þess að ef Íranar fallist á að hætta auðgun úrans muni þeir fá aðstoð við að reisa kjarnorkuver, þeim verði tryggt eldsneyti og þeir fái að kaupa evrópskar Airbus flugvélar. Bandaríkin bættu í pottinn með því að aflétta ýmsum viðskiptahömlum af Íran, meðal annars heimila þeim að kaupa Boeing farþegaþotur og varahluti í vélar af þeirri tegund, sem þeir eiga þegar. Í tilboðinu er hinsvegar einnig að finna hótun um að ef Íranar haldi áfram að auðga úran, muni öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkja refsiaðgerðir. Viðbrögð Írana hafa verið misvísandi. Æðsti leiðtogi þeirra, klerkurinn Ali Khameini hefur hótað að trufla olíuframleiðslu, ef Íran verður beitt viðskiptaþvingunum. Mahmóud Ama-dine-jad, forseti landsins hefur hinsvegar fagnað komu Solanas og lofar því að tilboð vesturlanda verði skoðað vandlega.

Bush hvetur til algers banns á hjónaböndum samkynhneigðra

Bush hvatti öldungadeildina í gær til þess að samþykkja viðauka við stjórnarskránna sem geri ráð fyrir algjöru banni við hjónaböndum samkynhneigðra. Hjónaband milli manns og konu væri grundvöllur siðmenningar og við því mætti ekki hrófla. En þó að þetta útspil forsetans gleðji harðlínumenn innan repúblikanaflokksins ósegjanlega og styrki stöðu hans í þeirra hópi, er ólíklegt að það nái fram að ganga. Til þess þyrftu tveir þriðju hlutar beggja þingdeilda að samþykkja það. Flestir flokksbræður Bush styðja þessa hugmynd, en það er bara ekki nóg, því að búist er við að allir demókratar nema einn í öldungadeildinni muni hafna tillögunni og nokkrir hófsamir Repúblikanar að auki. Nokkrir Demókratar létu rækilega í sér heyra í öldungadeildinni í gær vegna málsins og gagnrýndu að það skyldi yfir höfuð vera til umræðu á sama tíma og blóðugt stríð geysaði í Írak og landið væri skuldum vafið.

Guðni gefur lítið fyrir vantraust Valgerðar

Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, gefur ekki mikið fyrir vantraust flokkssystur hans Valgerðar Sverrisdóttur á hann í embætti formanns flokksins. Hann ætlar að kanna vilja stuðningsmanna sinna áður en hann ákveður hvort hann býður sig fram, en segist ekki muni þvælast fyrir í flokknum, ef hann njóti ekki stuðnings til formennsku. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar voru fámálir þegar þeir mættu á ríkisstjórnarfund í morgun. Stóra spurningin er auðvitað sú hver tekur við af Halldóri Ásgrímssyni þegar hann lætur af formennsku í Framsóknarflokknum á landsþingi í haust. Guðni Ágústsson er varafromaður flokksins, en ljóst er að ekki er eining innan þingflokksins um hver eigi að taka við af Halldóri. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sagði í Ríkisútvarpinu í morgun að hún treysti Guðna ekki til formennsku. En skoðum aðeins myndir af því þegar ráðherrar mættu á ríkisstjórnarfund í morgun. KOMMENT Halldór Ásgrímsson sagði á Þingvöllum í gær að hann og Guðni hefðu báðir sæst á að láta af embættum sínum í fælokknum. Guðni sendi hins vegar frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi, þar sem hann gefur sterkelga til kynna að hann kunni að verða í framboði til formennsku í flokknum. Ríkisstjórnarfundi lauk um klukkan hálf ellefu og gaf Guðni þá kost á stuttu viðtali.

Umferð gekk vel í gær

Umferð gekk vel á vegum landsins í gær og er ekki vitað um slys eða meiri háttar óhöpp. Umferðarþunginn fór að aukast til muna upp úr hádegi en dreifðist svo alveg fram á kvöld.

Gistinóttum fjölgar um fjögur prósent milli ára

Gistinóttum fjölgaði um fjögur prósent í apríl síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Austurlandi, eða um fjórðung, en þeim fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi þar sem þeim fækkaði um 13,5 prósent.

Farið yfir feril Halldórs

Ferill Halldórs Ásgrímssonar spannar yfir þrjátíu ár í stjórnmálum. Halldór settist fyrst á þing í Austurlandskjördæmi árið 1974, en hann er fæddur á Vopnafirði. Hann hefur setið á þingi nær óslitiði síðan þá, en flutti sig um set fyrir síðustu alþingiskosningar og leiddi lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Dómur kveðinn upp í dag vegna Viðeyjarslyss

Dómur verður kveðinn upp í máli Jónasar Garðarssonar, formanns Sjómannafélags Reykjavíkur, í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan eitt í dag. Jónas er sakaður um að hafa þann tíunda september síðastliðinni stýrt skemmtibátnum Hörpu undir áhrifum áfengis, en báturinn steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi með þeim afleiðingum að tveir létust.

Í hættu eftir að bátur varð eldsneytislaus

Tveir fullorðnir menn og tvö börn voru í hættu þegar lítill skemmtibátur, sem þau voru á, varð eldsneytislaus skammt út af Kjalarnesi í gærkvöldi og tók að reka í átt að grýttri fjöru.

Yfirlýsing frá Guðna Ágústssyni

Guðni Ágústsson, vara formaður Framsóknarflokksins, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna orða Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins, í tengslum við afsögn Halldórs í gær.

Næstu ár gætu orðið enn mannskæðari

Meira en eitt hundrað milljónir gætu látist af völdum alnæmis í Afríku einni saman á næstu tuttugu og fimm árum, gangi svartsýnustu spádómar Sameinuðu Þjóðanna eftir. Nú eru liðin tuttugu og fimm ár síðan alnæmi greindist fyrst og síðan þá hafa tuttugu og fimm milljónir látið lífið af völdum sjúkdómsins í heiminum. Margt bendir til að næstu tuttugu og fimm ár gætu orðið enn mannskæðari. Miðað við mannfjöldaspár og útbreiðslu sjúkdómsins gætu meira en þrjátíu milljónir fallið á Indlandi og meira en eitt hundrað milljónir í Afríku einni.

Ekki mynduð ný ríkisstjórn

Geir H. Haarde verðandi forsætisráðherra segir að þótt mannabreytingar blasi við í ríkisstjórninni verði ekki mynduð ný ríkisstjórn enda þýði afsögn Halldórs ekki slit á stjórnarsamstarfinu.

Ekkert liggur fyrir um afsögn Guðna

Halldór Ásgrímsson hefur ákveðið að segja af sér sem forsætisráðherra en Geir H. Haarde tekur við forsætisráðherraembættinu. Hann situr áfram sem formaður Framsóknarflokksins fram á haust. Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir ekkert liggja fyrir um afsögn sína.

Eitt hundrað börn á biðlista BUGL

Börn sem þurfa að komast á barna- og unglingageðdeild mega sætta sig við að bíða í heilt ár. Um eitt hundrað börn eru á biðlista eftir að komast á göngudeild.

Undarlegur ölvunarakstur

Fyrsta stóra ferðahelgin hefur gengið vel fyrir sig það sem af er. Lögregluþjónar í Rangárþingi þurftu þó að reyna verulega á sig um helgina þegar þeir hugðust stöðva mann á dráttarvél sem þeir höfðu grunaðan um að aka undir áhrifum.

Klónað múldýrakyn á verðlaunapalli

Tvö klónuð múldýr voru í fyrsta og öðru sæti á árlegum múldýraveðreiðum í Nevada í Bandaríkjunum um helgina. Múldýrin tvö eru bræður.

Halldór tilkynnir ákvörðun sína klukkan níu

Halldór Ásgrímsson hefur boðað til blaðamannafundar í bústað forsætisráðherra á Þingvöllum klukkan níu í kvöld. Álitið er að á fundinum muni hann tilkynna ákvörðun um pólitíska framtíð sína. Sýnt verður beint frá fundinum á NFS klukkan níu.

Eftirlit með utanvegaakstri úr lofti

Þeir sem stunda utanvegaakstur geta átt von á eftirliti úr lofti en lögreglan og Landhelgisgæslan hafa tekið höndum saman um að stemma stigu við slíkum akstri. Nokkrir brotlegir voru bókaðir af lögreglunni um helgina og geta átt von á sektum.

Dveljast á Íslandi mánuðum saman án þess að fá skólavist

Dæmi eru um að börn frá Austur-Evrópu dveljist hér mánuðum saman án þess að fá skólavist, þó að barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kveði á um skýlausan rétt þeirra til að ganga í skóla. Enn hefur ekki reynt á hvort börnum, sem hér dveljast án lögheimilis, yrði synjað um skólavist.

Tískusýning á pokakjólum

Hvenær sáuð þið síðast kjóla úr kartöflupokum, bónuspokum eða ruslapokum? Þetta er meðal þess sem getur að líta á tískusýningu í Gúttó í Hafnarfirði klukkan átta annað kvöld.

Nýjar fjöldagrafir fundnar í Írak

Átján nýjar fjöldagrafir, frá stjórnartíð Saddams Hussein, hafa fundist í Írak. Líklegt er talið að í þeim séu fórnarlömb sjíta-múslima sem Saddam lét myrða. Grafirnar fundust í eyðimörkinni í suðvesturhluta landsins. Talið er að þær séu frá því sjíamúslimar gerðu uppreisn gegn Saddam árið 1991. Í annarri gröfinni hafa fundist líkamsleifar tuttugu og átta karlmanna á aldrinum 20 til 35 ára. Hendur þeirra hafa verið bundnar fyrir aftan bak, og það hefur verið bundið fyrir augu þeirra, áður en þeir voru skotnir. Réttarlæknar sem eru að grafa upp beinagrindurnar hafa einnig fundið mikið magn af skothyklkjum og byssukúlum. Aðeins er búið að grafa upp eina af fjöldagröfunum átján, enn sem komið er. Hinar verða opnaðar ein af annarri, á næstu misserum. Talið er að yfir eitthundrað og áttatíu þúsund shía múslimar hafi verið myrtir árið 1991, þegar þeir gerðu uppreisn gegn forsetanum, í kjölfar fyrra persaflóastríðsins.

Stakk lögregluna af á sundi í Rangá

Bóndi nokkur um fimmtugt reyndi allverulega á krafta lögreglunnar í Rangárþingi um helgina. Hann hafði verið við gleðskap á skemmtistað á Hellu en þanngað hafði hann komið akandi á dráttarvél. Eftir að hafa setið þar nokkra stund að sumbli ákvað hann að halda heim á bæ sinn milli Hellu og Hvolsvallar en á miðri ferð sinni hitti hann fyrir lögreglumenn sem grunuðu hann um ölvun. Lögreglan gaf manninum merki um að stöðva faratæki sitt en hann hélt nú ekki heldur lagði til árásar með ámoksturstækjunum á traktornum. Bóndinn hljóp svo út úr dráttarvélinni og bárust leikar hans og lögreglu um mela og móa sveitarinnar. Þegar komið var að bökkum Rangár skipti svo engum togum að lagði maðurinn til sunds og misstu laganna verðir þar augun af honum. Þeir fóru fljótlega óttast um hann og kölluðu út björgunarsveitarmenn sem komu samstundis og fínkembdu svæðið en án árangurs. Seinnihluta nætur gaf sá grunaði sig þó fram við lögreglu og var tekin blóðprufa úr honum.

Efnahagshorfurnar neikvæðar

Matsfyrirtækið Standard og Poor´s hefur breytt mati á efnahagshorfum á Íslandi úr stöðugum í neikvæðar. Forstöðumaður Hagfræðistofnunar segir þetta staðfestingu á því að ríkisstjórnin verði að ganga í lið með Seðlabankanum í baráttunni við verðbólgudrauginn.

Framsókn fundar um forystu í flokknum

Landsstjórn og þingflokkur Framsóknarmanna hittast í kvöld til að freista þess að ná sáttum um forystu í flokknum. Að minnsta kosti fjögur framsóknarfélög hafa skorað á Guðna Ágústsson, varaformann flokksins, að taka við formannssætinu við brotthvarf Halldórs Ásgrímssonar. Talið er hins vegar líklegt að Halldór Ásgrímsson endurskoði ákvörðun sína um að hætta hverfi Guðni ekki af sviðinu á sama tíma og hann.

Sjá næstu 50 fréttir