Fleiri fréttir

Olíuverð á heimsmarkaði í uppnámi

Heimsmarkaðsverð á hráolíu rauk upp í morgun, eftir að æðsti leiðtogi Írana ýjaði að því í gær að röng nálgun Bandaríkjamanna í kjarnorkudeilunni gæti haft áhrif á olíuframboð. Tunnan af hráolíu var komin yfir sjötíu og þrjá dollara í Bandaríkjunum í morgun.

Af og frá að lækka aflahlutfallið fyrir næsta fiskveiðiár

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir af og frá að aflahlutfallið verði lækkað fyrir næsta fiskveiðiár. Hann afskrifar þó ekki breytingar á aflareglunni en segir að ekki megi rasa um ráð fram, slíkar breytingar taki tíma þar sem um gríðarmikla hagsmuni sé að ræða fyrir íslensku þjóðina.

Sjálfstæðisflokkurinn og Samherjar áfram við völd

Sjálfstæðisflokkurinn og Samherjar hafa ákveðið að halda áfram meirihlutasamstarfi um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra kjörtímabilið 2006-2010. Á kjörtímabilinu verður lögð áhersla á menntamál, málefni eldri borgara, umhverfismál, fjölskylduvænt samfélag, markaðssetningu sveitarfélagsins, atvinnumál, ábyrga fjármálastjórn, ferða- og samgöngumál.

Sparisjóður Siglufjarðar tekur yfir reksturinn

Glitnir hefur ákveðið að hjætta rekstri útibús á Siglufirði og hefur tekist samkomulag um að Sparisjóður Siglufjarðar kaupi og taki yfir rekstur útibúsins. Markmiðiði er að tryggja viðskiptavinum á Siglufirði áframhaldandi þjónustu í heimabæ en Glitnir telur ljóst að ekki sé rekstrarlegur grundvöllur fyrir tvær fjármálastofnanir í bænum.

Íhuga málaferli

Aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Reykjavík Trópík íhuga höfða mál á hendur þeim sem ábyrgir eru en ekki fékkst skemmtanaleyfi fyrir tónleikana sem vera áttu í kvöld. Hátíðin hefur verið færð á skemmtistaðinn Nasa við Austurvöll þar sem tónleikar munu fara fram í kvöld.

Hvítasunnan haldin hátíðleg víða um land

Kristnir menn halda Hvítasunnuna hátíðlega í dag og voru bekkir víða þéttsetnir í kirkjum landsins í dag. Hvítasunnan er þriðja stórhátíð kristninnar og með henni lýkur pásktatímanum.

Hvalfjarðargöngin enn lokuð, óvíst hvenær opnar á ný

Hvalfjarðargöngin eru enn lokuð vegna þriggja bíla áreksturs niðri í göngunum rétt um klukkan hálffimm. Níu manns voru í bílunum og voru allir fluttir á slysadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss til rannsókna en slys á fólki eru ekki talin alvarleg. Bílarnir eru töluvert skemmdir og þarf að fjarlægja þá með kranabíl. Þetta gæti tekið nokkurn tíma og því óvíst hvenær göngin verða opnuð á ný.

Hvalfjarðargöng lokuð vegna áreksturs þriggja bíla

Þrír bílar lentu saman í Hvalfjarðargöngum nú rétt í þessu. Göngin eru lokuð um óákveðinn tíma og er fólki bent á að aka Hvalfjörðinn í staðinn. Lögreglan er á leiðinni á staðinn og hefur ekki frekari upplýsingar um slys á fólki né annað en við flytjum frekari fréttir um leið og þær berast.

Keflavík "óhreinn" flugvöllur

Evrópusambandið skilgreinir Keflavíkurflugvöll sem "óhreinan" flugvöll. Flugvélar sem fara héðan eru á tveimur evrópskum flugvöllum afgreiddar eins og þær séu að koma í fyrsta sinn inná Schengen svæðið.

Skíðalandsliðið við æfingar fram í júní

Skíðalandslið Íslands í alpagreinum er nú við æfingar á skíðasvæðinu í Tindastóli við fyrirtaks snjóaðstæður og blíðskaparveður. Þetta er í fyrsta skipti sem opið er í Tindastóli í maí og júní en gera má ráð fyrir að nú sé skíðatíðin nú á enda eftir langa og góða skíðavertíð en alls var opið 120 daga á skíðasvæðinu.

Stakk lögguna af á sundi

Lögreglumenn frá Hvolsvelli lentu í óvenjulegri eftirför þegar þeir vildu ná tali af manni sem var á ferð á dráttarvél eftir Oddavegi og virtist vera undir áhrifum áfengis. Hann tók á rás yfir mýrar og móa og löggan á eftir og þegar kom að Ytri-Rangá, til móts við bæinn Bjólu, óð maðurinn út í og synti niður eftir ánni þegar lögreglumenn óðu á eftir honum.

Samskip sameinast dótturfélögum sínum

Í haust verður öll flutningastarfsemi Samskipa sameinuð undir nafni Samskipa. Þetta var tilkynnt í Rotterdam þegar félagið veitti viðtöku tveimur spánýjum sérsmíðuðum flutningaskipum.

Hátíðarmessa í Hallgrímskirkju

Kristnir menn halda Hvítasunnuna hátíðlega í dag. Sr.Sigurður Pálsson predikaði í hátíðarmessu í Hallgrímskirkju í morgun. Sr. Sigurður mun brátt láta af störfum sem sóknarprestur og í hans stað kemur sr. Jón Dalbú. Þá söng mótettukórinn söng undir stjórn Harðar Áskelssonar organista. Hvítasunnan er þriðja stórhátíð kristninnar og með henni lýkur pástatímanum. Koma heilags anda í kirkju Krists er minnst en dagurinn er stofndagur kirkjunnar.

Íranar tilbúnir til viðræðna

Íranar eru tilbúnir til viðræðna um kjarnorkuáætlanir sínar en segja Bandaríkjamenn ekki setja skilyrðin. Forseti landsins segir Írana aldrei munu gefa upp rétt sinn til að auðga úran. Forsetinn sagði þó í gær að Íranar myndu athuga og íhuga vel þau tilboð sem kæmu frá fulltrúm þeirra fimm ríkja sem eiga fast sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Brutust inn í gufuna á Laugarvatni

Tveir piltar brutust inn í gufubaðið á Laugarvatni í fyrrinótt og stálu þaðan peningum og brutust síðan inn í garðverkfærageymslu Menntaskólans og höfðu á brott með sér eitthvað af verkfærum. Náðist til strákanna í gær og telst málið nú að fullu upplýst.

Fjöltyngd söngkeppni í Hafnarfirði

Það er ekki hver sem er sem hættir sér í að syngja á öðru tungumálinu en móðurmálinu - og ekki á ensku. Á Cantare, söngkeppni hinna mörgu tungumála, var þetta hins vegar ófrávíkjanleg regla. Söngkeppnin var haldin í Hafnarfjarðarleikhúsinu í gærkvöld.

Guðni þarf að segja af sér eigi Finnur að verða formaður.

Framsóknarmenn geta ekki gengið framhjá Guðna Ágússtssyni varaformanni flokksins, -og gert Finn Ingólfsson að formanni næsta föstudag, -nema Guðni segi af sér varaformennsku. Finnur útilokar ekki endurkomu í stjórnmálin, -verði til hans leitað, en Guðni segir stöðu sína hins vegar sterka.

Minningarathöfn á Torgi hins himneska friðar

Fjöldi lögreglumanna stóð vaktina á Torgi hins himneska friðar í Peking, höfuðborg Kína í dag. Sautján ár eru síðan herinn lét til skarar skríða gegn námsmönnum á torginu sem kröfðust lýðræðis í landinu. Hundruð, jafnvel þúsundir námsmanna féllu í slagnum.

Hægrimenn sigruðu í þingkosningum í Tékklandi

Hægrimenn sigruðu í þingkosningum í Tékklandi sem fram fóru í gær með rúmlega 35 prósent atkvæða. Jafnaðarmannaflokkurinn sem þótti sigurstranglegastur fyrir kosningarnar fékk rúmlega 32 prósent. Þrír aðrir flokkar fengu yfir fimm prósenta fylgi, sem var skilyrði fyrir því að flokkarnir fengju þingmenn.

Svartfjallaland orðið sjálfstætt ríki

Svartfellingar lýstu í gærkvöld yfir sjálfstæði landsins eftir að þingið samþykkti samhljóða tillögu þess efnis í samræmi við niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu nýlega. Ranko Krivokapic, forseti svartfellska þingsins, las upp yfirlýsinguna og sagði að með þessu væri ríkjasambandi við Serbíu formlega slitið.

Utanvegaökumenn sektaðir eftir þyrlueftirlit

Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í gær í eftirlitsflug yfir hálendinu til að fylgjast með hugsanlegum utanvegaakstri á Hengilssvæði, Hellisheiði og hálendinu upp af Árnessýslu. Átta ökumenn mótorkrosshjóla voru í kjölfarið sektaðir fyrir að aka utan vega á Hengilssvæðinu og tveir jeppar voru stöðvaðir utan vega við Hagavatn.

Reykjavík Trópík flutt á Nasa í kvöld

Dagskrá tónlistarhátíðarinnar Reykjavík Trópík í dag verður flutt á Nasa vegna þess að ekki fékkst skemmtanaleyfi fyrir Hvítasunnudaginn í risatjaldinu á háskólaplaninu. Hljómsveitin Sleater Kinney sem spila átti á Nasa hefur af þeim sökum verið innlimuð í tónleikadagskrá Trópík en miðar á þá tónleika gilda eftir sem áður.

Guðni útilokar ekki afsögn

Guðni Ágústsson segir það koma í ljós í næstu viku hvort hann haldi áfram sem varaformaður Framsóknarflokksins. ,,Við skulum sjá hvað gerist,'' segir hann aðspurður um hvort breytingar verði gerðar á ríkisstjórninni.

Metfjöldi á Hvannadalshnjúk

Metfjöldi fjallgöngumanna mun hafa náð hæsta tindi Íslands í dag. Að mati Ferðafélags Íslands hafa alls um 300 manns horft yfir Öræfasveitina og Vatnajökulinn ofan af Hvannadalshnjúknum í dag. Þar af voru 132 í för með Ferðafélaginu sem eru mun fleiri en í fyrra.

Manneskjubókasafn í Hafnarfirðinum

Kynlífsfíkill, ungur stjórnmálamaður, múslimi og innflytjandi voru meðal þeirra einstaklingar sem hægt var að fá lánaða í Gamla bókasafninu í Hafnarfirði í dag. Tilgangur útleigunnar er að upplýsa fólk og koma í veg fyrir fordóma.

Sumarblíða í borginni

Veðrið hefur leikið við borgarbúa í dag sem kunna svo sannarlega að njóta góða veðursins. Á meðan sumir dilliðu sér við ljúfan djass, fengu sér aðrir pólskar pylsur eða sýndu breikdans við mikinn fögnuð áhorfenda.

Steingrímur J. Sigfússon ræðumaður Alþingis

Liðsmenn samtakanna JCI, Junior Chamber International, kusu í dag Steingrím J. Sigfússon besta ræðumann eldhúsdags Alþingis. Flokksbróðir hans í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði, Ögmundur Jónasson, hafnaði í öðru sæti. Þetta er í þriðja sinn sem félagar í JCI kjósa ræðumann Alþingis, til að vekja athygli á mikilvægi þess að geta komið máli sínu vel til skila.

Þurfum að draga úr þorskveiðum

Hafrannsóknastofnun lagði til í dag að þorskkvóti fyrir næsta fiskveiðiár verði 11 þúsund tonnum minni en nú í ár, eða 187 þúsund tonn. Aflahlutfallið þarf að skerðast enn frekar til að byggja upp hrygningarstofninn, að mati Hafró.

Maður vankaðist í fótboltaleik

Maður á þrítugsaldri vankaðist í fótboltaleik á Ásvöllum í Hafnarfirði á öðrum tímanum í dag. Þar fór fram leikur í utandeild þar sem lið Kónganna og FC-Pump tókustu á. Sjúkrabíll kom á staðinn skömmu síðar en þá var maðurinn með meðvitund og því var neyðarbíll afturkallaður. Maðurinn var síðan fluttur á slysadeild Landspítalans-háskólasjúkrahúss til frekari rannsóknar.

Pólskir læknar ráðnir til starfa í Danmörku

Á meðan danskir hjúkrunarfræðingar eru ráðnir á Landspítala-háskólasjúkrahús, þá eru pólskir læknar ráðnir til starfa í Danmörku. Á fréttavef Jyllands Posten er greint frá að pólskir læknar hafi nú verið ráðnir á einkastofur á Norður Jótlandi en í fyrstu voru þeir einkum ráðnir á ríkisreknu sjúkrahúsin. Pólsku læknarnir eru ráðnir samkvæmt dönskum samningum en þeim er frjálst að segja upp samningum hvenær sem er.

Danir vilja kalla danska hermenn heim frá Írak

Um helmingur Dana vill kalla heim danskar hersveitir frá Írak samkvæmt nýlegri skoðanna könnun þar í landi. Politiken greinir frá því að stuðningur Dana við þátttöku í Íraksstríðinu sé hverfandi en árið 2004 voru um 72% Dana fylgjandi því að senda danska hermenn til Írak en einungis um 40% nú. Samkvæmt varnarmálaráðherra Danmerkur, Søren Gade, eru þó litlar líkur á að danskir hermenn verði kallaði heim í nánustu framtíð.

Metfjöldi göngufólks á Hvanndalshnjúki

Metfjöldi fjallgöngumanna mun hafa náð hæsta tindi Íslands í dag. Að mati Ferðafélags Íslands eru það alls um 300 manns sem horfa ofan af Hvannadalsnjúknum í dag. Þar af eru 132 í för með Ferðafélaginu sem eru mun fleiri en í fyrra. Þá eru Íslenskir fjallaleiðsögumenn og Einar í Hofsnesi með skipulagðar ferðir, auk þess sem erfitt er að slá tölu á alla þá sem leggja á Hnjúkinn á eigin vegum.

Hegningarhúsið tekur lit

Hegningarhúsið gamla við Skólavörðustíg er nú að varpa af sér grámanum og taka lit í sólinni, að minnsta kosti á einni hliðinni. Málaranemar við Iðnskólann í Reykjavík eru nú að leggja lokahönd á málverk sitt á austurvegg Hegningarhússins, sem snýr að Sparisjóðshúsinu við Skólavörðustíginn.

Serbía lýsir brátt fyrir sjálfstæði

Júgóslavía heyrir sögunni til í næstu viku þegar Serbía, síðast lýðveldanna, lýsir opinberlega yfir sjálfstæði. Aðeins Svartfjallaland og Serbía eru eftir af því lýðveldum sem Júgóslavía eitt sinn var en landið samanstóð af Slóveníu, Bosníu-Herzegovinu, Króatíu, Makedóníu, Albaníu, Svartfjallalandi og Serbíu.

Tólf manns slösuðust í sprengingu í Tyrklandi

Alls slösuðust tólf manns þegar sprengja sprakk við verslunarmiðstöð í borginni Mersin um 450 kílómetra suður af höfuðborginni Ankara í morgun. Enginn hefur lýst ódæðinu á hendur sér en kúrdískir hryðjuverkamenn hafa áður notað svipaðar aðferðir. Enginn þeirra slösuðu eru í lífshættu. Þá brotnuðu rúður í nokkrum verslunum í verslunarmiðstöðinni.

Sjálfstæðismenn og Samherjar mynda meirihluta

Sjálfstæðisflokkurinn og samherjar hafa ákveðið að halda áfram meirihlutasamstarfi um sjtórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra kjörtímabiliið 2006 til 2010. Unnur Brá Konráðsdóttir í Sjálfstæðisflokki verður bæjarstjóri, Ólafur Eggertsson, Samherjum verður oddviti og Elvar Eyvindsson, Sjálfstæðisflokki verður formaður Byggðaráðs. Á kjörtímabilinu verður meðal annars lögð áhersla á menntamál, málefni eldri borgara og umhverfismál.

Maður særðist í aðgerðum hryðjuverkalögreglu

Maður særðist, þó ekki alvarlega, þegar hryðjuverkalögreglan í Bretlandi réðst inn í hús hans í Lundúnum í gær og skaut hann. Talið var að í húsinu væru búin til efnavopn. Yfir 250 lögreglumenn tóku þátt í árásinni og er aðgerð hryðjuverkalögreglunnar þar í landi ein sú umfangsmesta í langan tíma. Maðurinn sem skotinn var er 23 ára. Hann er nú á sjúkrahúsi og á batavegi. Grunsemdir lögreglunnar virtust þó ekki á rökum reistar því engin ummerki um vopnagerð, funndust í húsinu.

Segja Finn ekki vera lausn fyrir Framsókn

Það væri heimskulegt fyrir Framsóknarflokkinn að gera Finn Ingólfsson að formanni, segir Össur Skarphéðinsson alþingismaður og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar. Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður Vinstri grænna segir slíkan leik vondan fyrir Framsókn sem þegar hafi orð á sér fyrir að vera hagsmunaklíka, en ekki stjórnmálaflokkur.

Dæmdur til að greiða 200.000 vegna náttúruspjalla

Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær karlmann til að greiða 200.000 króna sekt fyrir að hafa rutt slóða í þeim tilgangi að gera reiðveg utan vega ofan Hveragerðis, alls tæpa fjóra kílómetra. Maðurinn hafði ekki aflað framkvæmdaleyfis sveitastjórnar líkt og lög kveða á um, né fengið samþykki landeiganda.

Vilja endurskoða lög um vaxtabætur

Stjórnarandstaðan krafðist þess á þingi fyrir stundu að lög um vaxtabætur vegna fasteignakaupa yrðu endurskoðuð strax. Þúsundir lágtekjufjölskyldna stæðu frammi fyrir mikilli skerðingu ella.

Fylgdu reglum

Bandaríski herinn segir að ekkert bendi til þess að bandarískir hermenn hafi drepið ellefu óbreytta borgara í húsi í bænum Ishaqi í Írak þann 15. mars síðastliðinn.

Björgunarsveitarmenn mótmæla kílómetragjaldi á Alþingi

Björgunarsveitarmenn safnast saman upp úr tíu í bílum sínum fyrir framan Alþingishúsið til að mótmæla frumvarpi um olíugjald, sem nú liggur fyrir þinginu til samþykktar í dag. Samkvæmt frumvarpinu þurfa björgunarsveitir að borga kílómetragjald af bílum sínum í hvert skipti sem farið er úr húsi til að bjarga nauðstöddum.

Sjálfboðaliðar á Suðureyri

Hópur sjálfboðaliða á vegum samtakanna Seeds Iceland hefur dvalið á Suðureyri undanfarna daga. Á fréttavefinum Bæjarins besta kemur fram að sjálfboðaliðarnir hafa unnið að almennum umhverfismálum í bænum, gróðursetningu og við að mála. Alls eru 14 einstaklingar í hópnum frá hinum ýmsu löndum, svo sem Slóvakíu, Póllandi, Tékklandi og Spáni. Sjálfboðaliðarnir bera sjálfir allan kostnað af komu sinni til Suðureyrar en fá frítt fæði og húsnæði á meðan á verkefninu stendur.

Sjá næstu 50 fréttir