Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Engar fregnir af manntjóni Hundruð þúsunda heimila og fyrirtækja eru án rafmagns eftir að fellibylurinn Ríta gekk yfir Texas og Louisiana í Bandaríkjunum á laugardaginn. Ekki hafa borist fregnir af manntjóni vegna veðurofsans. 26.9.2005 00:01
Styrmir ræðir við starfsmenn Starfsmannafundur hófst klukkann tvö í húsakynnum <em>Morgunblaðsins</em> þar sem Styrmir Gunnarsson ritstjóri hyggst kynna starfsfólki <em>Morgunblaðsins</em> aðkomu sína að Baugsmálinu. Hann hyggst líka svara spurningum starfsfólks sem kunna að hafa vaknað í kjölfar frétta af því að Styrmir hafði milligöngu um að Jón Steinar Gunnlaugsson tæki að sér mál Jóns Geralds Sullenberger gegn Baugi og ræddi þá ráðstöfun meðal annars við Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. 26.9.2005 00:01
Vill opinbera rannsókn á Baugsmáli Margrét Frímannsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, vill opinbera rannsókn á Baugsmálinu. Hún segir frávísun Héraðsdóms á ákærunni í málinu og fréttir síðustu daga um bréfaskipti áhrifamanna hafa skapað efasemdir meðal almennings um heilindi valda- og áhrifamanna sem verði vart eytt nema með rannsókn. 26.9.2005 00:01
Útlit fyrir stormviðri Útlit er fyrir stormviðri á norðvestanverðu og suðaustanverðu landinu síðar í dag með sterkum vindhviðum víða um land. Þannig er varað við að storm geti gert undir Vatnajökli, á Kjalarnesi, undir Hafnarfjalli, á sunnanverðu Snæfellsnesi, Holtavörðuheiði og á fjallvegum á Vestfjörðum. 26.9.2005 00:01
Gögnin máttu fara til fjölmiðla Jón Gerald Sullenberger segist hafa viljað að gögn um mál sitt gegn Baugi kæmust í fjölmiðla og kveðst ekki frá því að hann hafi sent Jóni Steinari Gunnlaugssyni tölvupóst þar sem hann heimilaði lögmanninum að áframsenda Styrmi Gunnarssyni, ritstjóra Morgunblaðsins, gögn um mál sitt. 26.9.2005 00:01
Allt með vitund Jóns Geralds Jón Gerald Sullenberger segir að Jón Steinar Gunnlaugsson hafi aldrei tekið neinar ákvarðanir varðandi mál sitt gegn Baugi, án fullrar vitundar og samþykkis Jóns Geralds. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Jón Gerald sendi fjölmiðlum rétt í þessu. 26.9.2005 00:01
Öllum vopnum eytt Írski lýðveldisherinn hefur eytt öllum vopnum sem samtökin notuðu í baráttunni gegn breska hernum á Norður-Írlandi. Þetta kemur fram í skýrslu nefndar sem hefur fylgst með því hvort lýðveldisherinn standi við loforð sínum um afvopnun. 26.9.2005 00:01
Skyrslettumálið tekið fyrir Fyrirtaka var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli þeirra Ólafs Páls Sigurðssonar og Örnu Aspar Magnúsdóttir sem ákærð eru fyrir stórfelld eignaspjöll og húsbrot þegar þau slettu skyri á ráðstefnugesti á Hótel Nordica í sumar. 26.9.2005 00:01
Styrmir nýtur trausts starfsfólks Aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins segir Styrmi Gunnarsson, ritstjóra blaðsins, njóta óskoraðs trausts starfsfólks Morgunblaðsins í tengslum við Baugsmálið og aðdraganda þess. Tveggja tíma löngum fundi Styrmis með starfsfólki sínu lauk nú fyrir stundu. 26.9.2005 00:01
Stærsta jarðvarmahitaveita heims Fyrirhugað er að reisa sem til verður í heiminum í borginni Xianyang í Kína með þátttöku Íslendinga. Kínversk sendinefnd er nú í heimsókn á Íslandi til að kynna sér nýtingu jarðhita. 26.9.2005 00:01
Mál Auðar Laxness tekið fyrir Mál Auðar Laxness gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Málinu var vísað frá Héraðsdómi fyrr á árinu vegan ýmissa annmnarka á stefnunni að mati dómsins, m.a. að lýsing málsástæðna væri ágripskennd. Hæstiréttur vísaði svo málinu aftur í hérað í síðustu viku. 26.9.2005 00:01
Lýst eftir 17 ára stúlku Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir eftir Söndru Baldursdóttur, til heimilis að Blöndubakka í Reykjavík. Sandra er fædd árið 1988. Hún er um einn og sextíu á hæð, ljóshærð með axlarsítt hár, er brúneygð og grannvaxin. Ekkert hefur spurst til Söndru síðan 10. september. 26.9.2005 00:01
Genabanki býður prinsessubaun Ef Margréti Danadrottingu skyldi vanta baun undir krónprinsessuna dönsku, Mary Donaldson, þá getur hún snúið sér til framkvæmdastjóra Norræna genabankans. Hann býður fram þessa aðstoð sína í grein í dagblaðinu <em>Jyllands Posten</em> í dag. 26.9.2005 00:01
Síðasti fulli vinnudagur Davíðs Dagurinn í dag er síðasti fulli vinnudagur Davíðs Oddssonar í embætti utanríkisráðherra. Á morgun hefur verið boðað til ríkisráðsfundar þar sem Davíð mun segja af sér ráðherradómi og Geir H. Haarde tekur við embætti utanríkisráðherra. 26.9.2005 00:01
Og Vodafone óskar eftir rannsókn Og Vodafone hefur óskað eftir því að Póst- og fjarskiptastofnun rannsaki alvarlegar ásakanir sem bornar hafa verið á fyrirtækið þess efnis að fyrirtækið hafi lekið tölvupósti viðskiptavina sinna. 26.9.2005 00:01
Aðrar leiðir verði kannaðar Undirbúningshópur stofnunar íbúasamtaka í Laugardalshverfum telur að þó svo að það virðist sem að svokölluð „innri leið“ hafi verið valin við skipulagningu Sundabrautar í Reykjavík, þá sé ekki fullreynt að kanna aðrar leiðir. 26.9.2005 00:01
Óvíst um fjölda dómara Ekki liggur fyrir hverjir eða hversu margir munu skipa Hæstarétt þegar hann tekur afstöðu til úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa frá ákæru í Baugsmálinu. 26.9.2005 00:01
Ríkisstjórn Póllands kolfallin Ríkisstjórn Mareks Belka, forsætisráðherra Póllands, kolféll í þingkosningunum sem fram fóru í landinu í gær. Miðflokkur og hægriflokkur, sem hafa boðað samstarf eftir kosningarnar, fengu meirihluta atkvæða. 26.9.2005 00:01
Flestir búa sig undir að snúa heim Flestir þeirra þriggja milljóna manna sem flúðu heimili sín í Texas og Louisiana vegna fellibylsins Rítu á laugardag búa sig nú undir að snúa aftur til síns heima. Tvö dauðsföll eru rakin til fellibylsins, en hundruð þúsunda heimila og fyrirtækja eru án rafmagns á svæðunum. 26.9.2005 00:01
Hákarl ræðst á brimbrettakappa Betur fór en á horfðist á sunnudaginn þegar fimm metra langur hvítháfur hremmdi ástralskan brimbrettakappa, Josh Berris að nafni, í sjónum úti fyrir Kengúrueyju við sunnanverða Ástralíu. 26.9.2005 00:01
Nafngiftir hafa áhrif á lyktarskyn Nafngiftir hafa áhrif á hvernig við skynjum lykt af ólíkum hlutum. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem greint er frá á vefsíðu BBC. 26.9.2005 00:01
Réttarhöldin sögð vafasöm Þrír sakborningar í dómsmáli vegna uppþotanna í Úsbekistan í maí viðurkenndu í gær að hafa fengið þjálfun í búðum herskárra múslima í nágrannaríkinu Kirgistan. Þá segja vitni að Bandaríkjamenn hafi styrkt uppreisnarmennina. 26.9.2005 00:01
Merkel vill leiða viðræðurnar Angela Merkel, leiðtogi kristilegra demókrata í Þýskalandi segir að stjórnarmyndunarviðræður við jafnaðarmenn geti ekki haldið áfram nema þeir fallist á að hún leiði viðræðurnar. 26.9.2005 00:01
Afvopnun Norður-Írlands staðreynd Mikilvægum áfanga í átt til endanlegs friðar á Norður-Írlandi var náð í gær þegar óháð vopnaeftirlitsnefnd lýsti því yfir að Írski lýðveldisherinn hefði afvopnast að fullu. Mótmælendur hafa þó efasemdir um afvopnunina. 26.9.2005 00:01
Tugþúsundir lyfjaskammta sendir Ástralar munu gefa Indónesum 50 þúsund skammta af lyfinu Tamilflu til þess að hjálpa þeim að berjast við fuglaflensu sem þegar hefur dregið sex manns til dauða í Indónesíu. 26.9.2005 00:01
Sheehan handtekin Cindy Sheehan, móðir bandarísks hermanns sem féll í átökum í Írak á síðasta ári, var handtekin í gær fyrir utan Hvíta húsið í Washington þar sem hún stóð fyrir mótmælum. 26.9.2005 00:01
Kennarar teknir af lífi Fimm grunnskólakennarar voru teknir af lífi í þorpinu Muelha, skammt suður af Bagdad í gær. Kennararnir, sem allir voru úr hópi sjía, voru á leið heim úr vinnu þegar uppreisnarmenn, dulbúnir sem lögreglumenn, stöðvuðu bifreið þeirra, leiddu þá aftur inn í kennslustofu og skutu til bana. 26.9.2005 00:01
Hámaði í sig veiðihníf Jon-Paul Carew, dýralækni í bænum Plantation í Flórída, brá heldur betur í brún þegar hann skoðaði röntgenmyndir af St. Bernhardshvolpinum Elsie. Í ljós kom að í maga hennar var rúmlega 33 sentimetra langur veiðihnífur með hvössum oddi og sagarblaði. 26.9.2005 00:01
Beindi Jónínu til yfirvalda Jónína Benediktsdóttir sagðist ætla að birta gögn frá Jóni Geraldi Sullenberger um Baug ef hún fengi ekki greiðslur sem hún taldi sig eiga inni hjá Baugi. Tryggvi Jónsson hvatti hana til að snúa sér til yfirvalda með gögnin. </font /></b /> 26.9.2005 00:01
Dómurinn sagður farsakenndur Átján manns voru í gær dæmdir á Spáni fyrir aðild að hryðjuverkaárásunum 11. september, þar á meðal fréttamaður sjónvarpsstöðvarinnar Al-Jazeera. Sakborningarnir halda fram sakleysi sínu og segja að um skrípaleik sé að ræða. 26.9.2005 00:01
Yfirlýsing stangast á við viðtal Í Fréttablaðinu í gær kom fram að Jón Steinar Gunnlaugsson, þá lögmaður Jóns Geralds Sullenberger í Baugsmálinu, hefði sent Styrmi Gunnarssyni gögn um málið án vitundar eða samþykkis Jóns Geralds. Jón Gerald staðfesti það í viðtali við Fréttablaðið, sunnudaginn 26. september, eins og fram kemur hér að neðan. 26.9.2005 00:01
Jón Gerald hitti einkaspæjarann Jón Gerald Sullenberger segist vita með vissu að Baugur hafi ráðið einkaspæjara til að njósna um hann og konu hans. Hann neitar því að Jón Steinar Gunnlaugsson hafi sent gögn úr Baugsmálinu til ritstjóra Morgunblaðsins að sér forspurðum, eins og fram kemur í Fréttablaðinu í dag. 26.9.2005 00:01
Jaxlinn seldur úr landi "Við erum ekki í neinni uppgjöf. Það hefur sýnt sig að það eru forsendur fyrir því að halda úti strandflutningum hér á landi og nú er þetta bara spurning um að hafa úthald," segir Ragnar Traustason, tannlæknir og útgerðarmaður Jaxlsins. 26.9.2005 00:01
Notkunin Vísis tvöfaldaðist "Um það bil þrjátíu þúsund notendur reyndu að fara samtímis inn á vefinn visir.is í hádeginu í gær," segir Þorsteinn Eyfjörð, forstöðumaður vefútgáfu Vísis. 26.9.2005 00:01
Arnþrúður treysti sér ekki "Það var bara svolítið persónulegt sem kom upp á sem gerði það að verkum að ég treysti mér ekki í þá einbeitingu sem þarf til þess að vera í beinni útsendingu," segir Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri á Útvarpi sögu. 26.9.2005 00:01
Aðild að alþjóðastofnunum í hættu Aðild Póllands að Evrópuráðinu er í hættu ef íhaldssamir sigurvegarar nýafstaðinna þingkosninga þar í landi ákveða að taka upp dauðarefsingu að nýju. Bæði Jaroslav Kaczynski, leiðtogi flokks Laga og réttlætis, og bróðir hans Lech Kaczynski forsetaframbjóðandi hafa mælt fyrir því að dauðarefsingar skuli teknar upp sem meðal til þess að berjast gegn glæpum og spillingu. 26.9.2005 00:01
Vonast eftir refsilækkun Mál Hákonar Eydals, sem banaði fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður, Sri Rahmawati í fyrrasumar, var flutt í Hæstarétti í gær. Dóms er að vænta innan tíðar. 26.9.2005 00:01
Hótaði, barði og skar konu Rúmlega fertugur karlmaður neitaði sök í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær þegar tekið var fyrir heimilisofbeldismál á hendur honum. Manninum er gefið að sök að hafa svipt konu frelsi sínu með því að halda henni fanginni á heimili sínu frá því klukkan fimm að morgni sunnudagsins 19. september í fyrra til klukkan tíu þegar henni tókst að komast út. 26.9.2005 00:01
Rannsókn enn í gangi Enn stendur yfir rannsókn lögreglu á slysi sem varð á Viðeyjarsundi tíunda þessa mánaðar þegar skemmtibátur steytti á Skarfaskeri með þeim afleiðingum að tvö fórust. Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjónn sagði ekkert nýtt að frétta af rannsókninni, en þó hyllti nú undir lok hennar. Hann bjóst við að mál tækju að skýrast þegar nær drægi vikulokum. 26.9.2005 00:01
Krefjast bæði sýknu af húsbroti Arna Ösp Magnúsardóttir sem ákærð er fyrir eignaspjöll og húsbrot á hótel Nordica í sumar þar sem skvett var grænu skyri á gesti álráðstefnu breytti í gær afstöðu sinni til ákærunnar um húsbrotið. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. 26.9.2005 00:01
Yrði nefndin óháð? Stjórnarskrá Íslands gerir ráð fyrir að Alþingismenn sitji í rannsóknarnefnd um Baugsmálið ef til þess kemur að slík nefnd verði skipuð. Sigurður Líndal lagaprófessor telur að það yrði mjög erfitt að sannfæra almenning um að nefndin yrði í raun og veru óháð. Slík nefnd var síðast skipuð fyrir fimmtíu árum. 26.9.2005 00:01
Aftur fjallað um Halldór Tekið var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur mál Auðar Laxness á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni fyrir höfundarréttarbrot við ritun á bókinni Halldór, um Nóbelsskáldið Halldór Kiljan Laxness. Málinu hafði áður verið vísað frá, en var aftur vísað heim í hérað af Hæstarétti. 26.9.2005 00:01
Íkveikjur í rannsókn Ekki hafa komið fram nýjar vísbendingar í rannsókn lögreglu í Reykjavík á íkveikjum í höfuðborginni fyrstu helgina í september. Þá er grunur um íkveikju á að minnsta kosti fjórum stöðum í borginni, þar af tvisvar á sama stað með sólarhrings millibili í skemmu við Fiskislóð. 26.9.2005 00:01
Sakir aðeins fyrndar að hluta Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra rannsakar enn möguleg brot stjórnenda Lífeyrissjóðs Austurlands þó svo að sakir stjórnarmanna vegna eftirlitsábyrgðar kunni að vera fyrndar. Aðstandendur kæru hafa eftir lögreglu að hylli undir lok rannsóknar. 26.9.2005 00:01
Fékk 27 ára fangelsi Hæstiréttur Spánar dæmdi í dag meintan leiðtoga Al-Qaida á Spáni í 27 ára fangelsi fyrir samsæri í tengslum við hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum 11. september 2001. Hann var sýknaður af ákærum um morð í árásunum. 26.9.2005 00:01