Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Leit að ungum manni frestað vegna veðurs Fyrirhugaðri leit björgunarsveita að Pétri Þorvarðarsyni sem fram átti að fara á morgun hefur verið frestað fram til næsta fimmtudags vegna veðurskilyrða. Péturs hefur verið saknað frá Grímsstöðum á Fjöllum síðan á aðfararnótt sunndags en leit heimamanna síðustu daga hefur engum árangri skilað. 19.5.2006 12:39
Ísland þriðja land inn í ESB Ísland gæti orðið næsta land inn í Evrópusambandið á eftir Búlgaríu og Rúmeníu. Þetta segir Olli Rehn, sem fer fyrir stækkun sambandsins í framkvæmdastjórn þess. Það verði þó ekki fyrr en búið er að gera nýjan stofnanasáttmála og taka fjárhagsáætlun sambandsins fyrir tímabilið 2008 til 2009 til gaumgæfilegrar skoðunar. 19.5.2006 12:30
Skriða vaxtahækkana að fara stað Skriða vaxtahækkana er að fara af stað eftir að Seðlabankinn tilkynnti um hækkun stýrivaxta í gær. Vextir af húsnæðislánum bankanna eru nú komnir upp í það sama og vextir Íbúðalánasjóðs voru, áður en bankarnir fóru inn á þann markað fyrir hálfu öðru ári. 19.5.2006 12:15
D-listi með meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn fengi annað hvert atkvæði í kosningum til borgarstjórnar samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Frjálslyndi flokkurinn mælist í fyrsta sinn í sögu flokksins með nógu mikið fylgi í skoðanakönnun til að ná manni inn í borgarstjórn. 19.5.2006 12:15
SPRON hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar SPRON hefur ákveðið að hækka bæði verðtryggða og óverðtryggða vexti eftir að Seðlabankinn hækkaði í gær stýrivexti um 0,75 prósent. Óverðtryggðir vextir hækka um allt að 0,75 prósent en verðtryggðir vextir, það er vextir af nýjum íbúðalánum, um 0,3 prósent. Þeir fara því úr 4,6 prósentum í 4,9 prósent frá og með mánudeginum. 19.5.2006 11:00
Ætlar að vera áfram við fjallsrætur Merapi Á meðan mörg þúsund íbúar á indónesísku eyjunni Jövu flýja eldfjallið Merapi sem nú er að gjósa er einn áttræður maður sannfærður um að það sé óhætt að halda áfram til við fjallræturnar þar sem hann á heima. 19.5.2006 10:45
Éljagangur á norðaustanverður landinu í nótt Éljagangur var sums staðar á norðaustanverðinu í nótt og til dæmið gránaði niður i hlíðar á Vaðlaheiði, gengt Akureyri í nótt. Þar var hiti rétt yfir frostmarkinu klukkan sex í morgun þannig að næturfrost hefur víða verið til fjalla. 19.5.2006 10:30
Um fimmtungur segir ölvunarakstur hafa áhrif á afstöðu sína Um það bil tuttugu prósent, eða fimmtungur kjósenda í Árborg, segja að fréttir af ölvunarakstri Eyþórs Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, hafi áhrif á afstöðu þeirra í komandi bæjarstjórnarkosningum, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins. 19.5.2006 10:15
Guantanamofangelsi og leynifangelsum beri að loka Nefnd Sameinuðu þjóðanna gegn pyntingum segir Guantanamo-fangelsið á Kúbu brjóta gegn alþjóðalögum og því beri að loka. Einnig beri Bandaríkjastjórn að loka leynifangelsum annars staðar í heiminum. 19.5.2006 10:02
Gripinn við innbrot í Síðumúla Lögreglumenn gripu mann sem ætlaði að brjótast inn í hús við Síðumúla í Reykjavík í nótt og náðu skömmu síðar bíl sem átti að nota til undankomu. Ökumaður hans og þjófurinn voru handteknir og verða þeir yfirheyrðir nánar. 19.5.2006 09:52
Reykhreinsibúnaður bilaði Bilun varð í einu reykhreinsivirki Íslenska járnblendifélagsins á Grundartanga í gær. Reykur streymdi því út í loftið um fjögurra klukkutímaskeið áður en bilunin uppgötvaðist. 19.5.2006 09:48
Enn leitað að ræningja Lögregla leitar enn að manni, sem rændi talsverðu af lyfjum úr apóteki við Smiðjuveg í Kópavogi undir hádegi í gær. Hann ógnaði starfsfólki með öxi en vann engum mein. Hann er talinn vera á fertugsaldri. 19.5.2006 09:30
Fujimori látinn laus úr fangelsi Hæstiréttur í Chile lét í gær Alberto Fujimori, fyrrverandi forseti Perús, lausan úr fangelsi gegn tryggingu. Hann á yfir höfði sér ákærur um spillingu og mannréttindabrot í heimalandinu og gera stjórnvöld þar þá kröfu að hann verði framseldur. Dómstólar í Chile eiga eftir að taka afstöðu til þess. 19.5.2006 09:15
Landamæragirðing gagnrýnd Sú ákvörðun Bandaríkjaþings, að reisa 600 km langa girðingu á landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna til að stemma stigu við straumi ólöglegra innflytjenda til Bandaríkjanna, var gagnrýnd harðlega á fundi utanríkisráðherra landa í Mið-Ameríku í gærkvöld. 19.5.2006 09:00
Baulað á Silvíu Nótt Fjöldi áhorfenda púaði og baulaði á Silvíu Nótt, áður en hún hóf að flytja lag Íslendinga í undankeppni Evróvision í Olympiuhöllinni í Grikklandi í gærkvöldi, sem mun vera afar fátítt , ef ekki eins dæmi. Eftir flutning hennar var líka púað, en einnig máti greina fagnaðar hróp. Lagið komst ekki áfram í aðal keppnina en ekki liggur fyrir hversu mörg atkvæði það hlaut í undanekppninni. Þrátt fyrir það söfnuðust íslenskir aðdáendur Silvíu víða saman í gær, bæði á heimilum og á veitingahúsum, og fylgdust spenntir með. Hvað sem sumir segja um áhugann á Evróvision-keppninni, þá voru götur á höfuðborgarsvæðinu nánast auðar, eins og um miðja nótt væri, meðan á keppninni stóð. 19.5.2006 08:45
Elsti frambjóðandinn 92 ára Elsti frambjóðandinn í sveitarstjórnarkosningunum í vor er 92 ára. Sá er Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrverandi menntamálaráðherra frá Brekku í Mjóafirði. Hann er í framboði fyrir Framsóknarflokkinn í Fjarðabyggð. 19.5.2006 08:33
23 létust í Kína af völdum fellibylsins Að minnsta kosti tuttugu og þrír létust þegar fellibylurinn Chanchu gekk yfir suðurhluta Kína í gær. Talið er að tala látinna eigi þó eftir að hækka nokkuð því fjölmargra er saknað, þar á meðal tæplega þrjátíu víetnamskra sjómanna sem voru á veiðum á kínverskum vötnum. 19.5.2006 08:30
Glitnir hækkar vexti af húsnæðislánum Vextir af húsnæðislánum Glitnis hækka upp í 4,9% á mánudag, úr því að vera 4,15% fyrir hálfu örðu ári, þegar bankarnir hófu samkeppni á íbúðalánamarkaði. Hækkunin hefur ekki áhrif á kjör þeirra, sem þegar hafa tekið lán. Vextir af óverðtryggðum lánum verða líka hækkaðir. Í tilkynningu frá Glitni segir að þetta sé gert eftir að Seðlabankinn tilkynnti hækkun stýrivaxta í gær. 19.5.2006 08:15
Skotbardagar í Gaza-borg Skotbardagar brutust út í Gaza-borg í nótt á milli nýskipaðrar öryggissveitar Hamas-samtaka Palestínumanna og lögreglumanna hliðhollir Fatah-hreyfingunni. 19.5.2006 08:07
Forkaupsréttur á jörð Ekki var fallist á forkaupsrétt eins eigenda jarðarinnar Garðs í Aðaldælahreppi að öðrum hlutum hennar samkvæmt dómi Hæstaréttar. Fór maðurinn fram á riftun samninga við aðra kaupendur vegna þessa. 19.5.2006 09:03
Stefnuskrá Sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ kynnt Sjálfstæðismenn í Mosfellsbæ kynntu stefnuskrá sína í dag og mun megináhersla vera lögð á ábyrga fjármálastjórn, börnin í fyrsta sæti og málefni eldri borgara. Þá stefna Sjálfstæðismenn í bænum á að koma á rafrænni upplýsinga- og þjónustuveitu, tryggja fjölbreytt framboð lóða í bæjarfélaginu og byggingu mennngarhúss í miðbæ Mosfellsbæjar. 18.5.2006 23:00
Breytingar geti lækkað matarverð um 20 prósent Samtök verslunar og þjónustu segja að matarverð geti lækkað um hátt í 20 prósent ef breytingar verði gerðar á skatta- og gjaldaumhverfi á matvörumarkaði. Samtökin vilja frjálsan innflutning á landbúnaðarvörum í skrefum en vilja breytingar á vörugjöldum og virðisaukaskatti sem fyrst. 18.5.2006 22:45
Siðanefnd blaðamanna klofnaði Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands klofnaði í fyrsta sinn í 16 ár þegar nefndin úrskurðaði í kæru Steingríms Ólafssonar á hendur DV fyrir umfjöllun blaðsins á morðinu á Jóni Þór Ólafssyni sem fannst myrtur í El Salvador en Steingrímur er bróðir hins látna. Meirihluti siðanefndar komst að þeirri niðurstöðu að brotið hefði verið gegn þriðju grein siðareglnanna. 18.5.2006 22:30
Stúdentaóeirðir í Chile Háskólastúdentar í Chile mótmæltu í dag háum fargjöldum í almenningsfarartæki í höfuðborginni Santiago. Lögregla sprautaði vatni til að dreifa mótmælendunum þegar sló í brýnu milli unga fólksins og lögreglumanna. Stúdentarnir hópuðust þó fljótt saman aftur og veittust aftur að lögreglu. 18.5.2006 22:23
Misjöfn viðbrögð við Da Vinci víða um heim Bækur voru brenndar í Moskvu í dag þegar kvikmyndin um um Da Vinci lykilinn var frumsýnd þar. Biskuparáðstefna kaþólsku kirkjunnar í Indlandi lagðist hins vegar gegn því að myndin yrði bönnuð. 18.5.2006 22:19
Vilja allir hækka laun leikskólakennara Talsmenn flokkanna sem bjóða fram til borgarstjórnakosninga telja allir að hækka beri laun leikskólakennara og efla faglegt starf innan leikskólanna með fjölgun menntaðra leikskólakennara. Þetta kom fram á fundi haldinn var í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. 18.5.2006 22:19
Glitnir hækkar vexti Í framhaldi af vaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands um 0,75 prósentustiga hækkun stýrivaxta sem kynnt var fyrr í dag, hefur Glitnir ákveðið að hækka óverðtryggða vexti sína um 0,60-0,75 prósentustig. Breytingin tekur gildi frá og með 22. maí segir í tilkynningu frá Glitni. 18.5.2006 20:52
Garðabær kaupir vatn frá Kópavogi Bæjarstjórar Garðabæjar og Kópavogs undirrita á morgun samning um að Garðabær kaupi allt að 2 milljónum tonna af vatni á ári til íbúa sinna og fyrirtækja frá Vatnsveitu Kópavogs, frá og með fyrri hluta árs 2007. 18.5.2006 20:17
Syngjandi frambjóðandi Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona og frambjóðandi, er í aðalhlutverki á fjörugum vinnustaðafundum F-listans í Reykjavík, syngur revíur og leiðir fjöldasöng milli þess sem Ólafur F. Magnússon flytur boðskap um bætt kjör aldraðra og flugvallarmál. 18.5.2006 19:00
Bausch & Lomb innkallar linsuvökvann Framleiðendur Renu MoistureLoc, mest selda linsuvökva á Íslandi, og í heiminum öllum, hafa ákveðið að stöðva dreifingu hans og innkalla útistandandi birgðir. Óttast er að hann geti undir ákveðnum kringumstæðum valdið hornhimnubólgu sem aftur getur leitt til blindu. 18.5.2006 19:00
Hrafnshreiður við umferðargötu Hrafnshjón hafa gert sér hreiður aðeins tvo metra frá umferðargötu í helsta athafnahverfi Reykjavíkur. Starfsmenn fyrirtækis í nágrenninu fæða hrafnana daglega. 18.5.2006 18:57
Bílvelta við Garðheima Tveir bílar skullu saman með þeim afleiðingum að annar þeirra valt á Reykjanesbraut á móts við Garðheima nú rétt í þessu, engin slys urðu á fólki en báðir bílarnir eru mikið skemmdir. Talið er að annar bílstjórinn hafi verið í svigakstri, og rakst hann utan í vörubifreið með þeim afleiðingum að hann skall utan í annan bíl sem valt við höggið. 18.5.2006 18:20
Einstæðir karlar vaxandi hópur Fátækt og einangrun er vaxandi vandamál á Íslandi, að mati viðmælenda í nýrri athugun Rauða krossins. Aldraðir, fatlaðir, öryrkjar og einstæðar mæður eru sem fyrr mesti áhættuhópurinn, en einstæðir karlmenn og innflytjendur eru vaxandi hópur og jafnframt þeir sem erfiðast er að hjálpa. 18.5.2006 17:58
Skjótráðir stjórnmálamenn gerðu jafntefli við stórmeistara Sjaldan hafa stjórnmálamenn sést taka ákvarðanir jafnhratt og í húsi Taflfélags Reykjavíkur í dag. Nýtt landslið Íslands í skák skoraði á nokkra borgarfulltrúa og alþingismenn í hraðskák. Að veði var sæti í landsliðinu. 18.5.2006 17:49
Guðrún Kristjánsdóttir hlýtur viðurkenningu úr Pollock-Krasner sjóðnum Nýlega hlaut Guðrún Kristjánsdóttir myndlistarkona, styrk úr Pollock-Krasner sjóðnum, sem er alþjóðlegur listasjóður, stofnaður af Lee Krasner, ekkju Jacksons Pollock, en þau voru bæði heimsþekktir bandarískir listamenn. Sjóðurinn er mikils virtur, valnefnd hans er skipuð viðurkenndu fagfólki innan hins alþjóðlega listgeira og miklar kröfur gerðar til styrkþega. Styrkurinn þykir vera mikil viðurkenning fyrir þá listamenn sem hann hljóta. Guðrún stundaði myndlistarnám í Reykjavík og í Frakklandi og hefur sýnt verk sín víða um heim á undanförnum tveimur áratugum. Á síðasta ári voru tvær einkasýningar á verkum hennar í New York, auk sýningar í Gallerí 100° í húsi Orkuveitunnar í Reykjavík. Framundan hjá Guðrúnu eru ýmis verkefni og sýningar, bæði hér heima og erlendis. 18.5.2006 17:24
FL Group skilar 6.644 milljóna króna hagnaði Hagnaður FL Group samstæðunnar fyrir skatta á fyrsta ársfjórðungi 2006 var 6.644 milljónir króna samanborið við 28 milljóna króna hagnað árið áður. Að teknu tilliti til skatta var hagnaður tímabilsins 5.839 milljónir króna, samanborið við 25 milljónir króna árið áður. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu nam 33,8%. 18.5.2006 17:13
Lífeyrissjóðirnir sem sveiflujöfnun Lífeyrissjóðirnir geta verið nokkurs konar varagjaldeyrissjóður vegna fjárfestinga sinna erlendis segir Seðlabankastjóri. Hann telur að lífeyrissjóðirnir geti dregið úr gengissveiflum vegna þess hvernig þeir stýra fjárfestingum sínum erlendis. 18.5.2006 17:08
Rændi lyfjum í apóteki vopnaður exi Lögreglan í Kópavogi leitar manns sem ruddist inn í apótek Lyfs og heilsu við Smiðjuveg á ellefta tímanum í morgun og rændi þaðan lyfjum. Maðurinn kom inn í verslunina vopnaður exi og heimtaði lyf af starfsfólki sem hann fékk. 18.5.2006 17:05
Bankarnir verða að efna loforðin Bankarnir verða að standa við loforð sín um að draga úr útlánum segir Davíð Oddsson Seðlabankastjóri. Hann segir jafnframt að enn hafi ekkert komið fram sem sýni fram á að fasteignamarkaðurinn sé að kólna. 18.5.2006 17:03
Tveggja ára dómur fyrir fíkniefnabrot Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í tveggja ára fangelsi fyrir að eiga og ætla að selja umtalsvert magn af fíkniefnum. Fíkniefnin fundust við leit á veitingastað í eigu mannsins en um var að ræða amfetamín í ýmsu formi. 18.5.2006 16:52
Fyrsta skóflustungan tekin að byggingu knattspyrnuhúss við Vallarkór Á morgun föstudag mun Kópavogsbær og Ístak h.f. undirrita samning um byggingu fullkomins knattspyrnuhúss við Vallarkór í Kópavogi. Um leið verður tekin fyrsta skóflustunga að húsinu en þar með er hafin bygging heilsu-, Íþrótta- og fræðaseturs í Kópavogi í samræmi við samning Kópavogsbæjar og Íþróttaakademíu Íslands sem undirritaður var í nóvember s.l. 18.5.2006 16:42
Menntaskemmtigarður í Laugardalnum Í dag var undirritaður samningum um þróun Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Reykjavíkurborg hefur breytt deiliskipulagi Laugardalsins og eru framtíðarplönin sú að standa fyrir uppbyggingu á svæðinu sem miðar að því að byggja upp svæði sem verði einskonar "menntaskemmtigarður" 18.5.2006 15:57
Rafmagn komið á í Grafarvogi Rafmagn er komið á þann hluta Grafavogs, sem varð rafmagnslaus um kl. 15:00 í dag. Bilun varð í háspennustreng á framkvæmdasvæði við Vesturlandsveg. 18.5.2006 15:52
Ókeypis á Þjóðminjasafnið 20.- 31. maí Aðgangur að Þjóðminjasafni Íslands verður ókeypis dagana 20.-31. maí í tilefni af því að safnið fékk sérstaka viðurkenningu í samkeppi Evrópuráðs safna fyrir skömmu. 18.5.2006 15:32
Hluti af Grafarvogi rafmagnslaus Fyrir nokkrum mínútum varð háspennubilun í Grafarvogi með þeim afleiðingum að stór hluti hverfisins er án rafmagns. Leit er hafin að biluninni og viðgerð hefst eins fljótt og auðið er. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur 18.5.2006 15:28