Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs staðfestar Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur staðfest lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs á langtímaskuldbindingum í erlendri mynt AA- og AA+ fyrir langtímaskuldbindingar í íslenskum krónum. Um leið hefur fyrirtækið staðfest lánshæfiseinkunnina A-1+ fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum og segir að horfur um lánshæfismat séu stöðugar. 31.10.2005 17:03
Segja Bandaríkjaher hafa drepið 40 óbreytta borgara Írakskir læknar segja fjörutíu óbreytta borgara hafa fallið undanfarinn sólarhring í loftárásum Bandaríkjahers í vesturhluta Íraks, nærri landamærum Sýrlands. Bandaríkjamenn verjast fregnum af málinu. 31.10.2005 17:00
Talsvert um smölun Þó nokkur smölun í Sjálfstæðisflokkinn hefur þegar átt sér stað vegna prófkjörs flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Þá hafa um 250 manns þegar greitt atkvæði utan kjörstaðar. 31.10.2005 16:40
Ályktað um að Sýrlendingar sýni fulla samvinnu Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna samþykkti í dag einróma ályktun um að Sýrlendingum bæri að sína fulla samvinnu vegna rannsóknar á morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. 31.10.2005 16:37
Þörf á blóðgjöfum þar sem þjóðin eldist Þörf er á fleiri blóðgjöfum hér á landi þar sem íslenska þjóðin er að eldast. Með hækkandi meðalaldri þurfa fleiri á blóði að halda á meðan þeim fækkar hlutfallslega sem staðið geta undir blóðgjöfum. Þetta segir Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir hjá Blóðbankanum sem ætlar ásamt Og Vodafone að standa að auglýsingaherferð þar sem fjölga á blóðgjöfum og vekja fólk til umhugsunar um þessa áskorun framtíðarinnar. 31.10.2005 16:00
Búið að opna þjóðveginn Búið er að opna þjóðveg eitt milli Laugarbakka og Víðihlíðar. Búið er að losa meirihluta þeirra bíla sem fastir voru á veginum milli Laugarbakka og Víðihlíðar enn eru þó nokkrir bílar fastir en Ragnar Árnason, verkstjóri hjá Vegagerðinni, segir mikla hríð á svæðinu. 31.10.2005 15:34
Kirkjusókn jókst um 28% milli ára Kirkjusókn í Reykjavíkurprófastsdæmunum tveimur, vestra og eystra, jókst um tuttugu og átta prósent fyrstu vikuna í október miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í tölum frá Reykjavíkurprófastdæmi eystra. Heildarfjöldi kirkjugesta þessa viku í ár nam rúmum tuttugu og fimm þúsundum. 31.10.2005 15:00
Yfir 60 látnir eftir sprengjuárásina Nú er ljóst að yfir 60 manns létust og meira en 200 eru særðir eftir röð sprenginga í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, á laugardaginn. Allar sprengjurnar sprungu á vinsælum markaðstorgum en samtökin Lashkar-e-Tayyaba hafa lýst verknaðinum á hendur sér. 31.10.2005 14:37
Bush tilnefndi Alito sem hæstaréttardómara George Bush, forseti Bandaríkjanna, tilnefndi fyrir stundu nýjan hæstarréttadómara. Það er alríkisdómarinn og íhaldsmaðurinn Samuel Alito sem varð fyrir valinu en hann var talinn líklegastur ásamt öðrum til. 31.10.2005 13:27
Kona greinist með fuglaflensu í Tælandi Tælensk heilbrigðisyfirvöld greindu frá því í dag að 50 ára gömul tælensk kona hefði greinst með fuglaflensu. Hún er tuttugasti einstaklingurinn sem greinist með fuglaflensu í Tælandi, frá því að fuglaflensan kom upp þar fyrir tveimur árum. 31.10.2005 13:24
Selur bítur nef af konu Selur beit nefið af konu í dag við strendur Suður-Afríku þegar hún var að reyna að hjálpa honum aftur út í sjóinn. Selurinn hafði legið á sama stað síðan fyrir helgi en konan reyndi ásamt fleira fólki að koma selnum aftur út í sjóinn. 31.10.2005 13:21
Ekki trygging fyrir því að dragi úr heimilisofbeldi Nýjar verklagsreglur um meðferð og skráningu heimilisofbeldismála tóku gildi í síðustu viku. Það eitt og sér er þó engin trygging fyrir því að dragi úr heimilisofbeldi að sögn framkvæmdastýru Kvennaathvarfs. 31.10.2005 12:48
Bankarnir greiða 5 milljarða í opinber gjöld Fyrirtæki í Reykjavík borga tæplega 35 milljarða króna í opinber gjöld á þessu ári. Bankarnir tróna á toppnum með samanlagt um fimm milljarða króna. 31.10.2005 12:29
25 látnir og 70 þúsund flúnir Að minnsta kosti tuttugu og fimm hafa látist í flóðum og aurskriðum í Víetnam undanfarna daga eftir að fellibylur gekk yfir landið. Tæplega sjötíu þúsund manns hafa flúið heimili sín vegna hamfaranna. 31.10.2005 12:17
Ríkisstjórn mynduð í Póllandi Búið er að mynda nýja ríkisstjórn í Póllandi. Það er minnihlutastjórn flokksins Laga og réttar sem fékk flest atkvæði í þingkosningum í september. 31.10.2005 12:12
Ekki fuglaflensa á Chios Talsmenn Evrópuráðsins greindu frá því í morgun að grunur um fuglaflensu á grísku eyjunni Chios hafi ekki átt við rök að styðjast. 31.10.2005 11:57
Actavis greiddi hæstan skatt Lyfjafyrirtækið Actavis greiddi langhæstan skatt lögaðila í Reykjanesumdæmi í fyrra. 31.10.2005 10:54
Sjö létust í troðningi í Mekka Sjö létust í troðningi og um fjörutíu til viðbótar særðust þegar ringulreið myndaðist við úthlutun ölmusu í hinni helgu borg Mekka í Sádí-Arabíu á laugardag. Mekka er helgasti staður múslíma og var laugardagurinn síðasti dagur Ramadan, föstumánaðar og helgustu hátíðar múslíma og þess tímabils þar sem ölumusugjafir þykja hvað göfugastar. 31.10.2005 10:46
Grunuð um að hafa reynt að drekkja dóttur sinni Norsk kona er grunuð um að vera völd að dauða fimm ára gamallar dóttur sinnar sem lést um helgina, eftir að hafa legið milli heims og helju í viku. 31.10.2005 10:43
Örninn er allur Örninn sem var fangaður í Súðarvíkurhlíð síðastliðinn föstudag var aflífaður í gær. Örninn var illa vængbrotinn svo ekki þótti annað hægt en að aflífa hann. 31.10.2005 10:32
Þjóðarflokkurinn vill banna höfuðklúta í skólum Næstum annar hver Dani er þeirrar skoðunnar að banna eigi stúlkum sem eru múslimatrúar að klæðast höfuðklútum í grunnskólum. Þjóðarflokkurinn er eini stjórnmálaflokkurinn sem vill lögleiða bann og þá að franskri fyrirmynd. 31.10.2005 10:17
Hættir tilraunum til að opna þjóðveginn Veður hefur versnað á ný í Húnavatnssýslum og eru vegagerðarmenn hættir tilraunum sínum til að opna þjóðveg eitt á norðurleiðinni á milli Laugabakka og Víðihlíðar. Langflestir þeirra rúmlega hundrað, sem björgunarsveitarmenn björguðu úr föstum bílum í gærkvöldi og nótt, eru enn strandaglópar í þéttbýliskjörnum á leiðinni. 31.10.2005 10:11
Stórhuga hjá Sterling Stefan Vilner, framkvæmdastjóri Sterling-flugfélagsins í Danmörku, segist fullviss um að innan tíu ára munu að minnsta kosti helmingur Dana nýta sér þjónustu lággjaldaflugfélaga fremur en annarra. Greinilegt er að innan Sterling eru menn stórhuga því í síðustu viku lýsti Hannes Smárason, forstjóri FL Group sem nú á Sterling, því yfir að þar á bæ hyggðust menn fjórfalda verðmæti félagsins á einu ári. 31.10.2005 09:52
Skeljungur og Essó lækkuðu verð um helgina Olíufélögin Skeljungur og Essó lækkuðu bensínverð um helgina og er lítrinn á sjálfsafgreiðslustöðvum hjá báðum félögum kominn niður undir 109 krónur. Samkvæmt heimasíðu Olís í morgun hafði engin lækkun orðið þar. 31.10.2005 09:38
23 teknir fyrir ölvunarakstur Tuttugu og þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur um helgina, þar af tólf í fyrrinótt. Þetta er óvenju mikið að sögn lögreglu og kann hún ekki skýringu á þessu. 31.10.2005 09:23
Erfingi fæddur í spænsku konungsfjölskyldunni Krónprins og krónprinsessa Spánar eignuðust sitt fyrsta barn í nótt, stúlku, þremur vikum fyrr en áætlað var. Sú staðreynd að hinn nýfæddi erfingi sé stúlka vekur upp pólitískar deilur sem áður hafa blossað upp á Spáni þar sem lög um erfingja krúnunnar kveða á um að drengir hafi forgang fram yfir stúlkur. 31.10.2005 09:16
Aðeins 39% Bandaríkjamanna ánægð með störf Bush Aðeins 39% Bandaríkjamanna eru ánægð með störf og frammistöðu George Bush, forseta landsins. Þetta kemur fram í nýrri vinsældakönnun. 58% aðspurðra lýstu sig óánægð með forsetann og störf hans og enn fleiri voru almennt óánægðir með hann sem leiðtoga. 31.10.2005 08:45
8000 manns flúðu Betu Yfir átta þúsund manns flúðu heimili sín í Hondúras í gær vegna fellibylsins Betu sem reið þar yfir með mikilli úrkomu og roki. Fellibylurinn mælist nú sem fellibylur af annarri gráðu á kvarða Saffír-Simpson um stærð fellibylja. 31.10.2005 08:33
Skólar lokaðir vegna ófærðar Grunnskólarnir á Hvammstanga og Laugabakka og leikskólinn á Hvammstanga verða lokaðir í dag vegna veðurs og ófærðar. 31.10.2005 08:22
Konan komin í leitirnar Kona sem lögreglan í Reykjavík lýsti eftir í fjölmiðlum í gærkvöldi kom í leitirnar skömmu síðar, heil á húfi. 31.10.2005 08:12
Varð vélarvana undan ströndum Grindavíkur Vélarbilun varð í 180 tonna togbáti þegar hann var staddur u.þ.b. sex sjómílur út af Grindavík í gærkvöld með nokkurra manna áhöfn. Skipstjórinn óskaði eftir aðstoð og var björgunarskipið Oddur V. Gíslason sent til móts við bátinn. 31.10.2005 08:01
Berlusconi styður yfirmann leyniþjónustunnar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur gefið út stuðningsyfirlýsingu til handa Nicolo Pollari, yfirmanni ítölsku leyniþjónustunnar, sem er sagður hafa komið fölsuðum skjölum til bandarískra stjórnvalda. 31.10.2005 07:55
Eiturlyfjabarón handtekinn í Kólumbíu Kólumbíska lögreglan hefur handtekið John Eildelber Cano sem talinn er vera einn af æðstu mönnum stærsta eiturlyfjasmyglshrings landsins. Hringurinn, sem kallast Norte del Valle, er talinn standa að baki helmings þess magns eiturlyfja sem flutt hafa verið frá Kólumbíu til Bandaríkjanna síðastliðin tíu ár. 31.10.2005 07:49
Þrír Svíar létu lífið á Kanaríeyjum Þrír létu lífið og 22 slösuðust, þar af fimm alvarlega, þegar rúta á vegum sænsku ferðaskrifstofunnar Apollo fór út af vegi og valt á Tenerife, einni af Kanaríeyjunum, í gær. Apollo-ferðaskrifstofan hefur nýhafið sölu hér á landi á ferðum til Kanaríeyja. 31.10.2005 07:32
Rúmlega 100 manns í hrakningum Rúmlega hundrað manns í u.þ.b. þrjátíu bílum lentu í hrakningum á þjóðveginum í Vestur-Húnavatnssýslu í gærkvöldi þegar óveður skall þar á eins og hendi væri veifað. Mikil snjókoma fylgdi hvassviðrinu þannig að ekkert skyggni var og fljótlega fór að hlaða í skafla. 31.10.2005 07:21
Blóðbankinn lýsir eftir hetjum Blóðbankinn lýsir eftir hetjum og óskar eftir blóði til að geta brugðist við alvarlegum slysum, náttúruhamförum og þvíumlíku. Um níu þúsund manns gefa blóð hér á landi reglulega en það er um fimm prósent þjóðarinnar. 31.10.2005 14:00
Hundruð minntust Rosu Parks Hundruð manna voru viðstödd minningarathöfn vegna Rosu Parks, sem vakti aðdáun blökkumanna þegar hún neitaði að víkja fyrir hvítum manni í strætisvangi í Alabama árið 1955. Parks lést á dögunum 92 ára að aldri. Var hún talin hafa átt stóran þátt í baráttunni fyrir jafnrétti í Bandaríkjunum. 31.10.2005 06:00
Félagsmálaráðherra lofar úrbótum Aðstandendur geðfatlaðra vonast til að þjóðarátak verði gert til að virkja fólk með geðraskanir. Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, segir að málefni geðfatlaðra verði næsta forgangsverkefni í samfélagshjálp á Íslandi. 30.10.2005 22:15
Fyrst á dagskrá eftir fimmtíu ár? Gísli Marteinn Baldursson segir að byggð í Akurey og Engey komist fyrst á dagskrá eftir hálfa öld. Byggð í eyjunum var í sumar kynnt sem aðalstefnumál Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum. 30.10.2005 22:15
Rauði Krossinn býður heimsóknarþjónustu Þeir sem þarfnast vina geta haft samband við Rauða krossinn sem sér um heimsóknarþjónustu. Í sambandi við fréttaröð Stöðvar 2 um einstæðinga tókum við hús á konu sem á fáa að og fær því heimsókn sem bæði hún og gestur hennar hafa gaman af. 30.10.2005 22:00
Íslendingur slapp naumlega Marín Ásmundsdóttir myndlistarmaður var í 25 metra fjarlægð frá einni af þremur sprengingum sem urðu meira en 60 manns að bana í Nýju-Delí í gær. 30.10.2005 22:00
Sex í haldi í Danmörku Danska lögreglan leggur höfuðáherslu á að finna hver sé forsprakki í hópi manna sem eru grunaðir um að hafa ætlað að fremja hryðjuverk. Sex eru í haldi lögreglunnar vegna rannsóknar málsins. 30.10.2005 21:15
Vill skilyrða sölu Landsvirkjunar Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslynda Flokksins, hyggst á fundi borgarstjórnar á morgun leggja fram tilögu þar sem hann fer fram á að sala Reykjvíkurborgar á tæplega 45% hlut í Landsvirkjun verði skilyrt . 30.10.2005 21:00
Alvöru stjörnustríð í Kaliforníu Stjörnustríð er háð í Kaliforníu þessa dagana. Hollívúddleikararnir Warren Beatty og Arnold Schwarzenegger, sem jafnframt er ríkisstjóri, vega hvor að öðrum opinberlega. Margir telja að Warren Beatty sé að kanna hvort grundvöllur sé fyrir mótframboði á næsta ári. 30.10.2005 21:00
Komin fram heil á húfi Konan sem lögreglan í Reykjavík lýsti eftir í dag, og hafði ekki látið vita af sér síðan um miðjan dag í gær, er komin fram, heil á húfi. Lögreglu barst ábending um hvar konuna væri að finna eftir að lýst var eftir henni í fréttum Stöðvar 2. 30.10.2005 20:06