Fleiri fréttir Flug til suður Grænlands í biðstöðu Flugsamgöngur milli Íslands og suður Grænlands eru í biðstöðu eftir að loftferðasamningur milli landanna rann úr gildi fyrr í haust. Ef ekki nást samningar milli heimastjórnar Grænlendinga og Flugfélags Íslands gæti svo farið að flugsamgöngur milli Íslands og suður Grænlands leggist af um óákveðinn tíma. 27.10.2005 17:49 Suðurflug tekur við rekstri flugstöðvar varnarliðsins Suðurflug, dótturfélag Avion Group, hefur verið valið til að taka við rekstri flugstöðvar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Samningurinn felur í sér daglegan rekstur flugstöðvar varnarliðsins og afgreiðslu á öllum herflugvélum sem um völlinn fara. 27.10.2005 17:43 Óánægja vegna uppsagna Margir þeirra starfsmanna sem hefur verið sagt upp hjá Flögu Medcare, eru svekktir vegna uppsagnanna. Svo virðist sem ákveðin eftirsjá ríki meðal starfsmannanna enda sé starfsmannastefna fyrirtækisins góð. 27.10.2005 17:37 Eru engin takmörk? Sérfræðinga í peningamálum greinir á um hvað íslenska hagkerfið þolir mikla útgáfu erlendra skuldabréfa í íslenskum krónum. Forstöðumaður Hagfræðistofnunnar telur að útgáfan sé komin að þolmörkum hagkerfisins, en sérfræðingur KB banka segir að í raun séu engin takmörk fyrir útgáfunni. 27.10.2005 17:26 Merkel er bjartsýn Angela Merkel, verðandi kanslari Þýskalands, lýsti því yfir í dag að hún væri mjög bjartsýn á að stjórnamyndunaviðræður milli Kristilegra demókrata og Jafnaðarmanna mundu bera árangur. 27.10.2005 17:18 Áreitti nemendur sína Hæstiréttur dæmdi mann í dag í fimm mánaða fangelsi, þar af þrjá skilorðsbundna, fyrir að hafa sent ungum stúlkum fjölmörg klámfengin og kynferðisleg smáskilaboð. 27.10.2005 17:14 Tappa þarf af undirliggjandi verðbólgu 27.10.2005 17:05
Sjá næstu 50 fréttir
Flug til suður Grænlands í biðstöðu Flugsamgöngur milli Íslands og suður Grænlands eru í biðstöðu eftir að loftferðasamningur milli landanna rann úr gildi fyrr í haust. Ef ekki nást samningar milli heimastjórnar Grænlendinga og Flugfélags Íslands gæti svo farið að flugsamgöngur milli Íslands og suður Grænlands leggist af um óákveðinn tíma. 27.10.2005 17:49
Suðurflug tekur við rekstri flugstöðvar varnarliðsins Suðurflug, dótturfélag Avion Group, hefur verið valið til að taka við rekstri flugstöðvar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Samningurinn felur í sér daglegan rekstur flugstöðvar varnarliðsins og afgreiðslu á öllum herflugvélum sem um völlinn fara. 27.10.2005 17:43
Óánægja vegna uppsagna Margir þeirra starfsmanna sem hefur verið sagt upp hjá Flögu Medcare, eru svekktir vegna uppsagnanna. Svo virðist sem ákveðin eftirsjá ríki meðal starfsmannanna enda sé starfsmannastefna fyrirtækisins góð. 27.10.2005 17:37
Eru engin takmörk? Sérfræðinga í peningamálum greinir á um hvað íslenska hagkerfið þolir mikla útgáfu erlendra skuldabréfa í íslenskum krónum. Forstöðumaður Hagfræðistofnunnar telur að útgáfan sé komin að þolmörkum hagkerfisins, en sérfræðingur KB banka segir að í raun séu engin takmörk fyrir útgáfunni. 27.10.2005 17:26
Merkel er bjartsýn Angela Merkel, verðandi kanslari Þýskalands, lýsti því yfir í dag að hún væri mjög bjartsýn á að stjórnamyndunaviðræður milli Kristilegra demókrata og Jafnaðarmanna mundu bera árangur. 27.10.2005 17:18
Áreitti nemendur sína Hæstiréttur dæmdi mann í dag í fimm mánaða fangelsi, þar af þrjá skilorðsbundna, fyrir að hafa sent ungum stúlkum fjölmörg klámfengin og kynferðisleg smáskilaboð. 27.10.2005 17:14
Vilja völlinn í Vatnsmýrinni Margir þeirra sem börðust hvað harðast gegn sameiningu sveitarfélaganna í Eyjafirði, og eru taldir hafa haft mikið að segja um að sameiningu var hafnað, hafa nú skorið upp herör gegn flutningi Reykjavíkurflugvallar. 27.10.2005 16:30
Mjög alvarlegar athugasemdir segir Jóhanna Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir mjög alvarlegar athugasemdir koma fram í úttekt Ríkisendurskoðunar á kaupum ríkisins á sérfræðiþjónustu á undanförnum árum. 27.10.2005 16:18
Vöruflutningabíll valt í Mosfellsbæ Bílstjóri vöruflutningabifreiðar slasaðist þegar bifreið hans valt á hringtorgi á mótum Vesturlandsvegar og Reykjavegar í Mosfellsbæ um hádegisbilið í dag. 27.10.2005 15:39
ASÍ kannar portúgalska starfsmannaleigu Alþýðusambandið kannar starfsemi portúgalskrar starfsmannaleigu sem hefur hátt í eitt hundrað starfsmenn hér á landi. Þá er starfsemi íslensku starfsmannaleiganna Tveir plús einn og 2B til skoðunar. 27.10.2005 14:30
Ole Stavad nýr forseti Norðurlandaráðs Danski þingmaðurinn Ole Stavad verður forseti Norðurlandaráðs á árinu 2006. Hann var einróma kjörinn á Norðurlandaráðsþingi sem lauk nú í Reykjavík klukkan tvö. Hann tekur við að Rannveigu Guðmundsdóttur, þingmanni Samfylkingarinnar, sem gengt hefur embættinu á þessu ári. 27.10.2005 14:15
Hagsmunir ferðaþjónustu miklir vegna Grænlandsflugs Vestnorræna ráðið ræðir nú hvernig koma megi í veg fyrir að flug frá Íslandi til Grænlands leggist af, en samningur við Grænlendinga þar að lútandi rennur út um áramótin. Framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins segir mikla hagsmuni í húfi bæði fyrir grænlenska og íslenska ferðaþjónustu. 27.10.2005 14:00
Safna undirskriftum gegn flutningi flugvallar Íbúar í Dalvíkurbyggð eru byrjaðir með undirskriftasöfnun gegn flutningi Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýri. Áfram, nýstofnuð hagsmunasamtök Dalvíkurbyggðar, standa fyrir undirskriftasöfnuninni og vonast forsvarsmenn hennar til að íbúasamtök og einstaklingar út um allt land taki þátt í söfnuninni með þeim. 27.10.2005 13:54
Vill að ríkisvaldið bregðist við vanda sjávarútvegsfyrirtækja Ef gengi íslensku krónunnar stendur í stað eða hækkar getur það leitt til þess að sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að hætta starfsemi. Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja hefur versnað verulega undanfarna mánuði vegna sterkrar stöðu krónunnar en Björgólfur Jóhannsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, vill að ríkisvaldið bregðist við. 27.10.2005 13:45
Fjöldi barnaverndartilfella tvöfaldast á átta árum Börnum, sem njóta þjónustu barnaverndarkerfisins, líður jafn illa eða jafnvel verr en börnum innan geðheilbrigðiskerfisins. Stúlkum líður verr en drengjum. Fjöldi barna undir eftirliti barnaverndaryfirvalda hefur ríflega tvöfaldast á átta árum. 27.10.2005 13:30
Miers gefur ekki kost á sér sem hæstaréttardómari Harriet Miers er hætt við að gefa kost á sér sem hæstaréttardómari í Bandaríkjunum. Þetta tilkynnti hún rétt í þessu. 27.10.2005 13:18
Þingi Norðurlandaráðs að ljúka Þingi Norðurlandaráðs lýkur nú klukkan tvö eftir hádegið, en í morgun hafa samstarfsráðherrar norrænu ríkjanna meðal annars rætt fjármál, orkumál, nýsköpun og framtíðarskipulag norræns samstarfs. 27.10.2005 13:15
Engin ástæða til að óttast skyndisölu á skuldabréfum Erfitt er að átta sig á því hvaða áhrif skuldabréfaútgáfa erlendra fjárfesta hefur á íslenskt efnahagslíf. Eiríkur Guðnason, seðlabankastjóri, segir að engin ástæða sé til að óttast að fjárfestarnir selji allir bréf sín á sama tíma. Jafn líklegt sé að þeir vilji eiga skuldabréfin áfram eða gefa út ný. 27.10.2005 13:00
Hrærð yfir fjölmenninu Það mátti heyra ekka þegar sveit rauðklæddra björgunarsveitarmanna gekk í íþróttahúsið á Flateyri í gær þar sem þess var minnst að tíu ár eru frá snjóflóðinu sem varð tuttugu manns að bana og lagði stóran hluta þorpsins í rúst. Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir, ein þeirra sem skipulögðu minningarathöfnina, segist hrærð yfir því hversu margir komu. 27.10.2005 12:45
Malarflutningabíll valt í Mosfellsbæ Malarflutningabíll fór út af veginum í Mosfellsbæ og er maður fastur í honum. Lögregla, sjúkrabíll og tækjabíll eru á leiðinni á slysstað en ekki er vitað á þessari stundu hversu mikið maðurinn er slasaður. Þá fauk gámur af bíl í Kollafirði. 27.10.2005 12:30
Þverneita að breyta dauðadómni Yfirvöld í Singapore þverneita að breyta dauðadómi yfir áströlskum fíkniefnasmyglara sem var handtekinn með 400 grömm af heróíni árið 2002. Stjórnvöld í Ástralíu hafa mánuðum saman reynt að fá dóminn mildaðan, en án árangurs. 27.10.2005 12:15
Dæmdur fyrir að stela bílum Rúmlega þrítugur karlmaður var í morgun dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ræna tveimur bílum og keyra þá um götur Reykjavíkur uns lögregla stöðvaði för hans. Maðurinn var jafnframt ökuréttindalaus þegar þetta gerðist. 27.10.2005 12:00
Fjármálaeftirlit Svíþjóðar varar KB banka við Kaupþing banki hefur fengið alvarlega viðvörun frá fjármálaeftirlitinu í Svíþjóð, meðal annars fyrir að hygla fyrirtæki í eigu stjórnarmanna Kaupþings, á kostnað annarra viðskiptavina. 27.10.2005 12:00
Varar við hættu á berklafaraldri Hætta er á að berklafaraldur brjótist út í Norður-Evrópu vegna lyfjaónæmra berkla sem komið hafa upp í héraðinu Arkhangelsk í Norðvestur-Rússlandi. Þetta segir Jan Henrik Fredriksen, fulltrúi noskra Framfaraflokksins, en hann vakti athygli á málinu í umræðum um norðursvæðin á Norðurlandaráðsþinginu sem nú er haldið í Reykjavík. 27.10.2005 11:45
Fjölga þarf rýmum Fjölga verður rýmum á réttargeðdeildinni á Sogni þar sem hún rúmar ekki lengur alla þá sem þyrfti að vista þar segir heilbrigðisráðherra. Hann hefur skipað starfshóp til að huga að uppbyggingu á Sogni. 27.10.2005 11:05
Huginn greiddi hæstu meðallaunin Huginn VE 55 greiddi hæstu meðallaunin árið 2004 en meðallaun í útgerðinni voru 685 þúsund krónur á mánuði. Er það hækkun um ellefu prósent frá árinu á undan. Þetta kemur fram í Fiskifréttum. 27.10.2005 10:45
Ríflega 400 ættleiðingar á árunum 1996-2004 411 ættleiðingar voru hér á landi á tímabilinu 1996 til 2004 eftir því sem fram kemur í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Í 174 tilvikum var um að ræða stjúpættleiðingu en frumættleiðingar voru 237. Frumættleiddir Íslendingar voru 57 en frumættleiðingar frá útlöndum 180. 27.10.2005 10:45
Minnihluti kynnti ráðamönnum hugmyndir sínar Bæjarfulltrúar minnihlutans á Bolungarvík fóru á eigin vegum á fund félagsmálaráðherra og forsætisráðherra til að kynna þeim hugmyndir sínar um gangagerð úr Syðridal í Bolungarvík annað hvort í Vestfjarðagöng eða beint í Tungudal í Skutulsfirði. 27.10.2005 10:15
Fjórir bílar ultu á Reykjanesbraut í morgun Fjórir bílar ultu út af Reykjanesbrautinni á milli Voga og Straums, með skömmu millibili upp úr klukkan sjö í morgun þegar ísing myndaðist óvænt á brautinni. Aðeins einn maður meiddist lítillega og var fluttur á slysadeild Borgarspítalans en mikið eignatjón varð. 27.10.2005 10:15
Óttast að stúlka hafi látist úr fuglaflensu í Kína Grunur leikur á að tólf ára stúlka hafi látist af völdum fuglaflensu í Mið-Kína, en hún bjó í þorpi þar sem fuglaflensa hefur greinst nýlega. Frá þessu er sagt í kínversku dagblaði í dag en heilbrigðisyfirvöld segja að þau hafi ekki fengið neina tilkynningu um að fuglaflensa hafi greinst í mönnum í landinu. 27.10.2005 10:00
Vill reka Írana úr SÞ vegna ummæla Íransforseta Shimon Peres, varaforsætisráðherra Ísraels, hefur farið fram á það að Írönum verði vísað úr Sameinuðu þjóðunum vegna ummæla forseta Írans um að þurrka ætti Ísrael út af landakortinu. Stjórnir verstrænna ríkja stíga nú fram hver af annarri til þess að fordæma orðin. 27.10.2005 10:00
Fimm milljónir enn án rafmagns Fimm milljónir manna eru enn án rafmagns í Flórída eftir fellibylinn Wilmu. Hvarvetna um fylkið hafa myndast mörg hundruð metra biðraðir fyrir utan verslanir og þjónustumiðstöðvar þar sem fólk sækist eftir vatni, mat og öðrum nauðsynjum. 27.10.2005 09:45
Hálka og hálkublettir víða um land Hálkublettir er á Hellisheiði og Þrengslum. Hálka og hálkublettir er á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðvestur- og Norðausturlandi. Á Austfjörðum er hálka, hálkublettir og snjóþekja. 27.10.2005 09:33
Gagnrýna Íransforseta fyrir ummæli um Ísrael Stjórnvöld verstrænna ríkja stíga nú fram hver af öðrum til þess að fordæma orð Mahmouds Ahmadinejads, forseta Írans, sem sagði að þurrka ætti Ísrael út af heimskortinu. Yfirvöld í Bretlandi, Frakklandi, á Spáni og í Kanada hafa öll kallað á sendiherra Írans í löndunum og krafist skýringa á ummælunum. 27.10.2005 09:15
Best í lífshættu Knattspyrnuhetjan George Best liggur milli heims og helju á Cromwell spítalanum í London. Best, sem gerði garðinn frægan með Manchester United á árum áður, þjáist af lifrarsjúkdómi og ástand hans hefur versnað verulega undanfarna daga. 27.10.2005 09:06
Vara við áhöldum úr svörtu nælonefni Sleifar og spaðar úr svörtu nælonefni geta gefið frá sér krabbameins- og ofnæmisvaldandi efni og hafa dönsk heilbrigðisyfirvöld varað við notkun slíkra eldhússáhalda. Í danskri rannsókn á nítján eldhússáhöldum voru tólf áhöld með þessi efni. Áhöld með efninu umrædda hafa verið bönnuð í Svíþjóð frá árinu 2003 en ekki í Danmörku. 27.10.2005 09:00
Samkomulag næst um reykingabann í Bretlandi Frumvarp um bann við reykingum á á opinberum stöðum hefur loks verið lagt fram á breska þinginu eftir að ráðherrar ríkisstjórnarinnar komust að samkomulagi um orðalag þess í gær. Bannið nær ekki til kráa sem bjóða ekki upp á mat eða einkaklúbba en þó verður að vera reyklaust svæði á öllum krám. 27.10.2005 09:00
Huga að uppbyggingu á Sogni Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur skipað starfshóp sem á að hafa huga að uppbyggingu við réttargeðdeildina á Sogni. Jón tilkynnti þetta á Sogni í gær þar sem hann var í heimsókn til að kynna sér starfsemina. 27.10.2005 08:45
Barði dyravörð á Gauki á Stöng Ölvaður unglingur réðst að tilefnislausu á dyravörð á Gauki á Stöng í nótt og barði hann svo rækilega að flytja þurfti dyravörðinn á slysadeild til aðhlynningar. Lögreglumenn náðu að yfirbuga unglinginn, sem gistir fangageymslur. 27.10.2005 08:45
Ríkisvaldið bregðist við háu gengi Ef íslenska krónan stendur í stað eða hækkar getur það leitt til þess að sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að hætta stafsemi. Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja hefur versnað verulega undanfarna mánuði vegna sterkar stöðu krónunnar en Björgólfur Jóhannsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, vill að ríkisvaldið bregðist við. 27.10.2005 08:45
Ræða möguleika á alþjóðlegum fuglaflensusjóði Embættismenn hvaðanæva að úr heiminum munu hittast í nóvember til að ræða möguleikann á að stofna alþjóðlegan sjóð til að sporna við útbreiðslu fuglaflensu. 27.10.2005 08:30
Starfsmannafélag Kópavogs samþykkir samninga Félagar í Starfsmannafélagi Kópavogs samþykktu í gær nýgerðan kjarasamning við launanefnd sveitarfélaganna, eftir að hafa tvívegis fellt fyrri samninga við nefndina. Yfir sjötíu prósent félagsmanna, sem greiddu atkvæði, voru fylgjandi nýja samningnum, en kosningaþáttaka var rúm sextíu prósent 27.10.2005 08:15
Fullt út úr dyrum á minningarathöfn í Neskirkju Fullt var út úr dyrum á minningarstund í Neskirkju í gærkvöldi vegna snjóflóðanna á Flateyri fyrir tíu árum og þurftu því sumir að standa á meðan séra Örn Bárður Jónsson predikaði. 27.10.2005 08:00
Kostar 1,3 milljarða króna Toshiba átti lægsta tilboð í vél- og rafbúnað fyrir Hellisheiðarvirkjun. Tilboðið hljóðar upp á átján milljónir evra eða sem samsvarar 1,3 milljörðum króna fyrir vélasamstæðu sem afkastar þrjátíu og fjórum megawöttum. 27.10.2005 07:45