Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skora á stjórnvöld að stofna til íslenskrar alþjóðlegrar skipaskrár Aðalfundur Vélstjórafélags Íslands skorar á íslensk stjórnvöld að stofna hið fyrsta til íslenskrar alþjóðlegrar skipaskrár með tilheyrandi hliðarráðstöfunum. Ísland er eina landið innan Evrópu sem ekkert hefur gert til þess að tryggja að héðan séu gerð út kaupskip með íslenskum áhöfnum þrátt fyrir þá staðreynd íslensk þjóð á allt sitt undir öflugum siglingum að og frá landinu. Áframhaldandi aðgerðarleysi stjórnvalda í þessu máli mun hafa þær afleiðingar að innan fárra ára mun áratuga þekking og reynsla farmanna heyra sögunni til. 6.1.2006 09:30
Mikið fannfergi í Japan Tvær aldraðar konur létust í Japan þegar hús þeirra gaf sig undan snjóþunga í borginni Hakusan, 300 kílómetra norðvestur af Tókýó. Eiginmaður annarrrar konunnar slapp lítið meiddur frá slysinu. Gríðarlega ofankoma hefur verið í Hakusan að undanförnu og var um eins og hálfs metra jafnfallinn snjór í borginni í morgun. 6.1.2006 09:15
Umboðsmaður ver ákvörðun dóms- og kirkjumálaráðherra Umboðsmaður alþingis hefur svarað kvörtun lögreglumanns sem kvartaði yfir ákvörðun dóms- og kirkjumálaráðherra um skipun yfirlögregluþjóns við embætti sýslumannsins á Seyðisfirði. Í kvörtuninni var því haldið fram að ákvörðun ráðherra hefði farið gegn bæði jafnræðisreglu stjórnarskrár og rannsóknarreglu stjórnsýslulaga auk þess sem því var haldið fram að rökstuðningur ráðherra hefði ekki verið í samræmi við efni stjórnsýslulaga. 6.1.2006 09:15
Auka umsvif í flugrekstri á norðurslóðum Íslenskir fjárfestar hafa enn aukið umsvif sín í flugrekstri á norðurslóðum eftir að KB banki eignaðist rúm sex prósent í finnska flugfélaginu Finnair í fyrradag. 6.1.2006 09:00
Féll af bifhjóli og viðbeinsbrotnaði Ökumaður bifhjóls viðbeinsbrotnaði og hlaut fleiri meiðsl þegar hann féll af hjóli sínu á mótum Glerárgötu og Þórunnarstrætis á Akureyri í gærkvöldi. Slysið var með þeim hætti að hann óttaðist að ökumaður bíls, sem kom á móti, ætlaði að beygja þvert fyrir hann. Hann nauð hemlaði því hjólinu en við það féll hann í götuna. 6.1.2006 08:45
Námuverkamaður settur í súrefnismeðferð Eini verkamaðurinn sem lifði af þegar sprenging varð í kolanámu í Vestur-Virginíu fyrr í vikunni hefur verið fluttur á sjúkrahús í Pittsburgh í Pennsylvaníu til súrefnismeðferðar. Læknar segja ástand Randals McCloy yngri enn alvarlegt en hann er í dái og hugsanlegt er að hann hafi hlotið heilaskaða. 6.1.2006 08:30
Fjögur fíkniefnamál í Hafnarfirði og Kópavogi Fjögur fíkniefnamál komu upp í sameiginlegu átaki lögreglunnar í Hafnarfirði og í Kópavogi í gærkvöldi og í nótt og var lagt hald á hass, anfetamín og kókaín. Fjórir menn voru handteknir í aðgerðunum en sleppt undir morgun að yfirheyrslum loknum. Auk þessa var einn maður handtekinn í Keflavík í nótt með fíkniefni í fórum sínum. 6.1.2006 08:15
Tuttugu látnir eftir að gistihús hrundi í Mekka Að minnsta kosti tuttugu biðu bana og tæplega sextíu eru slasaðir eftir að átta hæða gistihús hrundi til grunna í Mekka í Sádi-Arabíu í gær. Byggingin var nánast tóm þegar slysið varð en margir voru á ferðinni nálægt gistihúsinu og urðu því undir brakinu. Um eitt þúsund björgunarsveitarmenn leita nú að fólki í rústum byggingarinnar. 6.1.2006 08:00
Breska þingið endurskoðar eiturlyfjaflokkun kannabisefna Breska ríkisstjórnin hefur ákveðið að endurskoða flokkun á kannabis. Kannabis hefur var lengst af flokkað í B flokki en var ekki hvað síst fyrir þrýsting frá lögreglunni, sett í C flokk fyrir nokkrum árum. Fari kannabis aftur í B flokk þýðir það þyngri viðurlög við neyslu og sölu þess. Breytingunni var ætlað að beina kröftum og eftirliti lögreglunnar að harðari eiturlyfjum eins og heróíni og krakki. Heimavarnarráðherra Bretlands, Charles Clark, hefur skipað endurskoðun á þessari ákvörðun þar sem nýjar rannsóknir sýna að kannbis hafi mun meiri áhrif á geðheilsu neytenda en áður hefur verið talið. 6.1.2006 07:53
Ítölskum gíslum sleppt í Jemen Fimm ítölskum ferðamönnum sem rænt var í Jemen á nýársdag var sleppt í morgun, eftir því sem yfirvöld í Jemen greina frá. Það voru menn af tilteknum ættbálki í landinu sem rændu fólkinu en þeir kröfðust þess að ættingjum sínum yrði sleppt úr fangelsi. 6.1.2006 07:47
Fundu loðnu út af Héraðsflóa Skipverjar á hafrannsóknaskipinu Árna Friðirkssyni fundu loðnu út af Héraðsflóa í nótt en langt er síðan nokkur loðna hefur fundist hér við land. Að sögn Sveins Sveinbjörnssonar leiðangursstjóra,virðist þetta þó vera lítil torfa og hin loðnuskipin fimm, sem taka þátt í skipulegri leit, hafa ekkert fundið eftir því sem best er vitað. 6.1.2006 07:45
Framboðslisti Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningar samþykktur Vinstri grænir í Reykjavík samþykktu framboðslista fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor á félagsfundi sem haldinn var nú í kvöld. Í efsti sex sæti er raðað samkvæmt úrslitum prófkjörs sem haldið var í haust, fyrir utan fimmta sætið sem féll í skaut Gríms Atlasonar í prófkjörinu en hann kaus að taka ekki sætið. Efstu sæti listans eru því þannig skipuð að Svandís Svavarsdóttir leiðir listann, í öðru sæti Árni Þór Sigurðsson, þriðja sæti Þorleifur Gunnlaugsson, í því fjórða Sóley Tómasdóttir, Hermann Valsson í fimmta og Ugla Egilsdóttir í sjötta. 6.1.2006 07:30
Sharon enn haldið sofandi í öndunarvél Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, er enn haldið sofandi í öndunarvél eftir heilablóðfallið sem hann fékk í fyrradag. Sharon gekkst undir sjö tíma langa aðgerð vegna heilablæðingarinnar í fyrrinótt og segja læknar við Hadassah-sjúkrahúsið í Jerúsalem, þar sem forsætisráðherrann dvelur, að honum verði haldið sofandi næstu tvo sólarhringana. 6.1.2006 07:19
Sterling sakað um brot á dönskum samkeppnislögum Dönsk samkeppnisyfirvöld segja Lággjaldaflugfélagið Sterling, sem er í eigu Íslendinga, brjóta lög. Sterling innheimtir of há gjöld af flugmiðum sem keyptir eru með greiðslukortum. Kaupi viðskiptavinur flugmiða á tvö-hundruð og sextíu danskrar krónur getur hann þurft að borga þrjátíu krónur í kostnað sé borgað með ákveðnum kreditkortum eins og Diners Club eða American Express og tíu krónur borgi hann með Master Card eða Visa. Svo há gjöld innheimta kreditkortafyrirtækin ekki og Sterling tekur mismuninn og það segja dönsk samkeppnisyfirvöld vera ólöglegt. 6.1.2006 06:36
Ein glæsilegasta íshátíð í heimi Í yfir tvo áratugi hefur kínverska borgin Harbin boðið gestum og gangandi upp á eina glæsilegustu íshátíð í heimi. Þúsundir manna söfnuðust saman þegar hátíðin var sett í dag í tuttugasta og annað sinn, en þar er að finna einstaklega fallegar byggingar gerðar úr ís. 5.1.2006 22:39
Gengið frá lista VG fyrir borgarstjórnarkosningar Hermann Valsson íþróttakennari skipar 5.sætið á lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs til borgarstjórnarkosninga í vor. Svandís Svavarsdóttir framkvæmdastjóri leiðir listann. Tillaga uppstillingarnefndar um skipan á lista VG fyrir kosningarnar í vor var samþykkt á almennum félagsfundi nú í kvöld. 5.1.2006 22:29
Árni segir göng kosta sextán milljarða Áætlun tveggja norskra sérfræðinga gerir ráð fyrir að göng á milli lands og Eyja kosti um sextán milljarða króna. Árni Johnsen og félagar hans í hópi sem stóð að úttekt á gangagerð kynntu niðurstöður hennar á fundi í dag. 5.1.2006 22:21
Tónleikar gegn stóriðjuframkvæmdum Heimsþekktir tónlistarmenn, íslenskir og erlendir, koma fram til styrktar íslenskri náttúru í Laugardalshöllinni á laugardagskvöldið. Með tónleikunum sem bera yfirskriftina "Er þjóðin að verða náttúrulaus?" vill hópurinn og listamennirnir sem þar koma fram vekja athygli á einstakri innanlands sem utan á náttúru Íslands og þeirri hættu sem að henni steðjar vegna stóriðjuframkvæmda. 5.1.2006 22:20
Takmarkaðir vöruflutningar víða um land vegna hláku Vöruflutningar um helstu samgönguleiðir landsins, þar á meðal á milli Reykjavíkur og Akureyrar, hafa verið takmarkaðir vegna aurbleytu og hættu á slitlagsskemmdum. Hver trukkur verður að skerða farm sinn um allt að fimm tonn í hverri ferð. 5.1.2006 22:17
Rúmlega helmingur Íslendinga trúir því að eitthvað taki við eftir dauðann Rúmlega helmingur Íslendinga trúir því að eitthvað taki við eftir dauðann án þess að geta útskýrt það frekar. Þetta kemur fram í könnun sem unnin var af IMG gallup fyrir Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma í febrúar og mars árið 2004. Alls töldu 458 aðspurðra í könnuninni eða 55,9%, að eitthvað taki við eftir dauðanna en enginn geti vitað hvað það sé. 5.1.2006 21:42
Brot á leikreglum segir bæjarfulltrúi Það á að umbuna starfsmönnum Seltjarnarnesbæjar með einhverju öðru en gjafakorti í Kringlunni. Þetta segir oddviti minnihlutans í bæjarstjórn en bæjarstjóri hefur upp á sitt einsdæmi gefið vilyrði fyrir því að allir starfsmenn Seltjarnarnesbæjar, 300 að tölu, fái gjafakort að upphæð tuttugu þúsund krónur. Brot á leikreglum, segir fulltrúi minnihlutans. 5.1.2006 21:29
Starfslokasamningar þurfa ekki að vera einkamál fyrirtækja Starfslokasamningar þurfa ekki að vera einkamál fyrirtækja sem slíka samninga gera eða æðstu stjórnenda þeirra, segir viðskiptasiðfræðingur við Háskólann í Reykjavík. Hann segir að almenningur geti gert kröfu um að fyrirtæki sem skipta miklu máli í samfélaginu borgi starfsmönnum sínum laun í takt við hefðir og venjur í samfélaginu en snúi ella baki við fyrirækinu. 5.1.2006 21:26
Bifhjólamaður slasaðist nokkuð þegar hann féll í götuna Bifhjólamaður slasaðist nokkuð þegar hann reyndi að koma í veg fyrir árekstur við bíl innanbæjar á Akureyri um sexleitið. Slysið varð með þeim hætti að tvö bifhjól komu akandi eftir Glerárgötu og mætti bíl sem var að koma úr gagnstæðri átt. Ökumaður fyrra bifhjólsins hélt að ökumaður bílsins ætlaði að beygja í veg fyrir hjólið og inn Þórunnarstræti svo hann hemlaði á hjólinu og féll í götuna. 5.1.2006 21:20
Laun kvenna lægri í öllum atvinnugreinum Árslaun karla eru hærri en árslaun kvenna í öllum þeim atvinnugreinum sem athugaðar voru í launasamanburði sem gerður var í tæplega 30 Evrópulöndum. Þær atvinnugreinar sem skoðaðar voru eru iðnaður, byggingastarfsemi og mannvirkjagerð og verslunar- og viðgerðarþjónusta. 5.1.2006 21:08
Matvælaverð myndi lækka ef Ísland gengi í ESB Matvælaverð á Íslandi myndi lækka ef gengið yrði í Evrópusambandið. Eins væri hægt að lækka matvöruverð með því að afnema tolla og fjarlægja viðskiptahöft af innfluttum matvælum. Þetta segir aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík. 5.1.2006 20:51
Námuverkamaðurinn sem bjargaðist liggur enn í dái Eini námuverkamaðurinn sem bjargaðist eftir að hafa lokast inn í Sago kolanámunni í Virginíu fylki fyrr í vikunni, liggur enn í dái. Læknar óttast að maðurinn hafi hlotið heilaskaða vegna slyssins. Alls fórust 12 námuverkamenn þegar sprenging varð í námunni. 5.1.2006 20:00
Al-Qaida hóta fleiri árásum þar til samtökin hafa náð völdum í Írak Á annað hundrað manns hefur látið lífið í tveimur sprengjuárásum í Írak í dag. Ekkert lát virðist vera á árásum í landinu en al-Qaida samtökin hafa sagt að þeim verði ekki hætt fyrr en Bandaríkjamenn verði á bak og burt og þau hafi náð völdum í landinu. 5.1.2006 19:46
Ný lyfta bíður Jólin hafa ekki verið mjallahvít og óvenjuleg hlýindi um land allt í upphafi ársins hafa ekki lofað góðu fyrir skíðamenn. Ekkert var skíðafærið í Bláfjöllum snemma í morgun enda rigndi þar eins og hellt væri úr fötu eða þar til allt í einu, eins og hendi væri veifað, að allt fór á bólakaf í jólasnjó. 5.1.2006 19:42
Ekkert saknæmt átti sér stað Krufningu á fólkinu sem fannst látið í húsi við Frakkastíg á milli jóla og nýárs er lokið. Engir áverkar fundust og er ekkert saknæmt því talið hafa átt sér stað. 5.1.2006 19:40
Svarstýnir á bata Læknar Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, eru svartsýnir á að hann nái bata eftir heilablóðfallið sem hann fékk í gærkvöldi. Talsmaður Hamas-samtakanna segir gott að losna við Sharon, einn versta og grimmasta leiðtoga heimsins. Ehud Olmert, aðstoðarforsætisráðherra landsins, hefur tekið við völdum. 5.1.2006 19:34
Staðsetning álvers á Norðurlandi skýrist 1. mars Ákvörðun um hvar álver verður staðsett á Norðurlandi verður tekin fyrir 1. mars næstkomandi. Samtímis þarf Alcoa að svara því hvort það vilji taka að sér framkvæmdina eða gefa verkefnið frá sér. 5.1.2006 19:33
Heilbrigðismálaráðherra gerir gjöfum sínum skil Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur, fyrstur allra ráðamanna, svarað fyrirspurn sem Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, sendu æðstu ráðamönnum þjóðarinnar 8. desember. Ráðherran tók við þremur gjöfum á árinu. 5.1.2006 19:19
Meirihlutinn í Kópavogi boðar til funda til að finna lausn á vandamálum leiksskólanna Bæjarfulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Kópavogi hafa ákveðið að bjóða fulltrúum starfsmanna á leikskólum, formönnum foreldrafélaga og fulltrúum leiksskólakennara í Leiksskólum Kópavogs til viðræðna um ástandið í leiksskólum bæjarins. Ráðgert er að funda með með fulltrúum hvers hóps fyrir sig á morgun og á mánudag. Þetta kemur fram í tilkynningu meirihlutans í Kópavogi. 5.1.2006 18:29
Óánægja um ráðningu framkvæmdarstjóra Heilbrigðisstofnunar Bolungarvíkur Magnús Ólafs Hansson hefur verið skipaður framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Bolungarvíkur til eins árs í stað Ólafs Kristjánssonar. Tveir bæjarfulltrúar í Bolungarvík, Soffía Vagnsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, og Ragna Jóhanna Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, lýstu yfir undrun sinni á því að staðan hafi ekki verið auglýst opinberlega. 5.1.2006 18:18
40% utan nýbyggingarsvæða 40% nýbyggðra íbúða í Reykjavík eru á þéttingarsvæðum. Af 5.150 íbúðum, sem fullgerðar voru í Reykjavík á árunum 1996-2004, voru 2.025 á þéttingarsvæðum, það er að segja utan nýbyggingarsvæðanna austast í borginni. 5.1.2006 18:09
Enn mikið vatn á hringveginum við Jökulsá í lóni Enn rennur talsvert mikið vatn yfir hringveginn vestan vð Jökulsá í Lóni á Suðausturlandi. Vegfarendur eru beðnir að aka með gát um þessa leið. Hálka er á Hellisheiði og Þrengslum og þá eru einnig hálkublettir á Suðurlandi. Á Vesturlandi er hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði. 5.1.2006 18:05
Boða til opins fundar vegna stöðu leikskólamála Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Kópavogi óskuðu eftir því að bæjarstjórnarflokkar í Kópavogi byðu foreldrum og starfsmönnum leikskóla til fundar þar sem farið yrði yfir stöðu leikskólamála. Forystumenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Kópavogu lýstu því yfir í dag að ekki væri vilji hjá þeim til að taka þátt í slíkum fundi að sögn bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar. 5.1.2006 17:58
Fjármálaráðherra Noregs hvetur norska neytendur til að sniðganga vörur frá Ísrael Fjármálaráðherra Noregs, Kristin Halvorsen, hefur hvatt norska neytendur til að sniðganga vörur frá Ísrael. Hún segir að með því geti fólk tjáð óánægju sína með meðferð Ísraela á Palestínumönnum. Flokkur hennar, Sósíalistik venstreparti, fer af stað með herferð til stuðnings Palestínumönnum í næsta mánuði og herferðin fær fullan stuðning fjármálaráðherra. 5.1.2006 17:48
Laun á Íslandi há samanborið við önnur Evrópulönd Árslaun á Íslandi eru há samanborið við önnur Evrópulönd. Þetta kemur fram í alþjóðlegum samanburði á launum sem gerður var undir forystu Evrópsku hagstofunnar. Þegar tillit er tekið til verðlags færist Ísland hins vegar nokkuð neðar á listann. 5.1.2006 17:45
Eldur kom upp í bíl á bensínstöð Eldur kom upp í bíl á bensínstöð Shell á Höfða í dag. Slökkvilið Reykjavíkur var kallað út en engin hætta var á ferð þar sem um lítill eld var að ræða. Engin hætta skapaðist því vegna eldsins sem greiðlega gekk að slökkva. 5.1.2006 17:26
Lífeyrissjóður Norðurlands og Lífeyrissjóður Austurlands hyggja á sameiningu Stjórnir Lífeyrissjóðs Norðurlands og lífeyrissjóðs Austurlands hafa undirritað viljayfirlýsingu um að athuga möguelika á sameiningu sjóðanna. Markmið sameiningarinnar er að auka hagkvæmni í rekstri, bæta áhættudreyfingu og ávöxtun eigna og hámarka með þeim hætti lífeyrisréttindi sem sameinaður sjóður getur veitt sjóðsfélögum sínum. 5.1.2006 17:13
Grunaður stríðsglæpamaður handtekinn í Bosníu-Herzegovínu Dragomir Abazovic, sem grunaður er um stríðsglæpi í Bosníustríðinu, var handtekinn í gær á heimili sínu í Rogatica í Bosníu-Herzegovínu. Friðargæsluliðar Evrópusambandsins réðust til atlögu á heimili hans og særðu hann, eiginkonu hans og son þeirra. Eiginkona hans lést og bæði Abazovic og sonur hans eru særðir. 5.1.2006 17:07
Enginn slasaðist þegar vörubíll valt í Hveradalabrekku Vörubíll valt á hliðina í Hveradalabrekku í nágrenni skíðaskálans í Hveradölum á öðrum tímanum í dag. Engin slys urðu á fólki en loka þurfti tveimur akreinum til austurs um tíma vegna slyssins og kalla þurfti til kranabíl til að koma vörubílnum á hjólin á ný. 5.1.2006 16:34
Þrjú menningarverkefni tilnefnd til Eyrarrósinnar Þrjú menningarverklefni á landsbyggðinni eru í ár tilnefnd til Eyrarrósarinnar en það eru Jöklasýningin á Höfn í Hornafirði, Kórastefna við Mývatn og LungA - listahátíð ungs fólks, Austurlandi. Þetta er í annað sinn sem Eyrarrósin verður afhent, en verðlaunin verða afhent á Bessastöðum 13. janúar næstkomandi. Verkefnin þrjú voru tilnefnd úr hópi fjölmargra umsækjenda. 5.1.2006 16:22
Umboðsmaður alþingis gerir ekki athugasemdir Umboðsmaður alþingis gerir ekki athugasemdir við skipun yfirlögregluþjóns við embætti sýslumanns á Seyðisfirði í svari sínu við kvörtun lögreglumanns sem lagði inn kvörtun yfir ákvörðun dóms- og kirkjumálaráðherra um skipum yfrirlögregluþjóns við embættið. 5.1.2006 16:14