Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Illskiljanleg ákvörðun Heilbrigðisyfirvöld fyrirskipa sameiningu allra heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu. Starfsfólk heilsugæslunnar í Hafnarfirði telur að ákvörðunin gangi þvert gegn fyrri yfirlýsingum heilbrigðisráðherra. Reglugerð um framkvæmd sameiningarinnar hefur ekki verið gefin út. </font /></b /> 16.4.2005 00:01
Varðist innbrotsþjófi með garðálfi Eldri kona í suðausturhluta Englands stökkti innbrotsþjófi á brott með því að kasta í hann einni dvergastyttunni sem hún hafði í garðinum sínum. 16.4.2005 00:01
Settu á svið stórslys í göngum Rúta og fólksbíll lentu í árekstri í Hvalfjarðargöngunum í dag og það kviknaði í þriðja bílnum þegar hann keyrði á vegg við slysstaðinn. Þetta gerðist sem betur fer ekki heldur var svona slys sviðsett í göngunum í dag í æfingaskyni. 16.4.2005 00:01
Yfirvöld geta illa hamið almenning Tugþúsundir Kínverja létu ófriðlega og lögðu japanskar stofnanir í rúst í dag. Kínversk yfirvöld virðast eiga erfitt með að hemja reiði almennings. 16.4.2005 00:01
Tölvupóstur verður dulkóðaður Til skoðunar er að dulkóða tölvupóst á milli starfsmanna ráðuneytanna til að koma í veg fyrir að viðkvæm mál berist til óviðkomandi. Dæmi eru um að mál er varða þjóðaröryggi hafi lent í röngum höndum. 15.4.2005 00:01
Fimmtán látnir í eldsvoða í París Að minnsta kosti fimmtán manns létust í eldsvoða sem varð á hóteli í miðborg Parísar í nótt. Meira en fimmtíu manns eru slasaðir, þar af nærri tuttugu lífshættulega. 250 slökkviliðsmenn voru þegar sendir á vettvang og tókst þeim að slökkva eldinn á neðstu hæðum hússins um klukkan þrjú í nótt. Snemma í morgun var þó enn einhver eldur á efri hæðum hótelsins, sem er á sex hæðum, og nokkir hótelgestir lokaðir þar inni. 15.4.2005 00:01
Farið fram á gæsluvarðhald Lögreglan á Akureyri krafðist í gærkvöldi gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir þremur mönnum, sem handteknir voru í fyrrakvöld með 350 grömm af hassi í fórum sínum við komuna til Akureyrar frá Reykjavík. Smásöluandvirði hassins gæti numið allt að 900 þúsundum. Tveir mannanna hafa áður gerst brotlegir við lög, meðal annars fyrir fíkniefnabrot, líkamsárásir og hótanir. 15.4.2005 00:01
Höfnun yrði áfall fyrir Evrópu Hafni Frakkar stjórnarskrá Evrópusambandsins, yrði það áfall fyrir sameinaða Evrópu. Þetta sagði Jacques Chirac Frakklandsforseti í sjónvarpskappræðum með ríflega áttatíu ungmennum í gærkvöldi. Chirac lét móðan mása um mikilvægi sameinaðrar Evrópu sem mótvægis við Bandaríkin, Kína og Indland. 15.4.2005 00:01
Handteknir eftir fíkniefnaleit Lögreglan í Kópavogi handtók í nótt tvo menn eftir að fíkniefni fundust við leit í bíl þeirra og við húsleit heima hjá öðrum þeirra. Alls fundust 20 grömm af amfetamíni, 20 e-töflur og 20 grömm af hassi og eru mennirnir grunaðir um að hafa ætlað að selja efnin. Þeim var sleppt undir morgun að yfirheyrslum loknum en rannsókn málsins heldur áfram. 15.4.2005 00:01
Létust í tilræði við Bandaríkjaher Lík nokkurra óbreyttra írakskra borgara lágu á víð og dreif utan við veitingastað í Bagdad í morgun eftir bílsprengingu í nágrenninu. Að minnsta kosti fjórir slösuðust í árásinni sem beint var að bandarískri herbifreið sem átti leið hjá. Þá var einnig gerð sprengjuárás á bifreið írakskra þjóðvarðliða í Bagdad í morgun og þar féll einn í valinn og þrír særðust. 15.4.2005 00:01
Meiddist á fæti í vélsleðaslysi Ung kona slasaðist alvarlega á fæti þegar hún féll af vélsleða nálægt Skriðutindum á hálendinu norður af Laugarvatni laust fyrir klukkan níu í gærkvöldi. Hún var í hópi með fimm öðrum vélsleðamönnum og var þegar óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. 15.4.2005 00:01
Nýir menn í alþjóðageimstöðina Þriggja manna áhöfn lagði í gær í tveggja daga ferð til alþjóðageimstöðvarinnar. Geimferjunni var skotið upp frá geimstöð Rússa í Kasakstan og heppnaðist geimskotið vel. Í áhöfninni eru Rússi, Bandaríkjamaður og Ítali. Rússinn og Bandaríkjamaðurinn taka við stjórn geimstöðvarinnar þegar þangað kemur og verða geimfararnir tveir í stöðinni næsta hálfa árið. 15.4.2005 00:01
Hugðust borga lyf með skartgripum Karl og kona í annarlegu ástandi voru handtekin i lyfjaverslun í Kópavogi undir kvöld þar sem fólkið reyndi að greiða fyrir lyf með skartgripum. Strax vaknaði grunur um að þarna væri fólkið sem rændi skartgripum úr verslun við Skólavörðustíg síðdegis og beitti eigandann valdi. 15.4.2005 00:01
Nagladekkin af í dag Framkvæmdasvið Reykjavíkur vekur athygli á því að frá og með deginum í dag er óheimilt að aka á nagladekkjum í borginni og liggja sektir við slíku. Lögregla gengur þó ekki hart fram í að framfylgja banninu fyrstu dagana enda er víða mikið að gera á dekkjaverkstæðum og fólk getur þurft að koma seinna. 15.4.2005 00:01
Hundrað enn saknað í verksmiðju Enn finnast lík í rústum fataverksmiðjunnar sem hrundi í Bangladess um helgina og er tala látinna komin upp í 50. Um það bil hundrað manns er enn saknað og eru björgunarmenn úrkula vonar að finna fleiri á lífi. Verksmiðjan var fimm hæða há og hrundi hún til grunna. 15.4.2005 00:01
Stjórn Berlusconis riðar til falls Kristilegir demókratar á Ítalíu hafa ákveðið að segja sig úr ríkisstjórn Silvios Berlusconis. Ákvörðunin er áfall fyrir Berlusconi þrátt fyrir að leiðtogar flokksins kveðist ætla að styðja stjórnina áfram. Fjórir ráðherrar flokksins hverfa nú úr stjórn og er málum þá svo komið að Berlusconi er nánast neyddur til að segja af sér og efna til nýrra kosninga. 15.4.2005 00:01
Væsir ekki um kardínálana Nú er hún Snorrabúð stekkur sagði skáldið en það er ekki hægt að segja um vistarverur kardínálanna sem velja í næstu viku nýjan páfa. Þvert á móti. Þegar Karol Wojtyla tók þátt í páfavali árið 1978 gisti hann í hálfgerðum klefa án nokkurra þæginda. Þeir sem velja eftirmann Karols, sem síðar varð Jóhannes Páll páfi annar, hafa það öllu þægilegra. Hver þeirra mun gista hálfgerðri svítu með öllum helstu þægindum. 15.4.2005 00:01
Rekinn úr skóla vegna farða Nemandi í framhaldsskóla í San Bernardino í Kaliforníu er ósáttur við að hafa verið vísað úr skóla. Hann segir ástæðuna þá að hann gengi um með varalit á vörum og farða í kinnum. Hann lítur svo á að hann hljóti að mega ganga þannig um ef stúlkurnar í skólanum mega það. Að auki tengist farðinn heiðingjatrú hans. Skólayfirvöld vilja ekki tjá sig um málið. 15.4.2005 00:01
Blaðamenn sýknaðir í Simbabve Dómstóll í Simbabve komst fyrir stundu að þeirri niðurstöðu að tveir breskir blaðamenn hefðu ekki gerst brotlegir við lög þegar þeir dvöldu lengur í landinu en vegabréfsáritanir heimiluðu. Blaðamennirnir, sem starfa fyrir <em>Sunday Telegraph</em>, voru handteknir í kringum kosningarnar í landinu og einnig sakaðir um að starfa án heimildar í Simbabve. 15.4.2005 00:01
Tré gróðursett til heiðurs Vigdísi Í tilefni af 75 ára afmæli Vigdísar Finnbogadóttur í dag hefur stjórn Landverndar ákveðið að gróðursetja 75 bjarkir í við fræðasetur samtakanna við Alviðru undir Ingólfsfjalli. Í tilkynningu segir að trén muni mynda Vigdísarrjóður og verða skjól þeim börnum sem í framtíðinni munu sækja fræðslu og útvist í Alviðru, en á hverju ári sækja um 2.000 skólabörn Alviðru heim. 15.4.2005 00:01
Mesti eldsvoði í París í 20 ár Tuttugu fórust þegar hótel í miðborg Parísar brann nánast til grunna í morgun. Þetta er mesti eldur í borginni í tvo áratugi. Auk þeirra tuttugu sem týndu lífi eru meira en fimmtíu manns slasaðir, þar af nærri tuttugu lífshættulega. 15.4.2005 00:01
Vegagerðin sýknuð af kröfum ÍAV Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun Vegagerðina af bótakröfum Íslenskra aðalverktaka og verktakafyrirtækisins NCC sem fyrirtækin gerðu í kjölfar þess að gerð Héðinsfjarðarganga var blásin af á sínum tíma. 15.4.2005 00:01
Meðalverð lóða ríflega 100% hærra Meðalverð á einbýlishúsalóðum í Norðlingaholti var vel á annað hundrað prósentum hærra í tilboðunum, sem opnuð voru í gær, en í tilboðunum í júní í fyrra. Þá er lóðaverð vegna íbúðar í fjölbýlishúsi orðið hærra en einbýlishúsalóð kostaði fyrir nokkrum misserum. 15.4.2005 00:01
Ákærður fyrir manndráp Þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir manndráp fyrir að hafa banað eiginkonu sinni á heimili þeirra í Kópavogi í nóvember í fyrra. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag. 15.4.2005 00:01
Í 10 daga gæsluvarðhald Héraðsdómur Norðurlands úrskurðaði fyrir stundu tvo menn í gæsluvarðhald í allt að tíu daga og einn í allt að þrjá daga, en mennirnir voru handteknir í fyrrakvöld með 350 grömm af hassi í fórum sínum við komuna til Akureyrar frá Reykjavík. Smásöluandvirði hassins gæti numið allt að 900 þúsundum. 15.4.2005 00:01
Undrast hlutleysi Ágústs Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður tilkynnti í morgun að hann gæfi kost á sér til embættis varaformanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í maí. Ágúst Ólafur er 28 ára og var kjörinn á þing í kosningunum árið 2003. Samfylkingarmenn sem fréttastofa ræddi við í morgun eru undrandi á yfirlýsingum Ágústs um að hann ætli engan að styðja til formannskjörs. 15.4.2005 00:01
Ríkisstjórn á brauðfótum Pólitískt líf Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, hangir á bláþræði eftir að enn einn flokkurinn sagði sig úr ríkisstjórn hans í morgun. 15.4.2005 00:01
Safna fé fyrir börn á Indlandi Árleg söfnun ABC barnahjálpar, Börn hjálpa börnum, hófst í morgun og voru það Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, sem hleyptu söfnuninni af stað með táknrænum hætti. Að þessu sinni verður safnað fyrir stórri byggingu á Heimili litlu ljósanna á Indlandi þar sem svefnaðstaða verður fyrir 800 drengi, en áætlaður byggingarkostnaður er um 10 milljónir króna. 15.4.2005 00:01
Chirac sakaður um hræðsluáróður Frakkland hættir að vera til innan Evrópusambandsins hafni Frakkar evrópskri stjórnarskrá í kosningum, segir Jacques Chirac, forseti landsins. Gagnrýnendur saka hann um hræðsluáróður. 15.4.2005 00:01
Ofbeldisverkum fjölgar aftur Ofbeldismenn láta nú í vaxandi mæli til sín taka í Írak og mannfall er þar töluvert. Ekki færri en fjórir fórust í fjölda hryðjuverkaárása víðs vegar um landið í morgun. 15.4.2005 00:01
Athyglin dregin frá kjarna málsins Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að forseti Alþingis hafi beitt gamaldags aðferðafræði í pólitík og dregið athyglina frá kjarna málsins með því að víta hann á þinginu. 15.4.2005 00:01
Hjólbörumálið hluti formannsslags Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi segir sorglegt ef hjólbörumál Ingibjargar Sólrúnar þýði að setja þurfi reglur um að einkanotkun borgarstarfsmanna á tækjum borgarinnar. Steinunn V. Óskarsdóttir borgarstjóri segir ekkert athugavert í málinu nema afskipti annarra flokka af formannsslag í Samfylkingunni. Össur Skarphéðinsson tjáir sig ekki. 15.4.2005 00:01
Rainer fursti borinn til grafar Rainer fursti af Mónakó var borinn til grafar í dag en hann lést í síðustu viku, 81 árs að aldri, eftir erfið veikindi. Jarðarför furstans fór fram í dómkirkjunni í Mónakó, á sama stað og hann gekk að eiga leikkonuna Grace Kelly fyrir tæpum fimmtíu árum, en hann var jarðsettur við hlið hennar. Fjöldi fyrirmenna var við jarðarförina, þar á meðal flestar konungsfjölskyldur Evrópu. 15.4.2005 00:01
Undirbýr leyfi til olíurannsókna Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hefja undirbúning að því að veita olíufyrirtækjum leyfi til rannsókna og vinnslu á olíu á landgrunni Íslands. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra lagði fram greinargerð um málið á ríkisstjórnarfundi í dag og samþykkti ríkisstjórnin áætlun sem gerir ráð fyrir að nauðsynlegum undirbúningi til að bjóða fram leyfi verði lokið í ársbyrjun 2007. 15.4.2005 00:01
Sló pabba gamla við Fimmtán ára stúlka hefur slegið föður sínum við með því að vera fljótari en hann þvert yfir Baffin-eyju í Norðaustur-Kanada. Það tók hina ensku Aliciu Hempleman-Adams aðeins tíu daga að ganga og renna sér á skíðum 240 kílómetra leið yfir heimskautaeyjuna þar sem hún glímdi meðal annars við fjörtíu stiga frost ásamt þremur félögum sínum. 15.4.2005 00:01
Minni afla landað á Ísafirði Mikill samdráttur hefur orðið í lönduðum afla á Ísafirði fyrstu þrjá mánuði ársins, miðað við sömu mánuði í fyrra. Þetta kemur fram á vef <em>Bæjarins besta</em> í dag. Þar segir að á fyrstu þremur mánuðum ársins hafi rúmlega 2.700 tonnum verið landað af sjávarfangi á Ísafirði, miðað við rúmlega 4.250 tonn á sama tímabili í fyrra og hljóði samdrátturinn því upp á rúmlega 37 prósent á milli ára. 15.4.2005 00:01
Flestum starfsmönnum sagt upp Útlit er fyrir að tæplega fimm þúsund starfsmönnum MG Rover bílaverksmiðjanna í Bretlandi verði sagt upp um helgina, en tilraunir til að bjarga fyrirtækinu frá gjaldþroti hafa runnið út í sandinn. Búist er við að um þúsund manns muni starfa áfram hjá fyrirtækinu í Birmingham, í það minnsta tímabundið, en samningaviðræður við kínverska fjárfesta um yfirtöku í síðustu viku fóru út um þúfur og því fór fyrirtækið í greiðslustöðvun. 15.4.2005 00:01
Þúsundir þjást af fótaóeirð "Eins og gosvatn renni um æðar eða ormar skríði undir húð."Þannig lýsir yfirlæknir á geðsviði Landspítala háskólasjúkrahúss fótasjúkdómi sem er algengur meðal landsmanna. Umfangsmiki, rannsókn er nú að hefjast á lyfi gegn honum. </font /></b /> 15.4.2005 00:01
Reykháfur á Sixtínsku kapelluna Reykháfi var í dag komið fyrir á Sixtínsku kapellunni, en það er liður í undirbúiningi þess að velja nýjan páfa. Kardínálar koma saman í kapellunni á mánudaginn kemur til að velja páfa og munu þeir ekki koma út úr henni fyrr en nýr páfi hefur verið kjörinn. Úr reykkáfnum munu koma svartur og hvítur reykur sem sýna það hverngi páfakjör gengur. 15.4.2005 00:01
Ræða uppsagnir vegna vinnuálags Mikið og langvarandi vinnuálag á starfsfólki Landspítalans hefur orðið til þess að hreyfing er komin á hjúkrunarfræðinga þar. Kvartanir streyma inn til Sjúkaliðafélagins og ljósmæður mæta jafnvel hálflasnar í vinnuna. </font /></b /> 15.4.2005 00:01
Fékk dæmdar dánarbætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Tryggingamiðstöðina til að greiða 25 ára gamalli konu tæplega 11 milljónir króna í vátryggingarbætur vegna andláts sambýlismanns hennar. Maðurinn lést í janúar árið 2000 þar sem hann var í ferðalagi á Spáni en hann og konan höfðu verið í sambúð í Keflavík frá árinu 1998. 15.4.2005 00:01
Hvetja til afgreiðslu frumvarps Ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem skorað er á allsherjarnefnd Alþingis að hleypa frumvarpi um niðurfellingu fyrningarfrests í kynferðisafbrotamálum gegn börnum út úr nefndinni og leyfa Alþingi að afgreiða frumvarpið á lýðræðislegan hátt í samræmi við þingskaparlög en frumvarpið hefur legið óafgreitt hjá nefndinni í hartnær tvö ár. 15.4.2005 00:01
Banna kveikjara í flugi Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa lagt bann við því að einstaklingar hafi sígarettukveikjara á sér eða í handfarangri í flugi til og frá Bandaríkjunum. Bannið sem gildir um allar tegundir kveikjara tók gildi í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugmálatjórn á Keflavíkurflugvelli. 15.4.2005 00:01
Náið samstarf mikilvægt Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, segir að niðurstaða málþings verkalýðshreyfingarinnar um ólöglegt erlent vinnuafl hafi verið sú að samstarf verkalýðshreyfingarinnar og samtaka á almennum vinnumarkaði við stjórnvöl sé mikilvægt. 15.4.2005 00:01
Auka kvóta til jafns við Norðmenn Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að íslenskum skipum verði heimilt að veiða 157.700 lestir af norsk-íslenskri síld á þessu ári, en það er 14 prósentum stærri hlutur en Íslendingum var ætlaður samkvæmt vísindaráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins. Þessi aukning er jöfn aukningu Norðmanna á kvóta sínum úr stofninum að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu. 15.4.2005 00:01