Fleiri fréttir

Ný gögn sögð íþyngja Annan

Aðilar að rannsókninni á framkvæmd hinnar svonefndu olíu-fyrir-mat áætlun Sameinuðu þjóðanna í Írak sögðu í gær að þeir væru að skoða með hraði ný gögn sem fram væru komin um málið og kunna að vera íþyngjandi fyrir Kofi Annan, framkvæmdastjóra samtakanna.

Ekki Halldórs að leiðrétta?

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra taldi það ekki sitt hlutverk að leiðrétta rangar upplýsingar sem einkavæðingarnefnd fékk. Þessar röngu upplýsingar gerðu það að verkum að hvergi kom fram í gögnum nefndarinnar að möguleiki væri á hagsmunaárekstri ríkis og ráðherra.

Varaforseti Suður-Afríku rekinn

Thabo Mbeki, forseti Suður-Afríku, rak varaforsetann Jacob Zuma í gær eftir að sá síðarnefndi varð uppvís að því að vera flæktur í spillingarhneyksli. Með brottrekstrinum skapast mikil óvissa um hver sé líklegastur til að verða arftaki Mbekis á forsetastólnum.

Glæpapar framselt til Íslands

Par af erlendum uppruna sem komst af landi brott á stolnum bílaleigubíl með tvær milljónir af sviknu fé í vasanum, eftir að hafa framselt falsaða tékka í banka og tekið peningana út í erlendum gjaldmiðli, var handtekið í Danmörku á laugardag. Parið verður framselt til Íslands á næstunni.

Lýðræði og frelsi bannorð í Kína

Kínverskir bloggarar fá skammir frá ritskoðurum ef þeir skrifa inn orð eins og „lýðræði“, „frelsi“ eða „mannréttindi“. Þeim er sagt að slíkt orðbragð sé bannað.

Samtvinnun auglýsinga og viðtala

Ritstjóri <em>Frjálsrar verslunar</em> segir það hafa tíðkast lengi hjá blaðinu að vera með aukablöð inni í blaðinu þar sem seldar eru opnur með auglýsingu á annarri síðunni og viðtali á hinni. Athafnakona í Reykjavík fékk símtal frá Frjálsri verslun fyrir skemmstu þar sem henni var boðið í heilsíðuviðtal ef hún keypti auglýsingu fyrir fyrirtæki sitt.

Tekið fyrir sölu á eBay

Uppboðsvefurinn eBay hefur ákveðið að stöðva sölu á miðum á Live 8 tónleikana sem haldnir verða í Lundúnum 2. júlí næstkomandi.

Vitað um athæfi mannsins um hríð

Íslendingur um þrítugt var handtekinn í dag í tengslum við alþjóðlega herferð gegn barnaklámi. Vitað hefur verið um athæfi hans um hríð en beðið var með handtökuna til að reyna að ná fleirum.

Kólerufaraldur í uppsiglingu

Yfir tvö þúsund manns hafa greinst með kóleru í Kabúl, höfuðborg Afganistans, undanfarnar vikur og segja erlendir heilbrigðisstarfsmenn að faraldur sé við það að brjótast út verði ekkert að gert.

Spennandi kosningar framundan

Allt útlit er fyrir afar spennandi lokaumferð líbönsku þingkosninganna á sunnudaginn. Óvæntur sigur Michel Aoun, fyrrverandi hershöfðingja, kom eins og köld vatnsgusa framan í and-sýrlensku flokkana sem búist hafði verið við að ynnu yfirburðasigur í kosningunum. Þeir reyna nú að ná vopnum sínum aftur.

Rafsanjani sigurviss

Talsverðar líkur eru á að enginn frambjóðandi fái hreinan meirihluta í fyrstu umferð írönsku forsetakosninganna sem fram fara 17. júní. Því er búist við að kjósa þurfi aftur í næstu viku á milli þeirra tveggja efstu. Slíkt hefur aldrei gerst áður í Íran.

Trausti lýst á stjórnina

Yfirgnæfandi meirihluti íraskra þingmanna lýsti yfir trausti á ríkisstjórn Ibrahim al-Jaafari en slík yfirlýsing var á dagskrá þingsins í gær.

Blóðugur dagur í Írak

Í það minnsta 27 fórust í tveimur sprengjuárásum í norðanverðu Írak í gær. Þá hafa fundist lík 24 manna sem bersýnilega höfðu verið teknir af lífi.

Riðið yfir Hvítá

Sex borgfirskir hestamenn tóku sig til og riðu þvert yfir Hvítá, frá Hvanneyri að Einarsnesi á sunnudaginn var. Ekki er vitað til þess að þessi leið hafi verið riðin fyrr, enda bæði álar og sandbleytur að fara yfir á þessari þriggja kílómetra leið.

Hittir halastjörnuna þann 4. júlí

Bandaríska geimferðastofnunin ætlar að skjóta eldflaug á halastjörnuna Tempel-1 hinn 4. júlí. Búast má við miklu sjónarspili í geimnum.

Aubenas segir frá eldraun sinni

Frönsku blaðakonunni Florence Aubenas var um helgina sleppt úr fimm mánaða haldi mannræningja. Hún ræddi við blaðamenn á fundi í París í gær. Á meðal áheyrenda var Bergþór Bjarnason.

Ríkisskoðandi aftur á fund

Fjárlaganefnd fjallar á ný um vanhæfismál forsætisráðherra á morgun. Framsóknarmenn eru áhyggjufullir en telja stjórnarandstöðuna nota sér málið til hins ýtrasta til að koma höggi á Framsóknarflokkinn og formann hans.

Málinu ekki lokið

Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkinarinnar, segir að mörg veigamikil atriði önnur en meint vanhæfi Halldórs Ásgrímssonar varðandi söluna á ríkisbönkunum séu enn óupplýst. Málinu sé síður en svo lokið.

Hagnaðurinn á Hesteyri

Ekki er óvarlegt að ætla að hagnaður Hesteyrar af fjárfestingu sinni í Keri hf. árið 2002 sé um fjögurra milljarða króna virði í dag. Hesteyri er eigandi fjórðungshlutar í VÍS sem er stór hluthafi í KB banka. Skinney-Þinganes á nú þriðjungshlut í Hesteyri.

Ríkisendurskoðun meirihlutans

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, segir nauðsynlegt fyrir ríkisendurskoðun að hafa trúnað minnihlutans. Ríkisendurskoðun sem sé bara endurskoðun fyrir meirihlutann sé ekki trúverðug.

Umræðan ekki skaðað Framsókn

Valgerður Sverrisdóttir segir að umræðan um einkavæðingu ríkisbankanna og ásakanir um vanhæfi Halldórs Ásgrímssonar hafi hvorki skaðað flokkinn né ríkisstjórnina. Halldór hafi jafnsterka stöðu sem áður innan flokksins. Þau ræddu aldrei eignatengslin sín á milli. </font /></b />

Rokkað með Mandela gegn eyðni

Nelson Mandela og alþjóðleg breiðfylking tónlistarstjarna þrýstu á ríkar þjóðir heims að leggja meira af mörkum til baráttunnar gegn eyðnisjúkdómnum og fátækt á góðgerðartónleikum í Tromsø í Norður-Noregi á laugardagskvöld.

Eiturefnakafarar í viðbragðsstöðu

Búist er við Lagarfossi til Grundartanga á tíunda tímanum en tíu eiturefnakafarar frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru nú í viðbragðsstöðu þar vegna ammóníaksleka sem varð um borð.

10 létust og 80 særðust í Íran

Minnst tíu manns létust og meira en áttatíu særðust í sex sprengjuárásum í Íran í gær. Í borginni Ahvaz, sem er við landamæri Íraks, sprungu fjórar öflugar sprengjur fyrir utan ráðuneyti og aðrar byggingar stjórnvalda með þeim afleiðingum að nokkrir létust og tugir slösuðust.

Búist við úrskurði í dag

Búist er við að ríkisendurskoðandi skili í dag úrskurði um hvort Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra var vanhæfur þegar ríkisbankarnir voru seldir. Þetta er vegna tengsla fyrirtækis í eigu ráðherrans og fjölskyldu hans við S-hópinn svokallaða en þau tengsl voru ekki gefin upp í byrjun ferlisins.

Tvöfalt fleiri látnir í Kína?

Flóðbylgjan sem skall á barnaskóla í Kína á laugardaginn kann að hafa orðið allt að 200 manns að bana, einkum börnum. Frá þessu greindu kínverskir fjölmiðlar í morgun. Í nokkrum þeirra er fullyrt að minnst tvöfalt fleiri hafi látist en greint hafi verið frá hingað til.

Fimm létust í Kandahar

Að minnsta kosti fimm bandarískir hermenn létust og nokkrir særðust í sjálfsmorðsárás í borginni Kandahar í suðurhluta Afganistans í morgun. Árásarmaðurinn var í kyrrstæðum leigubíl sem sprakk í loft upp þegar bifreið hermanna fór fram hjá.

Vara við álveri í Eyjafirði

Samtök um fjölbreytta atvinnuuppbyggingu í Eyjafirði vara eindregið við þeirri stefnu stjórnvalda að einhæfa atvinnulíf þjóðarinnar með enn einu álveri, hugsanlega við Eyjafjörð.

Frakkland vinsælasta landið

Frakkland er vinsælasti ferðamannastaður í heimi. Á síðasta ári komu tæplega áttatíu milljónir ferðamanna til Frakklands, eða meira en tuttugu milljónum fleiri en komu til Spánar sem er næstvinsælasta landið. Í þriðja sæti voru svo Bandaríkin en þangað komu ríflega fjörutíu milljónir ferðamanna á síðasta ári.

Gámurinn kominn á land

Búið er að hífa ammóníaksgáminn úr Lagarfossi og á land í Grundartangahöfn. Tíu eiturefnakafarar frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru á staðnum til að tryggja öryggið. Breyting varð á vindáttinni sem gerði að verkum að slökkviliðið þurfti aðeins að breyta vinnulagi sínu við aðgerðina.

Bretar fái ekki afslátt hjá ESB

Frakkar beita nú Breta miklum þrýstingi til þess að fá þá til að falla frá afslætti af framlögum til Evrópusambandsins sem þeir hafa fengið frá 1984. Bretland var á þeim árum eitt af fátækari löndum ESB og fékk lítið í sinn hlut af landbúnaðarstyrkjum sem þá voru sjötíu og fimm prósent af fjárlögum sambandsins.

Ellefta eiginkona konungsins

Konungur Svasílands hefur gengið að eiga tvítuga jómfrú sem er ellefta eiginkona hans. Svasíland er sjálfstætt smáríki í Suður-Afríku. Maswati konungur er einvaldur í landi sínu og allir þegnarnir sitja og standa eins og hann vill.

Saddam vill réttarhöld í Svíþjóð

Saddam Hussein hefur krafist þess að réttað verði í máli hans utan Íraks og vill helst að það verði gert í Svíþjóð þar sem hann hefur áhuga á að afplána dóm, verði hann dæmdur til fangavistar.

Skýlir sér á bak við embættismenn

Stjórnarandstaðan segir forsætisráðherra skýla sér á bak við embættismenn og víkja sér undan pólitískri ábyrgð. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að málið sé að líkindum fallið um sjálft sig komist Ríkisendurskoðun að því að ráðherrann hafi verið hæfur til að koma að einkavæðingu bankanna.

Akstur kvenna skaðar ríkið

Innanríkisráðherra Sádi-Arabíu hefur brugðist ókvæða við tillögum um að leyfa konum að aka bílum. Ráðherrann segir að það myndi skaða konungsríkið.

Aukning á iðrasýkingum í sumar

Kampýlóbakter- og nóróveirusýkingar eiga eftir að aukast hér á landi eftir því sem líður á sumarið, að mati Haraldar Briem smitsjúkdómalæknis. Nóróveirusýkingar verða meðal annars þegar rotþrær fyllast og mengun kemst í neysluvatn. Þá eru miklar sýkingar um borð í skemmtiferðaskipum tengdar veirunni.

Hvatt til samstarfs R-listans

Stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík samþykkti á fundi sínum í gær ályktun þar sem hvatt er til viðræðna um endurnýjað samstarf í borgarstjórn undir merkjum Reykjavíkurlistans.

Hindra barnaníðinga í Rússlandi

Lögregluyfirvöld í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi starfa nú með lögreglunni í Rússlandi að því að hindra barnaníðinga í að misnota börn í Rússlandi. Rannsóknarlögreglan á Storskog-landamærastöðinni á landamærum Noregs og Rússlands hefur lengi haft grun um að dæmdir barnaníðingar ferðist til norðurhluta Rússlands í þeim tilgangi að misnota börn.

Flugleiðir gefa 530 flugmiða

Flugleiðir hafa gefið fimm hundruð og þrjátíu farþegum sem urðu fyrir óskemmtilegum töfum á flugi til og frá San Fransisco farmiða að eigin vali á flugleiðum félagsins. Tvö hundruð og sextíu manns héldu áleiðis til San Fransisco um þrjú leytið í nótt en tvö hundruð og sjötíu manns biðu þess ytra að komast í flug til Íslands.

Athugasemdir vegna sameiningar

Skólastjórnendur leik- og grunnskóla Vestmanneyjarbæjar gera alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð bæjarstjórnarmanna vegna sameiningar leikskólanna og grunnskólanna undir eina yfirstjórn á næsta ári.

3000 föngum sleppt í S-Afríku

Yfirvöld í Suður-Afríku hafa gefið rúmlega þrjú þúsund föngum frelsi á þeim forsendum að þeir hafi verið endurhæfðir. Fréttaskýrendur segja að sum fangelsin hýsi allt að þrisvar sinnum fleiri fanga en þau hafi pláss fyrir með tilheyrandi loftleysi og plássleysi og umhverfið sé gróðastía nauðgana og ofbeldis.

Vörubifreið ók á tíu ára telpu

Vörubifreið ók á tíu ára telpu á hjóli á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar á þriðja tímanum í dag. Stúlkan var að hjóla yfir á grænu en bifreiðin að taka hægri beygju þegar slysið varð. Telpan var flutt á slysadeild með slæman skurð á lærinu en talið var að hún gæti verið mjaðmagrindarbrotin.

Fluttu inn 130 g og 1000 töflur

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi sex ungmenni, fimm karla og eina konu, til fangavistar í dag fyrir aðild að innflutningi á eitt þúsund amfetamíntöflum og rúmlega 130 grömmum af kókaíni. Efnin voru keypt í Rotterdam og flutt til landsins með Íslandspósti, falin inni í vaxkertum.

Blaðamannafundur klukkan 17

Blaðamannafundur hefur verið boðaður í ráðherrabústaðnum klukkan fimm þar sem Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra ætlar að skýra frá niðurstöðu Ríkisendurskoðunar sem rannsakaði hvort hann hefði verið hæfur eða vanhæfur til að taka þátt í sölu ríkisbankanna.

Sjá næstu 50 fréttir