Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þjóðverjar samþykkja stjórnarskrá Þýska sambandsþingið staðfesti stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins í gær með afgerandi hætti. Aðeins eitt sambandsríkjanna sextán hafnaði honum og alls fékk hann 66 atkvæði af 69. Nú bíður hann formlegrar staðfestingar frá Horst Köhler Þýskalandsforseta. 27.5.2005 00:01
Fær 20 ára fangelsi í Indónesíu Indónesískur dómstóll hefur dæmt hina áströlsku Schapelle Corby í tuttugu ára fangelsi fyrir smygl á fíkniefnum. Corby, sem er 27 ára, var handtekin á flugvellinum í Bali með fjögur kíló af marijúana í október. Hún kveðst saklaus og telur að flugvallarstarfsmenn hafi staðið á bak við smyglið. 27.5.2005 00:01
Óánægja með stjórnvöld ráði höfnun Allt bendir til að Frakkar hafni stjórnarskrá Evrópusambandsins á sunnudaginn. Óánægja með eigin hag virðist ástæða þessa frekar en grundvallarandstaða við efni og tilgang stjórnarskrárinnar. 27.5.2005 00:01
Bandaríkin viðurkenna vanhelgun Bandaríkjaher greindi frá því í gær að rannsókn hefði leitt í ljós að í fimm tilvikum hefði Kóraninn, helgirit múslima, verið vanhelgaður í fangabúðunum við Guantanamo-flóa á Kúbu. Engar sannanir fundust hins vegar fyrir því að honum hefði verið sturtað niður um klósettið. 27.5.2005 00:01
Refsirammi rúmur en dómar of vægir Ragnheiður Bragadóttir lagaprófessor segir að refsirammi kynferðisbrota sé sé rúmur og geri ráð fyrir þungum refsingum. Dómar séu hins vegar oft vægir. Dómsmálaráðherra hefur falið Ragnheiði að skoða ákvæði í kynferðisbrotakafla hegningarlaganna. 27.5.2005 00:01
20 ár fyrir fíkniefnasmygl á Balí Það varð uppi fótur og fit í dag þegar fangelsisdómur var kveðinn upp yfir liðlega tvítugri snyrtidömu fyrir eiturlyfjasmygl á Balí. Málið hefur vakið mikla athygli og hörð viðbrögð í Ástralíu, heimalandi stúlkunnar. 27.5.2005 00:01
Vantar tvöfalt meira fé í Darfur Nærri þrjú hundruð milljónum dollara hefur verið lofað til hjálparstarfa í Darfur-héraði í Súdan en það er aðeins helmingur þess sem þarf til að forða milljónum frá því að svelta. Enn herja skæruliðasveitir á óbreytta íbúa héraðsins. 27.5.2005 00:01
Beið bana í Hvalfirði Karlmaður á þrítugsaldri beið bana í umferðarslysi í Hvalfirði í gærmorgun. Slysið átti sér stað á níunda tímanum þegar flutningabíll og fólksbíll rákust saman. Hinn látni var ökumaður fólksbílsins. 27.5.2005 00:01
Enginn misskilningur Vegna ummæla Steinars Arnar Magnússonar friðargæsluliða um að misskilningur milli stofanna hefði valdið því að þeir hefðu ekki fengið bætur frá Tryggingarstofnun vill Karl Steinar Guðnason forstjóri Tryggingarstofnunar árétta að einskis miskilnings gætti af hálfu stofnunarinnar. 27.5.2005 00:01
Símtal breytti bankasölunni Selja átti Landsbankann og Búnaðarbankann til almennings og tryggja dreifða eignaraðild. Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson skiptu um skoðun og ákváðu að selja bankana til eins fjárfestis hvorn um sig eftir að Björgólfur Guðmundsson hringdi í Davíð og vildi kaupa annan hvorn bankann. 27.5.2005 00:01
Stýrðu sölu bankanna Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson tóku völdin af framkvæmdanefnd um einkavæðingu við sölu Landsbankans og Búnaðarbankans til að stýra því hver fengi að kaupa. Átökin um bankana og VÍS voru svo mikil að ríkisstjórnarsamstarfið var í uppnámi um tíma. 27.5.2005 00:01
Fallvölt ímynd í stjórnmálum Hveitibrauðsdögum nýrrar forystu Samfylkingarinnar lauk á fyrsta degi eftir tímamótalandsfund um síðustu helgi. Trúverðugleikinn er á vogarskálum þar sem Ágúst Ólafur Ágústsson verst ásökunum um að hafa beitt sviksamlegum vinnubrögðum í kjöri um embætti varaformanns.</font /></b /> 27.5.2005 00:01
Skorrdælingar velja sér framtíð Íbúar í Skorradalshreppi ákveða um næstu helgi hvort þeir vilja sameinast nágrannasveitarfélögunum eða ekki. Oddvitinn vísar því á bug að þriðjungur þeirra sem eigi lögheimili í Skorradalshreppi séu sumarbústaðareigendur úr höfuðborginni. Blaðamaður kannaði hvort sameiningarmálið væri í raun aðeins átök um auð.</font /></b /> 27.5.2005 00:01
Mesta síld í þrjátíu ár Það eru miklar gleðifréttir að norsk-íslenska síldin finnist aftur innan íslenskrar lögsögu að sögn Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna. Sjómenn segja hennar ekki hafa orðið vart í jafn miklu magni í þrjátíu ár. 27.5.2005 00:01
Dæmdir fyrir vopnaburð Þrír menn á þrítugsaldri voru dæmdir til að greiða 30 þúsund krónur hver, fyrir að bera ólögleg bitvopn á almannafæri í miðborg Reykjavíkur þann 12. apríl síðastliðinn. 27.5.2005 00:01
Ríkið dæmt til bótagreiðslna Íslenska ríkinu var gert að greiða fyrrverandi starfsmanni á sambýli fatlaðra á Blönduósi 800 þúsund krónur vegna ólöglegrar uppsagnar. 27.5.2005 00:01
Þyrla sækir vélsleðamann Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt fyrir tíu í kvöld vegna vélsleðamanns á Langjökli. Þyrlan lagði af stað 24 mínútur yfir tíu. Maðurinn fór fram af stalli og lenti harkalega. Ekki lá fyrir hve alvarlegt slysið var, en um einhvers konar bakáverka var að ræða og rétt þótti að kalla björgunarþyrluna út. 27.5.2005 00:01
Endurskoða lög um kynferðisbrot Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur falið Ragnheiði Bragadóttir lagaprófessor að semja drög að frumvarpi um breytingar á kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. Um er að ræða þau ákvæði sem eru um nauðgun og önnur brot gegn kynfrelsi fólks, kynferðisbrot gegn börnum og vændi. 27.5.2005 00:01
Bráðkvaddur í bát sínum Eldri maður lést um borð í bát sínum sem strandaði í fjöru um þrjár sjómílur frá Bolungarvík í gærmorgun. Talið er að maðurinn hafi orðið bráðkvaddur. 27.5.2005 00:01
Vélarvana við Látrabjarg Björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Patreksfirði, Vörður, var í gærmorgun kallað út vegna vélarvana báts eina og hálfa sjómílu suður af Látrabjargi. 27.5.2005 00:01
Skipaði tvo nýja sendiherra Davíð Oddsson utanríkisráðherra hefur skipað þá Helga Gíslason og Svein Á. Björnsson sendiherra frá og með næstu áramótum. 27.5.2005 00:01
Sjö sjóræningjar að veiðum Sjö svokölluð sjóræningjaskip sáust á veiðum á karfaslóð á Reykjaneshrygg í gær þegar flugvél Landhelgisgæslunnar flaug þar yfir. Sjóræningjaskipin eru togarar sem ekki hafa leyfi til veiða á fiskveiðistjórnunarsvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar. 27.5.2005 00:01
Ákærður fyrir að rassskella konu Sævar Óli Helgason er ákærður fyrir að veitast að konu sem lagði fyrir innkeyrsluna hans í fyrrahaust. Hann segir leikskólakennarann hafa vegið að sér kynferðislega og reynt að sparka í punginn á sér, hann hafi því rassskellt hana.</font /></b /> 27.5.2005 00:01
Gæsluvarðhaldið framlengt Gæsluvarðhald yfir fylgdarmanni fjögurra kínverskra ungmenna sem komu hingað á leið til Bandaríkjanna á dögunum hefur verið framlengt um viku. Maðurinn er grunaður um skipulagt mansal. 27.5.2005 00:01
Varar við byggð í eyjunum Hugmyndir borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins um íbúðabyggð á eyjunum í kringum Reykjavík eru fáránlegar, segir Jóhann Óli Hilmarsson formaður Fuglaverndunarfélags Íslands. 27.5.2005 00:01
Biðlistar á líknardeild Síðustu tvö ár hafa allt að tíu manns verið á biðlista að komast á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Þar eru nú átta rúm en til stendur að fjölga rúmunum um fjögur. Stjórn spítalans hefur sent beiðni um viðbótarfjármagn til heilbrigðisráðuneytisins en talið er að það kosti um 10 milljónir króna aukalega á ári. 26.5.2005 00:01
Krabbar í kynlífssvalli Það er fjör að fjölga sér en fyrr má nú aldeilis vera. Köngulóarkrabbar á strönd skammt frá Melbourne í Ástralíu virðast alveg gengnir af göflunum. Alla jafna fjölga krabbarnir sér í friði, dreifðir yfir stórt svæði, en í þetta sinn eru fimmtíu þúsund stykki að eðla sig á svæði á stærð við fótboltavöll. 26.5.2005 00:01
Segja Alfreð hóta samstarfsslitum Vinstri grænir segja Alfreð Þorsteinsson hóta að slíta meirihlutasamstarfinu í Reykjavík. Hótanir hans um að mynda meirihluta með sjálfstæðismönnum í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur til að selja rafmagn til stóriðju spilli viðræðum um framtíð Reykjavíkurlistans. 26.5.2005 00:01
Mannréttindum hrakar á heimsvísu Mannréttindum hrakar á heimsvísu og þau eru brotin um allan heim. Bandaríkin og framferði stjórnvalda þar er ein meginorsök þessarar þróunar, samkvæmt ársskýrslu Amnesty International. 26.5.2005 00:01
San Fransisco flugið hafið FL Group hagnaðist um 25 milljónir króna fyrstu þrjá mánuði ársins. Þetta er næstbesta afkoma félagsins frá upphafi á þessum árstíma en fyrirtækið hefur utan einu sinni tapað á fyrsta ársfjórðungi. San Fransisco er nýjasti staður félagsins og var fyrsta flugið farið síðastliðinn miðvikudag. 26.5.2005 00:01
Bóluefni þróað gegn fuglaflensu Kínverjar segjast hafa þróað bóluefni gegn fuglaflensu, bæði í fuglum og spendýrum. Samkvæmt kínverskum sérfræðingi er virkni bóluefnisins hundrað prósent og þegar hefur bóluefni verið sent til þeirra héraða þar sem flensan hefur verið skæðust. 26.5.2005 00:01
Eldur í Ingunnarskóla í morgun Eldur kviknaði í Ingunnarskóla í Grafarholti í morgun. Tilkynnt var um eldinn klukkan hálffimm. Að sögn lögreglu var kveikt í fiskikörum við skólann með þeim afleiðingum að eldur barst í þakskegg skólans og hlaust töluvert tjón af. 26.5.2005 00:01
Næsti skjálfti sá áhrifamesti Næsti jarðskjálfti í Los Angeles gæti orðið sá áhrifamesti í sögu Bandaríkjanna. Skjálftinn myndi líklega verða þúsundum að bana og myndi kosta ríkið milljarða dollara. Þetta segja sérfræðingar við háskólann í Suður-Kaliforníu sem hafa útbúið sérstaka tölvu sem mælir út hversu stórir næstu skjálftar gætu orðið. 26.5.2005 00:01
Enginn verið handtekinn í Keflavík Enginn hefur enn verið handtekinn vegna gruns um að hafa ætlað að tæla ungan dreng upp í bíl sinn við skóla í Reykjanesbæ. Lögreglan er nú að kanna þær vísbendingar sem borist hafa. 26.5.2005 00:01
Niðurstaða Samkeppnisráðs ómarktæk Niðurstaða Samkeppnisráðs um að banna auglýsingar Umferðarstofu er ómarktæk að mati Umferðarstofu þar sem reglur um vanhæfi hafi verið brotnar. Samkeppnisráð bannaði nokkrar auglýsingar sem eiga að bæta öryggi í umferðinni á þeim forsendum að þær geti misboðið börnum. 26.5.2005 00:01
Bandaríska sendiráðinu lokað Bandaríkjastjórn lokaði sendiráði sínu í Indónesíu í morgun um óákveðinn tíma vegna öryggisástæðna. Ákvörðun þessi er tekin eftir að Ástralir hvöttu sitt fólk til að fara frá landinu eftir að lögreglan í Jakarta, höfuðborg landsins, hafði varað við hugsanlegum hryðjuverkaárásum. 26.5.2005 00:01
Gunnar fær ekki biðlaun Gunnar I. Birgisson, verðandi bæjarstjóri Kópavogs, fær ekki biðlaun þegar hann lætur af því starfi. Hann tekur við starfinu af Hansínu Björgvinsdóttur um næstu mánaðamót. 26.5.2005 00:01
Takmarka ekki þátttöku kvenna Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur fellt frumvarp repúblíkana sem miðast að því að takmarka þátttöku kvenna í bardögum. Varnarmálaráðuneytið fær hins vegar að ákveða áfram hvaða stöðum konur fái að sinna innan Bandaríkjahers. 26.5.2005 00:01
Flugslys á Akureyri á morgun Flugslys þar sem flugvél með fimmtíu farþega hlekktist á verður sviðsett á Akureyrarflugvelli á morgun. Þar verða æfð viðbrögð og aðgerðir og munu á fjórða hundrað manns taka þátt í æfingunni. 26.5.2005 00:01
Æ fleiri heitir reitir hjá OgVodafone Sífellt fleiri fyrirtæki bjóða viðskiptavinum sínum upp á Heita reiti (Hot Spot), þráðlausa háhraða nettengingu, frá Og Vodafone. Um 50 veitinga- og kaffihús og ýmiss konar þjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjanesbæ og á Akureyri hafa nú þegar tekið þjónustuna í notkun. 26.5.2005 00:01
Frakkar hafni stjórnarskránni Franski hægri öfgamaðurinn Jean Marie Le Pen hélt fund í París í gær þar sem hann hvatti Frakka til að hafna stjórnarskrá Evrópusambandsins. Le Pen notaði einnig tækifærið til að leggja áherslu á mikilvægi þess að hleypa sem fæstum útlendingum inn í landið og að koma eigi í veg fyrir að Tyrkir komist inn í Evrópusambandið. 26.5.2005 00:01
Fleiri gætu hafa látist Sérfræðingar á sjúkrahúsinu í Östfold í Noregi útiloka ekki að fleiri en fimm hafi látist úr hermannaveiki undanfarnar vikur og er nú verið að rannsaka nokkur dauðsföll til að ganga úr skugga um hvernig þau bar að. 26.5.2005 00:01
Segir Hermann Jónasson föður sinn Lúðvík sem ekki er Gizurarson á leið í héraðsdóm til að sanna samband móður sinnar og Hermanns. 26.5.2005 00:01
Al-Zarqawi ekki leystur af Al-Qaida hryðjuverkasamtökin í Írak harðneita því að bráðabirgðaleiðtogi hafi verið valinn til að leiða hópinn á meðan Abu Musab al-Zarqawi nær heilsu. Hann var í gær sagður hafa særst í árás. 26.5.2005 00:01
Smitaðist líklega ekki á LHS Maðurinn sem liggur þungt haldinn á Landspítalanum með hermannaveiki er starfsmaður spítalans. Nær útilokað er talið að hann hafi smitast þar en fátítt er að fólk smitist af hermannaveiki hér á landi. 26.5.2005 00:01