Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Prófkjörið fer of hratt af stað Júlíus Vífill Ingvarsson hefur enn ekki tilkynnt um framboð sitt til prófkjörs sjálfstæðisflokksins. Í samtali við Fréttablaðið sagðist Júlíus mjög fljótlega gera grein fyrir því hvaða sæti hann hyggðist taka. 10.9.2005 00:01
Mikilvægt að koma á jafnvægi Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs telur brýnt að gripið verði til samræmdra aðgerða til að tryggja efnahagslegan stöðugleika og átelur ríkisstjórnina fyrir andvaraleysi. Þetta er meðal þess sem fram kom á flokksráðsfundi vinstri grænna dagana 9. til 10. september. 10.9.2005 00:01
Vill eitt af efstu sætunum Sóley Tómasdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs vegna sveitarstjórnarkosninganna í Reykjavík næsta vor og sækist eftir einu af efstu sætunum. Sóley segist leggja áherslu á jafnréttismál, dagvistarmál, menntamál og íþrótta- og tómstundamál. 10.9.2005 00:01
Árni gefur ekki kost á sér Árni Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, ætlar ekki að bjóða sig fram til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag segist Árni ætla að styðja Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra í varaformannskjörinu enda komi það sér best fyrir flokkinn. 10.9.2005 00:01
Biðu í rúma klukkustund í sjónum Hátt í hálf önnur klukkustund leið frá því að fólkið á skemmtibátnum Hörpu fór í sjóinn þar til því var bjargað. Bið var á að þyrla Landhelgisgæslunnar væri kölluð út þar sem mönnum var alvara málsins ekki ljós. 10.9.2005 00:01
Neyðarkall tíu ára drengs Þrennt bjargaðist, hjón og tíu ára sonur þeirra, þegar skemmtibátur steytti á Skarfaskeri við Viðey og sökk um klukkan tvö í fyrrinótt. Rúmlega fimmtug kona lést og rúmlega þrítugs karlmanns er enn saknað. Talið er að hann hafi reynt að kafa undir bátinn eftir konunni sem lést. 10.9.2005 00:01
Mátti ekki tæpara standa "Miðað við aðstæður var það rauninni hrein hending að við römbuðum á bátinn," segir Bogi Sigvaldason, einn fjögurra lögregluþjóna sem bjargaði fjölskyldunni af kili bátsins sem steytti á skeri á Viðeyjarsundi í fyrrinótt." 10.9.2005 00:01
Bush aldrei óvinsælli Einungis 39 prósent Bandaríkjamanna eru sátt við frammistöðu George W. Bush sem forseta samkvæmt nýrri skoðanakönnun Ipsos fyrir AP-fréttastofuna. Er þetta í fyrsta skipti sem innan við fjörutíu prósent landsmanna eru sátt við frammistöðu hans í könnunum fyrirtækisins. 10.9.2005 00:01
Fer fram gegn Júsjenkó Júlía Timosjenkó, fyrrum forsætisráðherra Úkraínu, ætlar að stofna nýja stjórnmálahreyfingu og bjóða sig fram gegn Viktor Júsjenkó forseta í næstu forsetakosningum. Júsjenkó vék henni úr embætti forsætisráðherra á fimmtudag. 10.9.2005 00:01
Pappírsbeinagrindur vekja furðu Pappírsbeinagrindur sem blöstu við íbúum Caracas, höfuðborgar Venesúela, þegar þeir vöknuðu fyrr í vikunni valda borgarbúum furðu. Landsmenn hafa búið við blóðug mótmæli og ásakanir um samsæri gegn stjórnvöldum en beinagrindurnar, með árituð slagorð gegn stjórnvöldum, eru ólíkar öllu því sem landsmenn hafa áður kynnst. 10.9.2005 00:01
Mikilvægt skref fyrir lýðræðið Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, sigraði með yfirburðum í fyrstu forsetakosningum landsins þar sem kjósendur máttu velja á milli tveggja eða fleiri frambjóðenda. Mubarak fékk 88,6 prósent atkvæða en næstflest atkvæði fékk Ayman Nour, 7,3 prósent. 10.9.2005 00:01
Setja met nánast daglega "Við setjum met nánast á hverjum degi. Það stefnir í það að okkur berist yfir þúsund tonn af fötum á þessu ári. Við settum líka met í sölu í ágústmánuði en við seldum fyrir yfir eina milljón í búðinni á Laugavegi", segir Örn Ragnarsson, starfsmaður Rauða krossins. 10.9.2005 00:01
Eldri borgarar missa 1/4 tekna Sjö hundruð eldri borgarar hafa misst allt að fjórðungi ráðstöfunartekna sinna frá áramótum þar sem aldurstengd örorkuuppbót fellur niður við sextíu og sjö ára aldur. 10.9.2005 00:01
Björgunarstörf í sláturhúsi Björgunarsveitin Súlur á Akureyri var kölluð út í morgun í heldur óvanalega björgunaraðgerð. Erfiðlega hefur nefnilega gengið að manna sláturhús á þessu hausti. Því var brugðið á það ráð að spyrja björgunarsveitina á staðnum hvort hún vildi ekki afla tekna með því að aðstoða við verkunina. 10.9.2005 00:01
16 ára í haldi fram í október Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í gær sextán ára pilt í gæsluvarðhald til 21. október eða þar til dómur fellur í máli hans. Pilturinn rændi ásamt fjórum öðrum tæplega tvítugum starfsmanni Bónuss á föstudaginn fyrir viku og daginn eftir voru þeir úrskurðaðir í sex daga gæsluvarðhald. Hinum fjórum hefur verið sleppt. 9.9.2005 00:01
Ráðning Davíðs til skammar Ágúst Einarsson, prófessor við Háskóla Íslands, segir vinnubrögð við ráðningu Davíðs Oddssonar í Seðlabankann til háborinnar skammar og sýna að ráðamenn hafi ekkert lært í þessum efnum. Alþingi hefur í þrígang fellt frumvörp þess efnis að auglýsa beri stöðu seðlabankastjóra. 9.9.2005 00:01
Þjófar gripnir glóðvolgir Tveir menn voru handteknir í Reykjavík á aðfararnótt föstudags fyrir árvekni starfsmanna Ríkislögreglustjóra sem tekið höfðu eftir golfsetti við bílageymsludyr embættisins. 9.9.2005 00:01
Beit konu í baugfingur Ákvörðun um refsingu rétt tæplega 26 ára gamallar konu var í gær frestað í Héraðsdómi Vestfjarða, en hún hafði verið kærð fyrir líkamsárás. Haldi konan skilorð í tvö ár fellur refsingin niður. 9.9.2005 00:01
Mátti berja mann Ísfirðingi á þrítugsaldri var ekki gerð refsing í Héraðsdómi Vestfjarða í gær fyrir að hafa slegið mann nokkrum sinnum í andlitið aðfaranótt sunnudagsins 13. febrúar síðastliðins. 9.9.2005 00:01
Sluppu vel úr árekstri í Njarðvík Allharður árekstur tveggja bíla varð á Njarðarbraut í Njarðvík um klukkan eitt aðfararnótt föstudags. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Keflavík voru ökumenn og farþegar bílanna fluttir með sjúkrabifreið á Heilbrigðsstofnun Suðurnesja til skoðunar, en meiðsl þeirra voru ekki talin alvarleg. 9.9.2005 00:01
Franskur ferðamaður fannst látinn Franskur ferðamaður sem leitað hafði verið að Fjallabaki fannst látinn um klukkan þrjú í gær. Í tilkynningu frá Landsbjörgu kemur fram að komið hafi verið auga á líkið úr þyrlu Landhelgisgæslunnar í Markarfljóti fyrir neðan Húsadal í Þórsmörk. 9.9.2005 00:01
Réttargeðdeildin á Sogni yfirfull Nýjasta vistmanninum á Sogni í Ölfusi var fundinn staður í herbergi sem annars er notað fyrir heimsóknir, kennslu og viðtöl. Á deildinni er pláss fyrir sjö, en hann er áttundi sjúklingurinn. Ráðuneytið hefur til þessa ekki heimilað stækkun réttargeðdeildarinnar. 9.9.2005 00:01
Pólitískir vinir Bush Slæleg viðbrögð við fellibylnum Katrínu leiða til sífellt harðari gagnrýni á Bush Bandaríkjaforseta og nánustu samstarfsmenn hans. Colin Powell hefur nú bæst í hóp gagnrýnendanna og í dag var greint frá því að yfirmenn almannavarna væru ekki fagmenn heldur pólitískir vinir Bush. 9.9.2005 00:01
Kjötmjöl unnið í Flóanum á ný Sorpstöð Suðurlands hættir að taka við sláturúrgangi til urðunar á mánudaginn. Þá hefst aftur rekstur kjötmjölsverksmiðju í Hraungerðishreppi, en hærra móttökugjald á að tryggja reksturinn. Forstjóri SS segir samkeppnisgrundvöll skekktan. 9.9.2005 00:01
Dyggasti aðdáandi konu sinnar "Þetta er í þriðja skipti sem ég er hér á landi og alltaf er ég jafnhrifinn af landi og þjóð. Hér hefur fólkið tekið okkur hjónakornum afar vel enda eru Íslendingar gestrisnir og hafa opnað fyrir okkur heimili sín og hjörtu. Fyrir það erum við ævinlega þakklát." 9.9.2005 00:01
Sóknarbörn kæra til biskups Sóknarbörn í Garðasókn kærðu í síðustu viku til biskups brota á fundarsköpum á aðalsafnaðarfundi sem haldinn var 30. ágúst síðastliðinn. Krefjast þau þess að fundurinn verði dæmdur ólögmætur. 9.9.2005 00:01
20 prósenta launahækkun Nýr kjarasamningur tryggir félagsmönnum Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu, SFH, tuttugu prósenta launahækkun á samningstímanum. Samningarnir eru afturvirkir og gilda frá 1. febrúar. 9.9.2005 00:01
Óku ölvaðir af dansleik Tvær bílveltur urðu á Vesturlandsvegi með stuttu millibili í fyrrinótt skammt sunnan við Bifröst en þar var haldinn dansleikur umrædda nótt. Báðir ökumennirnir eru grunaðir um ölvun við akstur. Engin slys urðu á fólki en bílarnir eru báðir mjög skemmdir eða ónýtir að sögn lögreglunnar í Borgarnesi. Fyrr um nóttina hafði lögreglan afskipti af ökumanni sem hafði fengið sér neðan í því. 9.9.2005 00:01
Syntu frá Skrúði Sundgarparnir Hálfdán Freyr Örnólfsson og Heimir Örn Sveinsson gerðu sér lítið fyrir í gær og syntu frá Skrúðnum og í fjöruna við mynni Fáskrúðsfjarðar. Sundið tók um klukkutíma en aðstæður eru afar erfiðar á þessu svæði eins og menn vita sem þekkja söguna af skipinu Synetta sem sökk við Skrúðinn á níunda áratugnum og lifði enginn sjómannanna af. 9.9.2005 00:01
Framboð til kosninga í Reykjavík Mun fleiri hafa tilkynnt um framboð í prófkjör Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor en í prófkjör hjá öðrum flokkum. Prófkjör flokksins verður þó ekki haldið fyrr en 4. og 5. nóvember. Kosning á lista hefur verið bindandi hljóti menn 50 prósent atkvæða í það sæti. 9.9.2005 00:01
Svifryk vandamál í Reykjavík Svifryk er vandamál í Reykjavík eins og í öðrum borgum Evrópu að því er fram kom á stórborgarráðstefnu Norðurlandanna um helgina. Síðasta vetur þurfti tvisvar að senda út viðvörun til öndunarfærasjúklinga vegna svifryksmengunar í Reykjavík. 9.9.2005 00:01
Alfreð hræðist ekki Önnu Anna Kristinsdóttir stefnir að fyrsta sætinu á lista framsóknarmanna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningar. Alfreð Þorsteinsson, núverandi oddviti framsóknarmanna, segir Önnu þegar hafa reynt að sigra sig einu sinni og henni sé guðvelkomið að reyna það aftur. 9.9.2005 00:01
Ferðamaður í geimnum Tveir geimfarar, annar Rússi og hinn Bandaríkjamaður, búa sig nú undir geimskot og ferð til alþjóðlegu geimstöðvarinnar á sporbraut um jörðu. Þetta þættu tæpast tíðindi væri ekki Gregory nokkur Olsen um borð. Gregory er nefnilega ferðamaður sem greiddi rússnesku geimferðastofnuninni tuttugu milljónir dollara til að fá að fljóta með. 9.9.2005 00:01
Veltur á viðbrögðum Tymosjenkó Pólitísk framtíð Viktors Júsjenkós, forseta Úkraínu, veltur á því hvort Júlía Tymosjenkó sem hann rak í gær, snúist gegn honum eður ei. Júsjenkó rak Tymosjenkó, sem var forsætisráðherra, að sögn til að koma á friði innan ríkisstjórnarinnar og slá á ásakanir um græðgi og svindl innan stjórnarinnar. 9.9.2005 00:01
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent